Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Ömurleg vist í heilt ár í íbúö yfir eiturlyíjabæli við Laugaveginn:
Verð að vígbúast til
að halda pakkinu úti
- segir Þorvaldur Ottósson sem lenti á slysadeild
„Ég verö bókstaflega aö vígbúast
hér í húsinu. Ég er búinn að setja
skrúfbolta í gegnum dyrastafinn og
plast í gluggana til að halda pakk-
inu úti,“ segir Þorvaldur Ottósson,
íbúi í húsi við Laugaveginn, í sam-
tali við DV.
Aðfaranótt sunnudagsins voru
allar rúður í k;allara hússins brotn-
ar vegna illdeilna sem upphófust
milli fólks sem var í samkvæmi inni
í húsinu og manns sem ekki fékk að
koma inn. Lögreglan kom á staðinn
og skakkaði leikinn eins og oft áður.
Atvikið nú um helgina segir Þor-
valdur að sé dæmigert fyrir ástand-
ið á húsinu. Hann býr á efri hæð en
í kjallaranum er leigjandi sem er
skjólstæðingur félagsmálastofnun-
ar. Hjá honum er oft gestkvæmt og
segir Þorvaldur að vart falli úr
kvöld svo að ekki sé þar háreysti og
læti í gestum sem ýmist eru inni
eða úti.
„Það er hreinasta helvíti að búa
við þetta og allar tilraunir tU að
losna við ófögnuðinn virðast von-
lausar. Lögreglan kemur og hreins-
ar út úr bælinu þegar allt keyrir úr
hófi en svo hefjast sömu lætin að
nýju,“ segir Þorvaldur. Hann hefur
klagað um 30 sinnum tU lögreglunn-
ar á einu ári.
Eigandi íbúðarinnar leigir hana
félagsmálastofnun. Eigandinn viU
ekki leggja í þann kostnað sem því
fylgir að bera leigjandann út og íbú-
ar í húsinu geta lítið aðhafst annað
en að leggja fram kvartanir. Árang-
ur af þeim hefur þó enginn orðið tU
þessa.
„Það virðist sem ekkert haldi
þeim úti sem ætla sér í samkvæmi
hér í kjallaranum. Þeir brjóta sér
leið inn og nú um helgina tókst mér
að hrinda einum öfugum út um
þvottahússgluggann. Hann náði þó
að sparka í höfuðiö á mér áður
þannig að ég varð að fara á slysa-
deild og láta sauma mig,“ segir Þor-
valdur.
Utan við húsið liggja brot úr hús-
gögnum sem einu sinni hafa verið í
kjaUaraíbúðinni. Er þetta timbur
notaö tU að brjóta rúður þegar gest-
ir vUja komast inn. Þorvaldur segist
þess fuUviss að í íbúðinni sé eitur-
lyfja neytt enda vitni fjölmargar
sprautur um það.
Á baklóðinni hefst fólk einnig við
í skúr og þar er ástandið svipað.
Óboðnir géstir brjóta rúður til að
komast inn eða nota staut til að
brjóta upp útidyrahurðina.
„Ég veit ekki hvað ég á að gera tU
að fá frið. Samkvæmunum i kjaUar-
anum fylgir endalaus hávaði og læti
allar nætur og það virðist sem ekk-
ert sé hægt að gera,“ segir Þorvald-
ur.
Lögreglan segir að undanfarið
hafi verið mikið ónæði af íbúum í
kjallaranum og oft hafi þurft að
hafa afskipti af fólki þar. í síðustu
viku var t.d. tvívegis „hreinsað út“
úr íbúðinni.
-GK
eftir slagsmál við óboðinn gest
Þorvaldur Ottósson segir að í heilt ár hafi ekki verið friður í húsinu sem hann
býr í við Laugaveginn. Um helgina voru t.d. allar rúður í kjallaranum brotnar
af manni sem vildi ólmur komast í samkvæmi. DV-mynd ÞÖK
Páll Óskar með hálsríg eftir árekstur:
Mjög gott að lenda í þessu slysi
- slapp ómeiddur en bíllinn gjörónýtur
„Sem betur fer urðu engin slys á
fólki en bíllinn minn er gjörónýtur.
Ég er bara með smáhálsríg. Ég við-
urkenni fúslega að þetta gerðist
vegna hamagangsins í mér. Ég
þurfti að flýta mér út á flugvöll,"
sagði söngvarinn Páll Óskar Hjálm-
týsson í samtali við DV í gær en á
föstudaginn lenti hann í árekstri á
Kvikmyndin um ævi og störf
Jóns Leifs, Tár úr steini, eftir Hilm-
ar Oddsson var af áhorfendum kvik-
myndahátíðarinnar í Gautaborg um
helgina valin besta norræna mynd-
in. Þetta var í fyrsta sinri sem kvik-
myndin var sýnd á stórri kvik-
myndahátíð á erlendum vettvangi.
Þetta voru stærstu verðlaun hátíð-
arinnar en sérstök dómnefnd valdi
sænska heimildarmynd bestu
myndina.
Ekki náðist í Hilmar í Gautaborg
en Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld
Suðurlandsvegi við Rauðavam. Hann
var einn á ferð í sínum bíl og ökumað-
ur og farþegar í hinum bílnum sluppu
einnig ómeiddir. Páll Óskar þurfti að
aflýsa tónleikum á Sauðárkróki á
fóstudagskvöldið þar sem hann komst
ekki í flugvélina í tæka tíð.
Páll Óskar sagði að þetta væri í
fyrsta sinn á ævinni sem hann lenti
og einn handritshöfunda myndar-
innar, sagði í samtali við DV að
verðlaunin í Gautaborg kæmu sér
vel.
„Þetta er það besta sem getur
komið fyrir myndina á Norðurlönd-
um, hvað varðar sölu og kynningu.
Verðlaunin hjálpa okkur að koma
myndinni að í stórum keppnum,
eins og t.d. í Cannes. íslenskar kvik-
myndir hafa verið sýndar áður í
Cannes en ekki í keppninni sjálfri,“
sagði Hjálmar.
í umferðaróhappi. Hann hefði hins
vegar ekkert orðið skelkaður.
„Ég vil segja það að mér fannst
mjög gott að lenda í þessu bílslysi.
Maður er búinn að vera eitthvað
„down“ i janúar og febrúar og mér
fannst þetta mjög hressandi. Maður
þakkar guði fyrir að allt fór vel,
bæði hjá mér og fólkinu í hinum
Tólf ára drengur hlaut alvarleg
innvortis meiðsl þegar hann renndi
sér á skíðum á stein utan brautar í
Skálafelli í gær. Fékk hann steininn
í kviðinn. Þyrla sótti drenginn og
flutti hann á Sjúkrahús Reykjavík-
ur.
Þyrlan hafði skömmu áður verið
kölluð út vegna skíðagöngumanns
sem fékk hjartaáfall í Hveradölum.
Var maðurinn látinn þegar fyrstu
bílnum. Mér er nákvæmlega sama
um þennan bíl minn. Hann má fara
á haugana. Ég ætla að fara á þriðju-
daginn og kaupa mér einhvem æðis-
legan blásanseraðan poppstjörnubíl
og vera ekki með neina Mözdu-stæla.
Þessir japönsku bílar verða bara að
smjöri ef þeir lenda í einhverju
svona,“ sagði Páll Óskar. -bjb
björgunarmenn komu á staðinn og
var því þyrlunni snúið í Skálafell.
Erilsamt hefur verið fyrir sjúkra-
flutingamenn í skíðalöndunum við
Reykjavík um helgina enda fjöl-
mennt í brekkunum. Tvær ferðir
voru farnar eftir slösuðu fólki í Blá-
fjöll og Skálafell á laugardaginn. í
Bláfjöllum hafði ung stúlka fallið úr
lyftu og hlaut hún meiðsl á baki.
-GK
Stuttar fréttir
Solana að koma
Javier Solana, nýr fram-
kvæmdastjóri NATO, er væntan-
legur til íslands í opinbera heim-
sókn nk. miðvikudagskvöld og
stendur hún til síðdegis á
fimmtudag. Solana mun funda
með Davíð, Halldóri og utanríkis-
nefnd.
Snýst um peninga
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, óp-
erusöngkona og eiginkona Jóns
Stefánssonar organista, segir í
viðtali viö tímaritið Nýtt líf, sem
kemur út í dag, að deilan i Lang-
holtskirkju snúist fyrst og fremst
um peninga.
Kristinn Jens efstur
Kristinn Jens Sigurþórsson,
prestur á Þingeyri, fékk 39,5% at-
kvæða í prestskosningu í Saur-
bæjarprestakalli um helgina. Þar
sem Kristinn náði ekki meira en
helmingsfylgi telst kosningin
ólögmæt en Kristinn verður
væntanlega skipaður í embættið
af biskupi.
DNA-rannsóknir hér
Bogi Nilsson, rannsóknarlög-
reglustjóri ríkisins, segir tíma-
bært að ákveða að DNA-rann-
sóknir fari fram hér á landi. Rík-
issjónvarpið greindi frá þessu.
Óánægðir sjómenn
Loðnusjómenn eru óánægðir
með verð fyrir frysta loðnu. Sam-
kvæmt frétt RÚV telja sumir
þeirra hagkvæmara að landa öUu
í bræðslu.
-bjb
Tveir á
slysadeild
Tveir menn fóru á slysadeild
eftir harða aftanákeyslu í Kópa-
vogi í gærdag. Mennirnir kvört-
uðu undan eymslum í hálsi en
ekki var vitað hve alvarleg þau
vont.
Áreksturinn varð skammt
norðan viö Gjána og er óhappið
rakið til þess að annar ökumað-
urinn blindaðist í sólinni. -GK
-bjb
904-1600
Hvort viltu brú eða göng
undir Hvalfjörð?
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já jJ
Nel 2]
Tár úr steini verðlaunuð í Gautaborg:
Hjálpar okkur að
koma myndinni í
stóra keppni
- segir Hjálmar H. Ragnarsson
Tólf ára gamall drengur var í gær fluttur með þyrlu á sjúkrahús eftir að hann
hafði slasast alvarlega í skíðabrekkunum í Skálafelli. DV-mynd S
Skíðalöndin:
Slasaðist alvar-
lega innvortis