Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Qupperneq 26
38
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Sameiningarmál á VestQöröum:
Vonum að
Framsókn
verði með
- segir Björn Hafberg
„Við funduðum í dag (í gær) og
framsóknarmenn sendu enga yfir-
lýsingu inn á fundinn. Við gerum
okkur þvi enn vonir um að þeir
verði með og að hægt verði að
mynda breiðfylkingu sem ótvírætt
næði til allra, að fulltrúar úr öllum
byggðum kæmu að þessu máli ,“
segir Björn Hafberg, fulltrúi Al-
þýðuflokksins í nefnd sem ræðir
sameiningarmál til sveitarstjómar-
kosninga á Vestfjörðum. Alþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag, Kvenna-
listi, Vestfjarðalisti Péturs Bjama-
sonar og óháðir em í viðræðum um
sameiningu.
Bjöm segir að enn sé ekki farið
að reyna á málefnin, í gær hafi
menn aðeins lýst eindregnum vilja
til þess aö halda áfram þessum við-
ræðum og að bærileg bjartsýni ríki
um að þetta muni geta gengið. Á
fúndi á miðvikudag ætti að skýrast
hvaða líkur eru á því að flokkamir
nái saman því þá verða málefni
rædd af alvöra. -sv
Sjómenn á Flateyri ósáttir með kjör sín:
Samningarnir
verða
örugglega felldir
- segir Magnús Ingi Björgvinsson
„Við lækkuðum nokkuð í launum
við samningana frá því í júní en þá
fór ekki fram nein kosning. Menn
em ósáttir við kjörin og seinna í
vikunni munum við kjósa um þessa
samninga. Ég á ekki von á öðra en
að þeir verði felldir," segir Magnús
Ingi Björgvinsson, trúnaðarmaður
áhafnarinnar á línubátnum Gylli,
en hann segir gömlu samningana
taka gildi aftur um leið og ef nýju
samningamir yrðu felldir. Áhafnir
fjögurra báta á Flateyri munu segja
skoðun sína á málinu á fimmtudag
eða föstudag nú í vikunni.
Magnús segir menn vonast til að
útgerðin muni greiða eftir gömlu
samningunum til baka til þess tíma
er nýju samningamir voru teknir í
gagnið verði þeir felldir. Hann segir
það hafa verið gert bæði á Tálkna-
firði og Patreksfirði.
„Við eram líka mjög ósáttir með
það verð sem við fáum fyrir fiskinn
og munum senda það mál fyrir
verðlagsnefnd ef ekki nást samning-
ar um það. Fiskverðið er það sama
og var í október 1994 og það finnst
okkur óþolandi,“ segir Magnús.
-sv
L
LANDSVIRKJUN
Kvíslaveita - 5. áfangi
Landsvlrkjun óskar hér með eftir tilboðum í gerð 5. áfanga Kvíslaveitu í samræmi við
útboðsgögn KV(-50.
Verkið felur I sér að veita upptakakvislum Þjórsár austan Hofsjökuls f núverandi Kvfslaveitu
með þvi að byggja stiflur I Þjórsá og Austurkvisl, grafa skurð, byggja botnrás f stíflu með öll-
um tilheyrandi búnaði, leggja veg og byggja brú. Helstu magntölur eru áætlaðar:
Fyllingar f stfflun 325.000 rúmmetrar
Steypa f botnrás 2.000 rúmmetrar
Gröftur 750.000 rúmmetrar
Verktaki skal Ijúka verkinu eigi síðar en 1. desember 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrífstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,103 Reykjavik, frá
og með miðvikudeginum 14. febrúar 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 10.000 m.
vsk fyrir hvert eintak. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 26. mars
1996.
Tilboðin verða opnuð I stjómstöð Landsvirkjunar að Bústaðavegi 7, Reykjavfk, sama dag,
26. mars 1996, kl. 14.00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt að vera viðstaddir opnunina.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tiiboöum í efni
og vinnu við parketlökkun í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: þriðjud. 27. febr. nk. kl. 11.00.
bgd 15/6
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
endurmálun á fasteignum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: fimmtud. 22. febr. nk. kl. 11.00.
bgd 16/6
L.
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
-I
Góð þátttaka var í eldvarnagetraun Brunavarnaátaksins sem efnt var til jafnhiiða heimsóknum í skólana. Um það bil
30 þúsund svör bárust til félagsins sem sýnir best hve frábærar viðtökurnar voru. Dregið var úr innsendum lausn-
um 21 barns og fengu þau meðal annars fjölskylduspilið Trivial Pursuit í verðlaun.
Liðþjálfinn sem leiddur var fyrir herrétt:
Hótaði að drepa
eitt vitnanna
Bandaríski liðþjálfmn á Keflavík-
urflugvelli, sem leiddur var fyrir
herrétt í síðustu viku vegna árásar
á íslenska stúlka í heimahúsi í
Reykjavík sL haust, hótaði vinkonu
stúlkunnar lífláti ef hún byði sig
fram sem vitni í málinu. Vinkonan
lét morðhótunina ekki hafa áhrif á
sig og bar vitni fyrir herréttinum.
Eins og kom fram í DV í síðustu
viku féll stúlkan frá kæra á hendur
liðþjálfanum og kom málið því
aldrei fyrir íslenska dómstóla. Yfir-
menn hersins líta málið hins vegar
mjög alvarlegum augum, sam-
kvæmt heimildum DV.
Sömu heimildir DV herma að lið-
þjálfinn hafi mútað stúlkunni fyrir
að kjafta ekki frá og greitt henni
fyrir um 100 þúsund krónur í pen-
ingum. Af þeim sökum mun hún
ekki hafa þorað að kæra manninn. I
-bjb
Andstæðingar Hæstaréttarhúss enn þá sömu skoðunar:
Aðgengi fatlaðra ábótavant
- segir Guðrún Jónsdóttir arkitekt
„Ég er óskaplega ólukkuleg yfir
því að við skyldum ekki fá faflegan
garð í tengslum við Amarhól. Ég er
enn þá sömu skoðunar og mínar at-
hugasemdir við þetta hús hafa afltaf
beinst að staðsetningu þess,“ segir
Guðrún Jónsdóttir arkitekt í sam-
tali við DV. Guðrún var ein þeirra
sem settu sig upp á móti staðsetn-
ingu byggingar Hæstaréttarhúss að
Lindargötu 2 á mifli Safnahússins
og Amarhváls. Húsið er nú risið og
ráðgert að það verði tilbúið í haust.
í mars árið 1994 sagði Guðrún í
samtali við DV að byggingamar í
kring væra mjög „sterkir einstak-
lingar" og hús Hæstaréttar myndi
skyggja á þær.
„Mér finnst vera orðið afltof
þröngt um þessar byggingar því
Meö trollið f
skrúfunni
Færeyskur rækjutogari var í
gær dreginn til Reykjvíkur eftir
að hann hafði fengið trollið í
skrúfuna á miöunum við austur-
strönd Grænlands.
Annar færeyskur togarinn dró
skipið áleiðis til Reykjavíkur og
tóku hafnsögubátar við drættin-
um á Sundunum.
í gær unnu kafarar við að skera
tollið úr. -GK
Ásökunum á
lögreglumann
vísað frá
Ríkissaksóknari hefur vísað frá
máli á hendur lögreglumanni á
Sauðárkróki en hann var í haust
sakaður um að hafa beitt mann
harðræði við handtöku. Segir í
bréfi frá saksóknara að ekki verði
„af ákæruvaldins hálfu krafist
frekari aðgerða" i málinu.
-GK
þetta era allt saman fallegar bygg-
ingar. Mín afstaða hvað þetta snert-
ir er óbreytt. Ég tek það fram að ég
er ekki að gagnrýna húsið heldur
staðsetningu þess,“ segir Guðrún.
Guðrún segir að gagnrýna megi
hönnun hússins að því leyti að
hagsmunir fatlaðra hafi verið snið-
gengnir. Fatlaðir komast inn í hús-
ið segir Guðrún en ekki um það.
„Inni í húsinu er stór rampi sem
fólk í hjólastól ræður ekki við. Þetta
sjónarmið hefur komið fram en því
hefur ekki verið sinnt. Húsið upp-
fyllir ákvæði reglugerðar um rampa
eða skábrautir utanhúss en það dug-
ir ekki til innanhúss. Inni í húsinu
er braut sem er alltof löng,“ segir
Guðrún.
Skúli Norðdahl var einn þeirra
sem andmæltu staðsetningu húss-
ins. Ef eitthvað er hefur hann
harðnað í afstöðu sinni til hússins.
„Mér finnst alveg hræðilegt að
fara þama um. Því miður hefur
þetta orðið að yeruleika sem ekki
tókst að hindrá. Aflt sem ég sagði
áður um húsið hefur sannast. í
fyrsta lagi er húsið vitlaust staðsett.
í öðru lagi hafa hugmyndir um
notagildi þess, kostnað og bygging-
artíma ekki staðist,“ segir Skúli.
„Þetta er alveg fáránleg fram-
kvæmd og það era æ fleiri sem ég (
hitti á götu sem hafa orð á því hvers
konar fáránleika ákvörðun þetta sé.
Mér er svo mikið niðri fyrir að vita
af þessu. AUt bendir til þess að hús-
ið sé komið fram úr kostnaðaráætl-
Eyjafjörður
kynntur erlendum
fjárfestum
Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Iðnþró-
unarfélag Eyjafjarðar og Atvinnu-
málaskrifstofa Akureyrar hafa gert
samstarfssamning við Fjárfestinga-
skrifstofu íslands um að unnið
verði að kynningu Eyjafjarðarsvæð-
isins meðal erlendra fjárfesta sem
valkosts vegna íjárfestinga í mat-
vælaiðnaði.
í verkefninu felst m.a. að kynna
fyrir sérvöldum hópi fyrirtækja í
matvælaiðnaði möguleika til að
fjárfesta i vinnslu matvæla á öllum
sviðum matvælaframleiðslu með
áherslu á notkun þess hráefnis og
þekkingar sem til staðar er. Einnig
verður útbúið kyuningarefni um að-
stæður hérlendis á þessu sviði.
Markmiðið með verkefninu er að
freista þess að auka erlenda fjárfest-
ingu á íslandi á þessu sviði iðnaðar,
en einnig mun hluti vinnunnar nýt-
ast sem undirbúningur undir kynn-
ingu svæðisins vegna annars konar
atvinnurekstrar.
Áætlað er að verkefnið standi yfir
í rúmt ár og að kostnaður verði um
12 milljónir króna, sem skiptist á
milli heimaaðila og Fjárfestinga-
skrifstofunnar ásamt framlagi úr
Iðnþróunarsjóði.
Aðstandendur verkefhisins telja
Eyjafjarðarsvæðið vel til þess faflið
að byggja þar upp matvælaiðnað.
Fyrir era mörg stærstu matvæla-
framleiðslufyrirtæki landsins sem
samanlagt velta um 20 milljörðum
króna á ári. -bjb