Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Page 36
10.2/96 19 20 24 26 27 Vinningar Fjðldi vinninga Vinningsupphæð 1. S qfS 5.065.580 2.4qfS+ m/4 303.620 3. iqfs 218 9.610 4.3qfS 7.867 620 Laugardagur 10.2/96 @®(§> KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MANUDAGUR 12. FEBRUAR 1996 Eyvindur vopni strandaði Togarinn Eyvindur vopni tók niðri á skeri í innsiglingunni á Vopnafirði á fostudagskvöldið. Togarinn var á leið á veiðar. Hann losnaði af sjáifs- ■—-ááðum og var siglt til hafnar á ný. Leki kom að lensidælusvelg en hann tókst að þétta til bráðabirgða áður en haldið var í slipp á Akur- eyri í gærmorgun þar sem skemmd- ir verða kannaðar í dag. -GK Aukin þjónusta Framvegis á mánudögum mun DV auka þjónustu sína við þá les- endur sem vilja fylgjast ítarlega með veðurfarinu. Upplýsingarnar hér að neðan eiga við Faxaflóasvæð- iö og gilda fyrir næstu fjóra daga. Samhliða verður áfram birt spákort fyrir daginn í dag sem og morgundag- inn. Þær spár gilda fyrir landið allt. Veðurá Faxaflóasvæði næstu viku - samkv. tölum frá Veöurstofu íslands - Hitastig Vindhraði 35 m/» Stig 12 30 10 25 1 8 20 jg 15 6 sv 10 NA i 5 / sv vsv SA 2 0 12.feb 13.feb 14.feb lö.feb 16.feb I Úrkoma- é 12 tíma biil ' /•$* / 25 mm, '‘fts'' 20 - 15 10 ■ 111 12.feb 13.feb 14.feb 15.febl6.feb ER EKKI HÆGT AD FÁ FRÍTT FAR MEÐ RUSSUNUM? Rússneskur togari fastur á Patreksfiröi síðan á Þorláksmessu: Selja fisk vinnsluhnífa og fá frítt í sund - samningar ekki Rússneskur togari hefur legið við bryggju á Patreksfirði síðan á Þorláksmessu, eða í tæpa tvo mánuði. Útgerðarfyrirtækið ístog á Patreksfirði leigði skipið af rússneskri útgerð en samningar runnu út um síðustu mánaðamót. Ekki náðust samningar um áframhaldandi leigu, að sögn Helga Auðunssonar hjá ístogi, og fer skipið væntanlega til Rúss- lands í þessari viku. Helgi sagði að von væri á öðru skipi frá Rússlandi innan mánaðar og mun það fara til veiða í Flæmska hatt- inum. tekist við útgerðina og Um 20 Rússar eru í áhöfn skips- ins sem legið hefur við festar síð- an um jól. Patreksfirðingar hafa tekið skipverjunum opnum örm- um og átt við þá töluverð við- skipti. Þannig hafa eigendur Lödu-bíla losað sig „drossíurnar" og varahluti úr þeim. Framboðið af Lödum hefur hins vegar ekki verið mikið. Helgi sagði skipstjór- ann hafa beðið sig að útvega 30 Lödur áður en áhöfnin færi frá staðnum en erfitt yrði að verða við þeirri ósk. Einn skipverja hef- ur selt Patreksfirðingum töluvert magn af fiskvinnsluhnífum, hag- skipið á leið burt anlega smíðuðum, en lítið fram- boð hefur verið á söluvöru í fljót- andi formi. Þá hafa Rússarnir fengið frítt í sund hjá Patreksfirð- ingum. Togarinn fór nokkra túra fyrir ístog á síðasta ári og voru sett flskfleitartæki og vinnslulína í skipið fyrir um 20 milljónir króna. Að sögn Helga vill rúss- neska útgerðin kaupa þessi tæki en samningar um slíkt hafa ekki tekist og munu varla takast úr þessu. -bjb íslendingar með útþrá fjölmenntu í nýju ferðaskrifstofuna Plúsferðir í Faxafeni en þegar ferðaskrifstofan verður opn- uð klukkan 9 í dag hefst sala á ódýrum flugferðum til Danmerkur og Glasgow. Alls standa til boða 100 flugmiðar, fram og til baka, á 9.900 krónur á hvorn stað. Um er að ræða 50 miða til Billund í Danmörku í sumar og 50 miða til Glasgow nú í febrúar og mars. Hver einstaklingur getur að hámarki keypt 4 miða. DV-mynd S L O K I Veðrið á morgun: Léttskýjað og þurrt A morgun verður hæg breyti- leg átt, víða léttskýjaö og þurrt. Frost verður 0 til 10 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 Skartgripum fyrir hálfa milljón stoliö Skartgripum fyrir hálfa milljón króna var stolið úr versluninni Úr og skart í Glæsibæ aðfaranótt sunnudagsins. Lás á hurð var snú- inn í sundur og verðmæti tekin úr skúffum við innganginn. Viðvörun- arbjalla er í versluninni en enginn heyrði í henni. Maður, sem kom til að gera við í annarri verslun í Glæsibæ, uppgöt- vaði innbrotið í gær. Lét hann lög- reglu vita en rannsókn á innbrotinu hefur enn engan árangur borið. -GK Berserksgangur í rútu: Sorglegur endir ágóðri skemmtun - segir einn farþeganna „Þetta var sorglegur endir á góðri skemmtun. Það hafði allt gengiö eins og i sögu fram að þessu,“ segir Björn Garðarsson á Djúpavogi en hann var einn þeirra flmm sem urðu fyrir höggum ölvaðs manns á leið heim af þorrablóti í Álftafirði í gærmorgun. Björn sagði í gærkveldi að hann væri enn mjög aumur en maðurinn náði að slá hann tvisvar. Hann sagð- ist lítið geta borðað og hann fer í læknisskoðun í dag eins og aðrir sem lentu í barsmíðunum. Lögreglan á Fáskrúðsfirði yfir- heyrði fólk vegna þessa atviks í gær. Engin skýring fannst á hvers vegna maðurinn lét hendur skipta í rútunni. Árásin var tilefnislaus og fyrirvaralaus. Barsmíðarnar hófust eftir að maðurinn var vakinn en hann hafði sofið alla heimleiðina. Varð hann óður «g réðst á hvern sem fyrir varð. Þar á meðal var fullorðið fólk og einn maður á áttræðisaldri. Hjörtur Ásgeirsson, bílstjóri rú- tunnar, greip til þess ráðs að koma sem flestum út eftir að maðurinn varð óður. Hann ók síðan niður á höfn og fékk þar hjálp skipverja á Sunnutindi við að yfirbuga mann- inn. „Ég veit ekki hvernig hefði farið ef þeir á Sunnutindi hefðu ekki bjargað málunum," sagði Hjörtur við DV í gær. Óði maðurinn var handjárnaður og honum ekið til móts við lögreglu- bíl frá Fáskrúðsfirði. Honum var sleppt eftir yfirheyrslur í gær enda taldist málið upplýst. Hans bíða þó kærur fyrir líkamsárásir. -GK rofverktakar r a f k ó p samvirki Skemmuvegi 30 - 200 Kóp. Sími 5544566 w 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 Fjölskylduhlaðboró

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.