Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1996, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1996
9
Utlönd
Lögreglumaöur-
inn hættur
að tala
Lögreglumaöurinn Gary
Dockery, sem spurði um syni
sína fyrir viku eftir að hafa ver-
ið í dái í sjö ár, getur enn ekki
talað eftir lungnaaðgerð sem
hann gekkst undir í síðustu
viku. Læknar höfðu óttast að
svæfingin myndi hafa slæm
áhrif á heila hans. Dockery getur
þó gert sig skiljanlegan með
hreyflngum.
Öllum að óvörum tók
Dockery, sem verið hafði í dái
síðan hann fékk byssukúlu í
ennið 1988, skyndilega til máls á
mánudaginn fyrir viku. Systir
hans sat við rúmstokkinn hjá
honum á sjúkrahúsi en þangað
hafði hann verið fluttur frá
hjúkrunarheimili vegna lungna-
bólgu. Dockery spurði um syni
sína og aðra fjölskyldumeðlimi,
hesta og hús.
„Jafnvel þó að Gary falli aftur
í dá er ég þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að segja hon-
um að mér þykir vænt um
hann,“ segir Dennis Dockery,
bróðir Garys.
Reuter
Olíuflutningaskipið Sea Empress á strandstað við Wales. Símamynd Reuter
Óveður haml-
ar björgun
skipsins
Vegna mikils sjógangs urðu þeir,
sem freistuðu þess að bjarga olíu-
flutningaskipinu sem strandaði
undan ströndum Wales á fimmtu-
daginn, frá að hverfa í gær og aftur
á laugardagskvöld. Reyna á að
koma björgunarmönnum aftur um
borð í dag. Enginn slasaðist við að-
gerðimar í gær og allir skipverjar
eru nú komnir í land. Talið er að
enn sé hægt að bjarga skipinu.
Tvö hundruð tonn af olíu
streymdu í sjóinn þegar leki kom að
skipinu við strandið. í gær var
sprautað úr flugvélum á olíuna til
að reyna að koma í veg fyrir frekari
umhverfisspjöll. Þessar slóðir eru
heimkynni um 100 þúsund fugla
auk sela og höfrunga og keppst hef-
ur verið við að reyna að bjarga eins
mörgum þeirra og hægt er.
í yfirlýsingu frá bresku strand-
gæslunni í gær sagði að svo virtist
sem skipið væri stöðugt en yfirmað-
ur stofnunar sem berst gegn sjáv-
armengun efaðist um það.
Að sögn björgunarmanna var vél-
arrúm skipsins þurrt og óskemmt
og á að reyna að halda áfram að
gangsetja vélar í dag ef veður leyfir.
Um borð í skipinu voru 130 þús-
und tonn af hráolíu úr Norðursjó á
leið í hreinsunarstöð í Milford
Haven í Wales. Strandið varð
skammt þar frá.
Reuter
Diana neitar
enn að skilja
Díana prinsessa neitar að flýta
sér að samþykkja skilnað við Karl
prins, að því er breska kvöldblaðið
Mail on Sunday greindi frá í gær.
Elísabet Englandsdrottning skrifaði
Díönu og Karli bréf í desember síð-
astliðnum og hvatti þau til að ganga
fljótt frá skilnaði.
Breska blaðið Mail on Sunday
segir Díönu hafa stöðvað skilnaðar-
viðræðurnar og látið tilkynna til
Buckinghamhallar að ekki sé von á
lögskilnaði í bráð. Fullyrt er að ekki
verði af neinum skilnaði fái Díana
vilja sínum framgengt. Svar starfs-
manna Buckinghamhallar við þess-
um fregnum er á þá leið að prinsess-
an sé enn að skoða stöðu sína.
Díana fer í heimsókn til Pakist-
ans á morgun í boði Imrans Khans,
fyrrum krikketkappa.
Breska blaðið The Independent
birti í gær niðurstöður skoðana-
könnunar sem sýndi að Bretar
væru að snúast gegn konungsfjöl-
skyldunni. 42 prósentum aðspurðra
þótti hún óþarfa lúxus sem þjóðin
Díana prinsessa þráast við að verða
við beiðni drottningar.
hefði ekki efni á. Aðeins þriðjungur
taldi að verr færi án konungsveldis.
Reuter
Opið alla daga 7 / -22
Kentucky Fríed Chick