Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996 7 DV Sandkorn í djúpum skít í hinu nýja hér- aðsfréttablaði, Vestra, er þátt- ur sem heitir Þjóðsagan. Þar segir frá því aö Marías Bjöms- son, bóndi á Felli, hafi einu sinni orðið fyr- ir því á miðjum fengitíma að hvítur hrútur sem hann átti féll niður í kjallara undir íjárhúsunum. Þar var töluvert af skít og sá ekki á hvítan blett á hrútnum þegai- hann hafði verið hífður upp. Engin leið var aö þrífa hrútinn og var hætt við allar slíkar tilraunir. Hrúturinn gat sinnt hlutverki sínu þrátt fyrir þessar hrakfarir og skítuga ulf. En það hafði sérkennileg eftirköst. Um vor- ið þegar æmar fóru aö bera kom í ljós að aliar æmar sem fengu með hrútnum áður en hann féll í kjallar- ann fæddu hvít lömb en þær sem fengu meö honum skítugum eftir fallið eignuðust mislit lömb, svört, mórauð, grá eða flekkótt. Óðsmannsskítur Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Sverrir Her- mannsson, bankastjóri Landsbankans, hefur verið afar önugur aö und- anfórnu. Krist- inn G. Jóhanns- son tekur þetta fyrir í pistli sínum í Degi nýverið og seg- ir þar. „Hann hefur gaman af þvi að vera stóryrtur og höfðar þá til þess aö slíkt hefur einatt þótt hraustleikamerki og fallið í góðan jarðveg að vera kjarnyrtur og helst fomyrmr. Þetta nýtti bankastjórinn sér i vaxtaumræðunni og vegur á báða bóga og sá enda dusilmenni og amlóða allt um kring í bankakerf- inu og aumingja í rikisstjórninni ef ekki eitthvað ennþá verra. Hann fór háðuglegum orðum um vaxtalækk- un sem Islandsbanki hafði þá boðað og taldi engin rök til slíkra aðgerða. Næst gerist það í þessari uppbyggi- legu umræðu að eftir honum er haft í blaði að það væri eins og aö éta „óðsmannsskit" að fara að dæmi ís- landsbanka í vaxtamálunum. Þegar sú tilkynning er út gefrn boöar Landsbankinn vaxtalækkun. Það skal ítrekað hér að Sverrir er bankastjóri Landsbankans....“ Er Baresi 6 ára? Hemmi Gunn getur verið hinn skemmti- legasti þulur í sjónvarpsút- sendingum á knattspyrnu- kappleikjum. Aö vísu þykir hann stundum tala of mikið og fara nokkuð langt út fyrir efnið. Hann lýsti leik AC Milan og Inter á Sýn síðastliðinn sunnudag. Eitthvað skjöplaðist hon- um þegar tveir leikmenn AC Milan fengu gula spjaldið. Hann sagði annan 26 ára en sá var með töluna 26 á bakinu en hinn 29 ára og hann var með töluna 29 á bakinu. Menn biðu bara eftir því að Baresi fengi guit spjald en hann hefur töluna 6 á bakinu. Dökkklædd þrenning Hagmæltur og niðskældinn maður kom þar sem þrír prest- ar sátu að spjalli. Er hann hafði hlustað á samræður þeirra dágóða stund og eigi líkað fæddist þessi vísa. Það skal tekið fram að hún er ekki ný heldur úr bókinni Þeim varö á í messunni. Þar sem dökkkklædd þrennig býr þróast enginn friður, blessun drottins burtu flýr bölvun rignir niöur. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson Fréttir Samningaviðræður um úthafskarfaveiðarnar: Úrslitatilraun gerö innan NEAFC í næstu viku - getur ráöiö úrslitum um framtíð samtakanna, segir Þorsteinn Pálsson „Hvort útfór Norðaustur- Atl- antshafsfiskveiðinefndarinnar fer fram í næstu viku skal ég ekkert segja um. Fundurinn í síðustu viku var vinnunefndarfundur en það reynir á það á fundi í næstu viku hvort samtökin eru fær um að koma stjórn á úthafskarfaveiðarnar eða ekki. Þar verður um úrslitatilraun að ræða,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í samtali við ísland fyrir- mynd þjóða sem friðarríki - segir Yogesh Gandhi DV í morgun. Hann sagði það ljóst að það yrði mikill áfellisdómur yfir þessum samtökum ef þeim tækist ekki að koma stjórn á veiðarnar og að þær yrðu algerlega stjórnlausar og óheft- ar. „Það stendur þannig á méð þenn- an karfastofn að heildarveiðin hefur ekki farið yfir þau mörk sem eðli- legt er að taka, samkvæmt ráði vís- indamanna. Þess vegna ætti að verða auðveldara að komast að nið- urstöðu um skiptingu á honum en öðrum stofnum. Evrópusambandið og Rússar hafa farið þarna fram með mikilli kröfuhörku og það gæti farið svo að ef þeir sveigja ekkert af leið þá geri þeir þessi samtök að engu,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Hann bendir á að Islendingar hafi gjarnan viljað koma upp svæðasam- tökum strandríkja sem síðan semdu við önnur ríki sem eiga lögmætra hagsmuna að gæta. „Við töldum samt rétt að láta reyna til þrautar á málið innan NEAFC og úrslit í því fást að mín- um dómi í næstu viku. Við vitum að vísu ekki enn hver afstaða Græn- lendinga verður. Framhald málsins veltur á því hvort samstaða getur tekist milli strandríkjanna. En fundurinn í næstu viku verður klár- lega úrslitatilraun af minni hyggju um að ná saman innan NEAFC og ég tel að sú niðurstaða geti haft tals- vert mikið að segja um hvort þessi samtök þrífast eða ekki,“ sagði Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra. -S.dór Slökkvibill seldur DY Ólalsflrði: Múlatindur gekk á dögunum frá sölu á nýsmíðuðum slökkvibíl til Súðavíkur. Bílinn á að afhenda þann 15. mars nk. Mun Sigurjón Magnússon, annar Múlatinds- feðganna, fara með bílinn vestur og veita mönnum þar leiðsögn um meðferð hans. Söluverð er 5,2 milljónir króna. -HJ Panasonic myndbandstæki NV SD200 Panasonic SD200 [Super Drive, A1 Crystal view] allar aðgerðir koma fram á skjá, innstilling stöðva sjálfvirk ásamt langtima upptökuminni. SD 200 fékk 10 fyrir myndgæði i What Video Tækið endurgreitt! Einn heppinn viðskiptavinur fær tækið endurgreittl BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI DV, Egilsstöðum: „ísland er eitt stórt lifandi dæmi um friðarríki á jörð,“ segir í frétta- bréfi tímaritsins „Nýir Tímar“. Þar er greint frá því að Yogesh Gandhi, forseti Gandhi Foundation, hafi áhuga á að koma upp alþjóðlegri friðarstofnun og alþjóðlegum há- skóla á Islandi og friðargarði í Reykjavík, sem ætlunin er að opna 2. október nk. á fæðingardegi Ma- hatma Gandhi. Yogesh Gandi hitti Vigdísi Finn- bogadóttur í vetur til að leita eftir stuðningi hennar við þessar hug- myndir. Korpúlfsstaðir fengust ekki Leitað hefði verið eftir að fá Korp- úlfsstaði fyrir friðarstofnun en það gekk ekki. Rekstur hennar verður að fullu kostaður af Gandhi stofnun- inr.i og megintilgangurinn er að gera ísland að miðstöð friðar fyrir þjóðir heims. Alþjóðlegur friðarháskóli Á næstu árum verður stofnaður alþjóðlegur friðarskóli hér á landi fyrir nemendur frá öllum þjóðlönd- um en þar verður kennsla á há- skólastigi i greinum sem lúta að friðar- og umhverfísmálum. Friðargarður Lögð var fram beiðni til Reykja- víkurborgar um land fyrir friðar- garð og nefnd til þess Öskjuhlíðin. Tveir mánuðir hafa liðið án þess að viðtal fengist við borgarstjóra. Fáist ekki land í Reykjavík verður farið út fyrir borgina. Vonast er til að garðurinn verði opnaður á afmælis- degi Mahatma Gandhis. Plógjárn úr sverðum sem sniðlar úr spjótum I grasgarðinum verður komið fyr- ir sérstökum friðarbjöllum sem gerðar eru úr málmi vopna sem hafa verið eyðilögð og brædd upp. Það minnir á það sem segir í bibl- íunni um hina efstu daga. „Og þær (þjóðirnar) munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjót- um sínum.“ Fjármagn mun streyma til landsins Ef Gandhi stofnunin flytur aðal- stöðvar sínar til íslands mun það þýða ný atvinnutækifæri, ekki síst í ferðabransanum, svo og aukið fjár- streymi til landsins. Ef til vill verða þá til fleiri störf en við eitt stykki ál- ver. Yogesh Gandhi kemur aftur til landsins nú í mars. Hann mun þá einnig efna til stórrar friðarsamn- komu í Reykjavík. -S.B. 9f Ihurscm er -hvenærsem er! kortatímabil 14. mars ‘ ÍÍJJlJJi^% - jjáimfay. háaitf isia KRINGLU . fvwtwt sjá Kringlukastsblað sem fylgdi Morgunblaðinu I vikunni I FJORA DAGA Nýjar vörui útsöluverði Opið til kl.it-1 laugardaginn kynnir Kringlukast gatan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.