Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
Jh j 53
DV
Bryndís Petra Bragadóttir, Berg-
Ijót Arnalds og Ragnhildur Rú-
riksdóttir, fara með hlutverk
einnar konu.
Engillinn
og hóran
Kafixleikhúsið frumsýnir í
kvöld í Hlaðvarpanum Engilinn
og hóruna eftir unga, banda-
ríska skáldkonu að nafhi Lesley
Ann Kent og er þetta fyrsta leik-
rit hennar. Didda Jónsdóttir
þýddi verkið yfir á íslensku.
Leikstjóri er Jón Gústafsson
og er þetta fyrsta uppsetning
hans á íslensku leiksviði en
hann nam leikstjóm í Banda-
ríkjunum. Engillinn og hóran er
eintal en í uppsetningu Jóns
fara þrjár leikkonur með hlut-
verk hórunnar, Bryndís Petra
Bragadóttir, Bergljót Amalds og
Ragnhildur Rúriksdóttir, og
sýnir hver þeirra eina hlið kon-
unnar. Bryndis sýnir hina
svörtu hlið, Bergljót hina bams-
legu og einlægu og Ragnhildur
hina rökrænu. Lára Stefánsdótt-
Sýningar
ir dansari tekur þátt i sýning-
unni og flytur frumsaminn dans
sem hún hefúr samið sérstak-
lega fyrir þessa sýningu.
Afmælis-
dagskrá
eldri
borgara
Það verður mikið um aö vera
hjá öldruðum í dag. Það verður
opið hús í Risinu, gömlu góðu
lögin spiluð og kaffiveitingar kl.
15-17. Leiksýning kl. 17 og
skemmtikvöld með spuminga-
keppni, hagyrðingaþætti og
dansi kl. 20.
Sniglar á
Feita dvergnum
Sniglabandið leikur á Feita
dvergnum í kvöld kl. 21-23.
ITC Melkorka
Opinn fundur verður í kvöld
kl. 20 í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi í Breiðholti. Stef
fundarins: Allar leiðir liggja til
Rómar.
Samkomur
Ferðafélag íslands
Myndakvöld verður í Mörk-
inni 6 (stóra sal) í kvöld kl.
20.30. Freysteinn G. Jónsson
sýnir myndir úr ferðum sínum.
Oldungaráð Hauka
Spilakvöld verður í Hauka-
húsinu í kvöld kl. 20.30.
Kvennadeild Flugbjörg-
unarsveitarinnar
Fundur í kvöld kl. 20.30. Spil-
að verður bingó. Allir velkomn-
ir.
Loftkastalinn:
Ég trúi á ljós
Þar sem uppselt var á þrenna tón-
leika í Loftkastalanum með yfir-
skriftinni Ég trúi á ljós verða tón-
leikamir endurteknir vegna fjölda
áskorana í kvöld kl. 20.00 og aftur
kl. 22.00. Þetta em gospeltónleikar
þar sem sungnir eru negrasálmar,
blues og swing. Einsöngvari er Egill
Ólafsson og kemur hann fram
ásamt Kvennakómum.
Orville Pennant hefur útsett
dansa fyrir hópinn ásamt því að
Tónleikar
syngja og „predika" í trúarlögum.
Tríó Aðalheiðar Þorsteinsdóttur
leikxn: ásamt Stefáni Stefánssyni
saxófónleikara en auk Aðalheiðar,
sem leikur á píanó, skipa Ásgeir
Óskarsson trommuleikari og Gunn-
ar Hrafnsson bassaleikari tríóið. Þá
munu þær Margrét J. Pálmadóttir
og Jóhanna V. Þórhallsdóttir taka
lagið með kómum.
Egill Ólafsson syngur gospelltónlist með Kvennakómum f Loftkastalanum.
Kringlukráin:
Klassískur djass
Miðvikudagskvöld eru alltaf djass-
kvöld í Kringlukránni og þar leika
margir af okkar bestu djassleikurum
reglulega. Það verður engin breyting
á í kvöld en þá mim Tríó Ólafs Steph-
ensens leika fyrir gesti staöarins.
Tríóið er skipaö auk Ólafs, sem
leikur á píanó, Tómasi R, Einarssyni,
sem leikiu- á kontrabassa, og Guð-
mundi R. Einarssyni trommuleikara.
Á dagskrá er fjölbreytt úrval sígildra
Skemmtanir
djass- og dægurlaga og er ekki ósenni-
legt að lög af plötu sem tríóið gaf út
fyrir einu og hálfu ári eigi eftir að
hljóma á Kringlukránni í kvöld, en sú
plata fékk góðar viðtökur. Þá er tríó-
ið einnig með á efnisskrá sinni þjóð-
lega tónlist í djassútsetningum.
Tríóið hefur leik klukkan 22.00 og
leikur fram yfir miðnætti. Aðgangur
er ókeypis.
Ófært um
Mosfellsheiði
Á Suðvestur- og Vesturlandi er
ófært um Mosfellsheiði og Bröttu-
brekku en verið er að moka veginn
um Kerlingarskarð á Snæfellsnesi.
Færð á vegum
Á Vestfjörðum er hafinn mokstur á
milli Brjánslækjar, Patreksfjarðar
og Bíldudals og einiiig á Steingríms-
fjarðarheiði og verður fljótlega fært.
Austanlands er veriö að moka veg-
inn um Oddsskarð og verður þar
einnig fljótlega fært. Nokkur élja-
gangur er á Holtavörðuheiði. Áð
öðru leyti er góð vetrarfærð á flest-
um vegum landsins en viða talsverð
hálka.
151 Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
0 Vegavinna-aögát
m Þungfært
@ Öxulþungatakmarkanir
<E> Fært flallabílum
Sonur Birnu
og Jóhannesar
Á myndinni er myndarlegur
drengur sem fæddist á fæöingar-
deild Landspítalans 9. mars klukk-
an 13.17. Hann var við fæðingu
Barn dagsins
4.510 grömm og 54 sentimetra lang-
ur. Foreldrar hans eru Birna Hug-
rún Bjarnadóttir og Jóhannes Jóns-
son. Hann á þrjú systkini, Jón
Reyr, 21 árs, Furu Ösp, 21 árs, og
Burkna Reyr, 17 ára.
Gaby Hoffman og Demi Moore
leika Samönthu Albertson á
tveimur aldursskeiðum.
Vinkonurnar
Vinkonumar (Now and then),
sem Laugarásbíó hóf sýningar á
í síðustu viku, fjallar um sam-
band fjögurra æskuvinkvenna
sem hittast þegar þær eru orðn-
ar fullorðnar og rifja upp þegar
þær voru unglingar. Þá var líf
þeirra áhyggjulaust og þær full-
ar af lífsgleði eða þar til vanda-
málin fóru aö gera vart við sig
þegar þær fara að hafa áhuga á
hinu kyninu. Óafvitandi kveðja
þær æskuárin og hefja leið sína
inn í ár hinna fúllorðnu.
Vinkonur er mynd um eilífa
vináttu og breytingar á lífi
ungra stúlka þegar þær eru að
verða fullþroska konur. Með að-
alhlutverkin fara Demi Moore og
*
Kvikmyndir
Gaby Hoffinan sem leika hina
fróðleiksþyrstu Samönthu, Mel-
anie Grifiith og Thora Birch,
sem leika hina nákvæmu Teeny,
Rosie O’Donnell og Christina
Ricci, sem leika hina ærslafúllu
Robertu og Rita Wilson og
Asleigh Aston Moore, sem leika
hina teprulegu Chrissy. Leik-
stjóri er Lesli Linka Gladder.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Ópus Herra Holland
Háskólabíó: Lokastundin
Laugarásbíó: Vinkonurnar
Saga-bíó: Heat
Bíóhöllin: Babe
Bióborgin: Fair Game
Regnboginn: Fordæmd
Stjörnubíó:.Jumanji
Gengið
Almennt gengi LÍ
13. mars 1996 kl. 9,15
Eininn Kaup Sala Tollnenni
Dollar 66,100 66,440 65,900
Pund 100,770 101,280 101,370
Kan. dollar 48,330 48,630 47,990
Dönsk kr. 11,6000 11,6620 11,7210
Norsk kr. 10,3130 10,3690 10,3910
Sænsk kr. 9,7210 9,7740 9,9070
Fi. mark 14,4180 14,5030 14,6760
Fra. franki 13,0970 13,1720 13,2110
Belg. franki 2,1803 2,1934 2,2035
Sviss. franki 55,4900 55,8000 55,6300
Holl. gyllini 40,0400 40,2800 40,4700
Þýskt mark 44,8400 45,0700 45,3000
ít. lira 0,04242 0,04268 0,04275
Aust. sch. 6,3710 6,4110 6,4450
Port. escudo 0,4333 0,4359 0,4364
Spá. peseti 0,5326 0,5360 0,5384
Jap. yen 0,62760 0,63140 0,63330
írskt pund 103,800 104,450 104,520
SDR 96,71000 97,29000 97,18000
ECU 82,8600 83,3600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
4 1 * 3 1 f (o 7
1
\ó 1 " , l
ir nr
iT ;5I fT"
w □ 50 u L
‘i'l J Zi 1
Lárétt: 1 örláts, 8 stjóma, 9 næði, 10
ofn, 11 drúptu, 12 smjördamla, 13
leit, 14 hnjóð, 16 trjákróna, 18 kyn,
20 nabbi, 22 leyfa, 23 himna.
Lóðrétt: 1 tímgunarfruma, 2 saiu-
sinna, 3 fá, 4 blés, 5 orðrómur, 6
frjáls, 7 fleiðrið, 12 ill, 15 hald, 17
starf, 19 oddi, 21 stöng.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 vistir, 8 alt, 9 eðja, 10
smári, 11 ál, 12 kalt, 13 nói, 15 una,
17 unað, 18 regn, 20 æða, 22 linari.
Lóðrétt: 1 vaskur, 2 ilman, 3 stál, 4
tertuna, 5 iðinn, 6 rjá, 7 valið, 14
óaði, 16 agn, 19 ei, 20 ær. 21 al.