Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Side 17
16
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
41
íþróttir
Eydís best í Keflavík
DV, Keflavik:
Sundkonan snjalla Eydís Kon-
ráðsdóttir var á dögunura kjörin
íþróttamaður Keflavíkur fyrir
árið 1995 og um leið sundmaður
ársins á ársfundi íþrótta- og ung-
mennafélagsins í Keflavík.
Haukur Ingi Guðnason var kjör-
inn knattspyrnumaður ársins,
Eiríkur Gunnarsson var kjörinn
badmintonmaður ársins, Eiríkur
Snorrason handboltamaður árs-
ins, Anna María Sveinsdóttir
körfuboltamaður ársins, Reynir
Þór Reynisson var kjörinn skot-
maður ársins og Halldóra Þor-
valdsdóttir var útnefnd fimleik-
maður ársins.
Á sama fundi var Gísla Jó-
hannssyni dómara afhent starfs-
merki UMFÍfyrir gott starf í
þágu hreyfingarinnar.
-ÆMK
Floro rekinn
frá Albacete
Benitio Floro, fyrrum þjálfari
spænska stórliðsins Real
Madrid, var í gær rekinn frá
störfúm sem þjálfari spænska
lcedeildar liðsins Albacete. Lið-
inu hefur vegnað illa á keppnis-
tímabilinu og er sem stendur í
19. sæti deildarinnar.
Jensen lánaður
til Bröndby
Danski miðvallarleikmaður-
inn John Jensen hefur verið lán-
aður frá Arsenál til síns gamla
félags I Danmörku, Bröndby.
Jensen, semr keyptur var tfl
Arsenal fyrir 2,1 milljón punda í
kjölfariö á góðri frammistöðu
hans með Dönum í EM 1992, hef-
ur ekki tekist að vinna sér sæti i
byrjunarliði Arsenal síðan
Bruce Rioch tók við stjóminni á
Highbury.
Janet örugg
til Atlanta
Bandaríska sunddrottningin
Janet Evans tryggði sér um helg-
ina rétt til að keppa á ólympíu-
leikunum í Atlanta í sumar.
Evans tók um síðustu helgi þátt
í úrtökumótinu. Hún sigraði í
400 metra skriðsundi og varð
önnur í 800 metra skriðsundi.
Evans, sem er 24 ára gömul og á
heimsmetin í 400, 800 og 1500
metra skriðsundi, stefnir í að
bæta fleiri gullverðlaunum í
safn sitt en á leikunum 1988 og
1992 vann hún fern gullverðlaun.
Jason næst
markahæstur
Jason Ólafsson er næstmarka-
hæsti leikmaðurinn í ítölsku 1.
deildinni í handknattleik. Jason
skoraði 10 mörk fyrir Brixen
þegar liðið lagði Teramo um síð-
ustu helgi og Brixen er í þriðja
sæti deildarinnar. Jason, sem
gerði eins árs samning við
Brixen, hefur leikið mjög vel í
vetur og líklegt er að forráða-
menn félagsins geri honum tfl-
boð áður en langt um líður.
Golfferö til
Skotlands
Úrval-Útsýn stendur fyrir
golfferð til Skotlands 4.-8. apríl.
Flogiö verður tfl Glasgow og gist
á 4 stjömu Westerwood Hotel.
Leikið verður á golfvelli sem
Severanio Ballesteros hannaði,
en það er frábær 18 holu vöUur.
Lágmarksfjöldi í þessa ferð er 20
manns og hámark 28 manns.
Allar nánari upplýsingar gefur
golfdeOd Úrvals-Útsýnar í síma
569 9300.
Knattspyrnutímabilið að hefjast:
Fyrstu leikir
deildabikars-
ins á morgun
Keppnistímabil knattspymu-
manna hefst annað kvöld, fyrr en
nokkru sinni áður. Þá fara fram
tveir fyrstu leikirnir í hinni nýju
deildabikarkeppni karla en síðan
verða sex leikir tO viðbótar á föstu-
dagskvöldið, sex á laugardaginn og
átta á sunnudaginn.
Tvö 1. deOdar liðanna hefja leik-
inn þvi Stjaman mætir 3. deUdar-
liði Ægis á sandgrasveUinum í
Kópavogi og Keflvíkingar leika við
2. deUdar lið Leiknis úr Reykjavík á
gervigrasveUi Leiknismanna í Efra-
Breiðholti. Báðir leikirnir heíjast
klukkan 20.30.
AUs taka 34 lið þátt í keppninni
og leika í sex riðlum. TU upprifjun-
ar em þeir þannig skipaðir:
A-riðill: ÍA, Stjaman, Skalla-
grímur, Selfoss, Ægir, BÍ.
B-riðill: Valur, FH, Völsúngur,
Dalvík.
C-riðiU: ÍBV, KA, ÍR, HK, Hauk-
ar, TindastóU.
D-riðill: Leiftur, Fylkir, Þróttur
R., Þróttur N., Höttur, Léttir.
E-riðiU: Grindavík, Fram, Vík-
ingur R., Víðir, Grótta, Sindri.
F-riðiU: Keflavík, Breiðablik, Þór
Ak.., Leiknir R.., Reynir S., KS.
Leikin er einfold umferð í riðlun-
um, nema hvað tvöfold umferð er í
B-riðli vegna þess að þar em fjögur
lið. Tvö efstu liðin í hveijum riðli
komast í úrslitakeppnina sem hefst
1. maí en úrslitaleikurinn fer fram
16. maí.
Riðlakeppni deOdabikarsins er að
mestu leyti spiluð um helgar en
ekkert verður leikið frá 1. til 10. apr-
0 þar sem mörg lið verða erlendis
um það leyti. ÍA og ÍBV byrja ekki
að spOa í bikamum fyrr en 29. mars
þar sem bæði lið eru að fara á al-
þjóðlegt mót á Kýpur.
Mótið er haldið samkvæmt öUum
lögum og reglum KSl. Leikmenn
fara í bann eftir þrjú gul spjöld eða
eitt rautt og í tveggja leikja bann
fyrir fimm gul spjöld.
Heimilt er að nota aUa fimm vara-
mennina en hins vegar verða aUir
að .vera löglegir með viðkomandi fé-
lagi. Ekki er heimUt að nota erlenda
leikmenn sem eru tU reynslu hjá fé-
laginu nema gengið sé frá félaga-
skiptum þeirra. -VS
Besta sundfólkið
keppir í Eyjum
- innanhússmeistaramótið um helgina
Um næstu helgi fer fram innan-
hússmeistaramót íslands í sundi í
Vestmannaeyjum. Þetta verður í
áttunda sinn sem innanhússmótið
fer fram í Eyjum. Gaman verður að
sjá hvemig sundmönnum reiðir af í
Eyjum en margir eru sammála um
að hún sé besta keppnislaug lands-
ins. Laugin er saltblönduð sem ger-
ir það að verkum að sundfólkið er
léttara í vatninu.
Keppendur verða 119 frá 16 félög-
um. Að vanda mætir allt sterkasta
sundfólk landsins og koma meðal
annrs þeir Logi Jes Kristjánsson og
Arnar Freyr Ólafsson frá Bandaríkj-
unum þar sem þeir eru við nám og
æfingar. Þar hafa þeir félagar æft
undir handleiðslu þjálfara í fremstu
röð. Búast má við hörkukeppni
þeirra í milli í 50 og 100 metra skrið-
sundi.
Eydís Konráðsdóttir og bróðir
hennar Magnús mæta að sjálfsögðu
einnig tO leiks og verður gaman að
fylgjast með baráttu Magnúsar við
Árnar Frey í skrið-, flug- og fjór-
sundi. Eydís mun keppa í fimm
greinum á mótinu og kæmi satt
best að segja ekki á óvart þótt hún
hyggi nálægt metum eða jafnvel
setti einhver.
í mótslok verður tilkynnt besta
og efnOegasta sundfólk mótsins í
kvenna- og karlaflokki og gefur
Vinnslustöðin verðlaunin en Flug-
leiðir veita verðlaun þeim einstakl-
ingum úr kvenna- og karlaflokki
sem eru stigahæst samanlagt í
tveimur sundgreinum samkvæmt
alþjóðastigatöflu.
-JKS
Litli bikarinn lagður niður
- nýtt vormót stofnað í staðinn
Litla bikarkeppnin, vormót knatt-
spýmufjgjaga úr nágrenni Reykja-
,víkur sem fram hefur farið sam-
fleytt síðan 1969, hefur verið lögð
niður. í staðinn er verið að koma á
nýrri keppni, Pepsi-mótinu, með
þátttöku 1. og 2. deildar liða af
svæðinu.
Þátttökuliðin verða sex eða átta..
Keflavík, ÍA, Stjarnan, Breiðablik
og FH hafa tilkynnt þátttöku en beð-
ið er eftir svörum frá ÍBV og
Grindavík. Verði bæði liðin með
verður einu félagi til viðbótar boðin
þátttaka, annars verða liðin sex.
Mótið hefst væntanlega um miðjan
aprO.
-VS
Eyjamenn í undankeppni
- spila um aö komast í forkeppni UEFA-bikarsins
Eyjamenn þurfa að hefja keppni í
UEFA-bikarnum i knattspyrnu
strax i júlí í sumar. Þátttökuliðum í
keppninni fjölgar sífeflt og nú þarf
að leika sérstaka undankeppni til
að komast í forkeppnina.
ÍBV fer í þessa undankeppni en
Skagamenn, sem einnig eru með í
UEFA-bikamum, sleppa við hana
og fara í forkeppnina í ágúst. Liðin
sem komast i gegnum hana leika í
1. umferðinni í september.
Þetta gæti reynst mjög hagstætt
fyrir Eyjamenn. Ef þeir ná að sigra
mótherja sína í undankeppninni
eru þeir öruggir með tæpar 9 mOlj-
ónir króna í greiðslur frá UEFA fyr-
ir að leika í tveimur umferðum í
keppninni.
KR-ingar taka þátt í Evrópu-
keppni bikarhafa og forkeppnin þar
hefst í ágúst eins og áður.
Keflvíkingar verða með í Inter-
Toto keppninni og leika þar fjóra
leiki í júní og júlí.
-VS
Rögnvaldur Erlingsson segir
að góðar einkunnir hafi ekki
dugað til að komast til Atlanta.
DV TXST
Stefán og Rögnvaldur dæma ekki á ólympíuleikunum:
Hrikalega svekktir
með þessa niðurstöðu
Stefán Amaldsson og Rögnvaldur
Erlingsson, sem um árabO hafa ver-
ið besta dómarapar landsins í hand-
knattleik, munu ekki dæma á
ólympíuleikunum í Atlanta í sumar
eins og búist var við.
„Við erum náttúrulega hrikalega
svekktir yfir þessari niðurstöðu.
Maður verður að líta svo á að við
séum ekki nógu góðir í faginu en
innst í hjartanu vO ég ekki
samþykkja það. Við vorum mjög
vongóðir um að komast á ólympíu-
leikana og héldum að það væri að-
eins formsatriði. Við höfum verið
að fá góðar einkunnir fyrir frammi-
stöðu okkar en það virðist ekki hafa
dugað t0,“ sagði Rögnvaldur Er-
lingsson í samtali við DV í gær.
Búinn að skila inn
milliríkjaskírteininu
Rögnvaldur hefur verið mifli-
ríkjadómari í 11 ár en hefur nú
dæmt sinn síðasta leik á alþjóðleg-
um vettvangi.
„Ég er þegar búinn að skOa inn
mOliríkjaskírteininu. Ég var ákveð-
inn í að hætta þessu eftir árið og
ólympíuleikarnir áttu að verða
lokahnykkurinn. Þetta var orðið
ansi þreytandi. MikiU tími fór í
þetta og maður var eiginlega alveg
búinn að fá nóg. Ég hef samt hugs-
að mér að dæma áfram hér heima
svona á meðan maður hefur gaman
af þessu,“ sagði Rögnvaldur enn
fremur.
12 dómarapör munu dæma á
ólympíuleikunum. Níu þeirra koma
frá Evrópu, eitt frá Afríku, eitt frá
Asíu og eitt frá Ameríku. -GH
Iþróttir
áfram að gera það gott í
Bandaríkjunum.
Guðrún setti
tvö ný met
- á bandaríska háskólameistaramótinu
Guörún Arnardóttir setti tvö íslandsmet á
bandaríska háskólameistaramótinu í frjálsum
íþróttum um helgina og náði mjög góðum ár-
angri.
í undanúrslitum í 55 metra grindahlaupi
bætti hún íslandsmetið þegar hún kom í mark
á 7,63 sekúndum. I úrslitahlaupinu leit út fyr-
ir að hún myndi bæta metið en rak sig í eina
grindina og hrasaði. Hún kom í mark á 7,71
sekúndu og varð í 7. sæti.
Daginn eftir hljóp hún í úrslitum í 400
metra grindahlaupi á 200 metra braut og bætti
íslandsmetiö þegar hún kom í mark á 53,35
sekúndum og varð í 4. sæti.
Guðrún keppir fyrir háskólann í Georgíu og
varð hann í 2. sæti í stigakeppninni með 34
stig. Af þeim hlaut Guðrún 7 stig og varð næst
stigahæst í liðinu. -GH
Þeir voru að vonum kátir, Haukarnir, eftir sigurinn á erkifjendunum í Kaplakrika í gærkvöldi. Bjarni Frostason og Petr Baumruk fagna á stóru myndinni og Gunnar
Gunnarsson, þjálfari Hauka, á þeirri minni. Hægra megin reynir Hans Guðmundsson að stöðva Halldór Ingólfsson en þeir tókust oft á í leiknum.
DV-myndir Brynjar Gauti
FH-Haukar
Spennutryllir
- tvíframlengd dramatík þegar Haukar unnu FH í Krikanum
(13-10) (24-24)
(28-28) 30-31
0-1, 4-2, 5-3, 5-5, 9-5, 11-7, 12-8,
(13-10), 15-12, 15-16,16-16, 16-19, 19-19,
21-20, 22-23, 23-24, (24-24), 26-24, 26-27,
27-28, (28-28), 28-29, 29-30, 29-31, 30-31.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 8/2,
Guðjón Ámason 6, Sigurjón Sigurðs-
son 5/3, Gunnar Beinteinsson 4, Hálf-
dán Þórðarson 3, Héðinn Gilsson 2,
Sigurður Sveinsson 2/1.
Varin skot: Magnús Ámason 11/1,
Jónas Stefánsson 4.
Mörk Hauka: Jón Freyr EgUsson 7,
Gústaf Bjamason 6/1, Haiidór Ingólfs-
son 6/1, Aron Kristjánsson 4, Þorkell
Magnússon 3, Gunnar Gunnarsson 3/1,
Óskar Kristjánsson 2.
Varin skot: Bjami Frostason 15/3.
Brottvisanir: FH 14 mín., Haukar
14 mín.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og
Gunnar Viðarsson, yfirvegaðir og ör-
uggir í mjög eríiöum leik, þrátt fyrir
stöku mistök.
Áhorfendur: Um 1.700.
Maður leiksins: Jón Freyr Egils-
son, Haukiun.
Það tók á þriðja klukkutíma að út-
kljá einhvern mesta spennuleik sem
sést hefur í íslenskum handbolta um
árabil — slag FH og Hauka í Kaplakrika
í gærkvöldi. Eftir tvær framlengingar
höfðu Haukar betur, 30-31, og Hafnar-
fjarðarliðin þurfa því að mætast í odda-
leik í Strandgötunni á fóstudagskvöld-
ið. Þar verður allt lagt undir og miðað við
átök manna á milli í gærkvöldi telja
eflaust einliveijir leikmannanna að þeir
eigi óuppgerðar sakir í þeim slag.
Andrúmsloftið var kynngimagnað í
Krikanum í gærkvöldi. Staðan hélst
24-24 síðustu tvær mínúturnar í venju-
legum leiktíma og Halldór Ingólfsson
bjargaði Háukum þegar hann braut á
Sigurjóni Sigurðssyni í hraðaupp-
hlaupi 4 sekúndum fyrir leikslok. HaU-
dór slapp með venjulega brottvísun en
Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, fékk
hins vegar rauða spjaldið fyrir mót-
mæli.
í fyrri framlengingunni jöfnuðu FH-
ingar úr vítakasti, 28-28, þegar 45 sek-
úndur voru eftir. í lok þeirrar síðari
tókst FH-ingum síðan ekki að nýta sér
að vera tveimur mönnum fleiri síðustu
11 sekúndurnar og Haukarnir fögnuðu
gífurlega.
„FH hafði heppnina með sér í fyrsta
leiknum og við vorum kannski dálitið
heppnir í kvöld. Þetta eru gífurlega
jöfn lið en ákaflega ólík. Þeir eru
reyndari og geysilega klókir þótt við
búum líka yfir talsverðri reynslu. Við
neituðum að fara strax í sumarfrí og
knúðum fram oddaleikinn og það verð-
ur hart barist i Strandgötunni," sagði
^Haukamaðurinn Aron Kristjánsson við
DV eftir leikinn.
„Þetta var rosalega súrt því mér
fannst við vera að spila betur en þeir.
Á meðan við réðum ferðinni og spiluð-
um af þolinmæði vorum við með und-
irtökin. Um leið og við fórum út úr því
fórum við að fá á okkur hraðaupphlaup
og þeir refsuðu okkur strax. Sigurinn
gat lent hvoru megin sem var og það
verður gaman í þriðja leiknum," sagði
Guðjón Árnason, fyrirliði FH.
Frábær nýting hornamanna, þar sem
Jón Freyr Egilsson var fremstur í
flokki, gerði útslagið hjá Haukum,
ásamt gífurlegri baráttu. Haukar
gerðu 20 mörk úr hornunum og af lín-
unni. Hjá FH voru áherslur allt aðrar,
langskot og gegnumbrot gáfu 18 mörk.
Hans Guðmundsson var besti maður
liðsins, lykilmaður í sókn og vörn.-VS
Körfubolti - úrslitakeppnin:
Okkur dauð-
langaði áfram
- Keflavík vann KR og mætir Njarðvík
DV, Suðurnesjum:
„Það var fyrst og fremst löngunin
sem gerði útslagið hjá okkur. Við
erum með marga menn sem vita
hvað úrslitakeppni er og okkur
dauðlangaði að komast áfram. Við
viljum ekki vera aftur áhorfendur
að úrslitaleikjunum," sagði Jón Kr.
Gíslason, þjálfari og leikmaður Kefl-
víkinga, eftir sigur á KR, 83-77, í
hörkuspennandi oddaleik liðanna í
Keflavík í gærkvöldi.
Keflvíkingar eru þar með komnir
í undanúrslitin og mæta þar ná-
grönnum sínum, íslandsmeisturum
Njarðvíkur. Fyrsti leikur liðanna
verður í Njarðvík annað kvöld.
„Við lékum af mikilli skynsemi í
sókninni, sýndum þolinmæði og
gott skotval. Það skipti gríðarlega
miklu máli að halda Jonathan Bow
í fjórum stigum í fyrri hálfleik,“
sagði Jón Kr.
Keflvíkingar eru í góðum málum
með Jón Kr. sem leikstjórnanda.
Hann lék á tíma eins og táningur.
Guðjón Skúlason var sterkur í fyrri
hálfleik og skoraði þá 20 stig.
Manchester City krækti sér í dýr-
mætt stig á útivelli í gærkvöldi með
þvi að gera jafntefli, 1-1, við Chelsea
í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Ruud Gullit kom Chelsea
yfir en Nigel Clough jafnaði fyrir
City sem komst stigi upp fyrir
Wimbledon og í 16. sæti deildarinn-
ar.
Sunderland er aðeins stigi á eftir
Dwight Stewart var ekki í byrjunar
liði Keflvíkinga en kom inn á eftir
átta mínútur. Hann hirti mikilvæg
fráköst en er frekar seinn að snúa
sér í sókninni. Davíð Grissom og Al-
bert Óskarsson voru sterkir, Davíð
sérstaklega á lokakaflanum.
Hermann Hauksson spilaði best í
liði KR-inga. Ósvaldur Knudsen var
sterkur og Óskar Kristjánsson harð-
ur í varnarleiknum þar sem hann
gaf ekki þumlung eftir. Bow átti
erfitt uppdráttar í leiknum og mun-
ar um minna.
„Heimavöllurinn gerði útslagið í
þessari hrinu og með Guðjón í stuði
og Jón Kr. sem leikstjómanda til að
dreifa spilinu á þessar stjörnur eru
þeir með frábært lið. Þegar aðrir
eru í hlutverki leikstjórnanda eru
þeir ekki eins sterkir. Við vorum
alltaf undir og hittnin hjá Guðjóni
sló okkur líka nokkuð út af laginu.
Ég tel að vörnin hafi brugðist að
þessu sinni. Við skoruðum eðlilega
en erum vanir að fá færri stig á okk-
ur en þetta,“ sagði Benedikt Guð-
mundsson, þjálfari KR-inga.
Derby við topp 1. deildar eftir sigur
á Þorvaldi Örlygssyni og félögum i
gærkvöldi. Úrslitin í 1. deild:
Birmingham-Huddersfield........2-0
Cr. Palace-Tranmere............2-1
Grimsby-Wolves ................3-0
Oldham-Sunderland .............1-2
Port Vale-Stoke................1-0
W.B.A-Watford..................4-4
-vs
NBA í nótt:
Sigurganga
Utah Jazz
stöðvuð
Atlanta batt enda á sjö leikja
sigurgöngu Utah Jazz í nótt. LA
Lakers tapaði á heimavelli fyrir
Portland en Lakers hefur unnið
21 af síðustu 26 leikjum liðsins.
Úrslitin í nótt:
New Jersey-Phoenix .........88-98
Philadelphia-Toronto .....118-110
Atlanta-Utah ..............115-89
Dallas-Miami .............118-125
Denver-Orlando.............110-93
LA Lakers-Portland ........99-105
Golden State-San Antonio . . 98-106
Sigur Atlanta var mjög sann-
færandi en þar fór Mookie Bla-
ylock 23 stig fy'rir Atlanta og var
iðinn í þriggja stiga skoruninni.
Karl Malone skoraði 29 stig fyrir
Utah.
Orlando var tekið í bakaríið í
Denver en aldrei var spurning
um hvorum meginn sigurinn
myndi lenda. Bryant Stith skor-
aði 23 stig fyrir Atlanta og Ant-
onio McDyess 19. Nick Anderson
og Penny Hardaway skoruðu 21
stig hvor fyrir Orlando.
Alonzo Mourning fór á kost-
um fyrir Miami Heat gegn Dallas
en Miami hefur unnið níu leiki í
röð í viðureignunum gegn
Dallas. Mourning skoraði 40 stig
í leiknum.
Phoenix, sem hafði tapað
þremur leikjum í röð, vann góð-
an útisigur í New Jersey.
Charles Barkley skoraði 20 stig
fyrir Phoenix. Vern Fleming
skoraði 21 stig fyrir New Jersey.
David Robinson skoraði 28
stig fyrir San Antonio gegn
Golden State. Arvydas Sabonis
skoraði 23 fyrir Portland sem
vann sinn þriðja leik í röð.
-JHKS
-ÆMK
City náði dýrmætu stigi
Keflavík-KR (43-34) 83-77
3-4,10-8, 10-12,17-17, 24-17, 31-21, 31-25, 37-29, (43-34), 47-34,
51-50, 66-57, 70-64, 79-72, 83-77.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason 27, Falur Harðarson 16,
Jón Kr. Gíslason 14, Davíð Grissom 11, Dwight Stewart 8, Albert
Óskarsson 4, Sigurður Ingimundarson 3.
Stig KR: Hermarm Hauksson 25, Ósvaldur Knudsen 20, Lár-
us Ámason 13, Jonathan Bow 12, Ingvar Ormarsson 4, Óskar
Kristjánsson 3.
Fráköst: Keflavík 30, KR 26.
Flest fráköst Keflavíkur: Stewart 9, Davíð 8.
Flest fráköst KR: Hermann 8, Bow 7.
Flestar stoðsendingar Keflavikur. Falur 6, Davíö 5.
Flestar stoðsendingar KR: Lárus 8, Ósvaldur 4.
Varin skot: Stewart 1, Guðjón 1, Davíð 1 - Óskar 1, Lárus 1,
Ósvaldur 1.
3ja stiga körfur: Keflavík 10 (53%), KR 10 (33%).
Vítanýting: Keflavík 19/13 (68%), KR 18/11 (61%).
Dómarar: Kristinn Albertsson og Jón Bender, dæmdu vel á
köflum'en slæmu kaflamir voru of margir.
Áhorfendur: Um 700.
Menn leiksins: Jón Kr. Gíslason og Guöjón Skúlason,
Keflavík.
íþróttir eru
einnig á
bls. 42
j kvöld
Handbolti karla - 8-liða úrslitin:
Grótta-Valur....................................20.00
Afturelding-Stjarnan............................20.00
Selfoss-KA .....................................20.00
2. deild - úrslitakeppnin:
HK-Breiöablik ..................................20.00
Fylkir-ÍH ......................................20.00
Þór-Fram .......................................20.00
Körfubolti kvenna - undanúrslit:
Keflavík-Breiöablik ............................20.00
Grindavík-KR....................................20.00