Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Síða 18
42
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
íþróttir
Þór Þ.
komst í
úrslit í
1. deild
- og mætir KFÍ
Þór frá Þorlákshöfn og
Körfuknattleiksfélag ísafjarðar
munu leika til úrslita í 1. deild
karla í körfuknattleik.
Þetta varö ijóst í gærkvöldi
eftir að Þórsarar höfðu sigrað
Snæfell í þriðja leik liðanna en
leikið var i Stykkishólmi. Loka-
tölur urðu 86-87 fyrir Þór eftir
47-48 í leikhléi.
Þórsarar tryggðu sér sigur-
inn á síðustu sekúndu leiksins
og leika í fyrsta skipti til úrslita
í 1. deildinni og liðið á I fyrsta
skipti möguleika á að tryggja
sér sæti í úrvalsdeildinni. Tapi
Þórsarar í baráttunni við KFÍ
um efsta sæti 1. deildar leika
Þórsarar gegn Skagamönnum
um laust sæti í úrvalsdeildinni.
Dómararnir fastir í Kerl-
ingarskarði
Leikurinn hófst ekki fyrr en
um hálftíu í gærkvöldi þar sem
dómarar leiksins lentu í vand-
ræðum á leiðinni. Festu þeir bU
sinn i snjóskafli í Kerlingar-
skarði og þurftu heimamenn að
aöstoða þá tU byggða.
Formaður Körfuknattleiks-
deildar SnæfeUs bauð dómurun-
um far með sér í öUugri jeppa-
biffeið frá Reykjavík og vestur
og aftur heim að leik loknum.
Þórsarar buðu þeim gráklæddu
einnig far báðar leiðir. Þeir af-.
þökkuðu góð boð þar sem þeir
töldu leikinn mjög mikilvægan.
-SK
Stjörnumenn í rútu
Stjörnumenn verða með rútu-
ferð fyrir stuðningsmenn sína
sem hafa í hyggju að fara á leik-
inn gegn Aftureldingu í Mos-
fellsbænum í kvöld.
Þeir sem ætla að slást með í
fór mæti við félagsheimilið kl.
18.45.
Barist um Richards
Arsenal og Manchester
United berjast nú um að fá
vamarmanninn Dean Richards
til liðs viö sig og Ueiri félög hafa
sett sig í stellingar.
Bæði Arsenal og United
þurfa að endumýja vamar-
menn sína fyrir næsta tímabU.
Vitað er að Steve Bruce leggur
skóna á hilluna í liði United og
hjá Arsenal er varnarlínan öll
komin á fertugsaldurinn
Baia í ársbann?
Portúgalski landsliðsmark-
vörðurinn og leikmaður Porto,
Victor Baia, á yfir höfði sér 12
mánaða keppnisbann fyrir að
slá varaforseta Campomairense
í andlitið eftir leik liðanna um
síðustu helgi.
Þetta getur þýtt að hann
missi af Evrópukeppni lands-
liða á Englandi í sumar.
Trappatoni til
baka?
ítalski knattspyrnuþjáifarinn
Giovanna Trappatoni, sem rek-
inn var frá Cagliari fyrir
nokkm, er reiðubúinn að snúa
aftur til Þýskalands og gerast
þjálfari hjá þýsku liði.
„Mér leið mjög vel hjá
Bayern og ég gæti vel hugsað
mér að taka við því liði aftur ef
Otto Rehagel fær reisupass-
ann,“ sagði Trappatoni við
Gazzetta della Sport I gær.
I>V
Úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik:
Veronica Cook, leikmaður Keflvíkinga, hefur ekki
enn tapað leik á íslandi
„Þurfum að vinna
til að ná titlinum"
- segir Veronica Cook. Keflavík mætir Blikum
„Það skiptir ekki máli við
hverjar við leikum við fyrst,
viö þurfum að vinna til þess að
ná í íslandsmeistaratitilinn,"
sagði Veronica Cook,
leikmaður KeUavíkur.
KeUavík hefur gengið allt í
haginn frá því að Veronica
kom til liðsins skömmu fyrir
áramót. Liðið hefur ekki tapað
leik frá þeim tíma og unnið
bæði bikarkeppnina og deUdar-
bikarinn.
„Ef viö höldum áfram að
leika okkar leik getum við unn-
ið alla, alveg sama hverjir and-
stæðingarnir eru. Við erum
sterkar í vörninni og tökum
mikið af fráköstum og ef við
verðum þolinmóðar í sóknar-
leiknum þá á allt að ganga
upp.“
Við hræðumst ekkert
„Ég óttast Breiðabliksliðið
ekki. Þær eru ágætar og Betsy
er góð skytta en ef við leikum
fasta og góða vörn eigum við að
vinna. Við erum ekkert hrædd-
ar við þær, ekki frekar en
nokkurt annað lið.
Gæði körfuknattleiksins hér
eru minni heldur en i Banda-
ríkjunum. Hér fæ ég að gera
allt sem mig langar til, eða það
sem liðið langar til, en gæðin
eru minni en úti.
Það er verið að stofna NBA-
deild fyrir konur í Bandaríkj-
unum og ég vona að ég fái
möguleika á að spreyta mig
þar,“ sagði Veronica Cook.
Keflavík mætir Breiðabliki í
Keflavík í kvöld og hefst leikur-
inn ki. 20. -ih
„Ef viö Ijúkum þessu í
tveimur þá er ég til“
- segir Majenica Rupe. KR leikur gegn Grindavík
„Ég er alltaf jafn spennt fyrir
úrslitakeppni, alveg sama hvar
ég er að leika. Liðin eru mjög
jöfn og það lið sem hefur
heppnina með sér stendur uppi
sem sigurvegari," sagði Majen-
ica Rupe, leikmaður KR.
Majenica, sem er uppruna-
lega frá Michigan, kom hingað
til lands frá Lúxemborg en
áður lék hún með liði í Venes-
úela.
„Mér skilst að flestir veðji á
að Grindavik vinni leikinn á
morgun (i dag) en ég er ekki á
sama máli. Ég held að nú sé
komið að okkur. Þær hafa
unnið okkur tvívegis í deildar-
keppninni en þá vorum við
ekki að leika okkar bestu leiki.
Það býr mikið í liðinu
„KR sýndi það gegn Breiða-
bliki um síðustu helgi að það
býr mikið í því. Þá var ég veð-
urteppt á Akureyri og stelpur
sem ekki hafa fengið mikið að
spila í vetur sýndu að þeim er
vel treystandi í úrslitakeppni.
í KR eru margir leikmenn
sem geta skorað mikið. Það
verður hinum liðunum erfitt.
Ég á von á því að leikurinn
gegn Grindavík verði mjög
jafn, þriggja tU fjögurra stiga
munur. Ég hef ekki leikið í
Grindavík enn þá en það skipt-
ir mig ekki miklu máli hvort ég
er á heimavelli eða á útivelli.
í sannleika sagt held ég að
við eigum eftir að lenda í þrem-
ur leikjum, en ef við náum að
ljúka þessum í tveimur þá er ég
til,“ sagði Majenica. -ih
Majenica Rupe, leikmaður KR, er hæsti leikmaður
úrslitakeppninnar.
Betsy Harris, leikmaður Breiðabliks, stefnir á
NBA-deildina næsta vetur.
„Verðum að vera mjög
grimmar í vörninni"
- segir Betsy Harris í Breiðabliki sem mætir Keflavík
„Við þurfum að bæta leik
okkar, sérstaklega varnarleik-
inn og fráköstin," segir Betsy
Harris, leikmaður með íslands-
meisturum Breiðabliks.
Betsy kom til Breiðabliks sl.
haust í stað Penni Peppas sem
nú leikur með Grindavík.
„Við byrjuðum mótið mjög
vel en síðan höfum við verið
óheppnar með meiðsli og veik-
indi. Núna er Hanna Kjartans-
dóttir t.d. ekkert með vegna
veikinda og það munar um
minna. Þá eru nokkrar tæpar
vegna meiðsla."
Keppnin hefur harðnað
„Mér finnst mótið hafa
breyst mikið frá því í haust
þegar við byrjuðum. Liðin hafa
styrkst mikið, fleiri lið hafa
fengið erlenda leikmenn og
gæði leiksins hefur aukist mik-
ið í vetur
Ég hlakka til leiksins á morg-
un (í dag). Við verðum að vera
grimmar í varnarleiknum og
þolinmóðar í sókninni og þá
getum við hætt að hafa áhyggj-
ur af Keflavík en þær þurfa að
hafa áhyggjur af okkur."
Betsy hefur verið að leika
mjög vel með Breiðabliksliðinu
1 vetur en ætlar hún að vera
áfram hér á landi næsta vetur?
„Ég veit það ekki. Það er
verið að stofna NBA-deild fyrir
konur í Bandaríkjunum og ég
ætla að reyna að komast þar að.
Ef það tekst þá eru miklir pen-
ingar í boði. En ef ekki verður
neitt af því þá er aldrei að vita
hvað ég geri. Það hefur verið
gott að vera hér og góð reynsla
'fyrir mig,“ sagði Betsy.
Rútuferðir verða á vegum
Breiðabliks til Keflavíkur frá
íþróttahúsinu Smára kl. 19. -ih
„Möguleikar okkar eru
eins og hinna liðanna“
- segir Penni Peppas, leikmaöur Grindvíkinga
„Þessi úrslitakeppni verður
ekki auðveld fyrir neitt af þeim
fjórum liðum sem leika í und-
anúrslitunum. Þetta eru mjög
jöfn lið sem hafa verið að reyta
stig hvert af öðru í deildar-
keppninni," segir Penni
Peppas, leikmaður Grinda-
víkur.
„KR er með mjög gott lið og
það lið sem hefur meiri sigur-
vilja vinnur á morgun (i dag).
Lykilatriði fyrir okkur er varn-
arleikurinn. Vörnin vinnur
leiki. Fyrr eða síðar kemur að
því að maður skorar, það er
ekkert að því að vinna leiki 1-0
svo fremi sem leikurinn
vinnst. Á meðan maður fær
ekki á sig stig getur maður
ekki tapað.“
Jafnir möguleikar
Penni Peppas er að leika sitt
annað tímabil á íslandi. Hún
lék með Breiðabliki í fyrra og
var einn besti leikmaður deild-
arinnar. Hvað finnst henni um
framfarir í deildinni?
„Ég ætla ekki að taká neitt
frá hinum leikmönnunum.
Deildin var mjög sterk í fyrra
en ég held að hún sé sterkari í
ár. Ekki aðeins vegna þess að
núna eru hér fleiri erlendir
leikmenn heldur einnig vegna
þess að íslensku leikmönnun-
um hefur farið mikið fram.
Möguleikar Grindavíkur til
aö vinna eru eins og hinna lið-
anna. Við eigum fjórðungs-
möguleika. í fyrra voru allir
búnir að bóka sigur Keflavíkur
en Breiðablik, sem ég lék með,
sýndi þeim fram á að það eiga
öll lið jafna möguleika."
Leikur Grindavíkur gegn KR
hefst kl. 20 í Grindavík. -ih
Penni Peppas, leikmaður Grindavíkur, er að leika
í annað sinn í úrslitakeppni 1. deildar kvenna.