Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Síða 24
48
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
Sviðsljós
DV
Roseanne fær
skaðabætur
. Sjónvarpsstjörnunni Rose-
apne Barr og fyrrum eigin-
manni hennar, Tom Arnold,
hafa verið dæmdar skaðabætur
vegna samningsrofs fyrirtækis
nokkurs sem ætlaöi að taka að
sér að dreifa tískufatnaði hjón-
anna fyrrverandi. Fatnaðurinn,
eins og þau Roseanne og Tom
sjálf, er að sjálfsögðu í yfirstærð.
Hjúin fá um fimmtíu milljónir
króna í sinn hlut.
Mailer stjórnar
sonarskrifum
Ríthöfundurinn Norman
Mailer ætlar að reyna fyrir sér
við leikstjóm kvikmyndar eina
ferðina enn, þrátt fyrir að fyrsta
mynd hans, Harðir naglar dansa
ekki, hafi nú ekki þótt merkileg.
í þetta sinn ætlar hann að
stjórna handriti eftir son sinn og
annan mann og mun myndin
Qalla um ungan boxara sem býr
sig undir fyrsta alvöru-bardag-
ann, með allri þeirri sálarangist
sem því fylgir að þurfa að
standa sig.
Bondstúlka horf-
ir á eftir konum
Hollenska feguröardísin Famke
Janssen, sem fékk hárin til að rísa á
mörgum karlinum þegar hún með
sínum fögru lærum kramdi óvini
sína til bana í nýju Bond-myndinni
Gullauga þar sem hún leikur rúss-
neska njósnarann Xeniu Onatopp,
vildi miklu heldur vera karl en
kona.
Famke gengur meira að segja svo
langt að viðurkenna að sér finnist
gaman að horfa á eftir kvenfólki til
að mæla út og vega og meta kroppa
þess. Það eru einkum brjóstin sem
vekja áhuga Famke. Þá finnst henni
gaman að koma með athugasemdir
um það sem hún sér, rétt eins og
mörgum karlinum, og hún beitir
gjaman tungutaki karlmanna við
iðju þessa: „Vá, rosalegar túttur er
hún með þessi.“
En það er fleira karlalegt, ef svo
má að orði komast, í fari þessarar
gullfallegu og afar kvenlegu konu
sem Famke Janssen er. Hún viður-
kennir að hún hafi alltaf verið dálít-
ið villt og að hún stundi yfirleitt
bara íþróttir með körlum til að fá
verðuga keppni. En þótt hún hafi
dálæti á því að horfa á konur er
Famke ekki þar með að gera lítið úr
vel þjálfuðum íþróttakonum.
Famke Janssen Bondpía.
Leikararnir John Travolta og Sandra Bullock fagna hér eftir að hafa verið valin leikarar ársins á ráðstefnu kvikmyndahúsaeigenda á vesturströnd Bandaríkj-
anna sem haldin var í Las Vegas nýverið. Sandra getur verið ánægð með árið sem leið en hún varð einnig efst á blaði í vinsældakosningu meðal almenings
á dögunum. Símamynd Reuter
Aukabla5 um
Mibvikudaginn 20. mars mun aukablað um lífsstíl fylgja DV.
Efni blaðsins verðnr með fjölbreyttara sniði
en venjnlega.
Meðal efnis má nefna dans, nærföt og náttföt,
skíðantbíínað, fótboltaferðir erlendis, förðun,
hárgreiðslu, tískustrauma í endurbótum lieim-
ila og heilsuhótel.
Þeir sem áhuga hafa^ á að koma efni í blaðið
hafi samband við Evu Magniísdóttur, ritstjórn
DV, í síma 550-5812.
Auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði, vinsamlegast hafi samband
við Arnar H. Ottesen, auglýsingadeild DV, hið
fyrsta í síma 550-5723.
Vinsatnlegast athugið ab síbasti skiladagur auglýsinga
er fimmtudaginn 14. tnars.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.
Lengi lifir í gömlum glæðum:
Karen
elskar
Jack enn
Þótt liðin séu rúm fimm ár frá því
þokkadísin Karen Mayo- Chandler,
sem er af írsku bergi brotin, sleit sam-
bandi sinu og stórleikarans Jacks
Nicholsons, er ekki laust við að hún
eigi enn pláss fyrir gamla elskhugann
i hjarta sér, manninn sem getur sjar-
merað hverja unga stúlkuna á fætur
annarri upp úr skónum með úlfabrosi
sinu og bogadregnum augabrúnum.
„Við hittiunst í partíi og Jack fór
ekkert i felur með það sem fyrir hon-
um vakti,“ segir Karen þegar hún rifj-
ar upp þá gömlu góðu daga.
„Það stóð aldrei til að þetta entist í
fjögur ár en ég skemmti mér stórkost-
lega með Jack. Ég vissi þó að ég yrði
að segja honum upp fyrr eða síðar, ef
ég ætláði mér að eignast einhvern
tímann trúan maka. Ég kaus að gera
það áður en það varð um seinan en ég
elska hann alltaf."
Karen passaði sig þó á því að eign-
ast ekki barn til minningar um sam-
veruna með Jack, eins og nokkrar
konur hafa lent í, þar á meðal danska
fyrirsætan fyrrverandi, Winnie Hol-
mann.
Karen hefur leikið í nokkrum kvik-
myndum að undanfórnu, svo sem Sli-
ver, Hard to Die og Enchanted Island,
en hún nýtti sér þó aldrei vinfengið
við Jack í eiginhagsmunaskyni. Sönn
fyrirmynd annarra ungra stúlkna.
Karen leitar að traustum maka.