Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Page 28
52
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
önn
Hefur Páll Pétursson fætur úr
gúmmíi?
Fætur úr
gúmmíi
„Félagsmálaráðherra hefur
bersýnilega fætur úr gúmmíi."
Össur Skarphéðinsson, á Alþingi.
Léleg myndlist
„Mikil myndlist nær aldrei til
almennings. En eins léleg og ís-
lensk myndlist er þá er ég hissa
á að hún skuli ekki ná til al-
mennings."
Guðbergur Bergsson, í Alþýðublaðinu.
Börn á beit með rollum
„Hrikalegt að horfa upp á smá-
Ummæli
börn hreinlega á beit með rollum
á öskuhaugum.“
Ásgelr Þór Árnason um ástand í írak,
á rás 2.
Ekki endalaus heppni
„Meistaraheppnin verður ekki
endalaust með KA.“
Valdimar Grímsson, þjálfari
Selfoss, í Morgunblaðinu.
Ef og ef
„Það er alltaf hægt að segja ef
og ef.“
Jón Arnar Magnússon tugþrautar-
kappi, i' Morgunblaðinu.
Tom Cruise, móðlr hans og þrjár systur hafa
öll þjáðst af lesblindu.
Frægt fólk haldið
lesblindu
Lesblinda eða dyslexía hefur þjáð
marga og það er ekki langt síðan fariö var
að greina lesblindu hjá bömum. Margt
frægt fólk hefur þjáðst af sjúkdómi þess-
um. Hinn þekkti leikari Tom Cruise hefur
þjáðst af dyslexíu og ekki bara hann í fjöl-
skyldu hans heldur einnig móðir hans og
þrjár systur. Þetta hafði mikil áhrif á
hann meðan hann var í skóla og því ein-
beitti hann sér að íþróttum, en meiðsli
gerðu það að verkum að hann varð að
snúa sér að öðru og varð leiklistin fyrir
valinu.
Hershöfðinginn frægi George S. Patton
átti alltaf erfitt með að greina stafi og það
tók hann fimm ár að komast í gegnum
Blessuð veröldin
herskólann í West Point. Einu sinni sagði
hann: „Ég á í erfiðleikum með a, b og...
hvað heitir nú annars hinn stafurinn."
Leikkonan Cher hætti í skóla strax eftir
barnaskólann. Hún lærði ekki að lesa fyrr
en hún var orðin átján ára gömul og hún var
orðin þijátíu ára þegar sjúkdómurinn var
skilgreindur hjá henni. Cher segist enn eiga
i erfíðleikum með lestur og að hringja í rétt
númer. Dóttir hennar, Chastity, er einnig
haldin dyslexíu. Af öðru frægu fólki sem les-
blinda hefur hrjáð má nefha H.C. Andersen,
Richard Chamberlain, Greg Louganis, Nel-
son Rockefeller og Lee Harvey Oswald.-Það
var ekki fyrr en eftir dauða hans að sérfræð-
ingar greindu að hann hefði verið haldin les-
blindu.
Snjó- og slydduél
í dag veröur sunnan stinn-
ingskaldi framan af degi en síðan
suðaustlæg átt, allhvöss suðvestan
til en hægari annars staðar. Um
landið sunnan- og vestanvert verða
Veðrið í dag
snjó- og slydduél en léttskýjað norð-
anlands í dag. í kvöld og nótt verð-
ur suðaustan stinningskaldi eða aH-
hvasst um aHt land og slydda eða
rigning austan til en skýjað um
landið vestanvert. Hiti verður á bil-
inu 0 tU 5 stig, hlýjast austan tU. Á
höfuðborgarsvæðinu verður sunnan
stinningskaldi fram að hádegi en
gengur í allhvassa suðaustanátt síð-
degis. Snjó- eða slydduél. Austan
stinningskaldi eða aUhvasst og skýj-
að í kvöld og nótt. Hiti 0 til 4 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.24.
Sólarupprás á morgun: 7.49.
Síðdegisflóð f Reykjavík: 25.14.
Árdegisflóð á morgun: 1.14.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 06 í dag:
Akureyri léttskýjað 1
Akurnes haglél á síð. kls. 2
Bergsstaðir skýjaö 1
Bolungarvík snjóél á síö.kls. 1
Egilsstaöir skýjað 3
Keflavíkurflugv. snjóél 0
Kirkjubkl. léttskýjað 0
Raufarhöfn heiðskýrt 2
Reykjavík haglél á síð.kls. 1
Stórhöfði snjóél á síö.kls. 1
Helsinki heiöskýrt -7
Kaupmannah. snjók. á siö.kls. -2
Ósló skýjað -4
Stokkhólmur léttskýjað -4
Þórshöfn rigning 3
Amsterdam þokumóða -4
Barcelona þokumóöa 7
Chicago heióskírt 2
Frankfurt léttskýjað -5
Glasgow mistur -1
Hamborg skýjað -4
London alskýjað -1
Los Angeles skýjaó 13
Lúxemborg þokumóða -7
París skýjað -3
Róm hálfskýjaö 10
Mallorca þokumóöa 4
New York heióskírt 3
Nice léttskýjaö 6
Nuuk snjókoma -17
Orlando heióskírt 7
Vin . snjókoma -1
Washington heiðskírt 2
Winnipeg þokumóða 1
Nína Björg Magnúsdóttir, íslandsmeistari í fimleikum:
Valin í landsliðið ellefu ára
„Ég er búin að vera í fimleikum
síðan ég var sex ára gömul, eða í
eUefu ár, og aldrei stoppað nema
þegar meiðsl hafa komið í veg fyr-
ir æfingar en ég æfi sex daga vik-
unnar, fjóra tU fimm tíma virka
daga og aUan laugardaginn,“ segir
nýkrýndur íslandsmeistari í fim-
leikum kvenna, Nína Björg Magn-
úsdóttir úr Fimleikafélaginu Björk
í Hafnarfirði.
Nína er búiri að vera í fremstu
röð fimleikakvenna i mörg ár þótt
hún sé aðeins að verða sautján
ára: „Ég var eUefu ára þegar ég
komst í landsliðið og fór þá mína
fyrstu keppnisferð til úUanda. ís-
Maður dagsins
landsmeistari varð ég fyrst 1992 en
var meidd 1993 og gat ekki verið
með, vann síðan titilinn aftur 1994,
aftur meidd 1995, en vinn svo
núna.“
Eins og sjá má af upptalning-
unni hafa meiðsl hrjáð Nínu:
„Daginn fyrir íslandsmótið 1993
fótbrotnaði ég á æfingu og í fyrra
sleit ég liðbönd snemma árs en
byrjaði samt að keppa á íslands-
Nína Björg Magnúsdóttir.
mótinu, fór úr gifsinu tveimur vik-
um fyrir mótið. Ósjálfrátt hlífði ég
hægri fætinum og það hefur
kannski orsakað það að ég fót-
brotnaði á vinstra fæti strax í
byrjun mótsins þannig að ég gat í
raun ekkert æft í fyrra.“
Nína sagðist hafa æft mjög vel
fyrir mótið en vissi að keppnin
yrði jöfn og hörð: „Ég var viss um
að ég myndi lenda i einu af þrem-
ur efstu sætunum, en við erum
jafnar, sérstaklega ég og Elva Rut,
sem einnig er í Björk.
Það er mikið um að vera á næst-
unni hjá Nínu Björgu og má segja
að hún verði að keppa fram á vor:
„Ég er að fara á fóstudaginn með
landsliðinu tU írlands, svo taka
við innanfélagsmót helgi eftir
helgi, þá kemur Norðurlandamót
og siðan Evrópumót."
Nína Björg hóf að æfa fimleika
sex ára gömul og síðan hefur hver
fiölskyldumeðlimurinn af öðrum
annaðhvort farið að æfa fimleika
eða starfa fyrir fimleikaíþróttina:
„Systir mín, Eva, sem er eUefu
ára, er komin í B-landsliðið og
Fjóla systir mín, sem er sex ára, er
byrjuð að æfa og er mjög efnUeg.
Svo er móðir.mín formaður Bjark-
ar.“
Eins og gefur að skilja taka fim-
leikarnir mikinn tíma og er það
áhugamál númer eitt, tvö og þrjú,
en Nína Björg er einnig á fýrsta
ári í Flensborg þannig að það er
lítiU tími aflögu fyrir annað. í
framtíðinni hefur hún áhuga á að
prófa þolfimi og minnka þá fim-
leikana: „Ég er búin að vera svo
lengi I fimleikunum og finnst kom-
inn timi til að prófa eitthvað nýtt
og þolfimin er áhugaverð íþrótt
sem er í mikilli uppsveiilu.“
Úrslitakeppnin
í 1. og 2. deild
Nú stendur úrslitakeppnin í
handbolta og körfubolta sem hæst
og eru liðin smám saman að týna
tölunni. í kvöld er keppt í hand-
boltanum hjá körlum bæði í 1. og 2.
deild og kvenfólkið leikur í körfu-
bolta. í 1. deUd handboltans leika
Grótta og Valur á Seltjarnarnesi.
Valur þurfti að hafa mikið fyrir
sigri á Gróttu í fyrsta leiknum og
íþróttir
liðið verður ekki auðsigrað á
heimaveUi. Stjarnan vann Aftur-
eldingu nokkuð örugglega í fyrsta
leiknum en Afturelding er sterk á
heimaveUi og verður ekki auðveld
bráö fyrir Stjörnuna. í 2. deUd
stendur Fram best að vígi með að
vinna sér sæti í 1. deUd. í kvöld
leikur Fram við Þór og fer leikur-
inn fram á Akureyri. FyUch- á
heimaleik gegn ÍH og HK á heima-
leik gegn Breiðabliki.
í úrslitakeppninni hjá konunum
í körfubolta leika í kvöld Kefiavík
og UBK og leika keflvísku stúlk-
umar á heimaveUi. í Grindavík
mætast Grindvíkingar og KR-ing-
ar. AUir leikir kvöldsins hefiast kl.
20.00.
Norræn grafík
Farandsýning á grafíkverkum eftir
norræna listamenn stendur nú yfir í
Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi.
Sýningin er lánuð frá listlánadeUd
Norræna hússins
Einn listamaður frá hverju Norður-
landanna á verk á sýningunni, þeir
eru: Lisa Andrén, Svíþjóð, Aka Hoegh,
Grænlandi, Janus Kamban, Færeyj-
um, Pentti Kaskipuro, Finnlandi,
Sýningar
Anne-Lise Knoff, Noregi, PaUe Niel-
sen, Danmörku, og Tryggvi Ólafsson,
íslandi. Sýningin stendur tU 17. mars
og er opið frá 16-18 virka daga og
15-18 um helgar.
Bridge
Venjulegast þegar spilaður er tví-
menningur er mikið um að sömu
tölur sjáist í samanburðinum. En
öUu sjaldgæfara er að engin tala i
samanburðinum sé eins. Það gerðist
þó hjá Bridgefélagi Barðstrendinga í
barómeterkeppni sem hófst mánu-
daginn 11. mars. Þar spUa 26 pör og
því er hvert spil, spUað á 13 borð-
um. í spili 17 gerðist það að engin
tala var eins í samanburðinum!.
Skipting spUanna er nokkuð viUt og
því ekki óeðlUegt að margar niður-
stöður sjáist, en þó ekki þrettán eins
og reyndin var. Allt spilið var
þannig, norður gjafari og enginn á
hættu:
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1466:
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
* D109862
V K743
♦ Á9
♦ G
* G3
* ÁG986
* K64
* 652
* 74
D2
♦ D5
* ÁD108743
Grandsamningur sást hvergi á
spilin en flestir hugsanlegir lita-
samningar. Samningarnir voru sem
hér segir; 4 spaðar í norður þrjá nið-
ur (-150), 3 hjörtu dobluð í vestur
slétt staðin (-530), 2 spaðar í norður
slétt staðnir (110), 4 hjörtu í vestur
staðin með yfirslag (-450), 3 hjörtu í
vestur slétt staðin (-140), 3 spaðar í
norður sem fóru einn niður (-50), 4
tíglar í austur tvo niður (100), 3 tígl-
ar í austur slétt staðnir (-110), 4
spaðar í norður slétt staðnir (420), 5
tíglar í austur doblaðir þrjá niður
(500), 3 lauf í norður staðin með yf-
irslag (130), 3 hjörtu í vestur sem
fóru einn niður (50) og 4 spaðar í
norður sem fóru tvo niður (-100).
Dálkahöfundur man ekki tU þess að
hafa séð tilvik sem þetta áður.
ísak Örn Sigurðsson