Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Blaðsíða 32
LtTTt
til mtiuís ið yinO^;
Vinningstölur
12.3/96
19)(20)(29)
KIN
S LO
*=c
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað I DV,
gieiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
Togararallið:
Vestfjarða-
torfan á sín-
um stað
Togararallið stendur nú yfir og
sagði Ólafur Karvel Pálsson leiðang-
ursstjóri að aíli hefði verið frekar
tregur víðast hvar, þó hvað bestur á
austursvæðinu norður undir Langa-
nesi. Hann býst við að rallinu ljúki
eftir viku til 10 daga.
Ólafur Karvel segir að afli virðist
svipaöur og var í rallinu í fyrra en
þá eins og nú hafi verið talað mjög
um stórar göngur og mikinn fisk.
„Það er kannski enn meira talað um
fiskmagnið núna en það hefur
reynst svipað og þá og torfan fyrir
vestan er enn á sínum stað og allt
það,“ sagði Ólafur Karvel. -SÁ
Lágheiðin opnuð:
Einstakt á
þessum tíma
Lágheiðin milli Ólafsfjarðar og
Fljóta í Skagafírði var opnuð í gær.
Það tók Vegagerðina fáar klukku-
stundir að ryöja veginn, fyrirstaða
að einhverju marki var aðeins á
tveimur stöðum. Að sögn lögregl-
unnar í Ólafsfirði er þetta einstakt.
Heiðin sé yfirleitt lokuð alfan vetur-
inn og ekki opnuð fyrr en langt lið-
ið á sumar._________-bjb
Séra Bjarni Karlsson:
Biskupi ber
að víkja
„Ég hef sagt það áður og endurtek
að ég tel siðferðislega rétt af biskupi
að hann víki frá,“ segir séra Bjarni
Karlsson í Vestmannaeyjum nú í
morgun.
Prestur sem rætt var við í
morgun segir að þrýstingur aukist
mjög á biskup að víkja. Bréf hans til
presta marki því tímamót. Þar játar
hann á sig alvarlegt trúnaðarbrot og
. . -feggur mál sín í fyrsta sinn i hend-
ur þeirra, sagði prestur sem DV
ræddi við í morgun. Ekki náðist í
Ólaf Skúlason biskup. -SÁ
Björk með
tvær á topp 40
DV, Akranesi:
Þegar listi yflr 40 mest seldu plö-
turnar í Bretlandi í gær var birtur
kom í ljós að tvær stærri plötur
Bjarkar Guðmundsdóttur voru báð-
ar á listanum. Debut komst í 36.
sæti listans og Post er í 26. sæti en
var í síöustu viku í 24. sæti. Smá-
platan með laginu Hyperballad
1 ''''Romst ekki inn á topp 40 aðra vik-
una í röð. -DÓ
L O K I
r-
Dísarfellið, nýlegt skip Samskipa, lenti í brotsjó á Færeyjabanka:
Átta gámar fóru fyrir
borð í miklu óveðri
- milljónatjón Qögurra fyrirtækja - viðvörun send sjófarendum
Dísarfellið, nýlegt og stórt skip
í eigu Samskipa, fékk á sig brotsjó
um 270 sjómílur suðaustur af land-
inu þar sem það var á heimleið úr
áætlunarsiglingu í fyrrinótt. Þegar
brotið gekk yftr skipið tók út alls 8
gáma úr farmi skipsins, fjóra
lestaða og fjóra tóma.
„Það var bandbijálað veður á
þessum slóðum og þótt gámarnir
hati verið kyrfilega fastir stenst
ekkert veðurham eins og þennan.
Þetta hafsvæði er eitt það erfiðasta
í öllum heiminum," sagði Kjartan
Ásmundsson hjá tjónadeild Sam-
skipa við DV í morgun. Hann
sagði að fimm 40 feta gámar og
þrír 20 feta gámar hefðu farið í sjó-
inn og að fjögur fyrirtæki hefðu
átt vörur sem í þeim voru. Nokkr-
ir gámanna voru frystigámar.
„Það varð óhapp hjá okkur. Ég
get þó ekki farið nánar út í það
fyrr en við höfum gefið skýrslu,“
sagði Kristinn Aadnegard, skip-
stjóri á flutningaskipinu Dísar-
felli, í samtali við DV í nótt. Sjó-
próf verða haldin vegna óhappsins
i Reykjavík í dag.
Kjartan hjá, tjónadeildinni
kvaðst aðspurður um tjónið lítið
geta sagt um það í tölum að svo
stöddu en neitaði því að það hlypi
á tugum milljóna króna. Hann
sagði ekki tímabært að upplýsa
hvað hefði verið í gámunum sem
fóru í sjóinn en sagði þó að ekki
hefði verið um búslóðir að ræða.
Fyrirtækin og viðskiptavinir
þeirra sem áttu vörur í gámunum
verða fyrir tjóni vegna þess að nú
þarf að endurpanta ýmsar vörur
og mun því verða veruleg töf á að
þær fáist afgreiddar á ný.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar í morgun hafa
Nesradíó, Hornafjarðarradíó og
Thorshavnradíó í Færeyjum sent
út viðvaranir til sjófarenda vegna
gámanna sem enn eru taldir geta
flotið ofansjávar. Engin hættuleg
efhi eru í gámunum, samkvæmt
upplýsingum Landhelgisgæslunn-
ar.
-sv/-Ótt
Dísarfellið, eitt skipa Samskipa, fékk á sig brotsjó á Færeyjabanka í fyrrinótt. Átta gáma tók út af skipinu við brotið og fjórir þeirra voru lestaðir með vörum
fjögurra fyrirtækja. Ljóst er að um milljóna tjón er að ræða. Engar sjáanlegar skemmdir eru á skipinu en sjópróf fara fram í Fteykjavík í dag. DV-mynd S
Tvö ný frumvörp um vinnumiðlanir og atvinnuleysistryggingar:
Viljum afnema iðjuleysisbætur
- segir Hjálmar Árnason alþingismaður
„Varðandi atvinnuleysisbætur
gerum við ráð fyrir að fólk fái ekki
bætur nema í 3 ár en þó þannig að
ef menn fá vinnu á tímabilinu en
missa hana aftur, þá lengist bóta-
tímabilið sem því nemur. Þeir sem
eru atvinnulausir í 3 ár komast aft-
ur inn í 12 mánuði ef þeir hafa unn-
ið í 6 mánuði. Þetta á að vera inn-
byggð hvatning til þess að fólk
vinni. Ef menn vinna ekkert í 3 ár
verður það hlutverk svæðismiðlana
að leiða það á annan stað í kerfinu
eftir bótum. Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður er fyrir þá sem eru á
vinnumarkaði. Við leggjum áherslu
á að fólk sé ekki á iðjuleysisbótum
heldur taki þá vinnu sem er fundin
fyrir það,“ sagði Hjálmar Árnason
alþingismaður í samtali við DV.
Hann er formaður nefndar sem er
að vinna tvö fnunvörp fyrir félags-
málaráðherra um vinnumiðlanir og
atvinnuleysistryggingar.
Hitt frumvarpið er um atvinnum-
iðlanir, sem hafa fyrst og fremst
haldið uppi atvinnuleysisskrán-
ingu. Gert er ráð fyrir sjálfstæðri
stofnun á vegum ríkisins undir
stjórn atvinnulífsins. Síðan verða
svæðisvinnumiðlanir víða um land
undir yfirstjórn heimamanna sem
eiga að vera í tölvutengdu sambandi
við atvinnufyrirtækin i landinu að
sögn Hjálmars Árnasonar.
-S.dór
Veðrið á morgun:
Rignir ffyrir
austan
Á morgun er gert ráö fyrjr
suðaustan stinningskalda eða
allhvössúm vindi. Á Austur-
landi má reikna með rigningu
eða slyddu og síðar einnig
sunnanlands. Um landið norð-
vestan- og vestnavert verður
úrkomulítið. Hiti verður 0 til 6
stig, hlýjast á Norður- og Norð-
austurlandi.
Veðrið í dag
er á bls. 52
Brottrekstur Viðars:
Kom mér í
opna skjöldu
- segir Ingibjörg Sólrún
„Það er búið að kippa fótunum
undan þeirri vinnu sem unnin var í
samstarfi borgarinnar og Leikfélags
Reykjavíkur um endurskipulagningu
Borgarleikhússins. Uppsögnin kom
mér algjörlega í opna skjöldu. Ég
hélt satt að segja að málin væru að
komast á lygnan sjó,“ sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri við
DV um brottrekstur Viðars Eggerts-
sonar leikhússtjóra frá Leikfélagi
Reykjavíkur. Sjá nánar á bls. 2. -bjb
RAFMOTORAR
Pottbeti
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499
T
Súpa og salatbar