Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996 Fréttii_____________________________________________________________________________________pv Frostl 1 Súðavík 1 fiskvinnslu á Fáskrúðsfirði: Tengsl milli Goðaborgar, Frosta og Lubberts - grunur um að þýska fyrirtækið eigi birgðirnar Fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæk- ið Goðaborg á Fáskrúðsfirði hefur verið úrskurðaö gjaldþrota að kröfu íslandsbanka en fyrirtækið hefur átt í erfiðleikum um nokkurt skeið, eins og greint var frá í DV 29. mars sl. Krafa íslandsbanka nemur 33 milljónum króna og mun einkum vera vegna afurðalána. Heildar- skuldir fyrirtækisins nema hins vegar rúmum 100 miiljónum króna. Að sögn Einars Víglundssonar, framkvæmdastjóra Goðaborgar, eru í fyrirtækinu fiskafurðir sem nægja fyUilega fyrir kröfu bankans. En vegna óþolinmæði bankans muni aðrir kröfuhafar, einkum ýmsir þjónustuaðilar, bera skarðan hlut frá borði. íslandsbanki vísar því á bug að hafa gengið fram af hörku í inn- heimtu gagnvart Goðaborg. Björn Bjömsson, framkvæmdastjóri í ís- landsbanka, segir við DV að bank- inn hafi átt samvinnu við félagið og haft fuUan vUja tU aö leysa fjárhags- vanda þess jafnframt því að sýna biðlund vegna skuldbindinga Goða- borgar við bankann. Þetta hafi eng- an árangur borið og forráðamenn Goðaborgar í raun slitið samning- um án þess þó að tUkynna það bankanum. Þá hafi á sama tíma ver- ið reynt af öðrum lánardrottni að gera fjárnám í Goðaborg en án ár- angurs. „í þessari stöðu átti bank- inn ekki annarra kosta völ en krefj- ast gjaldþrotaskipta á félaginu. Eftir að beiðni bankans um gjaldþrota- skipti kom fram liðu nærri sjö vik- ur þar tU úrskurðað var í málinu og gafst félaginu þar með enn einn fresturinn til þess að leita lausna á sínum málum.“ Goðaborg rak fiskvinnslu á Fá- skrúðsfirði í húsnæði sem var í eigu hlutafélags í eigu sömu eigenda og Goðaborg og heitir Ragnaborg. í vikunni voru öll hlutabréfin í Ragnaborg og þar með húsnæði og tæki fiskvinnslu Goðaborgar seld Frosta í Súðavík, en tengsl Goða- borgar og Frosta eiga sér nokkra sögu sem jafnframt tengist þýska fyrirtækinu Lúbberts. í dag er vænst dóms í máli sem ákæruvaldið höfðaði gegn Frosta i Súöavík fyrir þátttöku í kvótasölu tU þýska fyrirtækisins Lúbberts. Þessi verslun við erlent fyrirtæki með fiskveiðiheimUdir í íslenskri lögsögu komst upp fyrir tUvUjun, en kvótinn var geymdur á skipum Frosta á Súðavík og framseldur tU skipa í Grindavík og tU skipa sem veiddu fyrir Goðaborg á Fáskrúðs- firði. Samkvæmt heimildum DV telja yflrvöld skyndUeg kaup Frosta á Ragnaborg á dögunum glöggt merki þess að þessi viðskiptatengsl Frosta, Goðaborgar/Ragnaborgar og Lúbberts séu að koma upp á yfir- borðið. Þá sé gjaldþrotabeiðni ís- landsbanka og árangurslaust fjár- nám í Goðaborg einfaldlega staðfest- Þokka- gyöjur Keppnin um ungfrú Reykjavík verður haldin á Hótel íslandi í kvöld og skýrist þá hver verður krýnd fegursta stúlka borgarinn- ar á þessu ári og hvaða stúlkur komast áfram i Fegurðarsam- keppni íslands. í gærkvöld fengu tæknimenn tækifæri tU að stUla ljós og finpússa sýninguna en þá hittust stúlkurnar til að undirbúa sýninguna, æfa sig í að ganga um sviöið og fleira i þeim dúr. Það verður síðan spennandi að sjá í kvöld hver þeirra verður kjörin ungfrú Reykjavík. DV-mynd GS Kolbrún IS 74 rakst á sker í Mjóafiröi og lagöist á hliðina: Sökk þegar reynt var að ná bátnum af skerinu - tveir skipverjar komust á kjöl og var bjargað DV, ísafirði: „Við vorum á rækjuveiðum og vor- um að fara út i Mjóafjörðinn klukkan rúmlega hálfeUefu. AUt í einu var bát- urinn kominn upp á sker og á hliðina. Við vorum að keyra út sundið hjá Hrútey þegar þetta gerðist á einu augnabliki. Báturinn lagðist á hliðina en sökk ekki, enda var fjara. Arnar blotnaði aðeins í fæturna en hann var staddur í brúnni. Annars blotnuðum við ekkert. Við settum út gúmmíbát tU að setja sjálvirkan neyðarsendi í gang en höfðumst sjálfir við á kUi bátsins. Nokkru síðar kom strákur frá Látr- um róandi á skektu tU okkar og björg- unarbáturinn Daníel Sigmundsson kom svo skömmu síðar. Þyrla Land- helgisgæslunnar kom rétt á undan Daníel og sveimaði yflr okkm-. Við fórum síðan um borð í Daníel um kl. hálfeitt," sagði Hannes Kristjánsson í samtali við DV. Það var um kl. hálfeUefu í gær- morgun að vélbáturinn Kolbrún ÍS 74 rakst á sker við Hrútey í Mjóafirði og lagðist á hliðina. Um vorð í bátnum voru bræðumir Amar og Hannes Kristjánssynir, gjarnan kenndir við Ármúla við Djúp. Arnar var skipstjóri á bátnum. Seinnipartinn í gær var svo farinn leiðangur á fjórum bátum inn í Mjóa- fjörð tU að reyna að bjarga Kolbrúnu af strandstað. TroUið var losað úr bátnum en síð- an var dælum komið fyrir um borð og báturinn réttur við að nokkm þannig að lestarlúgur komu upp úr sjónum. Það gekk vel að dæla sjó úr bátnum og tókst að tæma hann að mestu. Þeg- ar búið var að taka dælu frá borði og loka lúkarskappanum og menn ætl- uðu að fara að taka dæluna úr lestinni þá tók báturinn að lyftast. En í stað þess að lyftast eðlUega og rétta sig við lyftist kjölurinn upp og möstrin stungust niður. Báturinn snerist á skerinu og tók að sökkva að aftan en var festur við einn bátinn. Það tókst að losa á mUli en um leið sökk Kol- brún ÍS. Fulltrúar frá tryggingafélagi munu skoða þarna aðstæður og reynt verður að ná bátnum upp ef þess er nokkur kostur. -HK NIÐURSTAÐA r o d d \ mc'ái Á að auka þorskkvótann? FÓLKSINS 904-1600 Nei kf9% 41% ing þess að þær afurðabirgðir sem nú eru í frystigeymslum Goðaborg- ar séu eign annarraen Goðaborgar, nánar tU tekið hins þýska sam- starfsaðila fyrirtækisins og Frosta, Lúbberts. „Þetta sýnir einungis það að Frosti er enn með klæmar í þessu og Lúbberts og Frosti eiga mikUla hagsmuna að gæta saman í þessu,“ sagði viðmælandi DV innan stjómkerfisins í gærkvöld. Sveitarstjóri Búðahrepps, Stein- þór Pétursson, segir við DV að 11 mUljóna króna lán sveitarfélagsins hafi verið tryggt með veði í tækjum og búnaði og að svo stöddu gæti hann ekki metið hvort eða í hve miklum mæli Búðahreppur myndi tapa á gjaldþroti Goðaborgar. -SÁ Stuttar fréttir Kærur frá EFTA tslensk stjómvöld eiga yfir höfði sér tvær kærur fyrir EFTA- dómstólnum í Genf fyrir að fúU- nægja ekki ákvörðunum EES- samningsins á sviöi umhverfis- mála. Þetta kom fram á RÚV. Nafnleynd afnumin Skiptar skoðanir em um það hvort þeir sem gefa kynframur til nota við tæknifijóvgun eigi að njóta nafnleyndar. Samkvæmt RÚV telur Hjálmar Jónsson þing- maður það sjálfsögð mannréttindi að þekkja uppruna sinn. Merkismaður látinn Björn Pálsson, fyrrverandi al- þingismaður og bóndi á Ytri- Löngumýri, lést í gær, 91 árs að aldri. Kæra vegna Lyfju Eigandi Borgarapóteks hyggst kæra stjómvöld fyrir að hafa veitt apótekinu Lyfju, sem var opnað í gær, lyfsöluleyfi. Þetta kom fram á Stöð 2. Skorað á Kínverja Þingflokkur Kvennalistans af- henti varaforseta kínverska þingsins bréf í gær þar sem skor- að er á Kínverja að virða megin- reglur Sameinuðu þjóðanna og Amnesty Intemational um mann- réttindi. Veiðikortasjóður Umhverfisráðherra hefur út- hlutað tæpum 6 milljónum úr Veiðikortasjóði til fjögurra rann- sóknaverkefna, þar af 4,5 milljón- um til rjúpnarannsókna Náttúru- fræðistofnunar. Gróði lönlánasjóðs Iðnlánasjóður hagnaðist um 159 milljónir króna á síðasta ári, sam- anborið við 146 milljónir árið 1994. Samkvæmt Mbl. er afkomu- batinn einkum vegna minni af- skrifta. Auknar úthafsveiðar Úthafsveiðar íslendinga hafa stóraukist síðustu misseri. Sam- kvæmt Viðskiptablaðinu skila þær 10 milljörðum króna í þjóðar- búið á þessu ári. Fundaö um flugvöll Fulltrúar samgönguráðuneytis- ins og Reykjavikurborgar fund- uðu í Ráðhúsinu í gær um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Sam- kvæmt Ríkissjónvarpinu er rætt um endurbyggingu flugvallarins í Vatnsmýrinni. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.