Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
3
dv Fréttir
Hinrik Bragason, eigandi Gýmis, og Helgi Sigurösson dýralæknir:
Vilja áfrýja Gýmismálinu
en óvíst hvort það
Páll Skúlason hættur við:
Sáttur við
núverandi
starf
„Að vandlega athuguðu máli
tel ég ekki rétt að sækjast eftir
embætti forseta íslands. Ég er
afar sáttur við núverandi starfs-
vettvang minn og á þar ólokið
ýmsum verkum sem eru mér
hugleikin. Þá skal því ekki neit-
að að einnig vegur þungt sá fjár-
hagslegi kostnaður sem kosning-
abarátta virðist hafa í för með
sér. Ég sendi öllum sem hafa
hvatt mig í þessu máli einlægar
þakkir fyrir traust og stuðning,“
segir Páll Skúlason heimspeki-
prófessor meðal annars í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér síð-
degis í gær vegna undangenginn-
ar umræðu um hugsanlegt for-
setaframboð sitt.
Páll hefur sem kunnugt er ver-
ið sterklega orðaður við framboð
en með yfirlýsingunni er ljóst að
af því verður ekki. -bjb
Liz Mitcheil er i fararbroddi
þessa fjögurra manna söng-
flokks.
Boney M til
íslands
Hljómsveitin Boney M var hér
á landi í janúar sl. og hélt tón-
leika á Hótel íslandi fyrir fullu
húsi. Vegna fjölda áskorana er
hljómsveitin væntanleg til lands-
ins aftur og heldur tónleika á
Hótel íslandi síðasta vetrardag,
24. apríl. Á sumardaginn fyrsta
verður sveitin á fjölskyldutón-
leikum í KA íþróttahöllinni á
Akureyri klukkan 17. Möguleiki
er á að þriðju tónleikunum verði
bætt við á Hótel íslandi klukkan
22 sumardaginn fyrsta.
í tengslum við tónleikana
verður gerður sjónvarpsþáttur.
Tónleikarnir verða teknir upp
og einnig verða viðtöl við lista-
fólkið með íslenska náttúru sem
bakgrunn. Þátturinn er hugsað-
ur fyrir erlendan markað. Nú
þegar hafa komið fyrirspumir
frá allmörgum sjónvarpsstöðv-
um í Evrópu um kaup á þættin-
um.
Kynnir á tónleikunum verður
Þorgeir Ástvaldsson og hljóm-
sveitin Sixties leikur fyrir dansi
eftir tónleikana. -ÞK
Myndavélaeftirlit
í Grindavíkurhöfn
DV, Suðurnesjum:
„Hafnarverðimir hafa ekki
nægilega sýn yfir hafnarsvæðið
en með þessum hjálpartækjum,
sem við erum að fá, á það mjög
að lagast. Þeir munu jafnvel sjá
fyrir horn. Sjá hvernig bátar
raðast niður i höfninni og strax
er hægt að láta vita ef eitthvað
fer úrskeiðis," sagði Jón Gunnar
Stefánsson, bæjarstjóri í Grinda-
vík, við fréttamann DV.
Hafnarnefnd Grindavíkur hef-
ur samþykkt að koma fyrir
myndavélaeftirlitsbúnaði við
höfnina í Grindavík. Tvær
myndavélar verða settar upp
ásamt myndbandi. Áætlaður
kostnaður ásamt uppsetningu og
tengingu verður um 400 þúsund
krónur og ætlar hafnamefndin
að leita eftir samvinnu viö hags-
munaaðila um fjármögnun.
Höfnin verður kynnt á Intemeti
bæjarins. -ÆMK
Hinrik Bragason, eigandi Gýmis,
og Helgi Sigurðsson dýralæknir
hafa óskað eftir að áfrýja niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þar
sem þeir voru sakfelldir fyrir brot á
lögum um dýravernd og ákvæði
hegningarlaga með því að hafa látið
Gými keppa á landsmótinu árið
1994. Þetta mál er hins vegar enn á
ný komið í biðstöðu því óljóst er
hvort þeir fái að áfrýja til Hæsta-
réttar.
Samkvæmt ákvæðum nýlegra
laga geta sakborningarnir ekki
áfrýjað niðurstöðu mála sinna til
Hæstaréttar ef refsingar sem þeim
er gert að sæta teljast of lágar. Laga-
ákvæðið var sett til þess að tak-
marka fjölda áfýjunarmála. Hinriki
og Helga var hvorum um sig gert að
greiða ríkissjóði 170 þúsund króna
sekt.
Gýmismáiið hefur þrátt fyrir
þetta verið sent Hæstarétti sem nú
er að meta hvort sérstakar ástæður
séu til þess að taka það upp á æðra
dómstiginu. Óskað er eftir áfrýjun
fæst
af hálfu sakborninga eins og fyrr
segir. Ákæruvaldið telur sig sam-
kvæmt upplýsingum DV hafa fengið
sakborningana sakfellda að mestu
leyti miðað við þá ákæru sem gefln
var út þó svo að refsingarnar teljist
ekki miklar samkvæmt lögum um
áfrýjanir. -Ótt
849.000 kr.
fyrir þýsk gæði
í glæsílegum fólksbíl
Skoda Felicia 1300 - 5 dyra
r ■ : ■
Aukabúnaöur á mynd: Álfelgur
<
BC
'<
FRAMTÍÐIN BYGGIST Á HCFDINNI
Það er ekkert sem mælir
gegn því að þú kaupir
Skoda í dag.
Skoda stenst evrópskum og japönskum bílum
fyllilega snúninginn þegar þú leitar að vönduðum
fjölskyldubíl, en verðið er ennþá jafn ótrúlega lágt.
Skoda Felicia hefur slegið rækilega í gegn á (slandi
sem annars staðar og seldist þrisvar sinnum upp hjá
okkur á síðasta ári.
Skoda er nú í meirihlutaeign Volkswagen
samsteypunnar og það sést á gæðum bílsins.
í árekstursprófunum sem framkvæmdar voru
í Þýskalandi nýlega var Skoda Felicia í einu af
efstu sætunum og telst með öruggustu bílum
sem framleiddir eru í þessum stærðarflokki.
Skoda Felicia er með styrktarbita í hliðarhurðum,
höfuðpúðar í fram- og aftursætum, barnalæsingar
í afturhurðum, öryggisstýrisstöng og hæðarstillanleg
öryggisbelti. ^
Tryggðu þér nýjan
fjölskyIdubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega lágu verði.
1 9 4 6 - 1 9 96
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600