Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
Neytendur
Bókaútgáfan Staka:
Vín,
vísindi, list
vin
Út er komin á
íslensku bókin
Vín - vísindi,
list eftir vín-
fræðingana
Hugh Johnson
og James Halli-
day í þýðingu
Friðjóns Árna-
sonar og Guð-___
mundar A. Axelssonar. Þetta er
fyrsta bókin um vínfræði sem
fræðigrein sem kemur út á ís-
lensku. Almennur áhugi á víni
og vínsmökkun hefur aukist
mjög hérlendis á liðnum árum en
vantað hefur traustar heimildir
og upplýsingar á íslensku sem
aðgengilegar eru öllu vínáhuga-
fólki. Bókin er 232 bls. og í henni
eru 180 ljósmyndir og fjöldi skýr-
ingarmynda. Það er Staka ehf.,
bókaútgáfa, sem gefur bókina út.
Hún fæst aðeins hjá útgefanda.
Papúa
Nýja-Gínea
KafFitár hóf nýlega innflutning
á nýju kaffi frá Papúa Nýju-
Gíneu. Fjölmargir kaffibúgarðar
í fjölskyldueigu eru á eyjunni.
KafFi er mikilvægasta útflutn-
ingsvara heimamanna og kaffi-
baunirnar eru gjarnan nefndar
gullið græna enda nýjar óbrennd-
ar kaffibaunir þaðan með blá-
grænum lit. Kaffið hjá Kaffitári
er meðalbrennt, fremur milt og
bragðgott.
Á espressóbar Kaffitárs í
Kringlunni er nú hægt að fá
kaffidrykkina bragðbætta með
Da Vinci sírópi. Hefbundnir
drykkir á borð við Cappuccino og
KafFi Latte fá nýja vídd séu þeir
bragðbættir með súkkulað-
isírópi, Amarettó-, Cream-, Butt-
er Rum- eða vanillusírópi. Síróp-
ið er einnig gott sem bragðauki á
ís í stað issósu og út á pönnukök-
ur og vöfflur.
Sólríkur
frá Sól hf.
Sól hf. hefur
sett á markað
nýjan appel-
sínudrykk
undir vöru-
merkinu Sól-
ríkur. Drykk-
urinn er 49,9%
hreinn ávaxta-
safi. Ekki er
notaður hvítur
sykur í safann, aðeins náttúru-
legur ávaxtasykur og þrúgusyk-
ur, og engin rotvarnarefni. Sól-
ríkur er kælivara, framleiddur
og seldur í 1,5 lítra umbúðum og
fæst í flestum verslunum.
Sunnu
eplasítra
Sól hf.
hefur und-
anfarið unn-
ið að þróun
á nýjum
drykk, epla-
sítru, kol-
sýrðum
drykk með
12% hrein-
um eplasafa.
Slíkir
drykkir
hafa verið
fluttir inn til landsins um nokk-
urt skeið og eru seldir sem
eplacider. Sunnu eplasítra frá Sól
hf. er seldur í 1 lítra flöskum.
Auk eplasafa og kolsýru eru í
drykknum ávaxtasykur, þrúgu-
sykur, sítrónusýra og bragðefni.
-sv
Auglýsing frá Bifreiðaskoðun íslands ekki í samræmi við lög:
Þetta er skrum og
villandi auglýsing
- hefur verið bönnuð, segir Jóhannes Gunnarsson
„Þarna er verið að miða við
gjaldskrá sem dómsmálaráðherra
hefur samþykkt og notuð er úti á
landi. Hér í Reykjavík er ekki mið-
að við þessa gjaldskrá og því er ekki
verið að segja satt og rétt frá því
hver sé hinn raunverulega afsláttur.
Þetta er skrum og villandi auglýs-
ing og þeim er þetta óheimilt," seg-
ir Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, um afsláttar-
tilboð sem Bifreiðaskoðun íslands
hefur boðið þeim viðskiptavinum
sínum sem þiggja þá tíma í almenna
skoðun fyrir fólksbíla sem þeim hef-
ur verið úthlutað.
Á umræddum afsláttarmiða er
bent á að veittur sé 500 kr. afsláttur
og að verðið sé því 2.510 kr. Miðað
við það mætti halda að hið almenna
verð væri 3.010 kr. en ef hringt er í
Bifreiðaskoðun og spurt um verð á
almennri bifreiðaskoðun kemur í
ljós að það er 2.750 kr. Dómsmála-
ráðuneytið hefur hins vegar gefið út
gjaldskrá þar sem heimilt er að hafa
verðið allt að 3.010 kr.
„Ég á sæti í auglýsinganefnd sem
starfar á grundvelli samkeppnislaga
og hún hefur bannað Bifreiðaskoð-
un að nota þessa auglýsingu," segir
Jóhannes.
Ekki sammála
„Ég er ekki sammála því að þarna
sé verið að villa um fyrir fólki. Sam-
keppnisstofnun virðist gleyma því
að tO sé eitthvað sem heiti lands-
byggð og við lítum svo á að það verð
sem þar gildi sé viðmiðunarverðið.
Síðan veitum við afslátt hér í
Reykjavík þar sem samkeppnin er
mest,“ segir Karl Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Bifreiðaskoðunar Is-
lands. Karl segir að þótt hann sé
ekki sammála niðurstöðunni verði
tilmælunum hlítt og orðalaginu eitt-
hvað breytt.
Lægst hjá Athugun
Þrjú fyrirtæki annast skoðanir á
bifreiðum í Reykjavík, Athugun,
Aðalskoðun og Bifreiðaskoðun ís-
lands. Þegar DV sló á þráðinn til
fyrirtækjanna þriggja og spurði um
verð á almennri skoðun fólksbíla
kom í ljós að verðið var það sama
hjá Aðalskoðun og Bifreiðaskoðun,
2.750 kr., en lægst var það hjá At-
hugun, 2.500 kr.
Lögin heimila skoðunarstöðvum
að hækka verðið um 20% hjá þeim
sem skoða ekki innan lögbundinna
tveggja mánaða frá skoðunardegi en
yfirleitt er þetta gjald ekki inn-
heimt. Hjá Aðalskoðun hefur þetta
gjald ekki enn verið innheimt en
samkvæmt upplýsingum DV stend-
ur það hugsanlega til. Hjá Bifreiða-
skoðun hefur gjaldið yfirleitt ekki
verið innheimt upp á síðkastið og
að sögn Karls Ragnarssonar er það
eitt af því sém menn hafa fellt niður
vegna aukinnar samkeppni. Athug-
Bifreiðaskoðun
- aðalskoðun fólksbíla -
3000 kr.
2500
2700 2700
un innheimtir ekki þetta gjald.
„Það er alveg út í hött að inn-
heimta þetta gjald. Fólk hefur stað-
ið i þeirri meiningu að gjaldið renni
í ríkissjóð en það hefur það aldrei
gert. Þessir peningar hafa hingað til
runnið til skoðunarstöðvarinnar
sjálfrar, í þessu tilfelli til Bifreiða-
skoðunar,“ sagði maður, þessum
málum kunnugur, í samtali við DV.
Samkvæmt heimildum neytendasíð-
unnar nam þessi upphæð 6 milljón-
um króna árið 1994.
-sv
Verð á almennri bifreiðaskoðun fólksbíla er lægst hjá Athugun, 2.500 kr., en hjá Bifreiðaskoðun Islands og Aðalskoð-
un er það 2.750 kr. Bifreiðaskoðun hefur verið bannað að nota auglýsingu um afslátt og mun orðið við því.
Þjónusta Landsbankans:
Reiðufé
á bensín-
stöðum
Landsbanki íslands hefur gert
samninga við Olíufélagið Esso ann-
ars vegar og Olíuverslun íslands
hins vegar um úttektir á reiðufé á
bensínstöðvum félaganna. Handha-
far debetkorta frá Landsbankanum
geta tekið út reiðufé af reikningum
sínum á 40 bensínstöðvum Olís og
70 stöðvum Essó. Hámarksúttekt er
10 þúsund krónur og er úttektin al-
veg óháð því hvort verið er að
kaupa bensín eða aðrar vörur.
-sv
Spurt og svarað um almenntryggingar:
Sendið spurningar
til blaösins
Tryggingastofnun ríkisins
heldur um þessar mundir upp á
60 ára afmæli stofnunarinnar. í
tilefni tímamótanna ætlar DV að
gefa lesendum sinum kost á því
að fræðast um almannatrygging-
ar. Fólk getur sett sig í samband
við umsjónarmann Neytendasíð-
unnar, Svan Valgeirsson, í síma
50-5000 og 550-5814 eða í bréfasíma
550-5999, og komiö spurningunum
á framfæri. Svala Jónsdóttir,
deUdarstjóri fræðslu- og útgáfu-
deildar Tryggingastofnunar, mun
síðan svara spumingunum hér á
síðunni.
Hér er kærkomið tækifæri fyr-
ir fólk að fá svarað þeim spurn-
ingum sem brunnið hafa á því
um almannatryggingar og það
ekki vitað hvert best væri að
snúa sér. HaFið samband við blað-
ið sem fyrst og reynt verður að
svara sem flestum. -sv
Verðlagning:
Bannað að
veita rangar
upplýsingar
Karlmaður haíði samband við
Neytendasiðuna og vildi koma á
framfæri kvörtun vegna verð-
lagningar á pitsum aðfaranótt
annars í páskum á Pizza 67. Mað-
urinn sagði að staðið hefði á mat-
seðlinum að 20% álagning væri á
pitsum á páskadag en samt hefði
hann verið látinn borga álagning-
arverðið. Þar fyrir utan hefði
hann ekki fengið 20% afslátt eins
og honum hefði borið miðað við
auglýsingu fyrir fólk í Einka-
klúbbnum.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, sagði
við DV að það hlyti að vera skiln-
ingur allra að páskadegi lyki á
miðnætti og ekki gengi að annað
stæði á matseðli en það sem síð-
an væri framkvæmt. „Sam-
kvæmt samkeppnislögum er
bannað að veita rangar upplýs-
ingar og miðað við þessa sögu er
það gert hér,“ sagði Jóhannes.
Um afsláttinn vegna Einka-
klúbbsins sagði hann að ef menn
veittu ekki þann afslátt sem þeir
auglýstu væru þeir að villa um
fyrir fólki. Hann sagði engar regl-
ur tU um það að afsláttarkort
giltu ekki á helgidögúm. Slíkt
yrði að taka fram sérstaklega.
Óáfengt vín:
Monin Bitter
Vínland
ehf. hefur sett
á markað
drykkinn
Monin Bitter.
Honum svipar
mjög til sí-
gildra bittera
á borð við
Campari,
nema hvað
hann er óá-
fengur. Monin
Bitter mun til
að byrja með
einungis fást í
verslunum
Hagkaups í
Kringlunni og
Skeifunni og
kostar 700 ml
flaska 598 kr.
Drykkurinn
er ýmist drukkinn einn og sér
með klaka og (sóda-) vatni, bland-
aður appelsínusafa eða notaður í
óáfenga kokkteila. Einnig má
styrkja Monin Bitter með vodka
svo hann verði áþekkur öðrum
rauðum áfengum bitterum.
Pizza 67:
Mismunandi
túlkanir
„Hingað til hefur verið bannað
að hafa opið á páskadag og það
bann hefur gilt fram að hádegi á
annan í páskum. Þess vegna
fannst okkur ekki óeðlilegt að
miða við það að páskadegi lyki
klukkan fjögur. Ef páskadegi
hefði lokið á miðnætti undanfar-
in ár, miðað við þær reglur sem
okkur hafa verið settar, þá hefð-
um við vitaskuld opnað strax á
miðnætti. Þetta er allt á gráu
svæði og við veltum því mikið
fyrir okkur hvernig þessir hlutir
ættu að vera. Við borguðum
starfsfólkinu laun alla nóttina
með páskadagsálagi og því höfð-
um við álagið á pitsunum líka,“
sagði Guðjón Gíslason, einn eig-
enda Pizza 67. Guðjón sagði að
vitaskuld þyrfti að setja skýrar
reglur í þessu sambandi því
þessa hluti mætti túlka á marga
vegur.
„Viö litum ekki svo á að við
værum að gefa rangar upplýsing-
ar á matseðlinum. Okkar skiln-
ingur var sá, miðað við fengna
reynslu, að páskadegi lyki ekki í
þessu samhengi fyrr en kl. fjögur
um nóttina," sagði Guðjón. -sv