Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Síða 13
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
13
Skoðunarmál á landsbyggðinni:
Draumurinn að
færa út kvíarnar
- segir Gunnar Svavarsson hjá Aðalskoðun hf.
„Bifreiðaskoðunarmálin eru í
miklum ólestri víða á lands-
byggðinni og menn þurfa að
finna leiðir til þess að laga þau.
Fjölmargir hafa haft samband
við okkur um að setja upp þjón-
ustustöðvar úti á landi vegna
þessa ástands sem verið hefur.
Við höfum haft í hyggju að gera
það þarna á Vestfjörðunum, rétt
eins og á Akureyri og á fleiri
stöðum," sagði Gunnar Svavars-
son, stjórnarformaður Aðalskoð-
unar hf., í samtali við DV i kjöl-
far fréttar í blaðinu síðastliðinn
þriðjudag um bullandi óánægju
Vestfirðinga með þjónustu Bif-
reiðaskoðunar íslands.
Gunnar sagði við DV i gær að
ekki hefði verið hægt að fara út í
þessa þjónustu, t.d. á Akureyri,
vegna þess að ekki væri hægt að
bjóða upp á alla þjónustuna,
númeramál og fleira.
„Við fáum ekki að sinna þeim
málum og það er í sjálfu sér eng-
in lausn fyrir Suðurfirðina í
sambandi við númer, endur-
skráningar, eigendaskipti, af-
skráningar o.s.frv. þótt við opn-
um skoðunarstöð. Reyndar á ég
von á að í næsta mánuði fari að
draga til tíðinda í þessum efnum
og að við munum fara að sjá
reglugerð sem jafnar þann mun
sem er á samkeppnisstöðu skoð-
unarstöðvanna."
Gunnar sagðist alveg sjá fyrir
sér að skoðunarfyrirtækin tækju
upp einhverja samvinnu um
skoðun úti á landi. Aðstöðumun-
ur fyrirtækjanna gerði það þó að
verkum að það væri óhugsandi í
dag. * -sv
Rottæk breyting a umferð
um Hverfisgötu
Borgarráð, skipulagsnefnd
Reykjavíkur og umferðarnefnd hafa
samþykkt að fara að óskum stjórnar
Strætisvagna Reykjavíkur og heim-
ila einungis akstur strætisvagna á
Hverfisgötu í vesturátt en ekki ann-
arra bíla.
Heimildin gildir í eitt ár til
reynslu en að þeim tíma liðnum er
ætlunin að meta hvort vit sé í að
halda tilhöguninni áfram tU fram-
búðar.
Umferðardeild hefur verið falið
að útfæra skipulag umferðar um
Hverfisgötuna með tilliti tU þessar-
ar tvístefnuumferðar og skipulag
umferðar aðliggjandi gatna og verð-
ur tiUaga deUdarinnar lögð fyrir
umferðarnefnd til afgreiðslu. Þá er
Umferðardeild og stjórn SVR gert að
hafa samráð um staðsetningu bið-
stöðva við Hverfisgötuna. -SÁ
Krakkar! og
Það verður mikið fjör í Tígrahorninu í Kringlunni
á morgun laugardag.
Tígri, lukkudýr Krakkaklúbbs DV, kemur í
heimsókn kl. 12.00 og kl. 15.00.
Allir krakkar fá glaðning frá Krakkaklúbbnum,
blöðrur og nammi.
Þið getið fengið þátttökugögn í Tígrahorninu.
Einnig er hægt að skila inn sögum á sama stað.
Allir krakkar sem skila inn sögu fá verðlaun.
Til að skila inn sögunni þarftu að koma við í
Tígrahorninu í Kringlunni eða senda hana til
Krakkaklúbbs DV, Þverholti 14,
105 Reykjavík.
Komið í heimsókn í
Tígrahornið og
heilsið upp á Tígra.
í samstaríi við ||raIPrdar og ^ lögregluna
Fréttir
Akurnesingar eignast
Andakílsárvirkjun
DV, Akranesi:
Undirritað var 2. apríl á Akranesi
samkomulag milii 12 hreppa í Mýra-
og Borgarfjarðarsýslum. Samkomu-
lagið kveður á um að Akraneskaup-
staður kaupi hlut hreppanna í
Andakílsárvirkjun og verða Akur-
nesingar þar með eigendur að
henni. Hlutur hreppanna 12 var
30%. Á aðalfundi virkjunarinnar
kom fram að hagnaður hafði orðið
25 milljónir i fyrra.
Andakílsárvirkjun var stofnuð 1.
nóvember 1942 og byggð upp á ár-
unum 1942-1947. Stöðvarstjórar
virkjúnarinnar hafa verið tveir frá
upphafi, Óskar Eggertsson og Ás-
geir Sæmundsson. Það sama á við
um stjórnarformennina. Haraldur
Böðvarsson var sá fyrsti en Magnús
Guðmundsson frá 1963. í núverandi
stjórn eru bæjarfulltrúarnir Gunnar
Sigurðsson formaður, Guðbjartur
Hannesson, Ingvar Ingvarsson, Guð-
mundur Páll Jónsson og Sveinn
Kristinsson. DÓ
Fulltrúar sveitarfélaganna við samningagerðina. Þar eru m.a., talið frá vinstri, Sigurður Valgeirsson, Leirár- og Mela-
hreppi, Ólafur Guðmundsson, Hvítársíðuhreppi, Sigurjón Jóhannsson, Borgarhreppi, Jón Böðvarsson, Lundar-
reykadalshreppi, Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, Þórunn Reykdal, Hálsahreppi, Anton Ottesen, Innri-Akranes-
hreppi, Guðrún Jónsdóttir, Þverárhlíðarhreppi, Davíð Pétursson, Skorradalshreppi, Marinó Tryggvason, Skilmanna-
hreppi og Jón Valgarðsson, Hvalfjarðarstrandarhreppi. DV-mynd DÓ
m rp
m m
t IpTiPÍi
í BODI COCA-COLA
IOpP *() VlK|jLE(»A
ISLENSKI LISTINN ER BIRTUR í DV Á HVERJUM LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVOLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Kynnir: Jón Axe<l Olafsson
(SLENSKI LISTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA Á ÍSLANDI. LISTINN ER NIÐURSTAÐA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM-
KVÆMD AF MARKAÐSDEILD DV í HVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER Á BILINU 300-400, A ALDRINUM14-35 ÁRA AF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK-
IÐ MIÐ AF SPILUN Á (SLENSKUM UTVARPSSTÖÐVUM. (SLENSKI LISTINN BIRTIST Á HVERJUM LAUGARDEGI ( DV OG ER FRUMFLUTTUR Á BYGJUNNI Á
LAUGARDOGUM KL. 16-18. LISTINN ER BIRTUR AÐ HLUTA ( TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. (SLENSKIUSTINN TEKUR ÞÁTT (VALI „WORLD
CART“ SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO EXPRESS TlOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN ÁHRIF Á EVRÓPULISTANN SEM BIRTUR ER í TÓNLISTARBLAÐ-
íRÍSKATONU
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKIÐ AF BANDARÍS
NLISTARBLAÐINU BILLBOARD.