Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Page 32
Alla laugardagai
Vertu viðbúínfn) |
vinningii f
Vinningstölur
11.4/96
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá 1 síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
Helgarblað DV:
Þorsteinn
svarar fyrir sig
Öll spjót virðast standa á Þor-
steini Pálssyni og ráðuneytum hans
þessa dagana. í helgarblaði DV á
morgun svarar Þorsteinn spurning-
um blaðamanns DV um mál mál-
anna um þessar mundir í ítarlegu
helgarviðtali. Þá verður rætt við
Einar Heimisson, sagnfræðing og
kvikmyndagerðarmann, um nýja
kvikmynd sem tökur hefjast vænt-
anlega á í haust. Fegurð á íslandi og
í Hafnarfirði verða gerð góð skil og
áfói listó eða Jóhann Jónsson lífs-
listamaður dregur ekkert undan
þegar hann ræðir um listalífið og
fantasíur sínar.
Goðaborg á Fáskrúðsfirði:
Eigum hjá
Liibberts
„Það eru íslandsbanki og Fiskaf-
urðir hf. sem eiga afurðirnar í
frystigeymslum Goðaborgar," sagði
Einar Víglundsson, framkvæmda-
stjóri Goðaborgar, í morgun.
Einar segir að ástæða þess að
bankinn taki ekki einfaldlega birgð-
irnar upp í kröfur sínar vegna af-
urðalána sé sú að Goðaborg eigi
útistandandi kröfu á Lúbberts i
Þýskalandi sem bankinn telji tap-
aða. Sú krafa nemi milli sjö og átta
milljónum.
„Við teljum að það sé ekki full-
reynt. í stórum dráttum snýst málið
um þessar 7-8 milljónir," segir Ein-
ar. -SÁ
Tvö innbrot
Lögreglunni í Reykjavík bárust
tvær tilkynningar um innbrot síð-
asta sólarhringinn. í fyrrinótt var
brotist inn í fyrirtæki við Ármúla
og þaðan stolið ávísanahefti og tal-
stöðvum. Liðna nótt var síðan brot-
ist inn í íþróttahús Fram við Safa-
mýri og þaðan stolið peningum og
einhverjum búnaði. Ekkert er vitað
bverjir voru að verki á þessum stöð-
um. -sv
ER EKKI &ARA BULL
AÐ PAÐ SE AGREIN-
INGUR?
Átakafundur í félagi Reykjavíkurpresta í gærkvöld:
Bullandi ágreiningur
um biskupsmálið
Prófastarnir í Reykjavík, þeir
sr. Guðmundur Þorsteinsson og
sr. Ragnar Fjalar Lárusson, ásamt
sr. Þóri Stephensen, kröfðust þess
á fundi í Félagi Reykjavíkurpresta
í gærkvöld að slegin yrði skjald-
borg um biskup íslands í embætti.
Sr. Þórir tók nokkrum sinnum
til máls og ítrekaði þá skoðun sína
að ekkert væri athugavert við að
biskup stæði í málaferlum fyrir
dómstólum og rökstuddi það með
því að sjálfur hefði hann staðið í
meiðyrðamáli við Hall Magnús-
son, blaðamann á Tímanum, á sín-
um tíma án þess að embættisleg
staða hans biði af þvi hnekki.
Prófastarnir og sr. Þórir vitn-
uðu í þessu sambandi til persónu-
- reynt að slá skjaldborg um biskup
DV-mynd Sveinn
legra kynna sinna af biskupi og
vináttu við hann og fullyrtu í Ijósi
þeirra að hann væri saklaus af
þeim ávirðingum sem á hann hafa
verið bomar.
Á fundinum var bullandi
ágreiningur því að uppi voru
einnig sterkar raddir um að bisk-
up ætti að víkja úr embætti burt-
séð frá sekt eða sakleysi vegna
þess að málavafstrið skaðaði kirkj-
una. Hagsmunir hennar væru
æðri persónulegum hagsmunum
eða metnaði þess manns sem
gegndi æðsta embætti hennar.
Fundurinn var eins konar und-
irbúningsfundur fyrir fund Presta-
félags íslands nk. mánudag. Engin
ályktun var afgreidd á fundinum
Prestar á leið til fundar í gærkvöld.
og prestur, sem rætt var við í
morgun, sagði að menn heföu
ákveðið að gefa ekkert upp um
umræðuefnin enda væri nóg kom-
ið af yfirlýsingum vegna biskups-
málsins á báða bóga. -SÁ
Federico Mayor, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóöanna, UNESCO, kom til landsins í
gær í opinbera heimsókn. Björn Bjarnason menntamálaráðherra tók á móti Mayor á heímili sínu í gærkvöld og hér
takast þeir í hendur. Mayor heldur fyririestur í Odda í dag um hlutverk háskóla í nútímasamfélagi.
DV-mynd GS
Einar Oddior:
Óhætt að auka
kvótann strax
„Ég hef trú á því að óhætt sé að
auka þorskkvótann verulega í ár.
Ég hef haldið því fram lengi og
byggi skoðun mína á reynslu þeirra
sem ég þekki í þessum bransa. Ég
vona bara að ráðherra fái þau gögn
frá Hafrannsóknastofnun sem gera
honum kleift að auka kvótann fyrir
15. aprO,“ segir Einar Oddur Kristj-
ánsson, alþingismaður og fulltrúi í
sjávarútvegsnefnd þingsins.
Hann sagði að sjávarútvegsnefnd-
in hefði síðastliðinn þriðjudag sent
Hafrannsóknastofnun áskorun um
að flýta niðurstöðum sínum þannig
að ráðherrann hefði einn eða tvo
sólarhringa til að skoða málið fyrir
15. aprfi. Fyrir þann dag verður, lög-
um samkvæmt, að taka ákvörðun ef
auka á kvótann. -S.dór
Grindavík í
sparifötunum
Grindvíkingar fognuðu íslands-
meistaratitli í körfubolta fram eftir
nóttu og að sögn lögreglu skemmtu
menn sér víða um bæinn fram und-
ir morgun. Allt fór þó vel fram og
þurfti lögreglan ekki að hafa af-
skipti af mönnum. Spariskapið
fylgdi greinilega sparifótunum. -sv
Veðrið á morgun:
Vætusamt
sunnan-
lands
Á morgun verður suðaustan
kaldi eða stinningskaldi. Vætu-
samt verður um sunnan- og
austanvert landið en annars
þurrt að mestu.
Hiti verður 2 tfi 10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36