Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 21
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 mennmg 21
Fyrstu djasstónleikar
á íslandi endurteknir
Fyrstu djasstónleikar á íslandi
voru haldnir 1 Gamla bíói fyrir
hálfri öld, 15. apríl 1946. Veg og
vanda af tónleikunum hafði rúm-
lega tvítugur maður, Jóhannes Þor-
steinsson (Jonni í Hamborg), en
hann lést svo seinna þetta sama
ár. í minningu hans og þessa
framtaks hans voru þessir tón-
leikar endurteknir síðastliðið
fimmtudagskvöld, þ.e.a.s. efnis-
skráin var sú sama og fyrir
fimmtíu árum og einn spilar-
anna þá, Björn R. Einarsson
básúnuleikari, var einnig með
nú. Þeir sem léku með Birni í
þetta skiptið voru þeir Guð-
mundur R. Einarsson trommu-
leikari, Árni Elfar básúnuleik-
ari og píanisti, Tómas R. Ein-
arsson bassaleikari og svo tveir
ungir menn sem voru gagngert
sóttir til útlanda, þeir Veigar
Margeirsson trompetleikari og
Agnar Már Magnússon píanisti.
Auk þessara var svo fenginn er-
lendis frá einn heimavanur í tónlist
af þessu tagi, Daninn Jörgen Svare,
sem leikur á klarínett, einn af stofn-
endum Papa Bues Jazzband og hef-
ur hann leikið á grúa platna með
þeim og seinna öðrum.
Djass
Ársæll Másson
Agnar hóf tónleikana einn, On
the Sunny Side of the Street, en
Guðmundur trommaði svo með
honum í næsta lagi. Agnar og Árni
Elfar skiptust á að sitja við pianóið
fyrstu fimm lögin og léku ýmist ein-
ir eða með Guðmundi á trommun-
um. í sjötta laginu bættist svo
Jörgen Svare í hópinn og lék Sheik
of Araby og fór svo fjölgandi á svið-
inu eftir það. Eitt frávik varð að
gera á efnisskrá uprunalegu tónleik-
anna þar sem lag Jóhannesar Þor-
steinssonar, Waller’s Weight, er
glatað en í staðinn var frumflutt lag
eftir Árna Elfar, samið í anda þeirra
Jonna og Wallers. Hljómsveitin náði
strax upp góðri stemningu í þétt-
setnu bíóhúsinu og er greinilegt að
ragtime og dixieland á sér marga
áhangendur hérlendis þótt ekki gef-
ist mörg tækifæri til þess að heyra
slíkt flutt á tónleikum, enda engin
hljómsveit íslensk sem sérhæfir sig
í tónlist eins og hér mátti heyra.
Jörgen Svare fór iðulega á kostum á
klarínettið og var augljóslega að
spila „sína músík“. Árni Elfar og
þeir bræðumir Björn og Guðmund-
ur eru einnig aldir upp við þessa
sveiflu og var trommustíll Guð-
mundar hér á heimavelli. Ungu
mennirnir, Agnar Már og Veigar,
stóðu sig vel í þessum hlutverkum
Jörgen Svare fór á kostum á klarínettið.
Baðkar
Stærð 170x70 cm
Handlaug
á vegg
34x45 cm.
WC
í vegg eða gólf
með vandaðri
harðri setu
í sama lit.
ÖWtæWnf
sama að«»a>
trV99'r
áferð og
^Tfyrirade,^
RAÐGREIÐSLUR
tryggtng
SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) • SÍMI 588 7332
OPIÐ: MANUD. - FOSTUD. 9-18 • LAUGARDAG 10-14
þótt þeir séu sennilega öðrum aukalögum sem flutt vom. Er óhætt
hljómi vanari. Veigar blés á köflum að fullyrða að þetta voru sérlega vel
gullfallega, t.d. í As Time Goes by og heppnaðir tónleikar í alla staði og
Stardust sem var fyrst af þremur vel til fundið hjá RúRek-stjórninni
að heiðra minningu Jonna með
þessum hætti og rifja upp um leið
upphaf íslenskrar djassögu.
Þrír 60 mín. langir fundir um
samkeppnisstöðu íslands í
breyttum heimi.
á 60 mínútum
16. apríl
kl. 17:15 á Hótel Borg
VIÐSKIPTAUMHVERFI 0G SAMKEPPNISSTAÐA
ÍSLENSKS ATVINNULÍFS
Frummælendur:
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs Skeljungs hf.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf.
Fundarstjóri:
Halldóra Vífilsdóttir, varaformaður SUS
23. apríl
kl. 17:15 á Hótel Borg
MIKILVÆGI MENNTUNAR
0G MENNINGAR
Frummælendur:
Bjöm Bjarnason, menntamálaráðherra
Sigrún Gísladóttir, skólastjóri
Súsanna Svavarsdóttir, blaðamaður
Fundarstjóri:
Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður SUS
30. apríl
kl. 17:15 á Hótel Borg
NÝJAR AUÐLINDIR
Frummælendur:
Halldór Blöndal, samgönguráðherra
Guðbjörg Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur
Geir Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Marels hf.
Fundarstjóri:
Elsa Valsdóttir, varaformaður Heimdallar
Að fundunum standa eftirtaldar málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins:
Efnahagsmálanefnd, Ferðamálanefnd, Iðnaðarnefnd, Menningarmálanefnd,
Nefnd um upplýsingamál, Skóla- og fræðslunefnd, Vinnumarkaðsnefnd.
SJÁLFST&DISFLOKKURINN