Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Síða 6
22 sinmariws___________________________________
Jakob á Horninu léttir okkur undirbúninginn:
„Matseðillinn er svolítið í einfald-
ari kantinum, svona eins og við höf-
um þetta sjálf. Okkur finnst gott að
hafa brauð með öllum þessum rétt-
um, oftast gróft brauð sem við bök-
um jafnvel í bústaðnum. Með lambi
og fiski höfum við gjarnan græn-
meti líka, t.d. smjörbaunir,
spergilkál eða gulrætur," sagði Jak-
ob H. Magnússon, matreiðslumeist-
ari og eigandi veitingastaðarins
Homsins í Hafnarstrætinu.
Við báðum Jakob að koma með
tillögu að matseðli fyrir vikudvöl í
sumarhúsi, svona til að létta okkur
hinum undirbúninginn. Sjálfur er
hann búinn að eiga sumarbústað
við Meðalfellsvatn í Kjós í ein 12 ár '
sem hann sækir mikið á sumrin en
minna á veturnar. „Ég er vel kunn-
ugur á þessum slóðum því foreldrar
mínir áttu bústað á sama stað og
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996
Sonur Jakobs, Jakob Reynir, hefur gaman af því að veiða með pabba sínum
þegar hann er í sumarbústaðnum.
amma mín, bróðir hennar og dætur
byggðu bústaðinn minn,“ sagði Jak-
ob.
Bústaðurinn er því kominn til
ára sinna og hafði hvorki vatn né
rafmagn hér á árum áður. „Við höf-
um endurnýjað hann svolítið, m.a.
sett í hann rafmagn, tvöfalt gler og
einangrun en enn sækjum við vatn-
ið í brunninn," sagði Jakob. Að-
spurður um áhugamál í bústaðnum
sagðist hann stunda lax- og silungs-
veiði í vatninu þegar færi gæfist og
matreiða þá gjarnan aflann. „Svo
hef ég gaman af því að fara í göngut-
úra með konunni og börnunum.
Þarna nær maður alveg að kúpla sig
út úr amstrinu."
Hér til hliðar birtast tillögur Jak-
obs að matseðli fyrir vikudvöl í
sumarhúsi en þær miðast allar við
ijóra.
—segir Anna E. Ólafsdóttir hjá Næringarráðgjöfinni sf.
„Sólblómafræ eru ágæt sem nasl.
Þau eru góð eins og þau koma fyrir
úr pakkanum en enn betra er að
rista þau á þurri pönnu eða í ofni í
stutta stund. Þá eru þau hreinasta
sælgæti," sagði Anna Elísabet Ólafs-
dóttir, matvæla- og næringarfræð-
ingur hjá Næringarráðgjöfinni sf.,
er við báðum hana að koma með
hugmyndir að hollu og góðu snakki
í sumarbústaðinn. „Fræin eru
nokkuð feit en fitan í þeim er mjúk
og því ekki slæm heilsunni. Fitan
gefur að vísu mikla orku þó hún sé
mjúk, svo ekki er um neitt megrun-
arfæði að ræða, en fræin eru einnig
auðug af B-vítamínum og járni,“
sagði Anna.
„Svo eru líka möndlur (gjarnan
ristaðar), blandaðar saman við rús-
ínur, ágætisnasl. Ef blandan er 50:50
er orkuinnihald um 450 kkal. í
hverjum 100 g. Töluverð fita er í
hnetum en nánast engin í rúsínum
þar sem kolvetnin eru allsráðandi.
Þetta nasl gefur töluvert af trefjum
og járni. Saltaðar hnetur í pakka
eru feitar eins og allar hnetur. Þær
eru mikið saltaðar og því getur ver-
ið erfitt að hætta því áti þegar mað-
ur hefur einu sinni byrjað því salta
bragðið kallar á meira. Mikil salt-
neysla stuðlar hins vegar að hækk-
uðum blóðþrýstingi."
Hún sagöi að mjólkurís, harðfisk-
ur og poppkorn væri einnig ágæt-
isnasl. „Popp er ágætt því það gefur
trefjar, en þó ekki næstum eins mik-
ið og sólblómafræ, hnetur og rúsín-
ur. Það inniheldur töluvert af salti
og er ekkert sérstaklega
vítamínauðugt," sagði Anna.
Hún benti á að allt þetta nasl
væri orkuríkt og því óhentugt þeim
sem þurfa að huga að línunum. „í
þeim tilfellum er langsniðugast að
fara á grænmetismarkaðinn og
kaupa sér gulrætur, blómkál, sellerí
eða sambærilegt, saxa niður fingur-
langa bita og nota sem nasl. Þó við
notum ídýfu er þetta langhollasta og
fyrir marga besta naslið. í 100 g af
gulrótum eru 40 kkal. sem er meira
en 10 sinnum minna en í áðurnefnd-
um fæðutegundum. Þær innihalda
enga fitu, eru trefjaríkar og auðugar
af bætiefnum, sérstaklega A-
vítamíni. Að sjálfsögðu standa
ávextirnir alltaf fyrir sínu. Þá má
brytja niður í ávaxtasalat og blanda
e.t.v. saman við það súkkulaðispæni
og borða með mjólkurís."
Kartöfluflögur og súkkulaði er
það fyrsta sem mörgum dettur í hug
þegar þeir hugsa um snakk. „Fita og
sykur saman gefa gott bragð, eins