Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 DV 26 jgumarhús_________________________________________________________ Blikksmiðja Benna smíðar og setur upp reykrör fyrir kamínur: „Einn algengasti bruni í sumar- húsum er þegar kviknar í út frá reykrörum og oft á tíðum hefur fólk þá séð um uppsetninguna sjálft af takmarkaðri kunnáttu. Það er því fyrst og fremst öryggisatriði að fá fagaðila til að ganga þannig frá reykrörum að það skapist ekki eld- hætta af þeim. Það tekur að meðal- tali tvo menn um 5 klukkustundir," sagði Benedikt Jóhannsson, eigandi Blikksmiðju Benna, sem sérhæft hefur sig í smíði og uppsetningu reykröra í rúm 20 ár og fengið við- urkenningu Brunamálastofnunar í þeim efnum. „Önnur hætta sem skapast viö lé- legan frágang er leki en vatn getur t.d. auðveldlega lekið inn með rör- inu í gegnum þök og veggi ef frá- gangurinn er ekki góður,“ bætti Benedikt við. Hann segist aöallega þjónusta sumarbústaðaeigendur en þó færist það í vöxt að fólk setji upp kamínu í stofunni eða sólstofunni heima. „Þegar fólk kemur til okkar viljum við gjaman fá teikningu af húsnæð- inu svo að auðveldara sé að ráð- leggja varðandi uppsetningu kamin- unnar. Það eru ákveðnir þættir sem hafa ber í huga, eldstæði og reykrör verða t.d. að vera í ákveðinni fjar- lægð frá brennanlegu efni og til að fá sem besta hitanýtingu er gott að hafa kaminuna sem næst miðju húsi,“ sagði Benedikt. Hann sagði þó marga staðsetja kamínuna þar sem hún að þeirra mati færi best en að þá mættu t.d. ekki vera flísar fyr- ir aftan hana. „Flísamar hafa hitaleiðni þó þær brenni ekki sjálfar. Með árunum ertist brennanlegt efni á bak við þær og verður að lokum svo bruna- næmt að það kviknar í því. Þarna yrði að hafa loftbil á milli, setja t.d. flísarnar á málmplötu eða hafa málmplötuna eingöngu á bak við kamínuna. Sé það gert virkar hún sem ofn því hitinn endurkastast frá henni,“ sagði Benedikt. Hann taldi hagkvæmast að setja svarta málmplötu undir kamínuna þó tO væru ýmis önnur málmefni. „Það er alla vega nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir framan hana því þessu fylgja alltaf einhver óhrein- indi.“ -ingo Reflectix er byltingarkennt einangrunarefni sem hannað er af NASA og byggist upp á hitaendurkasti og er frábær þar sem rými er lítið. ðmÚLIST ExNANttUNAMXLDXI áfe __-J&C CanWel ABTCO Tilvdiið í sumarhdsi Frábœrt úrval af þilplötum, filmukrossvið baðþiljum. Sjónersögu rikari... komið og skoðið í sýningarsal okkar. & CO ÁRMÚLA 29 - 108 REYKJAVÍK - S: 553 8640 & 568 6100 „Það er öryggisatriði að fá fagaðila til að ganga þannig frá reykrörum að það skapist ekki eldhætta af þeim,“ segir Benedikt m.a. í greininni. Frumieg nýjung atvinnurekenda í Borgarfirðinum: Upplýsingamiðstöð fyrir sumarhúsaeigendur - varðandi verslun og þjónustu á svæðinu „Hér er annað stærsta sumar- húsasvæði landsins, eða í kringum tólf hundruð bústaðir á skrá. Eftir því sem við komumst næst dvelja hér á bilinu 4.000-6.000 manns að staðaldri yfir sumartímann sem við teljum okkur geta aðstoðað og þjón- að í meira mæli en nú er,“ sagði Guðrún Jóiisdóttir, framkvæmda- stjóri hjá Markaðsráði Borgamess. Ráðið setti nýlega á stofn sérstaka upplýsingamiðstöð fyrir eigendur og byggjendur sumarhúsa i Borgar- flrðinum sem Guðrúnu vitanlega á sér enga hliðstæðu hér á landi. „Að baki Markaðsráði standa í kringum hundrað fyrirtæki í Borg- arfirðinum, en það eru þó aðallega byggingaraðilar, sem hafa það að markmiði að bjóða sumarhúsaeig- endum alla þjónustu á einum stað og kynna í leiðinni hið fjölbreytta atvinnulíf staðarins. Við viljum sér- staklega vekja athygli á borgfirskri nýsmíði en hér eru aðilar sem m.a. smíða sumarhús,“ sagði Guðrún. Hún sagði þjónustuaðila í Borgar- firðinum einnig hafa margt að bjóða núvernadi sumarhúsaeigendum. „Þeir geta t.d. hringt til okkar og fengið allar upplýsingar um við- haldsvörur fyrir bústaðinn, iðnað- armenn sem lagfæra þök og mála bústaði að utan, nöfn á fólki sem hirðir og slær lóðir, eftirlitsmenn sem taka að sér að fylgjast reglulega með bústöðum, hreingemingarfólk sem gerir hreint aö vori þegar von er á fólkinu og skrá yfir nálægar garðyrkjustöðvar, svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Guðrún. Aðspurð sagði hún að fyrir hendi væru sumarhúsalönd á einum 50 jörðum í Borgarfirðinum, þar af 25-30 jarðir sem hafa lausar lóðir. Af vinsælum svæðum nefndi hún bústaði í landi Galtarholts og Mun- arðamess og í Svína- og Norðurárd- al. „Svo er verið aö byrja á nýju svæðisskipulagi í Mýrasýslu þar sem eru mjög spennandi svæði. Vilji fólk kynna sér þetta nánar get- ur það leitað til okkar og fengið all- ar upplýsingar," sagði Guðrún. Starfsmaður upplýsingamiðstöðvar- innar verður Magnús Valsson. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.