Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Blaðsíða 9
DV MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996
25
Hrafn ráðleggur sumarhúsaeigendum hvernig meðhöndia eigi grillið fyrir sumarið. DV-mynd ÞÖK
Yfirfarið grillið fyrir sumarið
] groðrínum
á golfvellinum
í Grímsnesínu
við fjallið
við grillið
á Laugarvatni
„Þegar gasgrillið er tekið í notk-
un eftir veturinn þarf fyrst og
fremst aö athuga brennarann og
steinana. Ef brennarinn er farinn
þarf að skipta um hann en það tek-
ur hámark 10 mínútur. Ég ráðlegg
fólki eindregið að kaupa ryðfrían
brennara og hann endist mun leng-
ur. Þetta er dýrasti varahluturinn
og sá sem fer helst,“ sagði Hrafn
Úlfsson, sem sér um grillvörurnar í
Húsasmiðjunni en þar fást varahlut-
ir í flest grill. Við báðum Hrafn að
ráðleggja sumarbústaðaeigendum
hvernig þeir eiga að koma grillinu í
stand fyrir sumarið.
„Það þarf einnig að skipta um
steinana ef þeir eru orðnir gráir og
ljótir og gegnsósa í kjöti og fitu og
þrífa grindina. Steinarnir endast að
meðaltali í 3-4 ár og nú er hægt að
fá steina með kolamola í sem gefa
sama bragð og gamla kolagrillið.
Karakterinn liggur í að steinarnir
séu skítugir, það á helst ekki að
þrífa þá mikið. Besta grillunin er
eftir að þeir hafa verið notaðir í 2-3
skipti þvi þá kemur eld- og reyk-
bragð úr þeim,“ sagði Hrafn enn
fremur. .
Hann sagði að emiléraðar grind-
ur ætti að þrífa með því að setja
þær í sjóðandi heitt vatn í vaskin-
um og láta þær liggja þar í 5 mín.
„Síðan má skrúbba þær með upp-
þvottabursta en passa að nota aldrei
vírbursta á emiléraðar grindur. Ég
mæli eindregið með þeim því þær
ryðga síður. Vírbursti hentar króm-
grindum og tO að þrífa sjálft grillið
að innan,“ sagði Hrafn.
Gráminn tekinn af
Ef grillið hefur staðið úti lítur
það væntanlega ekki vel út aö utan.
„Þá má pússa létt yfir það með sand-
pappír eða vírbursta til að ná grám-
anum af og spreyja síðan yfir með
hitaþolnu spreyi. Þá verður það
eins og nýtt,“ sagði Hrafn.
Hann sagði fólk oft lenda í því að
geta ekki snúið takkanum til að
kveikja á gasinu því hann væri
ryðgaður fastur. „Við átak vill hann
brotna og þá þarf fólk að kaupa aUa
spíssana þó það noti ekki nema
hluta þeirra. Til að koma í veg fyrir
þetta er nóg að kippa takkanum úr
og sprauta svolítið vel með VD40
ryðuppleysi þar sem hann var. Ryð-
uppleysinum fylgir mjór stútur sem
reyna á að koma þétt upp að og úða
vel á. Þetta má gjarnan endurtaka
með 2-3 klst. miOibUi ef takkinn er
mjög ryðgaður," sagði Hrafn.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
„Yfirbreiðslan er tvímælalaust
endingin á griUinu. Best er ef hún
er filteruð að innan þannig að hún
andi. Gúmmíyfirbreiðslur eru ekki
eins góðar því þær halda raka að
grUlinu svo það ryðgar frekar,"
sagði Hrafn. Hann segir aö tU að
grUlið endist sem lengst borgi sig að
þrífa það mjög vel í hvert skipti sem
því er pakkað niður. „Það á helst að
þrífa grindurnar eftir hverja notkun
en leggja sérstaka áherslu á það
áður en griUinu er pakkað niður.
Sömu sögu er að segja um grUlið
sjálft.“
Að lokum gefur hann okkur gott
ráð við að griUa kartöflur. „Setjið
kartöflurnar í álpappír, takið grind-
ina af grUlinu og leggið þær beint á
steinana. Þannig styttið þið grilltim-
ann um helming og sparið gasið.
Þið þurfið þó e.t.v. að snúa þeim oft-
ar svo þær brenni ekki, kannski á
10 min. fresti eftir stærð.“
-ingo
KMS Einar Farestveit & Co hf.
MmÆ BORGARTÚNI 28 - SÍMI 562-2900
OLL RAFTÆKIN I SUMARHUSIÐ
á frábæru verði
ELFA-OSO
hitakútar úr
ryðfríu stáli með
öryggiskrönum og
blöndunarkrana.
Stærðir m.a.
30/50/100/120
/200/300 I.
ELFA
olíufylltir
rafmagnsofnar.
300-2000 vött.
Mjög hagstætt verð.
Rafmagnsþilofnar.
Veggofnar. Gólfofnar.
Blástursofnar.
Verð frá kr. 5.900
SEVERIN
SEVERIN
Grill og brauðrist,
,,Ljúfmetisofn"_
Verð frá kr. 6.950
ELFA-VORTICE
eldavélarkubbur.
2 hellur, yfir- og
undirhiti. Ein gerð
með grilli.
Verð frá kr. 19.900
ELFA-keramik
eldavélar,
2ja hellna -
40 cm breiðar.
4ra hellna -
50 cm breiðar.
Verð frá kr. 39.900
- 30 ÁRA ÞJÓNUSTA í ÞÍNA ÞÁGU -
í veiðinni
í fjallgöngunni
undir fossinum
á Fluðunn
í sumarbústaðnum
POSTUR OG SIMI
A eftirtöldum stöðum á landinu er hægt að nota GSM:
Hafnarfjörður, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Skála-
fell, Mosfellsheiði, Lambhagi, Akranes, Borgarnes, Reykholt, Ólafsvík,
Grundar-fjörður, Stykkishólmur, Patreksfjörður, ísafjörður, Hvammstangi,
Blönduós, Varmahlíð, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvik,
Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Neskaupsstaður, Eskifjörður
Höfn, Vík, Vestmannaeyjar, Hvolsvöllur, Hella, Laugarvatn, Grímsnes,
Selfoss, Hveragerði, Eyrarbakki, Þorlákshöfn, Grindavik, Garður,
Sandgerði, Keflavík, Njarðvík, Keflavíkurflugvöllur, Vogar og Bláfjöll.