Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 TT~\7~
» sumarhús
„Ef fólk ætlar að dvelja í viku í
sumarhúsi er gott að hafa eitthvað
að dunda við innandyra ef það
skyldi nú rigna. Sjálf á ég sumarbú-
stað og ég tek alltaf eitthvert föndur
með mér þangað og þá ekki síst eitt-
hvað sem gaman er að skreyta bú-
staöinn með,“ sagði Guðfmna
Hjálmarsdóttir myndlistarmaður
sem rekið hefur verslunina Litir og
fóndur á Skólavörðustíg sl. 15 ár.
Við báðum Guðfinnu að koma
með tillögur að skemmtilegu föndri
fyrir sumarbústaðinn, eitthvað sem
er bæði einfalt og skemmtilegt og
allir geta gert. Hún brást vel við og
hafði samstarfsmann sinn, írisi
Arthúrsdóttur, sér til aðstoðar. „Ég
reyndi að velja eitthvað fyrir alla
aldurshópa því börnin hafa svo
gaman af því að föndra með manni.
Ég gef hér hugmyndir sem hver og
einn getur síðan útfært að eigin
smekk eftir því hvað hentar hverj-
um. Það er um að gera að nýta það
sem maður á þegar það á við,“ sagði
Guðfinna. Hér á síðunni birtast svo
myndir og skýringartextar af her-
legheitunum.
-ingo
- ótal möguleikar ef fólk vill föndra í sumarbústaðnum
Guðfinna og íris halda hér á krönsum sem fara einkar vel uppi á vegg í sumarbústaðnum. Þessa kransa hafa þær
skreytt með borðum og smáhlutum og segja upplagt fyrir fólk að nýta það sem það á eða finnur í grenndinni, t.d.
greinar, strá og fjaðrir.
DV-myndir S
Klósettrúllubrúða á baðið. Efnið í
pilsið fæst tilbúið ásamt blúndu og
leggingum en einnig er tilvalið að
nota afganga. Stingið fótum brúð-
unnar einfaldlega ofan í rúlluhólk-
inn og dragið vír inn í neðanverðan
faldinn svo —■*
velt sé að
rúllu.
Smáhlutahilla. Hillurnar fást
ómálaðar og getur hver og einn
málað þær og útfært að
sínum smekk. Hér er
upplagt að nýta
skemmtilega
smáhluti.
Hillan á
myndinni er
rómantísk út-
færsla þar sem
blúndur, borðar og
bióm eru notuð til skrauts.
Föndrað úr froðuplasti.
Froðuplastið fæst í öllum regn-
bogans litum og er einkar
meðfæriiegt. Allt sem
þarf er lím og skæri og
möguleikarnir eru
endalausir.
Lampar úr leir.
Lampafóturinn er
búinn til úr vínflösku
og dasleir. Fletjið
leirinn út með
kökukefli þar til
hann er hálfs sm
þykkur og pakkið
flöskunni síðan þétt
inn í hann. Mótið
fígúrur og þrýstið þeim
á lampafótinn. Málið leirinn að vild þegar hann
hefur þornað, t.d. með föndurlakkinu Deka lack.
Auðvelt er að skreyta hluti úr dasleir með perl-
um, steinum, stráum, blúndum o.fi. Klæðið
lampagrindina með efnishólk sem er rykktur
með teygju að ofan og skreyttur með borðum
og blómum að neðan.
Málað á gler. Ljósker,
krukkur og krúsir eru
hentugir nytjahlutir í
bústaðinn en þá er
hægt að skreyta
með glerlitum.
Útlínum mynd-
arinnar er þá
sprautað á gler-
ið úr sérstakri
túbu og síðan er
gagnsær glerlitur
málaður á og látinn
fljóta innan útlín-
anna. Gott er að herða
litina í bökunarofni til að
þeir þoli betur þvott.