Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Qupperneq 16
32
sumarhús
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996
Margrát Jóhannsdóttir hjá Ferðaþjónustu bænda:
Hægt að leigja
bústað af bændum
„Við erum með bækling yfir
sumarbústaði vítt og breitt um
landið sem eru í eigu bænda. Þeir
eru ýmist langt frá sveitabænum
eða rétt við hann. Við skiptum bú-
stöðunum niður í fjóra flokka (eft-
ir aðbúnaði) og tvær stærðir en
þeir eru allt frá því að vera mjög
einföld hús og upp í mjög vel búna
sumarbústaði," sagði Margrét Jó-
hannsdóttir, ráðunautur í ferða-
þjónustu hjá Ferðaþjónustu
bænda. Bændurnir leigja þessi
sumarhús út sem getur verið góð-
ur valkostur fyrir þá sem ekki
eiga bústað. í sumum tilvikum er
boðið upp á ýmsar uppákomur
eins og hesta- og veiðiferðir og
sauðburð á vorin.
Aðspurð sagði Margrét mikinn
verðmun vera á ódýrustu bústöð-
unum og þeim dýrustu en að það
munaði ekki miklu á verði fyrir
algengustu bústaðina. „Sem dæmi
má nefna að verðmunur á bústöð-
um yfir háannatímann (júlí) er á
bOinu 19-39 þúsund krónur fyrir
vikuna en þá er e.t.v. verðbOið
35-39 þúsund langalgengast,"
sagði Margrét.
Hún sagði mikla eftirspurn eftir
bústöðum, jafnt hjá íslendingum
sem útlendingum, og að yfirleitt
væri um fjölskyldur að ræða. „Það
borgar sig að panta með góðum
fyrirvara ef maður hefur ákveð-
inn tíma í huga og veit hvar mað-
ur vOl vera. Ég mundi t.d. ekki
bíða lengi með að panta fyrir sum-
arið,“ sagði Margrét.
Aðspurð sagði hún engan einn
stað vera vinsæOi en annan, bú-
staðirnir væru það dreifðir um
landið að það færi bara eftir ósk-
um og þörfum hvers og eins.
Ferðaþjónustan gefur út bækling
með upplýsingum um alla bústað-
ina fyrir þá sem hafa áhuga.
-ingo
Álskilti endast mun lengur en flest
annað.
Merkingar sumarhúsa:
Endingargóð
álskilti
Stimplagerðin í Skipholtinu sér-
hæfir sig í gerð álskOta til ýmissa
merkinga í sumarhúsabyggð. Skilt-
in eru með sérstakri húðun sem
gerir það að verkum að letrið máist
ekki af þó skiltin rispist og þau hafa
því mjög góða endingu jafnt; ut-
andyra sem innan.
Hægt er að láta útbúa stórt skilti
með yfirlitskorti yfir sumarbústaða-
byggðina, með nöfnum sjálfra sum-
arbústaðanna eða götuheitum í þétt-
um sumarbústaðakjörnum. Einnig
er hægt að láta útbúa skiltj með
leiðbeiningum varðandi vatns- og
hitalagnir inni í bústöðunum, skilti
með neyðarnúmerum slökkviliðs,
sjúkrabifreiðar og lögreglu eða
skilti með símanúmerum helstu
upplýsinga- og/eða þjónustuaðila í
nágrenninu, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig er tilvalið að láta útbúa
skilti með húsreglum fyrir félagsbú-
staðina sem oft eru ritaðar á pappír
eða hafðar í brothættum glerrömm-
um. Skiltin eru ekki eins vandmeð-
farin og endast mun betur. Hægt er
að fá skiltin í mörgum litum og auð-
velt er að hafa á þeim mynd eða
annað skraut að smekk hvers og
eins.
-ingo
SKEMMTILEGIR OG FALLEGIR
OFNAR
sem gefa réttu
stemmninguna
♦M*
J0TUL
L
Blikksmiðjan Funi
framleiðir
Sóló eldavélar
í bátinn og sumarbústaðinn
Framleiðum allargerðir afreykrörum
BLIKKSMIÐJAN
FUNI
DALVEGUR 28 • 200 KÓPAVOGUR
SíMI 564 1633 • FAX 564 1622
Sumar- og garðhús á ótrúlegu verði
★ 6 ára reynsla á íslandi
★ Vottuð af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins ★ Auðveld í uppsetningu
Garðhús, leikskemma, verð 95.900,-
Sumarhús, KS 145, með verönd, verð 308.600,-
Sumarhús, KS 210 Camping, með verönd, verð
638.400,-
Sumarhús,
KS 99, verð
245.600,-
Skemma,
KS 71,
tvöföld hurð,
verð
172.500,-
Garðhús,
KS 55, verð
142.900,-
Sjálfval
sími: 588-8540