Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ1996
Fréttir
Hasip Kaplan, lögmaður Sophiu Hansen, svarar spurningum um stöðuna í máli hennar:
Samskipti Islands og
Tyrklands að spillast
telur nauðsynlegt að Davíð Oddsson afhendi forsætisráðherra Tyrklands mótmæli beint
Hasip Kaplan, lögmaður Sophiu
Hansen, telur að þrátt fyrir veru-
lega viðleitni íslenskra stjórnvalda
tO stuðnings málstað hennar hafi í
raun harla lítið komið út úr þeim
viðræðum enn þá - hann telur að
málið verði að taka beint upp við
æðstu stjórnmálamenn Tyrklands -
að Davíð Oddsson afhendi kollega
sínum, forsætisráðherra Tyrklands,
mótmæli beint.
í viðtali Ovið Hasip, sem byggt er
á spurningum sem túlkur var beð-
inn um að leggja fyrir hann, kemur
einnig fram að lögmaðurinn telur
að samskipti íslands og Tyrklands
séu farin að spillast.
Aðeins æðstu menn duga
- Hvað telur þú að íslensk yfir-
völd geti gert í máli Sophiu í dag?
„Ég veit að íslenskir ráðamenn
hafa tekið þetta mál upp við tyrk-
neska ráðamenn næstum því hvar
sem tök hafa verið á. Það er mjög já-
kvætt. Þetta mál er þannig vaxið að
gott er að kynna það tyrkneskum
ráöamönnum áfram.
En ég spyr: Hvað hefur komið út
úr þessum viðræðum? Ég held harla
lítið. Ástæðan er sú að svona mál
verður að taka upp við æðstu menn
Tyrklands af æðstu mönnum ís-
lands. Þá á ég við að forsætisráð-
herrar landanna ræði þetta mál.
Það eru þeir sem hafa völdin.
I fyrsta lagi legg ég til að íslenska
forsætisráðuneytið semji greinar-
gerð í málinu og að mjög harðorð
mótmæli verði lögð fram vegna allr-
ar málsmeðferðarinnar. Þannig
verði bent á hin miklu mannrétt-
indabrot sem framin hafa verið
gagnvart Sophiu og börnum hennar.
Ég tek fram að þetta snýst ekki um
forsjármál heldur staðfestingu á ís-
lenskum úrskurðum sem liggja fyr-
ir á íslandi - úrskurðum sem yflr-
völd hér eru í mestu vandræðum
Hasip Kaplan lögfræðingur með Sophiu Hansen. Hann telur að þrátt fyrir
viðleitni íslenskra stjórnvalda til stuðnings málstað Sophiu hafi enn sem
komið er lítið gerst. Hann óskar því eftir beinum viðræðum æðstu manna.
DV-mynd ótt
með að koma í framkvæmd.
Ég tel síðan að forsætisráðherra
fslands eigi að setja sig í beint sam-
band við Mesut Yilmac, starfandi
forsætisráðherra hér í Tyrklandi,
og einnig í samband við mannrétt-
indaráðuneytið og þessi mótmæli
veröi afhent. Síðan á aö benda tyrk-
neskum ráðamönnum á að þetta
mál sé farið að spilla verulega fyrir
samstarfi rikjanna.
Auk þessa tel ég að sjá eigi til
þess að öryggi Sophiu verði ávallt
tryggt í Tyrklandi, bæði í réttar-
höldum og eins utan þeirra.
Að síðustu er nauðsynlegt að
styðja við bakið á Sophiu fjárhags-
lega því dýrt er að þurfa að halda
heimili bæði á íslandi og í Tyrk-
landi. Þó ég hafi ekki verið að
íþyngja Sophiu með beiðni um pen-
inga, og mjög oft lagt fram peninga
úr eigin vasa, þá veit ég að hún er
skuldum vafin og þarf á stuðningi
að halda í þeim efnum,“ sagði
Hasip.
Dómarinn samþykkir loks
íslensku pappírana
- Hvaða álit hefur þú á síðustu
meöferð héraðsdómarans í málinu?
„Mér finnst það mjög jákvætt að
dómarinn skuli samþykkja álit
meirihluta Hæstaréttar og að hann
ætli að taka á málinu samkvæmt
því. Einnig finnst mér mjög jákvætt
að dómarinn samþykki alla nýju
pappírana frá íslandi sem lagðir
voru fram í réttarhaldinu. Þar kem-
ur mjög vel fram að Sophia og
Halim voru gefin saman á íslandi af
íslenskum dómara samkvæmt ís-
lenskum lögum og að þau fengu lög-
skilnað samkvæmt íslenskum lög-
um. Allir sem þetta mál snýst um,
Sophia, Halim og dæturnar, eru ís-
lenskir ríksiborgarar."
Lagaleg mistök að leiða
stúlkurnar fyrir dóm núna
- Nú frestaði dómarinn málinu til
13. júní og óskar eftir að dæturnar
komi fyrir dóminn, hvað viltu segja
um það?
„Þetta eru mikil lagaleg mistök
dómarans að óska eftir að börnin
komi sjálf fyrir dómarann eftir svo
langan tíma. Dómarinn veit að
Halim hefur brotið mjög oft um-
gengnisréttinn og þannig komið í
veg fyrir að börnin geti hitt móður
sína. Á þessum langa tíma hefur
dómarinn ekki aðhafst neitt róttækt
i málinu vegna umgengnisréttar-
brotana þó að það séu almenn
mannréttindi að börnin fái að um-
gangast báða foreldra.
í komandi réttarhöldum segja
börnin örugglega að þau vilji vera
áfram hjá foðurnum - þau þora ekki
öðru því þau vita að ef þau segja
eitthvað annað verður þeim refsað
enda fara þau heim með föðurnum
eftir réttarhöldin."
Lögregla gæti þurft
að ná í börnin
- Hvað gerist ef Hafim kemur
ekki með börnin í réttarhafdið?
„Halim gæti tekið upp á því að
koma ekki og láta lögmann sinn
segja að nú sé komið skólafrí og
börnin séu með foður sínum uppi í
sveit. Ef þetta gerist verður dómar-
inn þvingaður til að setja lögregl-
una í málið, finna bömin og koma
með þau fyrir dórninn."
- Hverja telur þú skýringuna á
því að dómarinn tekur þessa stefnu
núna?
„Dómarinn óskar nú eftir því að
börnin komi til að sýna að hann
vilji tala við alla sem að málinu
koma og lætur líta út fyrir það á yf-
irborðinu að hann sé mjög góður
dómari og vilji gefa börnunum kost
á að segja hug sinn í réttinum. En
hann skýtur svo langt yfir markið
með þessu þar sem svo langt er um
liðið frá því börnunum hefur verið
gert kleift að hitta móður sína. Það
sem dómarinn gerir nú stenst ekki
lög. Þetta er enn eitt lóðið á vogar-
skálar okkar í málinu.
Ef Hæstiréttur mun eftir dóm
héraðsdóms taka á málinu á ein-
hvern annan hátt en hann hefur
gert áður, sem ég á ekki von á, för-
um viö með málið fyrir Mannrétt-
indadómstólinn í Strasbourg. Þar
vinnum við málið örugglega," sagði
Hasip Kaplan. -Ótt
Dagfari
Samræmdum prófum lauk á
þriðjudaginn. Miklar varrúðarráð-
stafanir voru viðhafðar af þeim
sökum, enda eru samræmd próf
orðin tilefni samræmdra skemmti-
atriða af hálfu þeirra sem taka þau.
Þar er um að ræða fimmtán ára
unglinga sem nú á þessum síðustu
og verstu tímum eru helstu ógn-
valdar þjóðfélagsins. Foreldraráð,
lögreglan og samtök um vímulausa
æsku efndu til blaðamannafunda
og hópeflis og vöruðu við ungling-
unum þegar samræmdu prófunum
mundi verða lokið.
Helst höfðu hinir ábyrgu þjóðfé-
lagsþegnar áhyggjur af víndrykkju
og hópdrykkju og lýstu því fjálg-
lega hvernig bærinn mundi loga í
slagsmálum og fylliríi og borgarbú-
ar voru varaðir við allsherjarupp-
lausn og neyðarástandi í miðbæ
borgarinnar. Foreldrar voru sér-
staklega beðnir um að hafa gát á
sér enda var talið vitað að ungling-
ar söfnuðu að sér vínföngum í stór-
um stíl til að búa sig undir fögnuð-
inn eftir samræmdu prófin. Það
var uppi fótur og fit á hverju heim-
ili þar sem unglingar í samræmd-
um prófum eiga sér lögheimili.
Feðurnir leituðu dyrum og dyngj-
um hjá börnum sínum og mæöur
þefuðu uppi vellyktandi hjá dætr-
um sínum og um tíma ríkti umsát-
ursástand á hinum bestu heimilum
þar sem unglingarnir á heimilun-
um lágu undir grun um stórfellda
víndrykkju og jafnvel þar sem ung-
lingar höfðu aldrei smakkað vín og
höfðu fram að þessu verið taldir til
fyrirmyndar í reglusemi og hóf-
semi voru ásakanir og tortryggni
allsráðandi, enda höfðu foreldrar
af því miklar áhyggjur ef börnin
þeirra tækju upp á þeim sama
ósóma og viðgengist hafði á heimil-
inu um árabil að vín væri haft um
hönd. Unglingarnir vissu ekki
hvaöan á sig stóð veðrið og áttu í
hinum mestu erfiðleikum að ein-
beita sér að próflestrinum fyrir
áreitni af hálfu foreldra sem töldu
víst að börnin þeirra hefðu það
helst fyrir stafni að safna brenni-
víni til að detta í það eftir prófin.
Spakir menn í félagsvísindum og
fjölskyldumeðferðum og mennta-
málum létu þær skoðanir í ljósi að
samræmd próf fyrir alla í einu
væri háskaleikur sem byði hætt-
unni heim og kennimenn töldu
raunar að besta ráðið gegn afleið-
ingum samræmdra prófa væri að
leggja samræmd próf niður eða í
það minnsta að dreifa samræmd-
um prófum yfir lengri tíma til að
unglingarnir dyttu ekki allir í það
í einu.
Svo rann upp þessi stóri dagur
þegar samræmdu prófunum lauk
og auðvitað biðu unglingarnir
spenntir eftir þessari stóru stund
og töldu að nú væri spenna í loft-
inu og sumir gleymdu jafnvel að
standa sig í prófunum í öllum æs-
ingnum yfir því hvað við tæki þeg-
ar samræmdu prófunum væri lok-
ið.
Fimm þúsund unglingar söfnuð-
ust að sjálfsögðu saman niðri í bæ
til að fylgjast með öllum þeim
ósköpum sem áttu eftir að dynja
yfir þá og lögreglan fylkti liði til að
fylgjast með unglingunum sem ætl-
uðu að detta í það og foreldraráðin
og vímulausu samtökin efndu til
hópferða niður í miðbæ til að
verða vitni að því hvernig ungling-
arnir dyttu í það.
Allir hópuðust sem sagt niður í
miðbæ til að fylgjast með ósköpun-
um og það var spenna í loftinu og
rafmagnað andrúmsloft.
En viti menn. Fylliríið lét á sér
standa og ólætin létu á sér standa
og unglingarnir litu hver á annan
og spurðu: hvar er fjörið, hvar er
fylliríið?
En það gerðist ekkert og æskan
varð sér til skammar og unga kyn-
slóðin týndi glæpnum og fylliríið
varð sjálfu sér til minnkunar þegar
í ljós kom að það sá varla vín á
nokkrum manni og samræmdu
prófin voru bara próf sem ungling-
arnir tóku án þess að halda meira
upp á það en gengur og gerist með-
al fullorðna fólksins.
Æskan stóðst sem sagt ekki próf-
ið. Það var ekki nógu samræmt
þegar á reyndi. Dagfari