Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996 Utlönd DV Hefði viljað deyja fyrir Díönu James Hewitt, liösforinginn sem átti í fimm ára ástarsam- bandi við Díönu prinsessu, segir að hann hafi verið reiðubúinn að deyja fyrir hana. Þessi orð lætur liðsforinginn falla í 45 mínútná sjónvarpsþætti sem sýndur verð- ur í Bretlandi síðar í mánuðinum og Bretar bíða spenntir eftir. Kemur fram í þættinum að ást- arsamband Hewitts við Díönu hafi verið komið í slíkar ógöngur að hann hafi talið að betra væri að deyja í orrustu í Flóabardagan- um 1991 en að horfast í augu við framhaldiö. Hewitt fær um 100 milljónir króna fyrir þáttinn. Reuter Danmörk: Harðari viðurlög við vopnaburði Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn: Mun harðar verður tekið á ólöglegum vopnaburði í Dan- mörku í kjölfar stigmagnaðs stríðs mótorhjólagengjanna Vít- isengla og Banditos. Björn Westh dómsmálaráðherra tilkynnti þetta á þriðjudag eftir neyðarfund með yfirmönnum lögreglunnar og ákæruvaldsins. Samtímis var ákveöið að setja á stofn samræm- ingarhóp fyrir allt landið til að sameina aðgerðir gegn mótor- hjólagengjunum. Þær felast meðal annars í fyrirvaralausri vopna- leit. Samvinna verður einnig auk- in milli Norðurlandanna og sér- stök nefnd skattayfirvalda á að rannsaka gríðarlegt misræmi í uppgefnum tekjum meðlima gengjanna og lífsstíl þeirra. Sveitarstjórnarkosningar á Englandi í dag: John Major spáö herfilegum ósigri íhaldsflokki Johns Majors, forsæt- isráðherra Bretlands, er spáð herfi- legum ósigri í sveitarstjórnarkosn- ingum sem fram fara á Englandi í dag. Stjórnmálasérfræðingar gera því skóna að íhaldsflokkurinn muni tapa ríflega helmingi þeirra 1200 sæta í bæjar- og sveitarstjórnum sem hann hefur nú og hafa miklar vangaveltur verið í fjölmiölum um að Major kunni að hrökklast úr embætti af þeim sökum. Allir helstu valdamenn flokksins hafa skipað sér að baki Majors sem var borubrattur í gær þegar hann lýsti því yfir að hann ætlaði að halda sínu striki þrátt fyrir orðróm um að verið væri að brugga honum launráð. „Sem forsætisráðherra verð ég að mæla fyrir þjóðarhag, eins og hann kemur mér fyrir sjónir, og það mun ég gera, sama hvað sagt er á bak við tjöldin og sama hvaðan það kemur,“ sagði Major í ræðu sem hann hélt á fundi ritstjóra dagblaða í gær. Sveitarstjórnarkosningarnar í dag eru síðasti stóri prófsteinninn á fylgi flokkanr.a fyrir næstu þing- kosfiingar sem verður að halda inn- an eins árs. Landsmálin hafa verið í fyrir- rúmi í kosningabaráttunni og hefur klofningur í röðum íhaldsmanna vegna afstöðunnar til samstarfsins innan Evrópusambandsins skaðað flokkinn mikið. frá 1. maí höfum við —' "ý,,'i"uu,úmer J 540 50 60 opið frá kl. 8-16 fax 540 5061 Skandia LAUGAVEGI 170, SÍMI 540 50 BO John Major á ekki von á góðu. Bresku blöðin eru ekki 1 nokkrum vafa um úrslit kosning- anna í dag fyrir íhaldsflokkinn. Metsölublaðið Sun segir að Major sé viðbúinn því „að vera þurrkað- ur út í kosningunum". Major fékk þó stuðning frá Michael Heseltine, næstráðanda í flokknum, og hægrimanninum John Redwood sem keppti við hann um leiðtogasætið i fyrrasum- ar eftir slæma útreið í sveitar- stjórnarkosningum þá. í dag er kosiö um 3000 sveitar- stjórnarsæti á Englandi og sér- fræðingar segja að íhaldsflokkur- inn muni tapa um 650 sætum. Ekki er kosið í London, Skotlandi, Wales eða á Norður-írlandi. Reuter Herskáir vinstrimenn með rauða fána og hnefann á lofti leiða hér kröfu- göngu í Istanbúl í Tyrklandi 1. maí, á hátíðisdegi verkalýðsins. Til harðra átaka kom milli vinstrimanna og öryggislögreglu meö þeim afleiðingum að tveir létu lífið og fjölmargir særðust. Símamynd Reuter Óskir ættingja fórnarlambanna á Tasmaníu virtar: Kaffihúsið í Port Arthur verður rifið Yfirvöld á áströlsku eyjunni Tasmaníu hafa ákveðið að rifa kaffi- húsið í fyrrum fanganýlendunni í Port Arthur þar sem 20 af 35 fóm- arlömbum fjöldamorðingjans Mart- ins Bryants féllu um síðustu helgi. Það voru fjölskyldur fórnarlam- banna og starfsfólk þessa vinsæla cÁðasti . - & * ^Sur á só%^ ferðamannastaðar sem fóru fram á að það yrði gert. „Það er mikflvægt í margra aug- um að við byrjum upp á nýtt í Port Arthur og að kaffiterían, sem minn- ir á hrylling helgarinnar, verði'fiar- lægð,“ sagði Tony Rundle, forsætis- ráðherra Tasmaníu, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í höfuðborg- inni Hobart. Ray Groom, feröamálaráðherra Tasmaníu, sagði að fara yrði að ósk- um þeirra sem eiga um sárt að binda eftir harmleikinn en ekkert yrði þó gert fyrr en gengið hefði ver- ið frá öllum lagalegum hliðum máls- ins. Gamla fanganýlendan er nú lokuð en ættingjum fórnarlambanna og þeirra sem særðust verður leyft að fara þangað á laugardag. Þann 19. maí verður svo haldin minningar- guðsþjónusta í kirkjunni sem refsi- fangar byggðu á sínum tíma. Reuter Sendimaður til Bosníu Sendimaður Bandaríkja- sfiórnar fer tU Bosníu á sunnu- dag til að reyna að leysa vanda- mál sem ollu átökum þegar bosnískir flóttamenn reyndu að snúa heim. Peres aftur heim Simon Peres, forsætisráð- herra ísraels, sneri heim eftir heimsókn sína tU Bandaríkj- anna og Frakklands og hóf að kynna kjósendum hugmyndir sínar um friö og öryggi. Fékk rauða dregilinn BiU Clinton Bandaríkja- forseti var afar ánægður með þá ákvörðun þings Palest- ínumanna að afmá úr stefnuskrám að eyða skuli Israelsríki og veitti Yassir Arafat því höfðing- legar móttökur í Washington með rauðum dregli og öllu tU- heyrandi. Milljarðar á banka? Svissneskir bankar láta und- an alþjóðlegum þrýstingi og stofna nefnd sem rannsaka á hvort milljarðar króna, sem ekki hefur verið vitjaö um, hafi verið í eigu fórnarlamba helfar- ar nasista. Herskip nærri iandi Eftir árásir á sendiráðið sitt í Monróvíu hafa Bandaríkjamenn ógnað stríðandi fylkingum í Lí- beríu með því að sigla herskip- um sínum nær landi. Charles Taylor, annar uppreisnarleið- toganna í Líberíu, sakar Banda- ríkjamenn um að reyna að ráða sig af dögum. Minni hætta Talsmenn Hvíta hússins segja að Norður-Kóreumenn hafi haf- ist handa við að gera 8 þúsund kjarnorkurafskaut í einu kjarn- orkuvera sinna óvirk. Mótmæitu Castró Kúbanskir andófsmenn í Flórlda sigldu á litlum bát- um að lögsögu Kúbu, hentu þar blómum og mannrétt- indabækling- um í sjóinn til að mótmæla hátíðahöldum Fiedels Castrós 1. maí. Slátra nautgripum Bretar ætla að hefla slátrun þúsunda nautgripa í tilraun til að auka traust neytenda á nautakjöti í kjölfar útbreidds ótta um kúariðu. Reynolds í vanda Leikarinn Burt Reynolds er á leið í gjaldþrot vegna vanskila á greiðslum fyrir búgarð sinn í Flórída. Sprelllifandi Zelimkhan Jandarbíjev, leiðtogi upp- reisnarmanna í Tsjetsjeniu, kom hress og baráttuglaður fram í sjón- varpi og sagði fréttir um dauða sinn óskhyggju valda í Kreml. stjóm- Skotnir til bana Yfir 20 voru skotnir til bana í landi Zúlúmanna í Suður-Afríku. Gagnrýnir Kínverja Jung Chang, höfundur bókar- innar Villtra svana, gagnrýndi stjómvöld í Kína fyrir að leyfa frelsi á sviði sfiómmála og menningar ekki þróast jafnhliða efnahagsvexti. Reuter ■51

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.