Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996
íþróttir
Knattspyrna:
Bröndby vill
ekki frændann
Menn veröa frægir fyrir ýmis-
legt í íþróttunum. Nú er frændi
George Weah hjá AC Milan kom-
inn í sviðsljósið og talið að
danskt félag muni semja við
hann innan skamms.
Forráðamenn Bröndby harð-
neituðu því í gær að hafa áhuga á
frændanum sem heitir Benmadi
Muhammed. Sjálfur hefur Weah,
knattspyrnumaður ársins í heim-
inum, mælt eindregið með
frænda sínum. -SK
Asprilla fékk
vægan dóm
Dæmt hefur verið í máli sem
spannst eftir skrautleg viðskipti
Faustinos Asprillas í Newcastle
og Keiths Curles, fyrirliða Man,
City, en þeim lenti tvívegis sam-
an í leik liðanna fyrir nokkrum
vikum.
Aspriila sló Curle með olnbog-
anum í andlitiö og skallaði hann
síðan í höfuðið siðar í umrædd-
um leik. Þrátt fyrir þessa rudda-
legu framkomu var Asprilla að-
eins dæmdur í eins leiks bann og
gert að greiða um eina milljón
króna í sekt. Fannst mörgum að
Kólumbíumaðurinn slyppi ótrú-
iega vel frá málinu. -SK
Brolin fer í
uppskurð
Svíinn Tomas Brolin endaði
veru sína hjá Leeds United á
tímabilinu eins og hann hóf
hana.
Brolin er farinn heim til Sví-
þjóðar þar sem hann verður skor-
inn upp vegna meiðsla á ökkla.
Fyrirhugað var að Brolin færi í
uppskurðinn eftir tímabiiið en
Howard Wilkinson ákvað að
senda Brolin heim í gær. Svíinn
hefur ekkert getað frá því hann
kom til Leeds og er Wilkinson
kennt um getuleysi Svíans.
-SK
Dortmund fékk
stóran skell
Borussia Dortmund, toppliðið í
þýsku úrvaisdeiidinni í knatt-
spymu, fékk heldur betur skell í
leik sínum gegn Karlsruhe.
Dortmund tapaði 5-0 en heldur
efsta sætinu á markatölu þar sem
Bayem Múnchen lék ekki. Úrslit
í öðrum leikjum í gær og fyrra-
kvöld:
Rostock-Freiburg...............1-0
Uerdingen-Leverkusen...........3-0
Schalke-Stuttgart..............2-0
DUsseldorf-St. Pauli ..........2-0
Hamburger SV-Gladbach..........2-1
Köln-Frankfurt.................3-0
Dortmund og Bayerm eru í
fyrsta og öðru sæti með 58 stig en
Gladbach vermir þriðja sætið
með 50 stig. Frankfurt er á barmi
falls í 2. deild í fyrsta skipti eftir
skell í Köln í gær. -SK/VS
Bebeto til Flamengo
Brasilíska knattspyrnufélagið
Flamengo festi í gær kaup á hin-
um snjalia Bebeto frá Deportivo
Coruna á Spáni. Bebeto leikur
við hlið Romarios, félaga síns úr
brasilíska landsliðinu, hjá Fla-
mengo.
Capello til Spánar
Fabio Capello hættir sem þjálf-
ari ítölsku meistaranna ACMil-
an í vor og tekur við spænska
stórliðinu Real Madrid.
Tyrkir sigruöu
Tyrkir, sem eru að búa sig
undir úrslitakeppni EM í knatt-
spymu, sigruöu Úkraínu, 3-2, í
vináttulandsleik í gær. Pólland
og Hvíta-Rússland skildu jöfn,
1-1.
-VS
Sænska knattspyrnan:
Arnór skoraði
fyrsta markið
- Örebro nýtti ekki tvö víti
DV Svíþjóð:
Arnór Guðjohnsen skoraði
fyrsta mark Örebro í úrvals-
deildinni á þessu tímabili þegar
liðið gerði jafntefli, 1-1, við
Umeá á heimavelli í gær.
Arnór kom Örebro yfir á 63.
mínútu en nýliðarnir jöfnuðu
sex mínútum síðar.
Örebro nýtti ekki tvær víta-
spyrnur í leiknum, Lars Zett-
erlund skaut í þverslá og
Tommy Stáhl fram hjá marki
Umeá. Örebro hefur þar með
fengið þrjár vítaspyrnur í
fyrstu þremur umferðunum og
ekki skorað úr neinni þeirra!
Helsingborg vann Degerfors,
4-1, og er efst með 9 stig eftir
þrjá leiki. Örebro er í fjórða
neðsta sætinu með 1 stig. Aðrir
leikir í 3. umferðinni eru í
kvöld. -EH
UEFA-bikarinn:
Bayern stendur
vel að vígi
- vann fyrri leikinn viö Bordeaux
Bayern Múnchen á góða
möguleika á sínum fyrsta Evr-
óputitli í knattspyrnu í 20 ár
eftir 2-0 sigur á Bordeaux frá
Frakklandi í fyrri úrslitaleik
liðanna um UEFA-bikarinn sem
fram fór í Múnchen í gær.
Thomas Helmer kom Bayern
yfir á 35. mínútu og Mehmet
Scholl bætti öðru við á 60. mín-
útu. Bordeaux var óheppið að
skora ekki i leiknum því liðið
sótti oft grimmt og Oliver
Kahn, markvörður Bayern,
bjargaði oft glæsilega.
Liðin mætast aftur 1 Bor-
deaux þann 15. maí.
-VS
Enska knattspyrnan:
Jafnt á Highbury
Arsenal og Liverpool gerðu
markalaust jafntefli í ensku úr-
valsdeildinni í gærkvöldi. Ars-
enal þarf því enn að berjast fyr-
ir UEFA-sætinu í lokaumferð-
inni á. sunnudaginn.
Þorvaldur Örlygsson og félag-
ar í Oldham björguðu sér frá
falli í 2. deild með 2-0 sigri gegn
Lárusi Orra Sigurðssyni og
félögum í Stoke í fyrradag. Önn-
ur úrslit í 1. deild í gær og
fyrradag:
Barnsley-W.B.A..............1-1
Charlton-Tranmere...........0-0
Luton-Port Vale.............3-2
Reading-Wolves..............3-0
Ipswich-Huddersfield........2-1
Ipswich vann mjög mikilvæg-
an sigur í gærkvöldi en gífur-
lega hörð keppni verður í síð-
ustu umferð um hvaða þrjú lið
fylgja Crystal Palace í auka-
keppnina um sæti í úrvalsdeild.
Þar er nú Stoke með 70 stig,
Charlton 70, Ipswich 68 og
Leicester 68. Huddersfield er
með 63 stig og á ekki lengur
möguleika.
Fallslagur 1. deildar er á
milli Millwall, Portsmouth og
Watford en tvö þessara liða
fylgja Luton niður í 2. deild.
-VS
Heimsmeistaramótið í íshokkí:
Tékkar og Rússar áfram
Tékkar og Rússar komust í
gær f undanúrslitin á heims-
meistaramótinu í íshokkí sem
nú stendur yfir í Vínarborg.
Tékkar sigruðu Þjóðverja, 6-1,
og Rússar lögðu ítali að velli,
5-2.
Tékkar mæta Bandaríkja-
mönnum sem sigruðu Svía í
fyrradag, 3-2. Rússar leika við
Kanadamenn sem lögðu Finna
að velli, 3-1.
-VS
Toni Kukoc og félagar í Chicago mæta New York i 2. umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar.
Chicago vann f nótt öruggan sigur á Miami og vann samanlagt, 3-0, og New York vann þriðja
sigur sinn á Cleveland. Fyrsti leikur Chicago og New York fer fram í Chicago á sunnudaginn.
Taka Hoddle og Gullit
við enska landsliðinu?
- röflið í Qölmiðlum ekki annað en sannleikurinn sjálfur
Glenn Hoddle, framkvæmdastjóri
enska liðsins Chelsea, sagði fyrir
nokkrum dögum að það væri bara
röfl í fjölmiðlum að hann væri hugs-
anlega að taka við landsliðinu. í dag
er þessi sami Hoddle að íhuga tilboð
frá enska knattspyrnusambandinu
og mun svara því á næstu dögum
hvort hann treystir sér í starfið.
„Það er margt sem ég þarf að
hugsa um þessa dagana og ég þarf
að taka margar ákvarðanir. Ég hef
hins vegar ekki gert upp hug minn
enn þá,“ sagði Hoddle í gær.
Hoddle er 38 ára gamall og ef
hann tekur við af Terry Venables
verður hann yngsti landsliðsþjálfari
Englendinga frá upphafi. Talið er
líklegt að Hollendingurinn Ruud
Gullit verði aðstoðarmaður Hoddles
ef hann tekur starfið að sér.
Forráðamenn Chelsea eru ekki
mjög hrifnir yfir vinnubrögðum
enska knattspyrnusambandsins í
málinu. Ken Bates, stjórnarformað-
ur Chelsea, sagði í gær að það væru
forkastanleg vinnubrögð hjá sam-
bandinu að hafa fyrst samband við
Hoddle og svo Chelsea. Þessu ætti,
ef farið væri eftir settum reglum,
auðvitað að vera öfugt farið.
Bates er mikill stuðningsmaður
Hoddles og hefur boðið honum um
45 milljónir króna í árslaun ef hann
verður áfram hjá Chelsea. Það er
því ekki skrítið að Hoddle þurfi
tíma til að hugsa sig um og íhuga
tilboðið frá enska knattspyrnusam-
bandinu sém hann fékk í hendur í
fyrradag, þrátt fyrir allt „röflið“ og
allan „hugarburðinn“' í fjölmiölum
síðustu dagana. Hoddle mun svara
tilboðinu í þessari viku.
Þegar er farið að ræða um
eftirmann Hoddíes hjá Chelsea og
þar er nafn George Graham, fyrrum
stjóra Arsenal, efst á blaði. Hann er
sem stendur í banni eftir að upp
komst að hann hafði þegið ólöglegar
greiðslur.
-SK
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996
31
DV
NBA-körfuboltinn:
Chicago og New York
eru komin áfram
- Portland jafnaði gegn Utah og Phoenix minnkaði muninn gegn Spurs
Chicago Bulls og New York
tryggðu sér í nótt sæti í 2. umferð
úrslitakeppni NBA. Portland jafnaði
í 2-2 í einvígi sínu gegn Utah Jazz
og Phoenix náði að minnka muninn
í 2-1 gegn San Antonio Spurs. Úr-
slitin í nótt:
New York-Cleveland . . 81-76 (3-0)
Starks 22, Ewing 16 - Brandon 19,
Majerle 16
Miaml-Chicago.........91-112 (0-3)
Mourning 30 - Jordan 26, Pippen
22.
Portland-Utah......... 98-90 (2-2)
Strickland 27, Sabonis 25 -
Hornacek 30, Malone 15.
Phoenix-SA Spurs ..... 94-93 (1-2)
Barkley 25, Manning 14 - Robin-
son 22, Elliot 20.
Chicago átti ekki í vandræðum
með að leggja Miami að velli þrátt
fyrir að Michael Jordan hvíldi sig
síðasta leikhlutann vegna bak-
meiðsla sem hann hlaut í öðrum
leiknum.
„Ég var mjög ánægður með að við
skyldum klára þetta og nú get ég
hvílt mig í þrjá daga og náð mér í
bakinu,” sagði Jordan eftir leikinn
en Chicago mætir New York í
næstu umferð.
New York virtist ætla að valta
yfir Cleveland. Liðið náði mest 19
stiga forystu, 44-25, en leikmenn
Cleveland neituðu að gefast upp og
náðu að jafna metin í 70-70 þegar
tæpar 5 mínútur voru eftir. New
York skoraði þá næstu 7 stig og seig
fram úr á ný.
Arvydas Sabonis og Rod
Strickland voru mennirnir á bak
við sigur Portlands gegn Utah,
Strickland með 27 stig og Sabonis
25, og honum tókst að halda Karli
Malone í skefjum enda skoraði
hann aðeins 15 stig. Portland hafði
undirtökin og náði mest 19 stiga
forskoti í síðari hálfleik.
Stórleikur Dannys Mannings í
síðasta leikhlutanum færði Phoenix
öðru fremur sigur á SA Spurs.
Manning skoraði þá 12 af 14 stigum
sínum í leiknum. Charles Barkley
tókst að skora 25 stig og komu þau
öll í 2. og 3. leikhluta. Spurs fékk
gullið tækifæri til að tryggja sér sig-
ur en tvö skot geiguðu hjá liðinu á
síðustu 10 sekúndunum.
Orlando áfram
Orlando Magic komst í fyrrinótt
áfram í úrslitakeppni NBA. Orlando
vann nauman sigur gegn Detroit Pi-
stons og samanlagt 3-0. Þetta er í
fyrsta skipti sem Orlando vinnur
andstæðing sinn 3-0 í úrslitakeppn-
inni.
Lokatölur urðu 101-98 og það var
Horace Grant sem tryggði Orlando
sigurinn með körfu 11 sekúndum
fyrir leikslok. „Ég veit að mínir
menn eru orðnir þreyttir og það var
gott að klára þetta í þremur leikjum
fyrst möguleiki var á því,“ sagði
Brian Hill, þjálfari Orlando eftir
leikinn.
Penny Hardaway var allt í öllu
hjá Orlando og skoraði 24 stig. Nick
Anderson skoraði 22 stig og Dennis
Scott 18. Shaquille O’Neal hafði
frekar hægt um sig að þessu sinni
og skoraði aðeins 13 stig. „Penny
gerði gæfumuninn fyrir okkur í
þessum leik. Hann átti stórkostleg-
an leik í þriðja leikhluta þegar
O’Neal var á bekknum," sagði Hill
enn fremur.
„Ég var þreyttur en það var ekki
þess vegna sem ég hitti ekki úr 8
skotum af 9 í fyrri hálfleik," sagði
O’Neal og var sáttur við lífið.
Allan Houston skoraði 33 stig fyr-
ir Detroit og Grant Hill 17.
Góð staða Houston
Houston náði góðri stöðu gegn
Lakers með sigri í þriðja leik lið-
anna í fyrrinótt, 104-98, og staðan er
nú 2-1 fyrir Houston sem getur
komist áfram með því að sigra
Lakers í Houston í nótt.
Hakeem Olajuwon átti stórleik og
skoraði 30 stig fyrir Houston, Clyde
Drexler 16 og Robert Horry 15.
Elden Campbell skoraði 18 stig fyrir
Lakers og Cedric Caballos 16.
„Annað hvort hittum við ekki eða
misstum boltann klaufalega og þá
skoruðu þeir alltaf. Það er annars
dapurt að annað liðið skuli þurfa að
detta út úr keppninni," sagði Magic
Johnson eftir tap Lakers en Magic
skoraði aðeins 7 stig og átti ekki
svar við grimmri vörn Houston.
Seattle áfram?
Allt útlit er fyrir að Seattle fari
áfram í 8-liða úrslitin eftir sigur
gegn Sacramento í fyrrinótt, 89-96.
Staðan er 2-1 fyrir Seattle. Sam
Perkins skoraði 17 stig fyrir Seattle,
Detlef Schrempf 16 og Gary Payton
15. Mitch Richmond skoraði 24 stig
fyrir Sacramento og Olden Polynice
18. „Þetta er ekki búið og það er
mikil vinna fram undan í næsta
leik,“ sagði George Karl, þjálfari
Seattle.
-SK/GH
Deildabikarkeppnin i knattspyrnu:
Framarar skelltu Val
- fimm 1. deildar lið eftir í keppninni ásamt Fram
ÍA, ÍBV, Grindavík, Fylkir, Fram
og Breiðablik komust í gær í sex liða
úrslit deildabikarkeppninnar í
knattspyrnu. Fimm af leikjunum
sex fóru fram á grasvöllum, sem er
hreint ótrúlegt þann 1. maí, en
Reykjavíkurfélögin Fram og Valur
þurftu að leika á gervigrasvelli
Hauka í Hafnarfirði.
ÍA, ÍBV og Fram leika saman í
riðli í undanúrslitunum og í hinum
riðlinum eru Grindavík, Fylkir og
Breiðablik. Fyrstu leikirnir eru á
laugardag en þá mætast íA og ÍBV á
Akranesi og Grindavík og Fylkir í
Grindavík.
Tvö mörk Þórhalls
Fylkir vann Stjörnuna í líflegum
leik á nýjum grasvelli við Hofs-
staðaskóla í Garðabæ, 3-2. Ómar
Valdimarsson og Þórhallur Dan Jó-
hannsson komu Fylki í 2-0 en Valdi-
mar Kristófersson og Goran Micic
jöfnuðu. Þórhallur skoraði síðan
sigurmark Árbæinga.
Sumarliði með tvö
ÍBV vann Keflavík auðveldlega,
3-0, á grasvellinum við Helgafell í
Eyjum. Mörkin komu á 10 mínútna
kafla í fyrri hálfleik, Sumarliði
Árnason skoraði tvö þeirra og
Tryggvi Guðmundsson eitt.
Sigurmark frá Ljubicic
Grindvíkingar sigruðu 2. deildar
lið FH, 1-0, á æfingasvæði FH-inga í
Kaplakrika. Zoran Ljubicic skoraði
sigurmarkið á 29. mínútu og Grind-
víkingar voru með undirtökin mest-
allan tímann.
Átta mörk í Kópavogi
Það voru skoruð 8 mörk á gras-
vellinum í Smárahvammi þegar
Breiðablik lenti í óvæntu basli með
ÍR. Staðan var 2-2 eftir venjulegan
leiktíma en Blikar náðu að sigra,
5-3, eftir framlengingu. Arnar Grét-
arsson skoraði 2 marka Breiðabliks,
Hreiðar Bjcirnason, Kjartan Einars-
son og ívar Sigurjónsson eitt hver.
Guðjón Þorvarðarson, Brynjólfur
Bjarnason og Pálmi Guðmundsson
skoruðu fyrir ÍR-inga sem komust
þrisvar yfir í leiknum.
Stórslgur Skagamanna
ÍA fór merkilega létt með Leiftur
á æfmgasvæði sínu á Akranesi, 6-2.
Bjarki Pétursson og Mihajlo
Bibercic skoruðu 2 mörk hvor fyrir
ÍA og Bjami Guðjónsson og Ólafur
Þórðarson eitt hvor. Rastislav
Lazorik og Daði Dervic svöruðu fyr-
ir Leiftur. Staðan var 3-1 í hálfleik.
Þorbjörn skoraði og var
rekinn út af
Fram er eina 2. deildar liðið sem
eftir er í keppninni en Framarar
lögðu Valsmenn, 1-0, í framlengd-
um leik í Hafnarfirði. Þorbjörn Atli
Sveinsson skoraði sigurmarkið
beint úr aukaspyrnu þegar 6 mínút-
ur voru eftir af framlengingunni en
var síðan rekinn af leikvelli rétt á
eftir.
-DG/ÞoGu/VS
Mulamuhic
leikur með HK
Bosníumaðurinn Alen Mulamu-
hic er genginn til liðs við 3. deildar
lið HK í knattspyrnu og leikur með
því í sumar.
Mulamuhic er 25 ára sóknarmað-
ur og hefur leikið með ÍR síðustu
árin og þar á undan með Haukum.
-VS
Sýnt beint á
Stöð 3 í kvöld
Margir bíða spenntir eftir leik
Newcastle og Nottingham Forest í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í kvöld. Newcastle þarf á sigri að
halda í einvíginu við Manchester
United um meistaratitilinn.
Leikurinn verður sýndur í beinni
útsendingu á Stöð 3 og hefst útsend-
ingin kl. 18.45.
-SK
Anna María
og Teitur leik-
menn ársins
Anna María Sveinsdóttir úr Keflavík og
Teitur Örlygsson úr Njarðvík voru útnefnd
leikmenn ársins í meistaraflokkum kvenna og
karla á lokahófi KKÍ í fyrrakvöld.
Skagamenn sigruðu tvöfalt í kjörinu um
bestu nýliðana því Bjarni Magnússon var val-
inn í karlaflokki og Sóley Sigurþórsdóttir í
kvennaflokki. Jason Williford, Haukum, og
Betsy Harris, Breiðabliki, voru valin bestu
útlendingarnir.
Birgir Guðbjömsson, Breiðabliki, var út-
nefndur þjálfari ársins í úrvalsdeildinni og
Suzette Sargeant, Njarðvík, i 1. deild kvenna.
Kristinn Óskarsson var útnefndur dómari
ársins og Sigmundur Már Herbertsson efni-
legasti dómarinn.
Anna María Sveinsdóttir og Teitur Örlygsson
með verðlaunagripi sína í lokahófinu í fyrra-
kvöld. DV-mynd Brynjar Gauti
íþróttir
Shaq var og
er öskuillur
Shaquille O’Neal, miðherji Or-
lando Magic, er öskuillur yfir
þeirri meðferð sem hann fær hjá
andstæðingunum í NBA-deild-
inni og svo hefur raunar lengi
verið.
O’Neal kvartaði hástöfum eftir
sigur Orlando gegn Detroit í
fyrrinótt: „Þaö er stanslaust ver-
ið að brjóta á mér en dómararnir
dæma bara aldrei. Eftir 80 leiki á
tímabilinu er ég alveg undrandi á
því hvað ég fæ lítið af vítaskot-
um. Þaö hefur ekkert breyst,“
segir O’Neal sem hefur lengi
haldið því fram að andstæðingar
hans hafi komist upp með gróf
brot á honum.
„Það er ekki til í dæminu aö
Mark West geti ýtt mér eins og
hann gerði allan leikinn nema að
nota til þess tvær hendur og ýta
með þeim á bakið á mér,“ sagði
O’Neal.
-SK
Golf:
Sigurjón náði
tíunda sæti
Sigurjón Arnarsson, kylfingur
í GR, heldur áfram að keppa á
Tommy Armour mótaröö at-
vinnumanna í golfi á Florída.
Á þremur mótum undanfarið
náði hann bestum árangri í eins
dags móti sem fram fór á Heat-
hrow-vellinum. Þar lék Sigurjón
á 71 höggi, einu höggi undir pari
vallarins, og hafhaði í 10. sæti af
95 keppendum.
Sigurjón varð síðan í 20. sæti
af 70 keppendum á Harbour Hills
og lék á 74 höggum. Loks keppti
Sigurjón á Ridgewood Lakes vell-
inum á þriggja daga móti og lék á
80, 72 og 70 höggum og varð í 35.
sæti af 92 keppendum.
-SK
Frjálsar íþróttir:
Jón Arnar
fremstur í
Skagafirði
DV, Fljótum:
Jón Arnar Magnússon, tug-
þrautarmaður í Tindastóli á
Sauðárkróki, var á dögunum út-
nefndur iþróttamaður ársins í
Skagafirði.
Útnefningin var tilkynnt á árs-
þingi Ungmennasambands
Skagafjarðar um síðustu helgi. Á
þinginu voru einnig heiðraðir
þeir íþróttamenn sambandsins
sem settu 10 héraðsmet eða fleiri
á síðasta ári. Þeir voru þessir:
Jón Arnar Magnússon, Birgir Óli
Sigmundsson, Björn Margeirs-
son, Theódór Karlsson og Þórunn
Erlingsdóttir. Enn fremur voru
veitt verðlaun stigahæstu ein-
staklingum á grunnskólamóti
vetrarins. Þeir voru: Þórunn Er-
lingsdóttir, 988 stig, Helgi
Traustason, 960 stig, og Ólafur
Margeirsson, 870 stig.
-ÖÞ
Jafnt hjá Brann
Brann gerði 1-1 jafntefli gegn
Viking í norsku 1. deildinni í
knattspyrnu í gær. Birkir Krist-
insson og Ágúst Gylfason áttu
báðir góðan leik með Brann sem
er í 7. sæti með 5 stig eftir þrjá
leiki. Strömgodset gerði einnig
1-1 jafntefli þegar liðið sótti
Bodö/Glimt heim. Marko
Tanasic lagði upp mark
Strömgodset. Lilleström er efst
en liðið vann stórsigur á Kongs-
vinger, 1-5. -DÓ/GH