Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Blaðsíða 20
32
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996
Fréttir
DV
Lögreglan telur að ástandið í miðbænum hafi verið með besta móti í fyrrinótt:
Við gefum unglingunum
ágætiseinkunn fýrir þetta
- segir Geir Jón Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík
Landa eða öðru áfengi var hellt niður hjá nokkrum gestanna í miðbænum.
Ölvun var ekki áberandi og fór samkoman hið besta fram. DV-mynd ÞÖK
Góð samstaða
eftirsam-
ræmdu prófin
„Ég er bara að sýna smákrökkun- Hann varí miðbænum í fyrrinótt
um samstöðu. Alltaf gaman að ásamt Steinunni Helgu Guðmunds-
skemmta sér með ungviðinu," sagði dóttur úr Hagaskóla en hún hafði
Guðmundur Árni Þorsteinsson, raunverulega ástæðu til að fagna
menntskælingur úr Kópavogi, sem í því samræmdu prófin hennar voru
fyrra lauk samræmdu prófunum. rétt að baki. -GK
Guðmundur Árni og Steinunn Helga voru að fagna í miðbænum.
„Við gefum unglingum áætisein-
kunn fyrir þetta. Það fór allt vel
fram og mér sýnist að ástandið nú
hafi verið betra en oft áður að lokn-
um samræmdu prófunum," sagði
Geir Jón Þórisson, aðalvarðstjóri
lögreglunnar í Reykjavik, í smatali
við DV í gær.
Hann segir að um fimm þúsund
unglingar hafi verið í miðbænum á
öðrum tímanum í fyrrinótt þegar
unglingar úr Reykjavik og ná-
grannasveitarfélögunum voru að
fagna lokum samræmdu prófanna í
grunnskólunum. Eftir klukkan tvö
um nóttina dreifðist hópurinn mik-
ið.
Af þessum fimm þúsund ungling-
um þurfti lögreglan að hafa afskipti
af 20 til 30 sem voru teknir úr um-
ferð og fluttir á miðbæjarstöðina.
Þangað gátu foreldrarnir sótt þá.
„Það eru auðvitað alltaf einhverj-
ir sem eru til vandræða og geta ekki
skemmt sér með hinum en 20 til 30
af 5000 er ekki há tala,“ sagði Geir
Jón.
Hann sagði að nokkuð hefði borið
á landa hjá unglingunum og hefði
honum verið hellt niður sem og
öðru áfengi sem haft var í frammi.
Lögreglumenn á staðnum sögðust
ekki leita á unglingunum en þegar
farið væri að víngsa ílátunum skær-
ust þeir í leikinn og helltu innihald-
inu niður.
Viðbúnaður lögreglu var eins og
um venjulega helgi. Geir Jón sagði
þó að umtalið um próflokin hefðu
lokkað fleiri í miðbæinn en ella
heföi verið. Margir kæmu vegna
forvitni og þegar búið væri að
byggja upp spennu vegpa einhvers
sem ætti að gera í miðbænum þá
væri erfitt fyrir foreldrana að halda
unglingunum heima.
Að þessu sinni var spenningur-
inn svo mikill að krakkar komu
jafnvel frá Selfossi til að vera í mið-
bæ Reykjavíkur. Þá voru krakkar
úr Hafnarfirði og Kópavogi áber-
andi þar. -GK
Þegar flest var voru um fimm þúsund manns í miðbænum aðfaranótt 1. maí. Flestir voru að fagna lokum samræmdu
prófanna og komu krakkar úr nágrannasveitarfélögunum til að taka þátt í gleðinni sem fór vel fram.
Unglingar með mannalæti í miðbænum eftir samræmdu prófin:
„Hurðu, djöfull ertu fullur"
„Hurðu, djöfull ertu orðinn full-
ur,“ hrópar einn af æskumönnum
landsins og svo er fallist í faðma í
miðju Austurstrætinu. Félagarnir
standa gleiðir og bera sig manna-
lega. Að próflokakveðjunum af-
stöðnum ganga þeir i burtu og sér
vín á hvorugum.
Þannig gengur það þegar tíundu
bekkingamir eru að fagna lokum
samræmdu prófanna í miðbæ
Reykjavíkur; það er full ástæða til
að hafa í frammi mannalæti en allt
fer þó friðsamlega fram og drykkjan
er aðeins lítið brot af því sem
áhyggjufullir landsfeður halda
fram.
Einn og einn
úr umferð
Þótt um fimrn þúsund manns
hafi komið saman í miðbænum að-
faranótt 1. maí, á einni af þessum
óskipulögðu og alræmdu útihátíð-
um í borginni, fór allt vel fram í öll-
um aðalatriðum. Að vísu tók lög-
reglan einn og einn úr umferð,
vökvi úr nokkrum flöskum rataði
beina leið niður í göturæsið og
stöku foreldri varð að sækja sitt
barn á lögreglustöðina vegna
drykkju. En meira var það ekki.
Unglingarnir reyna að sjáfsöðu
að haga sér eins og fullorðið fólk.
Það er sláttur á þeim sem hafa
hvolft í sig úr einni bjórdollu og
menn taka stórt upp í sig.
„Vert þú ekkert að reyna að gera
gott úr þessu. Erum við að rífast eða
ekki?“ spyr einn sem er ekki alveg
viss um hvert deiluefnið var. Það
fer og svo að ekkert verður úr rifr-
ildi þótt fullorðið fólk hefði varla
látið svo kjörið tækifæri til illdeilna
sér úr greipum ganga. En þannig er
æska þessa lands; þetta er víst kyn-
slóð hinna glötuðu tækifæra.
Flest var fólkið í miðbænum um
eitt um nóttina. Þá var þéttskipað
frá Lækjargötu og yfir á Ingólfstorg.
Tíundubekkingarnir að sjálfsögðu
mest áberandi en einnig margir sem
komu til að sjá ungviðið og margir
til að samgleðjast því. Það eru eink-
um þeir sem þreyttu samræmdu
prófin í fyrra og hitteðfyrra.
Foreldrar og lögga
Foreldrar eru einnig íjölmennir
á vakt. Enginn þeirra kannast þó
við að þeirra unglingar eigi við
vanda að stríða en það er vissara að
fylgjast með. Fólk frá Rauða kross-
inum hefur einnig komið sér fyrir í
Austurstrætinu. Unglingur hefur
snúið sig á fæti og þarfnast unnönn-
unar en fleiri og stærri verkefni eru
ekki þessa nótt.
Lögreglan heldur sig í útjaðri
samkomunnar en grípur inn í þegar
með þarf. Ef einhver er farinn að
veifa brúsanum sínum of mikið þá
er hann stöðvaður og brúsinn
tæmdur á götuna.
Skemmtistaðirnir eru að sjálf-
sögðu lokaðir ungviðinu. Þar stend-
ur eldra fólk í röðum yfir utan og
horfir hálfskelkað á krakkana á
einni af fyrstu æfmgum næturlífs
síns í Reykjavík. Eftir klukkan þrjú
eru þau ungu farin heim og full-
orðna fólkið fær að hafa Austur-
strætið í friði til óláta fram eftir
nóttu. -GK