Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Qupperneq 32
44
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ1996
Reykjanesbær er nafn á Keflavik
sem fáir innfæddir sætta sig við.
Bærinn verður
að hætta
að nota nafnið
„Ég á nafnið Reykjanesbær og
er skráður eigandi þess. Bærinn
verður því að hætta að nota
nafnið og finna annað nafn.“
Steinþór Jónsson, í DV. "
Á heima í Keflavík
„Ég veit það ekki vegna þess
að ég á heima í Keflavik."
Rúnar Júlíusson, í DV, um hvernig hon-
um liöi í Reykjanesbæ.
Ummæli
Sammála um að
vera sammála
„Sálfræðingar og sagnfræðing-
ar geta dundað við í framtíðinni
að finna lausn á því af hverju ís-
lendingar urðu sammála um að
vera sammála um Ólaf Ragnar
Grímsson.“
Hrafn Jökulsson, í Alþýðublaðinu.
Ekki svo vitlaus...
„Hún er ekki svo vitlaus að
vilja koma til íslands.“
Halim Al, um dóttur sína, í DV.
Tuttugu og fimm
„Ég hef verið mjög hægur í
þessu. Nú er þetta komiö upp í
tuttugu og flmm.“
Guðmundur Rafn Geirdal forsetafram-
bjóðandi um meðmælendasöfnun, í Al-
þýðublaðinu.
Stórar herflugvélar þurfa að taka
bensín á flugi þegar þær eru í
langferðum.
Eldsneytistaka
í lofti
Eldsneytistaka í lofti er mun
eldri athöfn heldur en flestir
gera sér grein fyrir en fyrsta
eldsneytistakan í gegnum slöngu
á lofti átti sér stað í San Diego í
Kaliforníu í júní árið 1923. Sú
þolraun sem Bandaríkjamaður-
inn Wesley May leysti af hendi
verður þó að teljast frumraun á
þessu sviði. í nóvember 1921
stökk hann af væng á Lincoln
Standard flugvél yfir á væng á
JN-4 með bensínbrúsa bundinn á
bak sér. Hann náði góðu taki á
hreyfilhlífinni og hellti bensíni í
geyminn með mikilli varúð.
Blessuð veröldin
Umhverfis hnöttinn án
þess að lenda
Dagana 28. febrúar til 2. mars
1949 flaug bandaríski höfuðs-
maðurinn James Gallagher
fyrstur manna umhverfis hnött-
inn án þess að lenda og tók hann
eldsneyti á lofti á ferð sinni.
Hann flaug í vél af gerðinni
Boeing B 50 er kölluð var Lucky
Lady II. Ferðin tók nákvæmlega
94 klukkustundir og 1 mínútu.
Víða dálítil rigning
1.005 mb. lægð er um 700 km suð-
vestur af Reykjanesi og hreyfist suð-
austur. Fyrir austan land er dálítill
hæðarhryggur og yfir Norður-
Grænlandi er 1.030 mb. hæð.
í dag verður suðaustlæg átt, gola
Veðrið í dag
eða kaldi. Skýjað en að mestu þurrt
á Norðurlandi en dálítil rigning í
öðrum landshlutum.
Á höfuðborgarsvæðinu er suð-
austan gola eða kaldi og rigning
með köflum. Hiti verður 3 til 8 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 21.56
Sólarupprás á morgun: 4.52
Síðdegisflóð í Reykjavfk: 17.56
Árdegisflóð á morgun: 6.08
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaó -2
Akurnes hálfskýjað -4
Bergsstaðir skýjaö 0
Bolungarvík skýjaö 2
Egilsstaðir léttskýjað -5
Keflavíkurflugv. léttskýjað 1
Kirkjubkl. skýjað 1
Raufarhöfn skýjað -4
Reykjavík hálfskýjaó -0
Stórhöfði Úrkoma í grennd 3
Helsinki þokumóóa 1
Kaupmannah. léttskýjaó 6
Ósló skýjaö 5
Stokkhólmur léttskýjaö 7
Þórshöfn skýjað 2
Amsterdam skýjað 10
Barcelona léttskýjaö 12
Chicago skýjað 8
Frankfurt þokumóða 8
Glasgow rigning 4
Hamborg léttskýjað 5
London rign. á síð.klst. 8
Los Angeles heiðskírt 20
Lúxemborg skýjað 7
París skýjaó 9
Róm rign. á síð.klst. 15
Mallorca þokuruðningur 14
New York Nice léttskýjað 13
Nuuk rigning -0
Orlando léttskýjaó 21
Vín hálfskýjað 14
Washington Winnipeg heiðskirt 2
Veðrið kl. 6 i morgun
Osmo Vánská stjórnar Sinfóníu-
hljómsveitinni i síðasta sinn í
kvöid sem aðalstjórnandi.
Síðustu tón-
leikar Vánská
í kvöld verða Sinfóníutónleik-
ar í Háskólabíói. Flutt verða
þrjú verk, Adagio eftir Jón Nor-
dal, Píanókonsert nr. 3 eftir Lud-
wig van Beethoven og konsert
fyrir hljómsveit eftir Béla
Bartók. Tónleikar þessir eru
þeir síðustu, sem Osmo Vánska
stjórnar sem aðalhljómsveitar-
sfjóri SÍ, en því starfi hefur hann
gegnt síðastliðin þrjú ár og hefur
frægðarsól hljómsveitarinnar
aldrei verið meiri en einmitt nú.
Vanská tekur nú við stöðu aðal-
hljómsveitarstjóra skosku BBC
Tónleikar
Kjartan Másson knattspyrnuþjálfari:
Ég vil sjá meira gras í Keflavík
DV, Suðurnesjum:
„Það er búið að vera meirihátt-
ar veður og er allt annað líf að
vera að þjálfa núna en á sama
tíma í fyrra en það hefur samt ver-
ið erfitt að skipuleggja æfingar og
leiki vegna þess að maður er alltaf
smeykur við íslensku veðráttuna,“
segir Kjartan Másson sem tekinn
er við þjálfun 1. deildar liðs Kefla-
víkur í knattspymu að nýju, en
hann þjálfaði ÍBK á árunum
1991-1993.
Kjartan segir að þótt veðrið sé
gott þá nægi það ekki ef góð að-
staða sé ekki fyrir hendi: „Viö
Maður dagsins
erum mjög illa staddir og höfum
nánast ekkert gras til að æfa og
spila á. Ég er búinn að leggja drög
að því að leika síðasta leikinn fyr-
ir mót 16. maí á Stokkseyri en
þann völl hef ég fengið lánaðan til
að geta spilað á grasi. Hér hef ég
engan vöU. Ég vil sjá meira gi-as í
Keflavík og einnig gervigrasvöll.
Það er ömurlegt að sjá litla krakka
vera að leika á malarveUinum og
Kjartan Másson.
vita af þeim annaðhvort með
skóna fulla af sandi eða renn-
blauta og druUuga. Þetta er bara
svona hjá okkur, hvergi í kringum
okkur.“
Kjartan vonast eftir góðu veðri í
allt sumar en þá er hann sann-
færður um að boltinn verði mjög
skemmtilegur og góður: „Ég held
samt að við séum á tímamörkum
og náum ekki meiri árangri fyrr
en við getum spilað á alvöruvöll-
um aUt árið. Þetta hefur sýnt sig
annars staðar að árangur verður
betri við slíkar aðstæður. Vetur-
inn var mjög mildur í þetta skipt-
ið þannig að liðin ættu að koma
vel undirbúin til leiks. í fyrra
komust menn ekki út fyrr en í
maí.“
Kjartan er fæddur og uppalinn í
Vestmannaeyjum og hefur verið
þjálfari meistaraflokks frá árinu
1974, að þremur árum undanskild-
um. Þá hefur hann einnig þjálfað
meistaraílokk karla og kvenna í
handknattleik: „Þetta er búið að
vera skemmtilegur tími, það koma
að vísu tímabil þegar maður er bú-
inn að fá upp í háls af þessu en
það er fljótt að jafna sig.“ Kjartan
er íþróttakennari að mennt og
kennir í Holtaskóla í Keflavík.
Þegar hann er spurður um áhuga-
mál stendur ekki á svarinu: „Það
er knattspyrna, það kemst ekkert
annað að, enda hef ég ekki tíma til
að hugsa um neitt annað. Á vet-
uma fylgist ég hins vegar með
körfuboltanum og handboltanum.“
Eiginkona Kjartans er Sigfríður
Sigurðardóttir og eiga þau tvær
dætur, Bryndísi, 30 ára, og Gunn-
heiði, 25 ára.
-ÆMK
sinfóníuhljómsveitarinnar í
Glasgow.
Einleikari í píanókonsert
Beethovens er Henri Sigfridsson
en tónleikagestir muna hann ef-
laust frá fyrri heimsókn hans
hingað til lands í haust en þá tók
hann þátt í Nordsol, norrænni
keppni ungra einleikara, og fór
þar með sigur af hólmi. Sigrid-
son hefur að undanfornu sópað
að sér verðlaunum og var nýlega
valinn listamaður ársins af
yngri kynslóð í Finnlandi. Hon-
um er fleira til lista lagt því
hann er góöur skákmaður og
keppti á Skákmóti skóla á Norð-
urlöndum árið 1989 sem haldið
var í Reykjavík.
Bridge
Björn Eysteinsson og Sverrir Ár-
mannsson höfðu sigur í Lands-
bankamótinu í tvímenningi um síð-
ustu helgi og eru því íslandsmeist-
arar í bridge. Björn og Sverrir
mættu Islandsmeisturum síðasta
árs í áttundu umferð úrslitakeppn-
innar og höfðu töluvert betur í
þeirri setu. í þessu spili fengu þeir
28 stig af 30 mögulegum. Sagnir
gengu þannig, suður gjafari og NS á
hættu:
* ÁK53
W K7
* G9765
4 84
4 G
* Á432
4 ÁKD842
* K7
4 97642
* 65
4 --
4 ÁDG965
Suður Vestur Norður Austur
Sverrir Helgi S. Björn ísak
pass pass 14 dobl
14 2* 24 34
4* pass 44 5*
54 p/h pass pass dobl
Sagnir einkenndust af mikilli
baráttu og eins og glögglega sést
standa ekki nema fjórir spaðar með
bestu vörn. Fjögurra hjarta samn-
ingurinn er heldur erfiðari með
hinni slæmu tígullegu og ekki er
fimm hjarta samningurinn skárri.
Sverrir var ekki á því að gefa eftir
samninginn með þetta mikil skipt-
ingarspil og keyrði alla leið upp í 5
spaða. Nú valt allt á útspilinu og
vestur, sem vissi að austur átti tíg-
ullit, ákvað að spila út tígultíunni.
Sverrir trompaði, tók tvo hæstu í
spaða og svínaði laufi. Þegar sú
svíning gekk og kóngur féll hlýðinn
í ásinn var laufum spilað. Vestur
vildi ekki fórna trompdrottning-
unni strax og Sverrir fékk yfirslag í
spilinu með því að henda báðum
hjörtunum í blindum. Ef vestur
hefði hitt á hjartadrottningu út
hefðu AV fengið hreinan topp í spil-
inu, því enginn spilari átti tölu í
AV-áttirnar.
ísak Örn Sigurðsson
4 D108
* DG1098
4 103
* 1032