Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Síða 33
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996
Verk eftir Rúrí sem hún kallar
Fjörutíu og tvo metra.
Gildin
í dag veröur opnuö í Ingólfs-
stræti 8 sýning á verkum eftir
myndlistarkonuna Rúrí. Verkin
á sýningunni hafa ekki verið
sýnd áður hér heima en síðast
var Rúrí með einkasýningu hér
á landi á Kjarvalsstöðum fyrir
fjórum árum.
Rúrí er landskunn fyrir verk
sín, sem eru allt frá gjömingum
frá miðjum áttunda áratugnum
til útilistaverkanna Regnboga,
sem stendur við Flugstöö Leifs
Eiríkssonar, og Fyssu sem er i
Sýningar
Fjölskyldugarðinum í Laug-
ardal. Rúrí hefur sýnt víða um
heim bæði á samsýningum og
verið með einkasýningar og
voru verk eftir hana sýnd á síð-
asta ári í Hollandi, Ungverja-
landi, Finnlandi og Bandaríkj-
imum.
Sýning Rúríar hefur yfir-
skriftina Gildi II og stendur til
25. maí. Opnið er ffá 14.00-18.00
alla daga nema mánudaga. Þá er
lokað.
Brúðkaup
á Astro
í kvöld verður kynningar-
kvöld á Astro á vegum verslun-
arinnar Holtablóma á öllu sem
viövíkur brúðkaupi. Margir að-
ilar kynna vörur og þjónustu.
Kynningin hefst kl. 21.00.
Fiskveiðistjórnun - ný
kvótaskipting
er yflrskrift fundar sem
Heimdallur stendur fyrir í Val-
höll í kvöld kl. 20.30. Gestir: Þor-
steinn Pálsson, Sighvatur Björg-
vinsson og Pétur Örn Sverris-
son.
Kór Átthagafélags
Strandamanna
heldur vortónleika í Selja-
kirkju í kvöld, 2. maí, kl. 20.30.
Einsöngvarar eru Svanur Val-
geirsson og Erla Þórólfsdóttir
sem einnig er stjórnandi kórs-
ins.
Samkomur
ITC-fundur á ensku
Landssamtök ITC halda ensk-
an fund í dag áð Ármúla 28, 3.
hæð, kl. 18.00. Þema fundarins
er Education. Allir velkomnir.
Sæluvika Skagfirðinga
I kvöld verður Unglingadiskó-
tek á KafFi Krók og dægurlaga-
keppni á vegum Kvenfélags
Sauðárkróks.
Aglow Reykjavík
Fundur er í kvöld kl. 20.00 að
Háaleitisbraut 58-60. Halla Jóns-
dóttir talar um sjálfsstyrkingu
kvenna og Guðný Einarsdóttir
syngur.
Karma á Kaffi Reykjavík:
Efni af væntanlegri plötu
Kaffi Reykjavík, sem er i hjarta
gamla bæjarins, er einn vinsælasti
skemmtistaðurinn í höfuðborginni
og er ávallt þéttskipaður um helg-
ar. Kaffi Reykjavík er stór
skemmtistaður sem er til húsa í
gömlu og þekktu húsi sem hefur
hýst marga starfsemina á undan-
förnum áratugum.
Undanfarin tvö kvöld hefur
hljómsveitin Karma verið að
skemmta á Kaffi Reykjavík og hún
Skemmtamr
verður þar áfram í kvöld og annað
kvöld. Karma flytur hressilega
tónlist sem hefur verið vel tekið af
gestum staðarins og meðal efnis
sem hún flytur þessa dagana eru
lög af væntanlegri geislaplötu sem
kemur út í sumar. Meðlimir
Karma eru Ólafur Þórarinsson,
gítarleikari og söngvari, Guðlaug
Dröfn Ólafsdóttir, söngur, Helena
Jón Ómar bassaleikarí á góðri stund.
Káradóttir, hljómborð, gítar og
söngur, Jón Ómar Erlingsson,
bassi, Páll Sveinsson, trommur, og
Ríkaharður Arnar IV, hljómborð.
Snjóföl á heiðum
Vegír á landinu eru yflrleitt vel
færir en hálka er sums staðar þar
sem vegir liggja hátt og snjófól er á
heiðum- á austanveröu landinu.
Víða er búið að setja hámarksöxul-
þunga á vegi sem eru viðkvæmir á
þessum árstíma. Má þar nefna að á
Færð á vegum
Fljótsdalsheiði er 5 tonna takmörk-
un á öxulþunga, 7 tonn á Mývatns-
öræfum, Jökuldal og Möðrudalsör-
æfum og 4 tonn á Vopnafjarðar-
heiði. í Borgarfirði er hámarksöxul-
þungi 7 tonn í Hvítársíðu, Reyk-
holti-Húsafelli og á Geldingadraga.
Á Vestfjörðum er hámarksöxul-
þungi 2 tonn á leiðunum Kollaflörð-
ur-Flókalundur, Dynjandisheiði og
Hrafnseyrarheiði.
Ástand vega
il
o ° o #
j—O O
M O f
[3 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
C^) LokaðrSt°ÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum
Fjórða barn
Erlu og Ómars
Myndarlegi drengurinn á mynd-
inni fæddist á fæöingardeild Land-
spítalans 14. apríl kl. 19.10. Þegar
Barn dagsins
hann var vigtaður reyndist hann
vera 3.655 grömm að þyngd. For-
eldrar hans eru Erla Ríkarðsdóttir
og Ómar Óskarsson. Hann á þrjá
bræður sem eru 2ja, 5 og 14 ára
gamlir.
Eddie Murphy leikur vampíruna
sem hefur sest að í New York. Á
myndinni með honum er Angela
Bassett sem leikur lögreglu-
konu.
Vampíra í
Brooklyn
í Vampíru í Brooklyn, sem
Háskólabíó sýnir, leikur Eddie
Murphy Maximillian sem er síð-
asti í röð aldagamallar blóðsugu-
ættar. Hann er miskunnarlaus
og veit ekki hvað það er að sjá
eftir hlutunum. Þá getur hann
breytt útliti sínu eins og honum
sýnist. Max, eins og hann kallar
sig, er nú kominn til New York
til að hafa uppi á Ritu Veder, lög-
reglukonu, sem hann vill gera að
blóðsugu. Það reynist honum
samt erfiðara en í fyrstu var
haldið.
Kvikmyndir
Allt er þetta á gamansömum
nótum eins og vænta má frá
Eddie Murphy. Angela Bassett
leikur lögreglukonuna. Leik-
stjóri er Wes Craven sem er
þekktastur fyrir að hafa kynnt
Freddie Krueger fyrir kvik-
myndahúsagestum í Nightmare
on Elm Street.
Nýjar myndir
Háskólabíó:Vampíra í Brooklyn
Háskólabíó: Hatur
Laugarásbíó: Rósaflóð
Saga-bió: Herra Glataður
Bíóhöllin: Toy Story
Bióborgin: Powder
Regnboginn: Magnaða Af-
ródita
Stjörnubíó: Vonir og væntingar
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 87
2. maí 1996 kl. 9,15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 67,230 67,570 66,630
Pund 100,550 101,490 101,060
Kan. dollar 49,470 49,780 48,890
Dönsk kr. 11,3680 11,4280 11.6250
Norsk kr. 10,1980 10,2540 10,3260
Sænsk kr. 9,8300 9,8850 9,9790
Fi. mark 13,9020 13,9840 14,3190 ..
Fra. franki 12,9700 13,0440 13,1530
Belg. franki 2,1299 2,1470 2,1854
Sviss. franki 53,8700 54,1700 55,5700
Holl. gyllini 39,1700 39,4100 40,1300
Þýskt mark 43,8300 44,0500 44,8700
ít. líra 0,04294 0,04320 0,04226
Aust. sch. 6,2270 6,2650 6,3850
Port. escudo 0,4269 0,4295 0,4346
Spá. peseti 0,5266 0,5298 0,5340
Jap.yen 0,63900 0,64290 0,62540
írskt pund 104,260 104,910 104,310
SDR/t 97,14000 97,72000 97,15000
ECU/t 82,3200 82,8100 83,3800
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
1 3 V- l i'" 7
/
w 1 r
J5 V
r iL i*
lS \h TcT
J r J
Lárétt: 1 dramb, 6 eignast, 8 óværa, 9
náttúra, 10 samdi, 11 þræll, 12 fagra,
15 lúga, 17 skólasetur, 18 hvassviðri,
19 pípu, 21 skák, 22 fljótfæmi.
Lóðrétt: 2 magra, 3 mjólkurafurð, 4
fjall, 5 flökt, 6 kvennabósa, 7 fljótið, fT
heit, 11 ásamt, 13 dreitil, 14 eldstæði,
16 pikk, 20 drykkur.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 fálm, 5 ævi, 7 óreiða, 9 lægð-
ina, 10 að, 11 galir, 13 rigning, 16
snauð, 17 ái, 18 átt, 19 marr.
Lóðrétt: 1 fólar, 2 áræðin, 3 legg, 4
miðanum, 5 æði, 6 vani, 8 fargir, 12
liða, 14 gat, 15 nár, 16 sá.