Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1996, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Bandaríkin og ísrael óhress með skýrslu um árás á búðir SÞ:
Lýstu yfir fyrirlitningu
sinni á niðurstöðunum
Stjóravöld í Bandarlkjunum og
ísrael lýstu yflr fyrirlitningu sinni á
nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna
um sprengjuárás ísraelskra her-
sveita á bækistöð friðargæsluliða
SÞ í sunnanverðu Líbanon. Sendi-
menn arabaríkjanna hjá SÞ íhuga
hins vegar að hvetja til fundar Ör-
yggisráðsins um málið.
Höfundur skýrslunnar, hollenski
herforinginn Frank van Kappen,
varði þá niðurstöðu sína að það
væri ólíklegt að ísraelsmenn hefðu
varpað sprengjum sínum á búðirnar
af slysni. Rúmlega eitt hundrað
óbreyttir líbanskir borgarar, sem
höfðu leitaö þar skjóls, týndu lífi í
árásinni.
„Sameinuðu þjóðirnar hafa haft
búðir þarna í átján ár,“ sagði van
Kappen við fréttamenn og bætti við
að ísraelsmenn hefðu verið varaðir
við því að flóttamenn væru í búðun-
um. „Það skiptir hins vegar ekki
máli hvort þeir voru þar eður ei.
Maður skýtur ekki á búðir SÞ.“
í skýrslu hans, þar sem ísraelski
herinn er allt að því sakaður um að
hafa vísvitandi varpað sprengjum á
bækistöðina i Qana í síðasta mán-
uði, segir að ekki sé hægt að útiloka
algjörlega frásögn ísraelsmanna af
atburðinum. En í skýrslunni er van
Kappen hvað eftir annað á öðru
máli en ísraelsmenn sem segja að
árásin hafi verið gerð vegna vit-
lausrar merkingar á landakorti og
annarra mistaka.
Árásin á búðirnar, þar sem
gæsluliðar frá Fiji höfðu aðsetur,
var gerð þegar þar voru átta hundr-
uð flóttamenn. ísraelsstjórn sagði að
hersveitir sinar hefðu ekki vitað af
fólkinu á þeim tima.
Bandarískir embættismenn, bæði
í Washinton og í höfuðstöðvum SÞ,
beindu spjótum sínum að Boutras
Boutros-Ghali, framkvæmdastjóra
SÞ, sem bað um skýrsluna. Þeir
sögðu hana geta stofnað vopnahlés-
samkomulaginu milli ísraels og Hiz-
bollah-skæruliða í hættu.
Stjómarerindrekar sögðu að bæði
Bandaríkjamenn og Frakkar hefðu
verið andvígir því að gera opinbera
formlega skýrslu, sem gæti leitt til
umræðu innan Öryggisráðsins.
Arabaþjóðirnar íhuga nú hvort þær
eigi að fara fram á slíkan fund en
ráðið mun að öllum líkindum að-
eins ræða skýrsluna á lokuðum
fundi í dag.
Þeir sögðu að Boutros-Ghali hefði
verið í klemmu, hann hefði verið
sakaður um yfirhylmingu ef hann
hefði stungið skýrslunni undan.
David Peleg, aðstoðarsendiherra
ísraels hjá SÞ, vísaði skýrslunni á
bug og sagði að þar hefðu upplýsing-
ar, sem ísraelsk stjóravöld létu af
hendi, ekki verið teknar til greina.
„Við teljum það fáránlegt að láta að
því liggja að spreugjum kunni að
hafa verið varpað á búðir SÞ af
ásettu ráði,“ sagði Peleg. Reuter
Meintir
njósnarar enn
í Rússlandi
Orðaskak rússneskra og
breskra stjórnvalda vegna
njósnamálsins, þar sem níu Bret-
ar eiga yfir höfði sér að verða vís-
að frá Rússlandi vegna ásakana
um njósnir, hélt áfram í gær.
Rússar höfðu þá enn ekki vísað
Bretunum úr landi. Jevgení
Primakov utanríkisráðherra
hitti Andrew Wood, sendiherra
Breta í Moskvu, að máli í gær en
ekkert var gefið upp eftir viðræö-
urnar. Malcolm Rifkind, utanrík-
isráðherra Breta, sagði þó eftir
fund sendiherrans í Moskvu aö
Rússum hefði ekki tekist að færa
sönnur á ásakanir sínar um
njósnir. Áður hafði Rifkind sagt
að ef Bretunum yrði vlsað úr
landi mundu bresk stjómvöld
grípa til svipaðra aðgerða.
Clinton með
örugga forustu
á Dole
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
er með örugga forustu á Bob
Dole, væntanlegan forsetafram-
bjóðanda repúblikana. Sam-
kvæmt skoðanakönnun Harris-
stofnunarinnar, sem birt var í
gær, fengi Clinton 53 prósent at-
kvæðanna en Dole einungis 28
prósent. Sé aðeins tekið miö af
þeim sem þykja líklegir til að
kjósa breikkar bilið í 31 pró-
sentustig þar sem 64 prósent at-
kvæða féllu Clinton í skaut. Bjóði
aukýfingurinn Ross Perot sig
fram fengi hann 16 prósenta fylgi
en forskot Clintons næmi engu
að síöur 25 prósentustigum. For-
skot Clintons er það mesta sem
mælst hefur hjá bandarískum
forsetaframbjóðanda hálfu ári
fyrir kosningar.
Hewitt var yfir
sig ástfanginn
James Hewitt, liðsforinginn
sem átti í fimm ára ástarsam-
bandi með Díönu prinsessu, segir
að hann hafi verið yfir sig ást-
fanginn og látið sig dreyma um
sambúð meö henni. Þetta kemur
fram í sjónvarpsviðtali viö
Hewitt sem sent verður út í
næstu viku. í viðtalinu segir
Hewitt að hann hafi aldrei ætlað
sér að verða ástfanginn af Diönu.
Hann hafi fallist á að kenna
henni að ríða hesti og ástin hafi
blossaö upp yfir rómantískum
kvöldverði ári eftir að ljóst var
að hjónaband hennar og Karls
var á leið í vaskinn. Reuter
Skæruliðar úr liði Charles Taylors við höfuð af óvini sem stillt var upp á aðalgötu Monróvíu í gær. Maðurinn særðist
í átökum, var tekinn til fanga, skotinn og afhausaður. Símamynd Reuter
Carter gagnrýnir Bandaríkin fyrir aðgerðaleysi í Líberíu:
Lítil von um að samið
verði um vopnahlé
Jimmy Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, gagnrýndi Bandaríkja-
stjóm harðlega í gær fyrir afstöðu
hennar til átakanna í Vestur- Afr-
íkuríkinu Líberíu. Sagði hann af-
stöðu bandarískra stjórnvalda sorg-
lega. Carter sagði vanda Líberíu það
alvarlegan að Warren Christopher
utanríkisráðherra ætti að heim-
sækja landið. En hann benti um leið
á að slæm reynsla Bandaríkja-
manna af afskiptum í Sómalíu, þar
sem bandarískum hermanni var
rænt og hann drepinn, hefti vilja
þeirra til afskipta.
Leiðtogar Vestur-Afríkuríkja
komu saman í Ghana í morgun í til-
raun til að koma vopnahlénu milli
stríðandi fylkinga í Líberíu aftur í
gildi og enda blóðug átökin. Banda-
ríkjamenn styðja friðarumleitanirn-
ar en fæstir hafa trú á árangri nema
viðræðurnar beinist að kjama máls-
ins, afvopnun um 60 þúsund skæru-
liða. Þó bandarísk herskip séu und-
an ströndum Líberíu virðist ekkert
benda til að Bandaríkin aðstoði frið-
argæslusveitir Vestur-Afríkuríkja
en einar hafa þær ekki bolmagn til
að afvopna skæruliðahreyfingar
landsins. Sameinuðu þjóðimar hafa
aðvarað yfirmenn stríðandi fylk-
inga um að fjölþjóðlegar hjálpar-
sveitir yfirgefi landið takist ekki að
endurvekja vopnahléð frá því í
fyrra en í því voru ákvæði um kosn-
ingar að ári liðnu.
Áður en vopnahlésviðræður
hófust í Ghana féllust skæruliðar
stríðandi fylkinga í faðma á götum
Monróvíu, höfuðborgar Líberíu, í
vopnahléi sem ekki er talið að verði
langlíft. Skömmu áður höfðu skæru-
liðar úr sveitum Charles Taylor af-
haúsað hermann úr sveitum Krahn-
ættbálksins og stillt höfðinu upp til
sýnis á aðalgötu borgarinnar.
Reuter
Eldur í blokk
Slökkvilið og lögregla í Lon-
don lokuðu af stóru svæði í mið-
borginni eftir að eldur braust út
í mannlausri íbúðablokk og olli
fjölda gassprenginga.
Jeltsín fullvissar
Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
fullvissaði Bill
Clinton
Bandaríkjafor-
seta um það í
gær að forseta-
kosningamar
í Rússlandi í næsta mánuði yrðu
frjálsar og að þeim yrði ekki
frestað, þótt ýmsir hefðu hvatt
til þess, þar á meðal náinn sam-
verkamaður forsetans.
Ræðir mannréttindi
Sendimaður Bandaríkjastjóm-.
ar ætlar að hefja máls á mann-
réttindum þegar hann hittir
embættismenn stjórnarinnar í
Búrúndí og leiðtoga hersins sem
sakaður er um fjöldamorð.
Vilja hvalafriðun
Umhverfisvemdarsinnar
hvöttu til þess í gær að allar
hvalveiðar í ábataskyni yrðu
bannaðar í fimmtíu ár til viðbót-
ar á meðan nýjar rannsóknir
færu fram.
Eldur breiðist út
Slökkviliðsmenn reyndu að
hemja skógarelda í Nýju-Mexíkó
sem hafa eyðilagt 27 hús og neytt
þúsundir manna til að flýja
heimili sín.
Stríösglæpamanni lýst
Grant
Niemann, sak-
sóknari í
stríðsglæpa-
réttarhöldun-
um sem
hófust yfir
Bosníu-
Serbanum
Dusan Tadic í Haag í Hollandi í
gær, lýsti sakbomingnum sem
serbneskum þjóðemissinna sem
hefði drepið, nauðgað og pyntað
múslíma og Króata í þjóöernis-
hreinsunum í Bosníu árið 1992.
Ný sljórnarskrá
Stjórnmálaflokkar í Suður-
Afríku komust í nótt að sam-
komulagi um nýja stjómarskrá
landsins, aðeins nokkrum
klukkustundum áður en frestur
til þess rann út.
í lífstíðarfangelsi
Morðingi tveggja ungra pilta á
Bretlandi var dæmdur til lífstíð-
arfangelsis í gær.
Nánari samvinna
Bandaríkin og Mexíkó ýttu
ágreiningi sínum um ólöglega
innflytjendur og eiturlyfjasmygl
til hliðar og stofnuðu til nánari
samvinnu með samningum af
ýmsu tagi.
Æft í Eystrasalti
Bandaríkjamenn ætla að
halda heræfingar með Eystra-
saltsríkjunum fljótlega eftir for-
setakosningarnar í Rússlandi í
næsta mánuði.
Samsæri
Newt
Gingrich, leið-
togi repúblik-
ana í fulltrúa-
deild Banda-
ríkjaþings,
sakaði fjöl-
miðla í gær
um stofna til
samsæris með Clinton forseta
gegn repúblikönum og stefnu-
málum þeirra.
Steinum kastað
Þýskir kjarnorkuandstæðing-
ar kveiktu elda og köstuðu grjóti
í lögreglu í morgun til að reyna
að koma í veg fyrir að lest með
kjarnorkuúrgangi kæmist á leið-
arenda. Reuter
fjölmiðla