Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Qupperneq 2
2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
I>V
Aðalfundur Langholtssafnaðar í kvöld:
Búist við áskorun á séra
Flóka að láta af störfum
- reiknað með að Ólöf Kolbrún og Margrét Leósdóttir hætti í safnaðarstjórn
„Það eina sem er alveg víst er að
á þessum aðalfundi verða mikil
átök og læti,“ sagði einn stjórnar-
manna í safnaðarstjórn Langholts-
kirkju en aðalfundur safhaðarins
verður haldinn í kvöld. Þessi
stjómarmaður vildi ekki, frekar en
aðrir í stjórninni, láta hafa neitt
eftir sér opinberlega, svo við-
kvæmt er málið.
Viðmælandi DV sagði að það
myndi koma sér meira en lítið á
óvart ef ekki kæmi fram tillaga þar
sem skorað verður á séra Flóka
Kristinsson sóknarprest að segja af
sér störfum. Hann sagði að þessi
tillaga myndi ekki koma frá safn-
aðarstjóminni heldur úr röðum
safnaðarfólks.
Hann sagðist alls ekki eiga von á
því að neitt yrði ályktað um Jón
Stefánsson organista enda væm
vandamálin ekki í kringum hann
heldur prestinn.
í úrskurði séra Bolla Gústavs-
sonar i Langholtsdeilunni kom
fram að óæskilegt væri að starfs-
maður sóknarinnar, í þessu tilfelli
Margrét Leósdóttir, sæti í sóknar-
nefnd. Sömuleiðis að þeir sem
gætu oft orðið vanhæfir, eins og
Ólöf Kolbrún, eiginkona Jóns Stef-
ánssonar organista, sætu í stjórn-
inni. Þess vegna er fastlega reikn-
að með að þær segi af sér á fundin-
um.
Á dögunum átti Ólafur Skúlason
biskup fund með fólki úr safnaðar-
stjórninni. Þar hafnaði biskup
þeirri bón að reyna að finna séra
Flóka annað starf. Aftur á móti
lagði vígslubiskupinn í Skálholti,
sem einnig sat fundinn, sig fram
um að fá menn til aö samþykkja að
álykta ekkert á fundinum í kvöld
gegn prestinum og að safnaðar-
stjórnin reyndi að koma í veg fyrir
að aðrir bæru fram slíka ályktun.
Það mun vera einróma afstaða
safnaðarstjómar að skipta sér ekk-
ert af því hvort eða hvaða ályktan-
ir verði bornar upp á fundinum í
kvöld. Fundurinn er lokaður öðr-
um en sóknarbörnum.
-S.dór
Tvennt alvarlega slasað eftir umferðarslys við aðra Kópavogsbrúna f gær:
Stuttar fréttir
Toppurinn keyrðist niður
í framsætin af miklu afli
- ökumaður og farþegi í framsæti lærbrotnir en farþegar í aftursæti sluppu betur
Piltur og stúlka um tvítugt voru í
gær flutt alvarlega slösuð á Sjúkra-
hús Reykjavíkur eftir að bUl þeirra
hafnaði á einum brúarstólpanum
undir Digranesbrúnni í Kópavogi í
gær. Voru þau í aðgerð í gærkvöldi
en ekki talin i lífshættu, að sögn
læknis á slysadeild sjúkrahússins.
Þau eru bæöi lærbrotin. í aftursæti
voru einnig unglingar og slapp ann-
ar þeirra án teljandi meiðsla en
hinn var á sjúkrahúsi í nótt.
Tildrög slyssins voru með þeim
hætti aö ökumaðurinn missti stjórn
á bílnum á leið sinni að sunnan og
um Kópavogsgjána. Valt bíllinn þeg-
ar hann fór upp á umferðareyjuna
og skall síðan með miklu afli á brú-
arstólpanum. Kom toppurinn fyrst í
stólpann og keyrðist af miklu afli
Harpa Rós Gísladóttir Ford-stúlkan 1996:
Ætlar að stofna
fjölskyldu
Rós hafi gengið einstaklega vel því
að ásamt þvi að vera valin Ford-
stúlkan lenti hún í þriðja sæti í
keppninni og var valin Oroblu-
stúlka ársins.
Ford-keppnin og fegurðarsam-
keppnin voru sameinaðar í ár og
voru það fulltrúar Ford Models í
París sem völdu Hörpu Rós úr hin-
um friða hópi sem tók þátt. í verð-
laun hlýtur hún þátttökurétt 1
keppninni Super Model of the World
sem haldin verður síðar á árinu.
Harpa Rós er 18 ára og býr í
Garðabæ. Hún stundar nám í FG á
markaðs- eöa hagfræðibraut.
„í framtíðinni hyggst ég klára
skólann, fara í háskólann og reyna
svo að fá góða vinnu. Þá langar mig
aö stofna heimili og eignast börn.“
Hún telur sig hafa lært mikið á
undirbúningstímanum fyrir keppn-
ina og finnst þetta hafa verið mjög
gagnleg reynsla.
„Það var einstaklega gaman að
taka þátt í keppninni. Ég eignaðist
Harpa Rós Gísladóttir, fegurðar- margar góðar vinkonur út um allt
drottning Reykjavíkur, var valin iand sem ég get heimsótt ef ég ákveð
Ford-stúlkan 1996 á föstudags- aö skella mér hringveginn,“segir
kvöldið. DV-mynd Hari Harpa Rós, Ford-stúlka 1996. SF
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Halda Skagamenn íslands-
meistaratitlinum í fótbolta?
Þú getur svaraö þessari
spumingu meö því aö
hringja i síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já jJ
Nei _2j
„Það var mjög gaman að vinna
þennan titil og þetta leggst allt mjög
vel í mig,“ sagði Harpa Rós Gísla-
dóttir sem var kjörin Ford- stúlkan
1996 í fegurðarsamkeppninni á
fóstudaginn.
Það má með sanni segja að Hörpu
niður í framsætin. Klemmdust öku-
maður og farþegi þar á mUli og sátu
fastir í flaki bílsins.
Auk lögreglu kom slökkvilið á
staðinn og voru klippur notaðar til
að ná fólkinu úr bílnum. Er hann
gjörónýtur. Farþegarnir í aftursæt-
inu sluppu við að fá topp bílsins
niður á sig og sluppu þar með betur
frá slysinu.
Enn er verið að rannsaka tildrög
slyssins. Varðstjóri hjá Kópavogs-
lögreglunni sagði að enn væri ekki
hægt að fullyrða um hvers vegna
ökumaðurinn missti stjórn á bUn-
um. Ekkert dekkja bílsins er
sprungið. Er þess beðið að þeir sem
í bUnum voru verði yfirheyrðir
áður en nokkuð verður sagt um or-
sökina. -GK
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir fegurðardrottning Islands:
„Einstök til-
finning"
„Sigurinn kom mér mjög á óvart.
Mér brá rosalega, áttaði mig ekki á
þessu fyrr en eftir á en auðvitað er
þetta alveg æðislegt,“ segir Sólveig
Lilja Guðmundsdóttir, fegurðar-
drottning íslands 1996.
„Það er mikið framundan, keppn-
ir erlendis, m.a. Miss University og
jafnvel ungfrú Evrópa svo að maður
heldur bara áfram að æfa. Ég mun
eflaust fá eitthvað að gera við fyrir-
sætustörf en það kemur betur í ljós
síðar enda liggur ekkert á, allt árið
framundan."
Sólveig er 19 ára og búsett í
Njarðvík. Hún stundaði nám í vetur
í kvöldskóla Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og ætlar sér að klára nám á
hagfræðibraut þaðan. Hún vinnur
sem skrifstofumanneskja í Kola-
vinnslunni.
„Það er mikið ævintýri að taka
þátt í svona keppni. Við æfðum
mjög stíft, allt að þrisvar sinnum á
dag, en á móti kemur að við lærð-
um margt sem nýtist manni í dag-
lega lífinu. Þegar ég lít til baka er
þetta búið að vera mjög gaman. Við
fórum til Vestmannaeyja og einnig
hefur maður kynnst mörgu áhuga-
verðu fólki, ekki bara stelpunum
sem taka þátt heldur einnig öllum
þeim sem starfa í kringum þetta."
Á laugardaginn var stanslaus
gestagangur heima hjá Sólveigu
Lilju og að hennar sögn lítur íbúð-
in út eins og blómabúð. Eftir að
gestagangurinn minnkaði gafst
henni loksins tími til þess að slaka
á: „Á sunnudaginn hafði ég smá-
tíma fyrir sjálfa mig og notaði hann
til þess að fara upp í sumarbústað,
sofa, slaka á og ganga á fjöll,“sagði
Sólveig Lilja, fallegasta kona ís-
lands. -SF
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir, 19
ára Njarðvfkurmær, var kjörin feg-
urðardrottning íslands á föstudags-
kvöldið. DV-mynd Hari
Áfram til Bretlands
Breska pariö sem reyndi að
kaupa fyrir falska dollaraseðla
um borð í flugvél Canada 3000
fer til Bretlands í dag.
Sparnaöaraögerðir
Nær fimmtungur legurýmis á
Ríkisspítölunum veröur ekki
nýttur í sumar vegna sparnaðar-
aðgerða. RÚV sagöi frá þessu.
Verö á matvöru
Aðild aö ESB leiðir ekki ein
og sér til lækkunar á verði mat-
vöru. Virðisaukaskattstigið hef-
ur miklu meiri áhrif á verðlagið.
RÚV greindi frá.
Á batavegi
Stúlka sem slasaðist alvarlega
í fallhlífarstökki á fimmtudag er
komin til meðvitundar og er á
batavegi.
Efnilegar saumakonur
Úlfhildur Elín Þorláksdóttir
var sigurvegari í flokki byrj-
enda í keppni saumakvenna í
gær. í flokki reyndari sauma-
kvenna sigraði Guðrún Árdis
Össurardóttir. Ríkissjónvarpið
greindi frá.
Safnaöarhús
Hvítasunnusöfnuðurinn, sem
festi kaup á húsnæði tívolísins í
Hveragerði, hyggst nota efnið til
byggingar safnaðarhúss að
Kirkjulækjarkoti I Fljótshlíð.
Ríkissjónvarpiö sagöi frá þessu.
Hálendisvegir
Líkur eru á að margir há-
lendisvegir opnist þremur vik-
um fyrr en vanalega vegna góðs
tíðarfars. Kjölur opnast á næstu
dögum. Ríkissjónvarpið greindi
frá.
Mismunun
Samkeppnisráð telur að Póst-
ur og sími hafi mismunað örygg-
isgæslufyrirtækjum. Nýherji og
Öryggisgæsluþjónustan kærðu
vegna einkaleyfis Securitas. Rík-
issjónvarpið var með þessa frétt.
-ÍS
Forsetaembættið:
Fimm í
framboði
Nú er ljóst aö fimm verða í
framboði til embættis forseta ís-
lands þegar kosið verður laug-
ardaginn 29. júní. Framboðs-
frestur rann út á miðnætti síð-
astliðins fóstudags. Þau sem
skiluðu inn tilskildum fjölda
nafna meðmælenda eru: Ástþór
Magnússon, Guðrún Agnars-
dóttir, Guðrún Pétursdóttir,
Ólafur Ragnar Grímsson og Pét-
ur Kr. Hafstein.
-S.dór