Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
■(jomEii
nY OPEHA EFtÍRjon ASCEÍRJSOn
miÐosöLön
OPÍn K^. 15-19
riEmo món.
sími 551-1475
ÍSLEriSKJl ÓPERfin
I, jOni UPPSELtOG 4, iúm' UPPSELt
nÆStu sÝnincoR^7. júní 8. júní 11. júní oc 14. júní
KENWOOD
kraftur, gœði, ending
Ármúla 17, Reykiavík, sími 568-8840
^öðkaupsveislur — útlsamkomur — skemmtanir—tónleikar — sýningar—kynningar og fl. og fl. og II.
f
skÍDu
k9°
..og ýmsir fylgihlutir
| Tjöldaf<
Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald ó
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, Ijaldgólf og
tjaldhitarar.
lelfð sðsáta
..meo skátum á heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377
FYRIR GARÐA
OG SUMARHÚS
Girðincjarefni • Þakefni
Grasfræ • Aburður • Garðáhöld
MR búðin • Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík
Sími 587 5554, Fax 587 7116
„Eg fæ allar rekstrar-
og hreinlætisvörur
hjá Rekstrarvörum"
Jón Grétar hótelstjóri Hótel Eddu Skógum
Utlönd
Borís Jeltsín hlýðir á Zelímkhan Jandarbíjev, leiðtoga tsjetsjenskra uppreisnarmanna, í viðræðum þeirra í Moskvu í
gær. Ráðgjafar leiðtoganna og samverkamenn fylgjast grannt með því sem fram fer. Samkomulag tókst um vopna-
hlé frá 1. júní. Símamynd Reuter
Jeltsín semur um friö viö uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu:
Þetta er sogu-
legt augnablik
Rússnesk stjórnvöld undirrituðu
samning við leiðtoga uppreisnar-
manna í Tsjetsjeníu í gær um að
binda enda á átökin í lýðveldinu frá
1. júní næstkomandi.
„Við höfum leyst lykilvandamálið
sem er friður í Tsjetsjeníu,“ sagði
Borís Jeltsín Rússlandsforseti, eftir
að Viktor Tsjernomýrdin forsætis-
ráðherra hafði undirritað sam-
komulagið við Zelímkhan Jandar-
bíjev, leiðtoga aðskilnaðarsinna.
„Þetta er sögulegur dagur, sögu-
legt augnablik,“ hafði Itar-Tass-
fréttastofan eftir Jeltsín.
Jandarbíjev, sem tók við forustu
uppreisnarmanna í síðasta mánuði,
eftir að fyrirrennari hans, Dzhokh-
ar Dúdajev, var drepinn í eldflauga-
árás rússneska hersins, vísaði á bug
að hann ætlaði að notfæra sér for-
setakosningarnar í Rússlandi í
næsta mánuði til að ná góðum
samningi við Jeltsín.
Sergei Medvedev, talsmaður
Jeltsíns, hafði eftir Jandarbíjev að
tsjetsjenska sendinefndin hefði ekki
nein ákveðin markmið önnur en
þau að koma á friði í Tsjetsjeníu.
Medvedev sagði Interfax-frétta-
stofunni að í viðræðunum í gær
heföi ekki verið tekið á mörgum
lykilmálum átakanna sem hafa stað-
ið í átján mánuði og orðið rúmlega
þrjátíu þúsund manns að bana.
Ekki var til dæmis rætt um helsta
ágreiningsefnið, framtíðarstjórn-
skipan í Tsjetsjeníu.
Medvedev sagði að vegna þessa
yrðu menn úr sendinefnd Jand-
arbíjevs eftir í Moskvu til að finna
leiðir til að framfylgja þeim atriðum
sem þegar er búið að semja um.
Viðbrögð við samkomulagi
Jeltsíns og uppreisnarmanna hafa
verið blendin. Kommúnistar lýstu
yfir ánægju sinni með friðarsam-
komulagið en einn forustumaður
Tsjetsjena í Moskvu sakaði forset-
ann um kosningabrellur, að sögn
Interfax- fréttastofunnar. Reuter
Stuttar fréttir
Símon Peres um kosningarnar í ísrael á morgun:
Friðurinn í hættu
ef Likud sigrar
Símon Peres, forsætisráðherra
ísraels, sagði í gær að kosningarnar
á morgun mundu ráða úrslitum um
það hvort framhald yrði á friðarvið-
ræðum ísraelsmanna og arabaríkj-
anna. Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum hefur Benjamin Net-
anyahu, leiðtogi hins hægrisinnaða
Likud-bandalags, saxað á forskot
Peresar.
„Þetta eru mikilvægustu kosning-
amar í sögu Ísraelsríkis,“ sagði Per-
es í gær, aðeins tveimur sólarhring-
um fyrir kosningarnar. „Ég held að
það yrði hræðilegt ef truflanir yrðu
á friðarferlinu eða það stöðvað. Það
yrði skref aftur á bak. Það verður
mjög erfitt að leiðrétta það síðar
meir.“
Ein skoðanakannana, sem voru
gerðar fyrir eina kappræðufund for-
sætisráðherraefnanna tveggja á
sunnudag, sýndi að forusta Peresar
hafði minnkað niður í 2,4 prósentu-
stig. Þar við bætist að flestir stjórn-
málaskýrendur töldu að Netanyahu
hefði farið með sigur af hólmi í
kappræðunum.
Ahmed Tibi, aðstoðarmaður Yass-
ers Arafats, leiðtoga Palestínu-
manna, sagði við Reuters-fréttastof-
una að hann óttaðist að Peres
mundi tapa þar sem hann hefði gert
hefðbundna stuðningsmenn Verka-
mannaflokksins meðal ísraelska
araba afhuga sér með aðgerðum
ísraelska hersins í Líbanon í síðasta
mánuði. Reuter
Vilhjálmur prins, sonur Karls og Díönu:
Vill ekki verða kóngur
Vilhjálmur prins, 13 ára gamall
sonur þeirra Karls og Díönu og
næstur að ríkiserfðum á eftir föður
sínum, hefur engan áhuga á því að
verða kóngur og hefur tilkynnt for-
eldrum sínum það.
Að sögn breska blaðsins Sunday
Mirror tók Karl tíðindunum með
stakri ró en Díana ku vera að reyna
að sannfæra soninn um að afsala
sér ekki ríkiserfðum.
Blaðið hafði það eftir vinum
prinsessunnar að Vilhjálmur hefði
sagt foreldrum sínum að hann vildi
lifa „eðlilegu lífi“ og að hann vildi
einnig rjúfa þá hefð að karlpeningur
fjölskyldunnar gengi í sjóherinn.
Reuter
Brusca fyrir dómara
Mafíuforinginn Giovanni
Brusca kom fyrir dómara í
gær í fyrsta sinn frá því hann
vár handtekinn fyrir viku.
Hvetja til mótmæla
Stjómarandstaðan í Alba-
níu segir að kosningarnar um
helgina, þar sem stjórnar-
flokkurinn sigraði, hafi verið
svindl og hvetur almenning
til að mótmæla.
Skák í Rússlandi
Alþjóða skáksambandið til-
kynnti í gær að næsta heims-
meistaraeinvígi færi fram í
Rússlandi.
Leitað aö líkum
Kafarar boruðu gat á far-
þegarými í tansanísku ferj-
unni, sem sökk á Viktoríu-
vatni í síðustu viku, í leit að
líkum.
Endir í augsýn
Lífdagar minnihlutastjóm-
ar hindúa á Indlandi eru senn
taldir en stjórnarandstaðan
ætlar að sameinast gegn
henni á þingi í dag.
Ráðherra rekinn
Forseti Úkraínu rak forsæt-
isráðherrann sinn I gær og
kenndi honum um efnahags-
þrengingarnar í landinu.
Reuter