Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996 Fréttir Sandkorn dv Sjávarútvegsfrumvörpin til 2. umræðu: Hlutur krókaveiðibáta verður ekki skertur - segja nefndarmennirnir Stefán Guðmundsson og Einar Oddur Kristjánsson Frumvörp ríkisstjórnarinnar um annars vegar úthafsveiðar og hins vegar veiðar krókabáta hafa verið afgreidd frá sjávarútvegsnefnd til 2. umræðu. Því gæti svo farið að þau kæmu til umræðu á Alþingi í dag. Frumvarpið um veiðar krókabá- tanna hefur verið ákaflega umdeilt. Landssamband íslenskra útvegs- manna hefur barist mjög hart gegn því en nú er ljóst að samkomulag Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- Akureyri: „Það er mjög mikil óánægja með- al sjómanna sem eru að störfum í Flæmska hattinum og mikið um þetta rætt. Það er nefnilega klárlega verið að brjóta lög á okkur með því að halda skipunum á veiðum á sjó- mannadaginn,“ segir skipverji á einu rækjuskipanna sem eru að ráðherra og Landssambands smá- bátaeigenda heldur. „Meirihluti sjávarútvegsnefndar leggur ekki til neinar breytingar á krókabátafrumvarpinu," sagði Stef- án Guðmundsson í gær en hann á sæti í sjávarútvegsnefnd. Einar Oddur Kristjánsson á þar einnig sæti. Hann var spurður hvort ekkert tillit hefði verið tekið til krafna útvegsmanna í þessu máli: veiðum á Flæmska hattinum. Hann segir að um 25 íslensk skip verði þar við veiðar á sjómannadaginn og menn séu allt annað en ánægðir. Hólmgeir Jónsson, framkyæmda- stjóri Sjómannasambands íslands, segist ekki kannast við þessa óá- nægju en hann hafi vissulega heyrt að menn hafi rætt þetta mál. „Lögin um frí á sjómannadaginn eru vissu- „Ég hef hvergi séð neinar tillögur frá þeim um þetta mál. Þeir hafa lýst yfir óánægju sinni. Annað hef ég ekki heyrt frá þeim. Þess vegna fer frumvarpið til 2. umræðu alveg óbreytt," sagði Einar Oddur. Hann sagði að í þessu frumvarpi, eins og öðrum sem snerta stjórn fiskveiða, væru aUtaf einhver álita- mál og aldrei væru allir sáttir. „Það er verið með þessum frum- vörpum að færa á milli báta og báta- lega í gildi á Flæmska hattinum eins og annar staðar en þessi lög heimUa einnig að gert sé samkomu- lag um þennan frídag. Ég hef ekki heyrt annað en að það komi mönnum betur að geyma sér þennan frídag og taka hann hér heima en að eyða honum í erlendri höfn. Ef meirihluti skipshafnar krefst þess að farið verði í land á ílokka og ég vUdi að þetta yrði aUt látið hanga saman og það verður gert,“ sagði Stefán Guðmundsson, en hann hefur ekki verið fullkom- lega sáttur við krókafrumvarpið. Auk frumvarpanna um króka- veiðar og úthafsveiðar er líka frum- varp um þróunarsjóð sjávarútvegs- ins að koma til umræðu. -S.dór sjómannadaginn þá ber að gera það en það þarf ekki að fara í heima- höfn. Ég hef því ekki heyrt annað en það sé frekar vilji hjá mönnum að taka þennan frídag síðar og þá heima hjá sér en vera einhvers stað- ar einir í erlendri höfn á sjómanna- daginn," segir Hólmgeir. -gk Leysti úr helsi Landberghis Jón Baldvin Hannibalsson krataformaður er farinn til Litháens að taka á móti nafnbótinni heiðursborgari x Vilníus og þar mun og ætlun- in aö kenna götu við hann. AUt er þetta gert vegna framgöngu Jóns þegar Litháar háðu stutt og ár- angursríkt sjálfstæðisstríö við rúss- neska björninn. Kvæðamenn hafa ekki látið sögu Jón Baldvins í Aust- urvegi fram hjá sér fara og einn þeirra, Hafsteinn Sigurðsson hjá Verkalýðsfélaginu Þór á Selfossi, orti þessa héma þegar hann var fulltrúi á þingi Alþýðusambands ís- lands fyrir fjórum árum: Leysti úr helsi Landberghis Litháamir treystonum. Enginn skyldi gera gys að getu hans með Eistunum Allirtil Bessastaða Viða um land gerðu menn sér það til dundurs að skora á vini og kunningja að fara i forseta- framboð. Urðu því ólíklegustu menn fyrir þrýstingi þeg- ar framboðs- frestur var að rénna út. Hjá félögum okkar á héraðsfréttablöðun- um var það uppáhaldsskemmtunin að birta afrekaskrár væntanlegra frambjóðenda. Þarmig var mikiö lof borið á Vikar Karl Sigurjónsson prentara í Víkurfréttum og honum m.a. talið tii tekna að hafa verið formaður í knattspymufélaginu Mæðrasonum 1993 til 1994. Sigffirð- ingar áttu líka sitt forsetaefni í Friöfinni Haukssyni skemmtikrafti en harm getur að sögn blaðsins Hellxmnar „brugðið sér í allra kvik- inda líki og talað tungum". Það þótti þó há honum að kunna ekki vel til verka við gróðursetningu! Lítill liðstyrkur í BrasUíu eru margir frægir knattspymu- snUlingar sem oft á tíðum hafa fært þjóð sinni heims- meistaratign í greininni. Suð- ur þar virðast þó búa fleiri en þeir sem kunna að sparka knetti. Þetta hafa KA- menn á Akureyri sannreynt því þangað kom á dögunum Brassinn Bernandez WeUington og hugðist leika með liðinu í sumar. Komst hann á leiðarenda eftir langa og stranga ferð, að söp Dags á Akur- eyri, en reyndist við fyrstu prófun ekki búa yfir þeirri knattspyrnu- kunnáttu sem KA menn vUdu - en þeim er spáð fjórða neðsta stæti í 2. deUdinni í sumar! Órói meðal sjómanna í Flæmska hattinum: Fá ekki að taka frí á sjómannadaginn - veit ekki um óánægju, segir framkvæmdastjóri Sjómannasambandsins Lögreglan á Akureyri: Annríki vegna skríls af höfuðborgarsvæðinu Akureyri: „Það er ljótt að þurfa að segja það að þessi skríll kom af höfuð- borgarsvæðinu, frá Keflavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ en eng- inn frá Reykjavík. Vegna þessa fólks höfum við haft nóg að gera alla helgina. Þetta var í slagsmál- um dauðadrukkið, skemmandi eigur annarra og við neyddumst til að hýsa hér um 20 manns, bæði stráka og stelpur," sagði varð- stjóri hjá lögreglunni á Akureyri um ástandið þar í bæ um helgina. Segja má að strax aðfaranótt laugardags hafl verið ljóst hvert stefndi en þá varð lögreglan að reka allt fólk af tjaldsvæðinu vegna skrílsláta. Unglingarnir kveiktu m.a. í þar, slógust og voru með hávaða. „Skemmtunin“ hélt svo áfram alveg fram á daginn í gær með tilheyrandi rúðubrotum og siagsmálum, auk þess sem nokkuð var um að fánum ýmissa fyrirtækja væri stolið, svo eitt- hvað sé nefnt af því sem ungling- arnir tóku sér fyrir hendur. Umferðin á Akureyri og í ná- grenni bæjarins gekk ágætlega. Þó voru 15 teknir fyrir hraöakstur í Hörgárdal og 4 grunaðir um ölv- unarakstur. -gk Of skörp hleðsla Bfll eyðilagðist í eldi í bílskúr í gær. Verið var að hlaða rafgeymi í bílnum og virðist eldurinn hafa kviknað út frá því. Bíllinn var dreginn logandi út. Skemmdir urðu af sóti og reyk í bílskúrnum og þar lak niður bensín sem log- aði vel. ___________________________DV-mynd S Datt niður í óvarinn brunn: Mildi að enginn slasaðist „Ég var að ganga með barnavagn eftir gangstéttinni, steig ofan í op- inn brunn og sökk upp að mitti,“ sagði Bryndís Pétursdóttir en hún varð fyrir því óláni að stíga í óvar- inn ræsisbrunn hjá McDonalds við Suðurlandsbraut. Bryndís gaf lögreglunni skýrslu en þar fékk hún að vita að borgin ætti að sjá um að hafa þessa hluti í lagi. Lögreglan ætlaði að koma þessu áleiðis. „Það er hræðilegt að ganga svona frá þessu. Brunnurinn er upp við gangstétt og engin leið að sjá hann. Ég brotnaði sem betur fer ekki en er öll blá og marin og rispuð. Börnin sakaði hins vegar ekki. Ég hugsa hins vegar tO þess með hryllingi ef gamalt fólk hefði lent í þessu. Það er næsta víst að þá hefði getað farið illa.“ -SF Rólegur eins og í fótboltanum Eyjablaðið Fréttir átti í fyrri viku við- tal við krata- þingmanninn og Eyjamann- inn Lúðvík Bergvinsson. Var viðtalið tekið á vinnu- stað Lúövíks við Austurvöll og reyndist hann enn jafn rólegur og í fótboltanum forðum með ÍBV! Lúðvík upplýsir aö í tví- gang hafi hagsmunaaðilar komið óbeinum skilaboðum til hans um að vera ekki að þvælast fyrir ákveön- um málum. „Eg hlustaði ekki á það,“ segir þingmaðurjnn. Ekki munu þetta þó hafa verið Eyjamenn því þeir eru að sögn Lúðvíks vanir að bjarga sér sjálfír og leita ekki til þingmanna nema þegar alvörumál eru á ferðinni. Umsjón: Gísli Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.