Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
Fréttir
Sorpa tekur við
skóm handa
bágstöddum
Skóverslun Steinars Waage hef-
ur hafið samstarf við Sorpu um
móttöku á notuðum skóm handa
bágstöddum. Verður hægt að fara
á allar gámastöðvur Sorpu með
skó og setja í sérmerktar tunnur.
Síðastliðna tólf mánuöi hefur
verslunin sent 5 gáma með um 76
þúsund skópörum til Þýskalands
en frá upphafi söfnunarinnar hafa
verið send 125 þúsund pör.
Skóverslun Steinars Waage og
Toppskórinn munu áfram taka
við notuðum skóm í verslunun-
um.
Fann hræ af hundi í svörtum plastpoka á víðavangi:
Þetta var óhugn-
anleg aðkoma
- segir Guðmundur Pétursson sem gekk fram á hræið
„Eg var á morgungöngu með hund-
inn minn ofan við Gufunesverk-
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Langur afgreiðslutími verslana
Til hvers - fyrir hverja?
Ráðstefna Kaupmannasamtaka íslands á Grand Hótel
Reykjavík miðvikudaginn 29. maí nk. kl. 12.00-17.00.
smiðjuna þegar hann hljóp allt í einu
að svörtum plastpoka og fór að
krafsa i hann. Hundurinn gegndi
mér ekki þegar ég kallaði á hann og
honum tókst að opna pokann að
hluta. Þegar ég kom þama að sá ég í
svartan feld. Ég náði mér þá í steypu-
styrktarjárn og opnaði pokann betur.
Þá sá ég að þetta var hræ af svörtum
labradorhundi sem var með festi um
hálsinn og það var blóð í munnvik-
unum á honum. Þetta var óhugnan-
leg aðkoma og mér finnst ósmekklegt
að losa sig við dýr á þennan hátt fyr-
ir allra augum,“ segir Guðmundur
Pétursson, eigandi scháferhundsins
Óðins, sem gekk fram á hræ af hundi
á víðavangi skammt frá Gufunesi.
Guðmundur segir grjót hafa verið
flutt að pokanum með hræinu í en
það var á svæði þar sem jarðvinna
hefur verið að undanförnu. „Þetta er
9pið svæði og hér eru margir á ferli.
í síðustu viku rakst ég hér á gæslu-
konu með 15 börn. Það hefði verið
óskemmtilegt fyrir þau að sjá þetta.
Ég hefði haldið að það hefði verið
viðkunnanlegra að setja hræið í sjó-
inn sem er hér alveg við heldur en að
láta það vera hér þar sem allir geta
rekist á það. Maður stendur alveg á
gati yfir svona löguðu," segir Guð-
mundur og bætir við að því betur
sem hann kynnist manninum því
vænna þyki honum um hundinn
sinn. -IBS
Guðmundur Pétursson, eigandi schaferhundsins Óðins sem gekk fram á hræ af hundi á víðavangi skammt frá Gufu-
nesi. Guðmundur segir grjót hafa verið flutt að pokanum með hræinu í en það var á svæði þar sem jarðvinna hefur
verið að undanförnu. DV-mynd BG
Eftir framsöguerindi verða pallborðsumræður sem
Páll Henediktsson fréttamaður stjómar.
Fundarstjóri verður Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri KÍ.
Þátttökugjald með hádegisverði og síðdegiskaffi
er kr. 2.500 fyrir félagsmenn KÍ.,
en 3.000 fyrir aðra.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku ísíma 568-7811.
RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN.
Fundarsetning:
Benedikt Kristjánsson, formaður KI.
FRAMSÖGUMENN:
Jón Júlíusson,
kaupmaður, Verslunin Nóatún.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Óskar Magnússon,
framkvæmdastjóri Hagkaups.
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
form. Landssambands íslenskra verslunarmanna.
Árni Benediktsson,
stjórnarformaður Vinnumálasambandsins.
Vigfús Þ. Árnason,
sóknarprestur Grafarvogssóknar.
Jón Magnússon,
varaformaður Neytendasamtakanna.
Þórólfur Árnason,
framkvæmdastjóri markaðssviðs Olíufélagsins hf.
Meðal efnis: Fánastangir, hellulagnir,
grjót í görðum, sumar blómakörfur og ker,
leiktæki, vatn í garðinum.
Þeir sem áhuga hafa á að auglýsa í þessu
aukablaði vinsamlega hafi samband við
Sehnu Rut í síma 550-5720 eða Guðna Geir
í síma 550-5722 hið fyrsta.
Vinsamlega atliugið að síbasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagur 30. maí.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727
Miðvikudaginn 5. júní mun
aukablað um hús og garða
fylgja DV.
Seyðisíjörður:
Nýtt þjónustufyrirtæki
með fimm hópferðabíla
DV, Seyðisfirði:
Nýlega var stofnað hér einka-
hlutafélag um rekstur, sem hlaut
nafnið Ferðaþjónusta Austurlands,
og er starfssviðið fólksflutningar á
landi og bílaviðgerðir. Ferðaþjón-
ustudeild hjá vélsmiðjunni Stáli hef-
ur áður sinnt slíkri þjónustu.
Formlega var stofnunin kunn-
gjörð í smáfagnaði 18. maí á Öldu-
götu 16, en það mun vera elst þeirra
húsa í kaupstaðnum, sem ennþá eru
í daglegri notkun. Þetta hús hefur
gegnt margs konar hlutverkum
töluvert á aðra öld. Sennilega er
húsið einna þekktast undir - eða af
nafninu Meyjaskemman - sem það
hlaut á síldarárunum á sjöunda ára-
tugnum.
Þarna bjuggu lengi síldarstúlk-
urnar af Haföldunni þau árin þegar
ennþá var stemning í síldarvinn-
unni og þarf engum getum að leiða
að því, að svo sannarlega blómstr-
aði rómantíkin undir hlíðum Bjólfs-
ins ekki síður en í Hvanneyrarskál-
inni.
Aðaleigendur Ferðaþjónustu
Austurlands eru Austfar, Theódór
Blöndal, bræðurinir Bergur, Emil
og Sigurður Tómassynir og Sigmar
Svavarsson. Theódór er formaður
stjórnar en Bergur framkvæmda-
stjóri. Hlutafé er 5 milljónir. Bíla-
eign nú er 5 fólksflutningavagnar
með 160 sætum. Starfsmenn eru 5 og
er starfsemin hafin. -JJ
Eigendur fyrirtækisins, Theódór og Bergur, starfsmenn fyrirtækisins, Emil,
Sigurður og Sigmar. DV-mynd JJ