Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
39
Fréttir
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Aflspennir
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í aflspenni fyrir Búrfellsstöð
í samræmi við útboðsgögn BUR-04.
Verkið felst í framleiðslu, prófun og afhendingu FOB
á 40/40/7 MVA, 67/13,2/11 kV aflspenni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut
68, 103 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 29. maí 1996 gegn
óafturkræfu gjaldi að upphæð 5.000 krónur m. vsk. fyrir hvert
eintak. Tilboð um skal skila á sama stað fyrir kl. 12.00
fimmtudaginn 18. júlí 1996.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,
Reykjavík, sama dag, 18. júlí kl. 14.00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt að
vera viðstaddir opnunina.
Útisundlaugin á Suðureyri.
Útisundlaugin á Suðureyri:
DV-mynd Róbert
Paradís fyrir áhugafólk um sund
DV, Suðureyri:
Útisundlaugin á Suðureyri er vin-
sæl meðal heimamanna og ná-
granna þegar veðurblíðan er sem
mest. Aðalsundlaugin er 16,5 metrar
á lengd og alls staðar jafndjúp. Þá er
stór barnalaug og tveir heitir pott-
ar.
Svæðið er girt af með skjólsælli
girðingu og aðstaða fyrir sundlaug-
argesti er hin ákjósanlegasta. Borð
og stólar eru á hellulagðri lóðinni
og gott svæði fyrir sólþyrsta gesti í
sólbaði.
Fjöldi aðkomufólks kemur í laug-
ina yfir sumartímann og margir
koma daglega frá nærliggjandi ná-
grannabyggðarlögum. Utisundlaug-
ar eru ekki á ísafirði, Flateyri eða
Þingeyri. Fara verður inn í Reykja-
nes í Djúpi til að finna útisundlaug
og til Arnarfjarðar í Reykjafjörð.
Útisundlaugin á Suðureyri er því
sannkölluð paradís fyrir áhugafólk
um sund.
-RS
I
I
I
Queen Elizabeth 2. til íslands
Félagsmálaráðuneytið greiðir ferð fulltrúa ASÍ og VSÍ á þing Vinnumálastofnunarinnar:
Þeir mega klaga
Skemmtiferðaskipið Queen Eliza-
beth 2. er væntanlegt til Reykjavík-
ur þann 8. júlí næstkomandi. Skip-
ið, sem er í siglingum yfir Atlants-
hafið, tekur 1.700 farþega og er 70
þúsund tonn, nær tvöfalt stærra en
stærsta skemmtiferðaskipið sem
hingað hefur komið.
í auglýsingu í breska blaðinu
Sunday Telegraph er boðið upp á
fjögurra sólarhringa skemmtisigl-
ingu frá Englandi til íslands á 799
pund eða rúmlega 80 þúsund ís-
lenskar krónur. Farþegum er boðið
upp á gistingu á Hótel Sögu í þrjár
| nætur og skoðunarferðir til Gull-
foss, Geysis og Bláa lónsins. Að ís-
landsdvölinni lokinni verður flogið
með Flugleiðum til baka.
Farþegum gefst einnig kostur á
að fljúga strax til baka þann 8. júlí
og þá með Concorde-þotu sem fer
hraðar en hljóðið.
Queen Elizabeth 2. komst í heims-
fréttirnar fyrir einu og hálfu ári
þegar skipið kom úr slipp í Ham-
borg og sigldi yflr Atlantshafið til
Vesturheims. Skipið var ekki tilbú-
Skemmtiferðaskipið Queen Elizabeth 2. í höfn f Skotlandi.
ið og iðnaðarmenn voru sendir með
yfir hafið. Skipið hreppti vont veður
og margir urðu sjóveikir. Það kom
sér þvi illa að pípulagningakerfið
var í rúst og farþegar voru æfir.
Að sögn Ágústs Ágústssonar,
markaðsstjóra hjá Reykjavíkurhöfn,
hefur skipið ekki bara boðað komu
sína hingað í sumar heldur einnig
næsta sumar. -IBS
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboöum í fyrstu verkhluta við
lengingu Eyjagarðs og byggingu bryggju þar fyrir olíuskip og nefnist
verkið:
Lenging Eyjagarðs - efnisskiptaskurður og dýpkun legu.
Verkinu er skipt í 4 hluta, hver boðinn út sem sjálfstætt verk.
Verkhlutar og efnismagn í m3 eru:
Gröftur á efnisskiptaskurði 25.000
Fylling í efnisskiptaskurði 25.000
Dýpkun lausra efna á legunni 109.000
Dýpkun í klöpp á legunni 6.000
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: miðvikud. 19. júní nk. kl. 11.00.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
matarlyftu og uppsetningu hennar í leikskólann Laufásborg.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: miðvikud. 5. júní nk. kl. 15.00.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið:
Nesjavellir - klæðing vegar að starfsmannahúsi.
Leggja skal tvöfalda klæðingu á um 500 m langan veg og reisa 16
Ijósastólpa með fram veginum.
Verklok eru 31. júlí 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 4. júní nk. kl. 14.00.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið:
Endurnýjun hitaveitu, 4. áfangi 1996 - Brautarholt.
Lengd hitaveitulagna um 2.400 m.
Verklok eru 1. september 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: miðvikud. 5. júní nk. kl. 11.00.
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið:
Skiptistöð SVR við Bíldshöfða 2a - jarðvinna og frágangur lóðar.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 1.500 m3
Fylling 1.200 m3
Mulin grús 2.100 m3
Hellulögn 700 m2
Snjóbræðslulögn 580 m2
Verkinu skal að fullu lokið 31. júlí 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá miðvikud. 29. maí nk.
gegn 10.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 6. júní nk. kl. 15.00.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
endurbætur að utan á íþróttahúsi við Réttarholtsskóla _ klæðning og
gluggar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá miðvikud. 29. maí nk.
gegn 5.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 6. júní nk. kl. 15.30.
ÍNNKÁUPÁ SfÖFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
mig ef þeir vilja
- segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra en kostnaðurinn er 760 þúsund
„Þessi kostnaður verður greiddur
eins og verið hefur. Fulltrúarnir
hafa að sjálfsögðu frelsi til að segja
það sem þeim sýnist og haga orðum
sínum að vild. Vilji þeir klaga mig
þá þeir um það,“ segir Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra um þá stöðu
að ráðuneyti hans greiðir um 760
þúsund íslenskra króna í ferðir og
uppihald fyrir fulltrúa á ársþing Al-
þjóða vinnumálastofnunarinnar í
Genf.
Alþýðusamband íslands og Vinnu-
veitendasambandið senda tvo full-
trúa hvor á þingið sem hefst þann 4.
júní og stendur til 21. júní. Munu
fulltrúarnir skiptast á að sitja þingið
þannig að einn verður frá hvorum
hverju sinni. Frá Alþýðusamband-
inu fer fyrst Ástráður Haraldsson og
síðan Hervar Gunnarsson. Frá
Vinnuveitendasambandinu fer fyrst
Hrafnhildur Stefánsdóttir og síðan
Jón H. Magnússon.
Á þinginu er farið yfir stöðu mála
í aðildarlöndum stofnunarinnar. Þar
á meðal má búast við að greint verði
frá deilum á íslandi um ný og um-
deild frumvörp um vinnumarkaðinn.
í júní verða þau væntanlega orðin að
lögum en Páll Pétursson á ekki von á
að hann fái bágt fyrir framgöngu
sína í þeim málum frá þinginu í
Genf.
Kostnaður ráðuneytisins vegna
fulltrúa ASÍ nemur um 380 þúsund
krónum og það sama kostar að senda
VSÍ-fulltrúana. Ferðir fram og til
baka fyrir tvo kosta um 125 þúsund
ef miðað er við almennt fargjald. Þá
eru dagpeningar um 15 þúsund krón-
ur á dag en ferðin stendur í 17 daga.
Sá kostnaður nemur því um 255 þús-
und krónum. Af dagpeningum verð-
ur að greiða allt uppihald, fæði og
hótelkostnað.
„Það hefur verið venja að félags-
málaráðuneytið greiði kostnaðinn
við þessa ferð og það verður svo
áfram,“ segir Páll.
í stofnsamningi Vinnumálastofn-
unarinnar er gert ráð fyrir að rikis-
stjórnir aðildarlandanna greiði
kostnaðinn við fór fulltrúa á þingið,
eins frá samtökum vinnuveitenda og
eins frá samtökum launþega. -GK
Páll Pétursson félagsmálaráðherra