Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Qupperneq 32
44
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
Ekki eru allir ánægðir með út-
komuna á ASÍ-þinginu.
Benedikt hefur
pínt Grétar
„Benedikt hefur pínt Grétar út
í þetta. Þetta er náttúrlega hel-
víti léleg útkoma.“
Guðmundur J. Guðmundsson, í Al-
þýðublaðinu.
Hreyfing aldraðra
„Hér þarf að yngja upp. Það
má kannski segja að ASÍ sé
hreyfing aldraðra."
Sigurður Gunnarsson ASÍ- þingfulltrúi,
í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Rammvilltir í
frumskógi
„Lagið hefði fengið íleiri stig
ef textinn hefði ekki skotið yfir
markið. Hann sýnir að íslend-
ingar eru rammvilltir í frum-
skógum Evrópu, þ.e frumskóg-
um evrópskrar menningar."
Bjarki Jóhannesson, um Sjúbidú, í DV.
Gott baðker á
Bessastöðum
„Það er eins og fólk sé bara að
sækjast eftir feitu og góðu emb-
ætti - og góðu baðkeri á Bessa-
stöðum.“
Ástþór Magnússon, í Tímanum.
Teflongreiðsla
„Hárgreiðsla Ólafs Ragnars er
sannkölluð „teflon-greiðsla“.“
Hallgrímur Helgason, í Alþýðublaðinu.
Loftbelgir hafa lengi verið notaðir til
skemmtunar.
Loftbelgir
Fyrsti loftbelgurinn sem vitað er
um var fylltur heitu lofti og gerður
af kaþólskum presti, Bartolomeu de
Gusma. Belgurinn fór sina fyrstu
loftferð innandyra i Casa da India í
Portúgal 8. ágúst 1709.
Eins og önnur farartæki eru loft-
belgir notaðir til að setja met og eru
metin margs konar, bæöi með
ómönnuöum loftbelgjum og mönn-
uðum. Mesta flughæð ómannaös
loftbelgs sem farin hefur verið er
51.815 m. Það gerði Winzem loftbelg-
ur, 1,35 milljón m3, sem fór á loft frá
Chico í Kaliforníu i október og náði
þessari hæð.
Blessuð veröldin
Mesta flughæð mann-
aðs loftbelgs
Mannaður loftbelgur hefur hæst
komist í 37.735 m hæö yfir sjávar-
máli en þessi hæð er samt ekki
staðfest sem met þar sem stjórnandi
loftbelgsins, Nicholas Piantanida,
sem flaug loftbelgnum 1. febrúar
1966 frá Dakóta til Iowa, fórst í lend-
ingu. Staðfest met er 34.668 m hæð
og það eiga hermenn úr bandaríska
sjóhernum Malcolm D. Ross og
Victor E. Prother. Þeir hófu loftbelg
sinn á loft frá þilfari herskipsins
Antietam 4. maí 1961 og settu hæð-
armetið yfir Mexíkóflóa.
í dag verður suðaustan stinnings-
kaldi eða allhvasst og rigning víða
Veðrið í dag
um land fram eftir degi en snýst síð-
an í hægari sunnanátt með skúrum
sunnanlands. Hiti verður á bilinu
7-15 stig, hlýjast í innsveitum á
Norðvesturlandi.
Sólarlag í Reykjavík: 23.20
Sólarupprás á morgun: 3.30
Síödegisflóð í Reykjavík: 15.13
Árdegisflóð á morgun: 3.26
Veðriö kl. 18 í gœr:
Akureyri skýjaö 10
Akurnes léttskýjaö 9
Bergsstaöir skúr á síö. klst. 8
Bolungarvík hálfskýjað 6
Egilsstaðir skýjað 12
Keflavflugv. skúr á s. klst. 9
Kirkjubkl. skýjaö 9
Raufarhöfn heiöskirt 5
Reykjavíit úrk. í grennd 9
Stórhöföi skýjaö 8
Helsinki léttskýjaö 12
Kaupmannah. súld á s. klst. 9
Ósló rigning 8
Stokkhólmur skýjað 12
Þórshöfn skýjað 6
Amsterdam léttskýjaó 11
Barcelona hálfskýjaó 20
Chicago alskýjað 11
Frankfurt þrumuveóur 14
Glasgow léttskýjaö 17
Hamborg rigning og súld 10
London skýjaó 13
Los Angeles alskýjaö 17
Lúxemborg skúr 12
Madríd léttskýjað 27
París skýjaö 15
Róm þokumóöa 20
Valencia hálfskýjaö 27
New York skýjaö 16
Nuuk léttskýjaó 6
Vin rigning 14
Washington súld 13
Winnipeg skýjaó 22
Jón Guðbrandsson þjálfari:
Verðum á toppnum í tíu ár eða lengur
DV, Suðurnesjum:
„Framtíðin hjá Keflavík er björt
og liðið verður á toppnum í tíu ár
eða lengur með þennan mannskap
í yngri flokkunum ef rétt er hald-
ið á málunum. Það eru margir
stórefnilegir leikmenn sem eiga
glæsta framtið á körfuboltavellin-
um ef þeir halda áfram á réttri
braut,“ sagði Jón Guðbrandsson
sem hefur náð stórkostlegum ár-
angri sem þjálfari yngri flokka
Keflvíkinga í körfuknattleik.
Jón gerði 9. flokk Keflvíkinga aö
íslandsmeisturum á ár og hefur
náð að hampa íslandsmeistaratitli
öll árin sem hann hefur þjálfað
drengina sem eru 15 ára í dag. Jón
Maður dagsins
tók við þeim þegar þeir voru 9 ára
og hefur því unnið íslandsmeit-
aratitla sex ár í röð með drengjun-
um og er það stórkostlegur árang-
ur. Hann hefur ákveöið að hætta
að þjálfa strákana. „Ég held að það
sé kominn tími fyrir mig og strák-
ana að fá hvíld hver frá öðrum og
er það gott fyrir báða aðila. Þetta
er búinn að vera skemmtilegur
tími. Þarna eru drengir sem eiga
Jón Guðbrandsson.
framtíðina fyrir sér. Ef þeir eru
tilbúnir að leggja að sér munu þeir
ná langt. Ég ætla hins vegar að
þjálfa áfram en ekki er enn ljóst
hvaða flokkur það verður sem ég
tek að mér.“ Jón hefur þjálfað
yngri flokka Keflvíkinga 12 ár í
röö, að undanskildu einu ári, og
hefur unnið til 15 íslandsmeist-
aratitla, stundum tvo titla á sama
árinu, og fjöldann af öðrum titlum.
Jón segir að það sé mjög gefandi
að vera i kringum krakkana og sjá
hvað þróun og framfarir hafi átt
sér stað í körfubolta ár eftir ár.
Hann segir að yngri flokkarnir
séu miklu betri núna en fyrir 20
árum þegar hann var að byrja að
æfa sjálfur. Jón fylgist vel með þvi
sem er að gerast í þjálfuninni. „Ég
fylgist mikið með þjálfurum í há-
skólunum í Bandarikjunum. Eins
reyni ég að sækja námskeið og
mennta mig í þjálfun. Svo hefur
maður þroskast með árunum sem
þjálfari." Jón byrjaði sjálfur að
æfa körfuknattleik 11 ára og æfði
og spilaði með Keflvíkingum upp
alla yngri flokkana. Hann spilaði
síðan með Reyni í Sandgerði í 7 ár
og átti hann þátt í því að liðið
vann sér sæti í úrvalsdeild á sín-
um tima. Áhugamál Jóns fyrir
utan þjálfun og körfubolta er að
honum finnst mjög gaman að ferð-
ast erlendis og eins að horfa á góð-
ar biómyndir.
Jón starfar sem ofnatæknismið-
ur hjá Ofnasmiðju Suðurnesja og
hefur unnið þar í 9 ár. „Það frá-
bært að vinna hérna. Hér er
vinnuandi eins og hann gerist
bestur. Það sést á því að ég held að
ég sé með minnstan starfsaldur af
okkur hér.“ -ÆMK
Myndgátan
Fellir tennur
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
DV
Fjórir leikir
í 2. deild
Eftir viðburðaríka helgi í
íþróttum er frekar rólegt í dag
nema hjá leikmönnum í 2. deild
karla í fótboltanum en önnur
umferöin verður leikin í kvöld,
að undanskildum einum leik.
Það er ljóst af úrslitum leikja í
fyrstu umferðinni að það verður
hart barist í deildinni í sumar og
erfitt að spá hvaða lið verða á
Iþróttir
botninum og hver á toppnum. í
kvöld leikur Þór á Akureyri á
heimavelli gegn Þrótti. Fyrir
norðan leika einnig Völsungar
og ÍR, Fram leikur á heimavelli
gegn KA og Leiknir tekur á móti
FH í Hafnarfirði. Allir leikirnir
hefjast kl. 20.00. Á morgun leika
svo Víkingur og Skallagrímur.
Negrasálma-
kvöld
Þriðju og síðustu tónleikarnir á
Tónlistarvori í Frikirkjunni
verða haldnir í kvöld. Á þessum
tónleikum mun Kór Fríkirkjunn-
ar í Reykjavík syngja negrasálma
og gospelsöngva undir stjórn dr.
Pavels Smids organista við kirkj-
una.
Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík
Tónleikar
var formlega stofnaður síðastliðið
haust en flestir félagarnir hafa
sungið í Fríkirkjunni mörg ár.
Kórinn er aðallega skipaður
lærðu tónlistarfólki og söngnem-
um. Fjórir meðlimir kórsins
munu syngja einsöng í kvöld. Þeir
eru: Davíö Ólafsson, Ólöf Ásbjarn-
ardóttir, Svava Kristín Ingólfs-
dóttir og Þuríður Sigurðardóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Bridge
Þetta spil, sem kom fyrir á síðasta
Cavendish-boðsmótinu í bridge,
vakti athygli fyrir nákvæma vörn
vesturs. í vestursætinu var Banda-
ríkjamaðurinn Kit Woolsey. Sagnir
gengu þannig, suður gjafari og allir
á hættu:
a G87
V ÁDG6
♦ G102
* DG2
4 ÁK9632
*4 4
♦ Á984
4 64
4 104
V K875
♦ K753
* ÁK10
Suður Vestur Norður Austur
14 14 dobl pass
2*4 pass 3*4 pass
4*4 p/h
NS notuðu eðlilegt kerfi og dobl
norðurs var neikvætt (lofaði 4 spil-
um í hjarta). Woolsey spilaði út
spaðakóngnum í upphafi, félagi
hans í austur setti flmmuna og
sagnhafi fjarkann. Woolsey gat þá
séð að austur átti annaðhvort fimm-
una blanka eða D5 því ef austur átti
105 hefði hann sett tíuna. Hann spil-
aði því lágum spaða í öðrum slag og
austur átti slaginn á drottninguna.
Hann spilaði nú tígulsexu, sagnhafi
setti lítið spil og nú var freistandi
fyrir Woolsey að stinga upp ás og
spila aftur tígli ef austur átti einspil
í litnum. En Woolsey, sem vissi að
austur átti fjögur spil í hjarta, sá að
sagnhafi átti aldrei nema 9 slagi ef
hann setti lítið spil. Ef sagnhafi
myndi taka spaðatrompunina og
taka síðan trompin fengi hann ekki
nema 9 slagi og ef hann gerði eitt-
hvað annað fengi austur tígultromp-
un. Að drepa á ásinn hefði gefið
samninginn. Suður gerði mistök í
upphafi, hann átti að setja spaðatí-
una í fyrsta slaginn því þá hefði lág-
ur spaði frá vestri í öðrum slag haft
hættu í för með sér.
ísak Örn Sigurðsson