Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Blaðsíða 36
tVhmingstöhir twígarúagírm 25.05.1996
Vinningstölur
25. 05. 1996
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFIIR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Vopnafjörður:
Barinn í
höfuðið
með grjóti
Ungur maður á Vopnafirði hefur
viðurkennt að hafa barið annan í
höfuðið með grjóti aðfaranótt
sunnudagsins. Var nokkur mann-
söfnuður í bænum um nóttina og
ölvun.
Sá sem barði var aö sögn lögreglu
ölvaður en ekki sá sem fyrir
árásinni varð. Hlaut hann nokkurn
áverka á hnakka en ekki svo að
hann þyrfti að leggjast á sjúkrahús.
Árásin var kærð. -GK
J Veður á
Faxaflóasvæði
næstu vikuv j.
*
- samkv. tolum frá Veöurstofu Islands - ^
Hitastig- á 12 tíma bili
10 c°
þri. miö. fim. fös. Laug
Vindhraöi
12stlg
10
8
6 I
4 VNV sv
2 N SSA
þri. miö. fim. fös.
Laug
ílrkoma - á 12 tíma bm
18 mm
16
14
12
10
þri. miö. fim. fös. Laug
'SKOOA EN EKKI SKJÓTA '
- PAÐ ER HÁLFGERT
KVALRÆSI!
L O K I
Tvennt í gæsluvarðhald og einn handtekinn að auki vegna „hálsskurðarmálsins“:
Samantekin
ráð um að ræna
fórnarlambið
maðurinn leitaði hjálpar hjá nágrönnunum alblóðugur og illa til reika
Allt bendir til að árás á hálfsex-
tugan mann í Gerðahverfinu að-
faranótt sunnudag hafi verið gerð
í þeim tilgangi að ræna hann.
Maðurinn kom heim til sín um
klukkan eitt um nóttina í fylgd
konu. Skömmu síðar réðust tveir
menn á hann og nutu aðstoðar
konunnar. Var veski mannsins
stolið, hann barinn illilega og hnífi
brugðið á háls hans. Viröist sem
ránið hafi verið samantekin ráð
hjá fólkinu.
„Þaö mátti engu muna að mað-
urinn yrði bara til hér við húsið.
Þegar ég kom út á tröppurnar hélt
hann um hálsinn, blóðið spýttist
út milli fingranna og lak í taumum
niður magann á manninum. Hann
var ber að ofan og hrikalegt að sjá
hann,“ segir Hilmar Grímsson,
ellilífeyrisþegi og nágranni fómar-
lambsins.
Hilmar segir að útlit mannsins
hafi verið skuggalegt og hann illa
barinn auk skurðarins. Sér virðist
því árásin hafa verið óvenju
fólskuleg og raunar svo af mannin-
um dregið þegar hann leitaði ásjár
að hann stóð ekki meira en svo í
fætuma.
„Ef ég hefði ekki verið heima þá
hefði honum blætt út hér á tröpp-
unum. Sem betur fer vaknaði kon-
an mín ekki við þessi ósköp því
henni hefði brugðið illa við að sjá
nágrannann svona útleikinn," seg-
ir Hilmar.
Hann lýsir hinum ógæfusama
nágranna sem sómamanni sem
aldrei hafi átt í vandræðum þau ár
sem hann hafi búið I hverfinu.
Lögreglan hefur nú handtekið
fólkið sem viðriðið er árásina.
Konan og annar maðurinn hafa
verið úrskurðuö í gæsluvarðhald.
Þriðji maðurinn er einnig í haldi
og verður tekin ákvörðum um
varðhald yfir honum í dag. Menn-
irnir tveir hafa báðir komið við
sögu afbrotamála en konan ekki.
Maðurinn missti nokkurt blóð
en hann fékk að fara heim eftir
skamma legu á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur. Lán þykir að hálsæðamar
fóru ekki í sundur við skurðinn og
að sárið var ekki meira en svo að
maðurinn komst af eigin ramm-
leik til nágranna sinna til að fá
hjálp. -GK
Hilmar Grímsson, 83 ára gamall eftirlaunaþegi, kom manninum til hjálpar. Þeir eru nábúar og segir Hilmar að litlu
hafi mátt muna að manninum blæddi út á tröppunum hjá honum. DV-mynd GVA
Veðriö á morgun:
Suðaust-
læg átt
Á morgun er gert ráð fyrir
suðaustlægri átt á landinu,
kalda eða stinningskalda víðast
hvar. Norðaustantil á landinu
verður skýjað að mestu og úr-
komulítið en skúrir annars
staðar. Hiti verður á bilinu 7-12
stig, hlýjast í innsveitum norð-
austantil.
Veðrið í dag er á bls. 44.
Neskaupstaður:
Allir í hvala-
skoðun
Tveir fullvaxnir hnúfubakar
skemmtu i gær Norðfirðingum með
bægslagangi og látum á firðinum.
Er talið að þeir hafi elt fisk inn á
fjörðinn.
Fjöldi fólks gerði sér ferð niður á
bryggjur og i fjörur að sjá hvalina
sem um tíma voru mjög nærri
landi. Ekki er vitað hvert þeir
hyggjast beina för eftir að hafa
„stolið senunni“ eystra um helgina.
____________________-GK
Elínu haldið
á floti
Með dælum úr landi tókst að
halda trillunni Elínu HF á floti eftir
að leki kom að henni á miðunum
við Eldey í gær. Elín er fimm tonna
og voru tveir á.
Björgunarsveitarmenn úr
Grindavik fóru á staðinn með dæl-
urnar og var báturinn síðan dreg-
inn inn til Sandgerðis. Þangað var
komið á tíunda tímanum í gær-
kvöldi. -GK
Verðmætum
stolið úr ein-
býlishúsi
Verðmætum tækjum og skart-
gripum var stolið úr einbýlishúsi í
Árbæjarhverfi í gærkvöldi. Var
stormjám á glugga brotið upp og
höfðu þjófarnir á brott með sér
myndbandstæki, geislaspilara og
fleiri heimilistæki auk skartgrip-
anna. Þjófarnir vom enn ófundnir í
gærkvöldi. -GK
Eldur í sól-
stofu
Töluverðar skemmdir urðu á sól-
stofu við hús á Seltjarnarnesi í gær-
kvöldi þegar eldur varð laus í gas-
grilli. Er talið að leiðsla við gaskút
hafi lekið og magnaðist eldurinn við
það. Slökkviliðið slökkti eldinn og
varð engum meint af. -GK
Gufá eyði-
lagði innbú
Miklar skemmdir urðu á innan-
stokksmunum í húsi í austurbænum
í gær eftir að gufa hafði legið á hús-
inu um tíma. Bilaði blöndunartæki
nú um helgina og fylltist húsið af
gufu en vatnið rann niður um niður-
fall. Heimilisfólk var ekki heima og
uppgötvaðist óhappið ekki fyrr en í
gærkvöldi. -GK
Tilvalin til að
merkja Ijósmyndirnar í
fjölskyldualbiíminu
bíother"300
Takmarkað magn
Verð 6.995 kr.
Nýbýlavegi 28 Sími 554 444
Móttaka á
brotajárni
allan
sólarhringinn
sími 581-4757
■^IHRINGRÁS
W c
ENDURVINNSLA