Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1996, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
Fréttir
Skoðanakönnun DV á viðhorfi kjósenda til forsetaembættisins:
Flestir vilja meira frum-
kvæði til eflingar friði
- þriðjungur kjósenda vill meira frumkvæði í utanríkisviðskiptum
Tæplega helmingur kjósenda vill
að væntanlegur forseti íslands hafi
meira frumkvæði til eflingar friði
og mannréttindum erlendis en verið
hefur í tíð Vigdísar Finnbogadóttur.
Langflestir vilja að næsti forseti
verði svipað mikið í sviðsljósinu og
Vigdís og þriðjungur kjósenda vilja
sjá meira frumkvæði forsetans í ut-
anríkisviðskiptum en verið hefur.
Þetta eru meðal niðurstaðna skoð-
anakönnunar DV um viðhorf kjós-
enda til embættis forseta íslands og
væntinga til næsta forseta.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt á mOli
höfuðborgarsvæðis og landsbyggð-
ar, sem og kynja. Spurningarnar
voru í þrennu lagi. t fyrsta lagi var
spurt: „Vilt þú, að væntanlegur for-
seti verði svipað í sviðsljósinu og
Vigdís, meira en hún eða minna?" í
öðru lagi var spurt: „Vilt þú, að
væntanlegur forseti hafi svipað
frumkvæði í utanríkisviðskiptum
og verið hefur, meira eða minna?“ í
þriðja lagi var spurt: „Vilt þú, að
væntanlegur forseti hafi svipað
frumkvæði til eflingar friði og
■ mannréttindum erlendis og verið
hefur, meira eða minna?“ Skekkju-
mörk í könnun sem þessari eru tvö
til þrjú prósentustig.
78 prósent vilja óbreytt
sviðsljós
Sé litið á niðurstöður fyrstu
DV, Kaupmannahöfn:
íslenski tenórinn Jón Rúnar Ara-
son komst í fyrrakvöld í undanúr-
slit í hinni virtu Copenhagen Sing-
ing Competition. Keppnin er kennd
spurningarinnar þá vildu 78 prósent
svarenda að væntanlegur forseti
yrði svipað í sviðsljósinu og Vigdís
Finnbogadóttir, 10 prósent vildu sjá
meira af forsetanum, 7 prósent
vildu sjá minna af honum og 5 pró-
við Lauritz Melchior og er haldin í
tilefni þess að Kaupmannahöfn er
menningarborg Evrópu.
Alls voru 130 óperusöngvarar í
Evvrópu sem tóku þátt í keppninni
en 54 voru valdir í lokakeppnina.
sent voru óákveðin eða neituðu að
svara spurningunni. Viðhorf til
þessarar spurningar voru nákvæm-
lega þau sömu hvort heldur sem
fólk bjó á landsbyggðinni eða höfuð-
borgarsvæðinu. Hvað kynin varðar
Jón Rúnar hefur þegar farið í gegn-
um þrjár umferðir og er nú kominn
í 12 manna úrslit. Undanúrslit fara
fram í dag og á morgun og úrslitin
á laugardagskvöld. Hinn íslenski
þátttakandinn, Rannveig Fríða
þá voru það frekar konur sem vildu
að næsti forseti yrði svipað í sviðs-
ljósinu en karlar vildu sjá hann
meira í sviðsljósinu en Vigdís hefur
gert.
Bragadóttir messósópran, komst í
24 manna úrslit en féll úr keppni.
-Pj
Karlar vilja meira frumkvæði
í utanríkisviðskiptum
Hvort væntanlegur forseti eigi að
hafa meira frumkvæði í utanríkis-
viðskiptum en Vigdís Finnbogadótt-
ir þá voru 37 prósent svarenda
þeirrar skoðunar. Um 50 prósent
vildu svipað frumkvæði, 6 prósent
nefndu minna og 7 prósent voru óá-
kveðin eða gáfu ekki upp afstöðu
sína. Sé litið á niðurstöðurnar eftir
búsetu og kynjum þá voru þær svip-
aðar og við fyrstu spurninguna.
Viðhorf kjósenda var svipað eftir
búsetu en langtum fleiri karlar
vildu sjá meira frumkvæði forset-
ans í þessum efnum um leið og fleiri
konur vildu óbreytt eða svipað
ástand.
Skiptar skoðanir um friðar-
og mannréttindabaráttu
Skoðanir kjósenda virðast vera
skiptari gagnvart þriðju spurning-
unni, þ.e. hvort næsti forseti eigi að
hafa meira frumkvæði til eflingar
friði og mannréttindum erlendis en
verið hefur í tíð Vigdísar. Alls vildu
44 prósent svarenda svipað frum-
kvæði, 48 prósent vildu sjá meira
frumkvæði, 4 prósent minna frum-
kvæði og 4 prósent voru óákveðin.
Búseta eða kyn kjósenda skipti ekki
máli gagnvart þessari spurningu.
Niðurstaða spurninganna þriggja
sést nánar á meðfylgjandi grafi.
-bjb
Maður hrapaöi
Maður var fluttur með þyrlu ffá
Norðfirði til Reykjavíkm- í fyrradag
eftir að hann hrapaði á göngu í
Barðshomi sunnan fjarðarins. Var
maðurinn einn á ferð og er ekki vitað
nákvæmlega hvemig slysið vildi til.
Maðurinn rifbeinsbrotnaði og
annað lungað féll saman. Hann fór í
aðgerð á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
-GK
Copenhagen Singing Competition:
Jón Rúnar komst í undanúrslit
Dagfari
Vanhæfni vegna vanhæfni
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður er góður lög-
maður. Og hann hefur líka verið
góður formaður yfirkjörstjórnar í
Reykjavík. Nú síðast hefur það
komið í ljós að Jón Steinar er ekki
aðeins góður lögmaður og góður
formaður heldur er hann afskap-
lega góður maður. Hann hefur sem
sé ákveðið að víkja sæti úr yfir-
kjörstjórninni af tillitssemi við
Ólaf Ragnar Grímsson.
Jón Steinar segist vera vanhæf-
ur vegna þess að honum er kunn-
ugt um að Ólafur Ragnar er van-
hæfur til að vera forseti lýðveldis-
ins. Jón segir það jaðra við hneisu
fyrir þjóðina að kjósa Ólaf Ragnar
og vegna þess að hann telur Ólaf
Ragnar vanhæfan telur Jón Stein-
ar sjálfan sig vanhæfan og víkur
sæti. Ekki hyggst hann notfæra sér
þá vitneskju sína að Ólafur Ragnar
sé vanhæfur til að úrskurða Ólaf
Ragnar vanhæfan þegar búið er að
kjósa hann sem forseta heldur er
góðmennska Jóns Steinars einmitt
fólgin í því að eiga þessa skoðun
sína og vitneskju við sjálfan sig og
dregur sig í hlé. Hann ætlar ekki
að misnota hana í yfirkjörstjórn-
inni og hann ætlar ekki að koma í
veg fyrir kosningu Ólafs Ragnars
með áframhaldandi setú sinni í yf-
irkjörstjórn. Talsmaður Ólafs
Ragnars hefur misskilið hrein-
skilni og heiðarleika Jóns Steinars.
Lögmaðurinn segir að Jón sé að
gera þetta til að koma höggi á Ólaf
Ragnar. Talsmaðurinn vill greini-
lega að Jón Steinar hefði þagað yfir
þessari vitneskju sinni um van-
hæfni Ólafs og setið áfram í yfir-
kjörstjórn. Það er skrítin afstaða í
ljósi þess að ef Jón Steinar hefði
setið áfram í yfirkjörstjórn hefði
hann skrökvað til um sannfæringu
sína og þurft að úrskurða um rétt-
mæti kosningar Ólafs og hæfni
hans til að verða forseti, gegn betri
vitund.
Jón Steinar nefnir það meðal
annars til um vanhæfni Ólafs
Ragnars að hann hafi skrökvað
þegar hann var kallaður fyrir rétt
sem fjármálaráðherra og svarið
þess eið að hann tryði ekki á Guð.
Seinna hefur það komið í ljós að
Ólafur Ragnar segist trúa á Guð.
Og Jón Steinar trúir því auðvitað
að Ólafur Ragnar trúi á Guð og
kemst að þeirri niðurstöðu að Ól-
afur geti ekki verið forseti meðan
hann trúir á Guð en skrökvar því
neita guðstrú meðan þeir segjast
þó trúa á Guð. Annaðhvort standa
menn með Guði eða ekki, þegar
þeir eru komnir í forsetaframboð.
Það sýnir góðmennsku Jóns Stein-
ars að í stað þess að krefiast þess
að Ólafur hætti sem frambjóðandi
hættir Jón Steinar í staðinn sem
formaður yfirkjörstjórnar.
Nú þegar það liggur fyrir að Jón
Steinar er vanhæfur og Ólafur
Ragnar er vanhæfur snýr sú spurn-
ing að þjóðinni sjálfri hvort hún sé
hæf eða vanhæf til að kiósa sér for-
seta. Jón Steinar segir að það
nálgist hneisu ef Ólafur Ragnar
verður kosinn forseti. Ef þjóðin
kýs sér vanhæfan forseta er þjóðin
sjálfsagt vanhæf til að taka þátt í
þessum kosningum nema náttúr-
lega ef hún greiðir ekki atkvæði í
ljósi vanhæfni sinnar en þá verður
heldur ekki neinn annar kosinn
forseti sem hugsanlega er hæfur.
Og þá kemur að yfirkjörstjórn að
úrskurða um réttmæti kosningar
þar sem þeir einir hafa greitt at-
kvæði sem eru vanhæfir til að
kjósa!
Verður ekki að aflýsa þessum
kosningum og byrja upp á nýtt?
Dagfari
samt að hann trúi ekki á Guð.
Þetta er sem sé samviskuspurn-
ing sem snýr ekki að þjóðinni og
kjósendum heldur að Guði og Jón
Steinar er mikill og vinsæll lög-
maður og hefur nú tekið að sér að
gæta hagsmuna Guðs í þessum for-
setakosningum og umboðsmaður
Ólafs Ragnars verður að átta sig á
að löggiltir fulltrúar guðsvaldsins
sitja ekki þegjandi undir því í yfir-
kjörstjórn þegar frambjóðendur