Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Page 2
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
Fréttir
Þungar og margslungnar sakargiftir í sex málum á hendur 19 ára pilti úr Borgarfirði:
Akærður fyrir að valda
meiðslum sjö ungmenna
- einnig að berja fólk með rifíli, ráðast á og frelsissvipta mann, ölvunarakstur og fleira
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur 19 ára Borgflrðingi
fyrir sex afbrot á síðasta ári - þar á
meðal að hafa orðið valdur að því
að sjö unglingar slösuðust, flestir al-
varlega, í bílslysi í Borgarnesi í
maí, alvarlega árás í félagi með
tveimur félögum sínum á karlmann
og frelsissvipt hann með því að
nema hann á brott í bíl og ganga
síðan í skrokk á honum og að hafa
ógnað og veitt tveimur mönnum
högg og áverka með riffli. Pilturinn
er einnig ákærður fyrir hlutdeild að
líkamsárás hinna tveggja framan-
greindu félaga sinna í öðru máli
auk tveggja mála sem snúa að ölv-
unarakstri.
Þann 15. apríl 1995 var pilturinn
ölvaður, samkvæmt ákæru, á bæ
fyrir utan Borgarnes þar sem hann
ógnaði tveimur mönnum með riffli
og veitti öðrum þeirra högg í andlit
með rifFilskeftinu en hinum högg í
bak og undir kjálka með sama
vopni.
Tæpum mánuði síðar, að kvöldi
12. maí 1995, ók pilturinn bíi á ofsa-
hraða, samkvæmt ákæru, suður
Borgarbraut í Borgarnesi og fram
úr tveimur bifreiðum. Með honum í
bíl voru Qögur ungmenni. Pilturinn
missti síðan stjórn á bílnum og lenti
hann á öðrum bU sem kom úr gagn-
stæðri átt. I honum voru þrjú ung-
menni. Sex ungmennanna voru flutt
á sjúkrahús í Reykjavík, þar af fjög-
ur með þyrlu. Umræddur piltur og
eitt annað ungmennanna slösuðust
minna. Fyrir þetta er pilturinn
ákærður fyrir röskun á umferðarör-
yggi og líkamsmeiðingum af gá-
leysi.
Tóku nauðugan upp í bíl,
héldu og misþyrmdu
Rúmum mánuði eftir bílslysið
var umræddur piltur í bíl ásamt
tveimur félögum sínum á
þvottaplani Shell í Borgamesi. Þre-
menningunum er í því máli gefið að
sök að hafa frelsissvipt rúmlega tví-
tugan mann í tæpa klukkustund.
Þannig hafi þeir tekið hann nauðug-
an með hálstaki inn í bílinn og ekið
með hann suður Borgarfjarðarbrú.
Á leiðinni er þeim geflð að sök að
hafa snúið upp á hendur hans og
eyrnarsnepla og reynt að stinga gat
á vinstri eymarsnepil með kúlu-
penna. Bíllinn var stöðvaður í mal-
arnámu undir Hafnarfjalli og eru
þremenningarnir einnig ákærðir
fyrir að hafa þá klætt fórnarlambið
úr fótum að ofanverðu og misþyrmt
því með hrindingum, spörkum og
höggum og auk þess úðað yfír
manninn málningu í hár hans og
fatnað.
Framangreindir tveir félagar eru
síðan ákærðir fyrir aðra árás með
því að hafa sömu nótt ráðist á ann-
an mann við Hótel Borgames með
því að henda körfubolta í höfuð
hans, slá og kýla hann í andlit og
skrokk, fella hann síðan í jörðina og
sparka í hann liggjandi. Fyrstnefndi
sakbomingurinn er ákærður fyrir
hlutdeild með því að hafa hvatt hina
tvo til verksins. Meintur ölvun-
arakstur hans átti sér stað í Borgar-
nesi þann 1. desember síðastliðinn
en honum er einnig gefið að sök að
hafa verið ölvaður er hann gang-
setti bO 16 dögum síðar.
Réttað verður í máli þremenning-
anna á næstunni hjá Héraðsdómi
Vesturlands. Ein stúlknanna úr bíl-
slysinu fer fram á að ökumaðurinn
greiði henni 250 þúsund krónur í
skaðabætur. Fórnarlömb líkams-
árásanna undir Hafnarfjalli og við
Hótel Borgarnes fara fram á samtals
tæplega 600 þúsund krónur í skaða-
og miskabætur. -Ótt
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
JájJ
Neizj
,r ö d d
FOLKSIN
904-1600
Á ráðherra að víkja séra
Flóka úr prestsembætti?
MR 150 ára:
Skrúðganga
og sýning
á sögu
skólans
Fjöldi gesta var við skólaslit
Menntaskólans í Reykjavík í gær en
skólinn á 150 ára afmæli í ár. Vegna
gestafjöldans fóru skólaslitin fram í
Laugardalshöll en þau hafa í fjölda
ára farið fram í Háskólabíói. Ragn-
heiður Torfadóttir rektor sleit skól-
anum í fyrsta sinn og útskrifaði 175
stúdenta. Fulltrúar 50 ára, 40 ára og
25 ára júbílanta fluttu ræður og
færðu skólanum gjafir.
Á sunnudaginn verður opnuð
sögusýning í Menntaskólanum í
Reykjavík. Nýstúdentar, núverandi
og fyrrverandi nemendur skólans
munu safnast saman í porti Miðbæj-
arskólans klukkan 14.30 og ganga
fylktu liði eftir Vonarstræti og
Skólabrú að Menntaskólanum. For-
seti íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
flytur skólanum kveðju. Guðrún
Helgadóttir flytur stutt ávarp og síð-
an mun Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra opna sögusýninguna
sem stendur til 17. júní. -IBS
Krydduðu
fýrirtæki
Þrír ungir piltar voru í morgun
teknir í fyrirtæki við Garðatorg.
Höfðu þeir brotist inn og gert sér
það að leik að róta í vörulager og
stráðu m.a. kryddi um gólf.
Einn piltanna er undir lögaldri og
var sendur heim en hinir eru í
vörslu lögreglu í Hafnarfirði. Þeir
voru allir ölvaðir. -GK
ábyrgðina
- dönsk yfirvöld verða beðin um aðstoð gerist þess þörf
Samgönguráðuneytið hefur kraf-
ist svara frá Wihlborg Rejser,
dönsku ferðaskrifstofunni sem seldi
farmiða í flugferðir Bingóferða, um
hvernig ferðaskrifstofan hyggist
bæta viðskiptavinum Bingóferða
tión beirra. Ráðunevtið lítur svo á
að Wihlborg Rejser sé að fullu ábyrg
fyrir kostnaði og óþægindum sem
farþegar og viðskiptavinir Bingó-
ferða hafa orðið fyrir við það að
Bingóferðir hættu störfum, að því
leyti sem framlagðar tryggingar
duga ekki til.
Ráðuneytið skrifaði dönsku ferða-
skrifstofunni bréf í gær og krafðist
svara samdægurs um hvernig ferðá-
skrifstofan hygðist uppfylla skyldur
sínar í þessum efnum. Jafnframt
stendur í bréfi ráðuneytisins, sem
undirritað er af Halldóri Blöndal
samgönguráðherra, að ráðuneytið
líti málið mjög alvarlegum augum
og muni tilkynna það til réttra yfir-
valda í Danmörku.
Bingóferðir og aðaleigandi félags-
ins, Hilmar A. Kristjánsson, höfðu
aldrei leyfi til reksturs ferðaskrif-
stofu, en Hilmar hafði farið á
fjörurnar við nokkrar íslenskar
ferðaskrifstofur um að þær tækju að
sér sölu á farmiðum fyrir Bingóferð-
ir og ábyrgðust jafnframt að farþeg-
ar kæmust út og heim aftur og
fengju þá þjónustu sem þeir höfðu
borgað fyrir. Þessu höfnuðu allar ís-
lensku skrifstofurnar og tók þá Wi-
hlborg ferðaskrifstofan danska að
sér að opna hér útibú, en ferðaskrif-
stofur sem leyfi hafa til rekstrar í
einhverju landa EES hafa leyfi í
öðrum löndum innan þess líka.
Samgönguráðuneytið lítur því
svo á að Wihlborg ferðaskrifstofan
sé alfarið ábyrg fyrir endurgreiðslu
farmiða til fólks sem er nú með
ónýta flugfarseðla í höndunum.
Jafnframt telst Wihlborg skrifstofan
ábyrg fyrir kostnaði við að koma
þeim farþegum, sem eru stranda-
glópar hér heima og erlendis, til
síns heima að svo miklu leyti sem
framlagðar tryggingar duga ekki til.
-SÁ
Nýstúdentar Menntaskólans í Reykjavík við athöfnina í gær.
DV-mynd GS.
Samgönguráðuneytið tekur á Bingómálinu:
Wihlborg ber
Stuttar fréttir
Veðsettir kvótar
Seðlabankinn telur brýnt að
Alþingi lögfesti heimildir til að
veðsetja kvóta. Verði það ekki
gert verði lánastofnanir að end-
urskoða reglur um lánveitingar
til útgerða. RÚV greindi frá
þessu.
Uppsagnir ógildar
Útgerðarfélag Akureyringa
hefur afturkallað uppsagnir alls
starfsfólks í frystihúsi félagsins
á Grenivík, samkvæmt RÚV.
Marflær í hafi
Margar áður óþekktar tegund-
ir af marflóm fundust í hafinu
norðan og suðvestan við land í
nýlegri rannsókn. Þetta kom
fram á RÚV.
Vextir á niöurleiö
Vextir á verðbréfamarkaði
eru á stöðugri niðurleið. Vextir
20 ára spariskírteina hafa aldrei
verið lægri, 5,2%, og húsbréfa-
vextir hafa lækkað sömuleiðis.
Stórar landanir
Sex erlendir togarar lönduðu í
Hafnarfirði i gær. Samkvæmt
Stöð 2 var aflaverðmæti um hálf-
ur milljarður króna.
Útboð brunatrygginga
Innan Húseigendafélagsins er
verið að kanna möguleika á að
bjóöa út brunatryggingar félags-
manna. Samkvæmt Stöð 2 hafa
iðgjöld brunatrygginga numið að
meðaltali hálfum milljarði meira
en tjón sl. ár.
Erfðarannsóknir
Bandarískir fjárfestar hafa
lagt 680 milljónir króna í erfðar-
annsóknafyiúrtæki sem verður
starfrækt á Islandi. Samkvæmt
Mbl. munu 100 manns starfa hjá
fyrirtækinu.
Aukin velta
Velta í verslunargreinum
jókst um 11% fyrstu tvo mánuði
þessa árs miöað við sama tíma í
fyrra. Þetta kom fram í Mbl.
Bíórás fær 3 rásir
Útvarpsréttarnefnd hefur
gefið Bíórásinni vilyrði fyrir
þremur sjónvarpsrásum. Um
leið ákvað nefndin að afturkaUa
eitt leyfi af hverri hinna þriggja
sjónvarps-stöðva, Stöðvar 2,
Stöðvar 3 og Sýnar. Mbl. greindi
frá þessu.
-bjb
I
í
>
I
i
I
>
>
I
l
I
[