Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
Fréttir
Skoðanakönnun DV á fylgi flokkanna:
Enn tapar Framsókn
en kratar bæta við
- Sjálfstæöisflokkur heldur sínu en Kvennalistinn sækir á
Enn minnkar fylgi Framsóknar-
flokksins á meðan hinn stjórnar-
flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn,
heldur sínu. Kvennalistinn sækir á
og kratar sömuleiðis en fylgi Al-
þýðubandalags og Þjóðv^ka er
óbreytt. Þetta eru helstu niðurstöð-
ur skoðanakönnunar DV um fylgi
flokkanna sem gerð var síðastliðið
þriðjudagskvöld.
Af þeim sem tóku afstöðu í könn-
uninni sögðust 13 prósent styðja Al-
þýðuflokkinn, 20,4 prösent Fram-
sóknarflokkinn, 45,9 prósent Sjálf-
stæðisflokkinn, 14,6 prósent Alþýðu-
bandalagið, 1,4 prósent Þjóðvaka og
4,7 prósent Kvennalista. Aðrir
stjórnmálaflokkar komust ekki á
blað.
Miðað við síðustu könnun DV í
apríl hefur fylgi Alþýðuflokksins
aukist um 0,3 prósentustig, fylgi
Framsóknarflokksins dalað um 1,6
prósentustig, fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins minhkað um 0,3 prósentustig,
fylgi Alþýðuflokksins haldist
óbreytt, sem og Þjóðvaka, en
Kvennalistinn bætt við sig 1,6 pró-
sentustigum.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns, jafnt skipt á milli kynja
og búsetu, þ.e. höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðar. Spurt var: „Hvaða
lista mundir þú kjósa ef þingkosn-
ingar færu fram núna?“ Skekkju-
mörk í könnun sem þessari eru tvö
til þrjú prósentustig.
Af úrtakinu öllu reyndust 7,8 pró-
sent styðja Alþýðuflokkinn, 12,3
prósent Framsóknarflokkinn, 27,7
prósent Sjálfstæðisflokkinn, 8,8 pró-
sent Alþýðubandalagið, 0,8 prósent
Þjóðvaka og 2,8 prósent Kvennalist-
ann.
Óákveðnum fækkar
í könnuninni voru 34,2 prósent
óákveðin og 5,5 prósent gáfu ekki
upp afstöðu sína. Alls tóku því 60,3
prósent afstöðu í skoðanakönnun-
inni sem er meiri þátttaka en í apr-
ílsl.
Sé þingsætum skipt á milli flokka
samkvæmt fylgishlutfalli í könnun-
inni fengi Alþýðuflokkur 8 þing-
menn, sama og í síðustu könnun og
á Alþingi í dag. Framsóknarflokkur
fengi 13 þingmenn, tapaði einum frá
Fylgi flokka
— samkvæmt skoðanakönnun —
46J245.9
40,8
□ DV 2/3 '98
M DV16/4196
□ DV 28/5 '96
15 12,7 !3
11,5
10
Skipan þingsæta
— samkvæmt skoðanakönnun —
30 30
45%
40
35
30
25
.20
15
10"
Niðurstöður skoðanakönnunar DV
iuröar eru niöurstöður týrr
j7\r
- til samanburöar eru niöurstöður týrri kannana DV og úrslit þingkosninga -
45%
40
35
Kosn.
'95
' -
28/5 Kosn.
'96 '95
28/5
'96
Kosn.
'95
28/5 Kosn.
'96 '95
m 28/5
W> '96
síðustu könnun en tveimur frá
kosningunum í fyrra. Sjálfstæðis-
flokkur fengi 30 þingsæti, sem er
óbreytt frá könnuninni í apríl en
aukning um 5 þingsæti frá núver-
andi þingmannafjölda. Alþýðu-
bandalagið fengi 9 þingsæti sem er
sama niðurstaða í síðustu könnun
og kosningum í fyrra. Enn mælist
Þjóðvaki varla í könnuninni og
fengi engan þingmann kjörinn en er
með fjóra á þingi í dag. Kvennalist-
inn fengi 3 þingmenn, líkt og á Al-
þingi í dag en aukning um eitt þing-
sæti frá síðustu skoðanakönnun
DV.
Ef svör þátttakenda í könnuninni
eru skoðuð eftir búsetu kemur
sterklega í ljós að Framsóknarflokk-
urinn sækir fylgi sitt til landsbyggð-
armanna en Sjálfstæðisflokkurinn
er mjög sterkur á höfuðborgarsvæð-
inu sem fyrr. Fylgi annarra flokka
er mjög svipað eftir búsetu.
í flokki óákveðinna eru konur
mun fjölmennari en karlar en karl-
ar eru áberandi fleiri i stuðningslið-
um Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks. Að öðru leyti er stuðningur
kjósenda svipaður eftir kynjum.
-bjb
Skoðanakönnun DV um fylgi ríkisstjórnarinnar:
Stuðningurinn hefur dalað á nýjan leik
Stuðningur við ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar hefur dalað á ný eftir
eilitla uppsveiflu í síðasta á mánuði
þegar nærri 6 af hverjum 10 kjós-
endum studdu sfjórnina. Breyting-
amar eru þó ekki óverulegar. Þetta
eru helstu niðurstöður skoðana-
könnunar DV um fylgi ríkisstjórn-
arinnar. Könnunin fór fram síðast-
liðið þriðjudagskvöld.
Úrtakið i skoðanakönnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja sem og landsbyggðar og höf-
uðborgarsvæðis. Spurt var: „Ertu
fylgjandi eða andvígur ríkisstjórn-
inni?“ Skekkjumörk í könnun sem
þessari eru tvö til þrjú prósentustig.
Miðað við svör allra í könnuninni
sögðust 45,5 prósent styðja ríkis-
stjórnina, 36,7 prósent voru henni
Fylgi ríkisstjórnarinnar
Niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar urðu þessar:
Svara ekki
Óákv. n co/'
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu
verða niðurstöðurnar þessar:
Andvígir
Fylgjandi
45,5%
Fylgjandi
55,4%
Andvígir
DV
andvíg, 13,3 prósent voru óákveðin
og 4,5 prósent gáfu ekki upp afstöðu
sína. Þetta er lægra hlutfall óákveð-
inna en i síðustu könnun DV um
miöjan apríl sl.
Ef aðeins er tekið mið af þeim
sem tóku afstöðu til ríkisstjórnar-
innar sögðust 55,4 prósent styðja
hana en 44,6 prósent voru henni
andvíg.
Miðað við könnun DV í apríl hef-
ur fylgi ríkisstjórnarinnar dalað um
2,9 prósentustigsé tekið mið af þeim
sem tóku afstöðu. Andstæðingum
stjómarinnar hefur að sama skapi
fjölgað um 2,9 prósentustig. Sé
stuðningur við stjórnina skoðaður
eftir búsetu kjósenda er niðurstað-
an svipuð hvað fylgjendur hennar
varðar en ívið fleiri andstæðingar
eru á landsbyggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu.
-bjb