Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Qupperneq 24
32
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
Sviðsljós
I>V
Maximilian
Schell fékk háar
skaðabætur
Austurrlska leikaranum Max-
imilian Schell voru í vikunni
dæmdar um sextán milljónir
króna í skaðabætur fyrir tekju-
tap sem hann varð fyrir þegar
sýningum á verkinu My Fair
Lady var hætt í Hamborg fyrr
en ætlað var. Maximilian átti að
fá hálfa fjórðu milljón króna í
laim á viku fyrir að leika pró-
fessor Henry Higgins.
Maximilian, sem er nú búsett-
ur I Los Angeles, stefndi þýsku
fyrirtæki fyrir tekjumissinn.
Margir muna eftir Maximili-
an Schell úr ýmsum stórstjörnu-
myndum frá sjöunda og áttunda
áratugnum. Hann fékk ósk-
arsverðlaunin 1961 fyrir hlut-
verk verjanda í stórmyndinni
Réttarhöldin í Niirnberg.
Áhugamenn um bresku konungsfjölskylduna tóku andköf:
Karl og Díana kysstust
í heimavistarskólanum
Karl og Díana gerðu nokkuð i vik-
unni sem þau hafa ekki gert opin-
berlega í eitt ár, eða jafnvel meira.
Og sjálfsagt heldur ekki í einrúmi.
Þau kysstust! Að vísu bara léttur
smellur á kinnina. En koss var það
samt. Það mun þó ekki þýða að þau
séu búin að sættast og hætt við að
skilja.
Þessi stórmerki atburður gerðist
á miðvikudag þegar þau höfðu lokið
sameiginlegri heimsókn í skóla Vil-
hjálms prins, þrettán ára gamals
sonar þeirra.
Bresku slúðurblöðin ruku upp til
handa og fóta og heyramátti andvarp
fréttastjóra og konunglegra blaða-
manna Daily Mirror þegar þeir
sömdu fyrirsögnina: „Ef nú bara ..
Starfsbræður þeirra á Sun, mest
selda dagblaði Bretlands, voru
kannski heldur raunsærri þegar
þeir lýstu því yfir að þetta væri
„síðasti kossinn" áður en endanlega
yrði gengið frá lögskilnaði þeirra
Karls og Díönu. Blaðið sagði að
kossinn hefði verið settur á svið til
að hugga Vilhjálm, sem tilkynnti
foreldrum sínum fyrir skömmu að
hann vildi ekki verða kóngur þegar
hann yrði stór.
Díana og Karl komu sitt í hvoru
lagi í skóla prinsins, hinn virta
heimavistarskóla Eton þar sem syn-
ir aðalsins og rika fólksins fá
menntun sína. Skólinn var opinn
gestum þennan dag og var það í
fyrsta sinn sem litli prinsinn fékk
tækifæri til að taka á móti foreldr-
um sínum þar.
Annars er það helst að frétta af
Díönu að hún heldur til Chicago í
næstu viku til að sitja ráðstefnu um
brjóstakrabba og til að sækja nokkr-
ar skemmtanir til styrktar góðgerð-
armálum af margvíslegu tagi.
Díönu hefur stundum verið líkt
við Jackie Kennedy og þykjast sér-
fræðingar sjá margar hliðstæður í
lífi þeirra. Þær voru báðar fremur
ungar þegar þær öðluðust heims-
frægð og þær voru dáðar og dýrkað-
ar, að minnsta kosti í byrjun, fyrir
sakir fegurðar og glæsileika. Þá
kom það líka oft fyrir að þær stálu
senunni frá valdamiklum eigin-
mönnum sínum.
Eitt skilur þær þó að, Díönu og
Jackie. Díana er miklu viðkvæmari
fyrir almenningsálitinu.
„Jackie Kennedy var aldrei háð
því sem fólki fannst um hana en
mér sýnist Díana vera það. Hún
verður að hugsa um börnin og for-
ræðismálin og leysa úr deilunum
við konungsfjölskylduna," segir
Paula Treichler, prófessor í kvenna-
fræðum við Blinois-háskóla, sem
var fengin til að tjá sig vegna heim-
sóknar prinsessunnar.
ISLENSKI LISTINN ER BIRTUR I DV A HVERJUM LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVÖLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Kynnir: Jon AxeIl Olafsson
ÍSLENSKIUSTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA Á ÍSU--------------
KVÆMDAF MARKAÐSDEILD DV í HVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER A BIUNU 300-400, A ALDRINUM 14-35 ÁRAAF
IÐ MK) AF SP1LUN A ISLENSKUM ÚTVARPSSTÖÐVUM. ÍSLENSKI USTINN BIRTIST A HVERJUM LAUGARDEGII D
JkUGARDOGUM KL10-18. UST1NN ER BIRTUR AÐ HLUTAI TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. (SLEN
:art sem framleidour er af radio express í los angeles. einnig hefur hann áhrif á evrópuust/
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKK) AF BANDAI
íTARBLADINU BILLBOARD.
AISLANDI. LISTINN ER NIÐURSTADA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM-
......... —------ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK-
. DV OG ER FRUMFLUTTUR A BYGJUNNI A
ÍSLENSKI USTINN TEKUR ÞÁTTIVAU „WORLD
TANN SEM BIRTUR ER í TÓNUSTAI
Breska leikkonan Patsy Kensit telur það ekkert eftir sér að leggja góðum
málefnum lið. Hér hefur hún klæðst skyrtubol til að auglýsa húðvörur sem
eiga að vernda gegn krabbameini. Patsy er núverandi kærasta Liams Gallag-
hers, aðalsöngvara poppgrúppunnar Oasis. Símamynd Reuter
Gus að klára skáldsögu
Bandaríski leikstjórinn Gus Van
Sant, sá sem stjómaði hinni vinsælu
og rómuðu To Die for, er nú í óðaönn
að leggja síðustu hönd á fyrstu skáld-
söguna sína. Bleikur heitir hún og
nýlega gerði hann útgáfusamning
upp á margar milljónir króna.
Að sögn Gussa fjallar bókin um
framleiðanda auglýsingaþátta fyrir
sjónvarp sem verður þeirrar lífs-
reynslu aðnjótandi að hitta fólk sem
ferðast milli vídda og þykist vera
nemendur í kvikmyndagerð.
í bókinni er Gus að velta fyrir sér
hlutiun eins og unglingafrægð, fíkn,
dauðanum, endurholdgun og víddar-
ferðalögum.
Leikstjórinn fékk skriftarbakter-
íuna eftir að hann reyndi fyrir sér
við að skrifa kennslubók í kvik-
myndagerð. „Ég lauk henni fyrir ári
en fannst hún bara ekki nógu góð. Þá
byrjaði ég bara á annarri í fyrrasum-
ar og var ánægður með það sem kom
út úr því. Ég er að leggja lokahönd á
hana núna,“ segir Gus.