Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Qupperneq 8
'js og garðar
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 T^V
24
Garðagrjót:
Stórar og glæsilegar hleðslur úr
holtagrjóti þar sem hver steinn veg-
ur nokkur hundruð kíló er að verða
nokkuð algeng sjón, að minnsta
kosti í Reykjavík. Mikinn hluta
þessara hleðslna hefur Sæmundur
Alfreðsson unnið en hann rekur fyr-
irtækið Garðagrjót.
Allt í garðinn
Garðagrjót var stofnað 1989 og
vinna þar að jafnaði 4-5 starfsmenn
yfir sumartímann. Garðeigendur
geta leitað til þeirra með alla gröfu-
og vörubílaþjónustu, sem og ef vant-
ar mold, skít, malarefni eða grjót,
allar tegundir nema stuðlaberg.
Sæmundur hefur orðið einstaka
reynslu í hleðslu á stórum steinum
enda hefur hann síðustu ár nokkuð
sérhæft sig í hleðslu á öllum tegund-
um grjóts. Holtagrjótið er vin-
sælasta tegundin og segir Sæmund-
ur að gott holtagrjót sé það
skemmtilegasta í vinnslu.
Tækið sem miklu máli skiptir við
gerð grjóthleðslu er krabbi með
snúningi þar sem auðvelt er að snúa
steininum eins og Sæmundur vill að
hann snúi.
Við gerð góðrar og fallegrar
Unniö aö hleöslu í Hafnarfirði. Mikill fjöidi glæsilegra hleöslna liggur eftir
Sæmund um allt höfuöborgarsvæöiö.
Grjóthleöslan viö Hjallakirkju í Kópavogi er ein af mörgum glæsilegum hleðslum sem Sæmundur hefur unniö.
hleðslu þarf að skoða hvern stein
fyrir sig og ákveða hvernig hann
eigi að snúa og hvaða steinar passi
best saman. Við skoðun á nokkrum
hleðslum sem Sæmundur hefur
unnið er ljóst að þessi atriði eru
höfð í huga.
Þó Sæmundur sé ekki með garð-
yrkjumann í vinnu hjá sér þá hefur
hann átt mikið og gott samstarf við
ýmsa garðyrkjumenn. Sá sem kom
Sæmundi á sporið í grjóthleðslum
var Einar Þorgeirsson skrúðgarð-
yrkjumeistari og hafa þeir unnið
mörg verk í sameiningu.
mundur ekki lent í teljandi vand-
ræðum með að nálgast grjót fyrir
garðeigendur en hann telur að það
hljóti að enda með því að þetta
skemmtilega náttúruefni verði
vandfundið, að minnsta kosti að
erfitt verði að fá leyfi til að hreyfa
við því.
Sandur
Sigursteinar
Völusteinar
Hnullungar S
Fegrar
og bætir
garðinn
Þú færð allskonar grjót hjá
okkur, sand og sérstakan
sand í sandkassann.
Við mokum efninu á bíla eða
kerrur og afgreiðum það líka
í sterkum plastpokum, sem
þú getur sett í skottið á
bílnum þínum.
Simi: 577-2000
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
Afgreiðslan er opin: Mánud. - fímmtud. 7.30 - 18.30,
föstud. 7.30 - 18.00, laugard. 8.00 - 17.00.
Opið í hádeginu nema á laugardögum.
Nóg af grjóti
Enn sem komið er hefur Sæ-
Margrethe Schiöth
vann mikið starf
við Lystigarðinn
í grein um Lystigarðinn á Akur-
eyri féll einhverra hluta vegna nið-
ur þáttur Margrethe Schiöth.
Margrethe tók við sem fram-
kvæmdastjóri garðsins árið 1923 og
hélt því embætti þar til Akureyrar-
bær tók við rekstri garðsins 1953.
Margrethe vann ótrúlega mikið
starf við Lystigarðinn, bæði sem
stjórnandi og við umhirðu gróðurs-
ins. Allt hennar starf var unnið í
sjálfboðavinnu og var það mjög að
verðleikum sem Margrethe var gerð
að heiðursborgara Akureyrar þegar
hún varð sjötug 1941. í garðinum er
minnisvarði um Margrethe.
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þeim mistökum að
hennar skyldi ekki vera getið í fyrr-
nefndri grein.
Póstverslunin Gull
og grænir skógar
6 Póstverslunin Gull og grænir
" skógar hóf starfsemi sína vorið 1995
og bauð þá tvær tegundir af við-
höldum, stuðningsstöngum fyrir
Qölæran gróður.
I Pöntunarlistinn fer stækkandi og
1 auk viðhaldanna er nú boðið upp á
! hengipotta, blómakörfur, vermi-
jreiti flflabana, jarðarberjatunnu og
fleira.
■ Jarðarbeijatunnan og fiílaban-
inn er það sem vekur helst áhuga
þar sem um nýja hluti eöa lítið
þekkta er að ræöa.
t Jarðarberjatunnan er ker með
hliðarvösum. Jarðarberjaplöntunar
|eru gróðursettar í hliðarvasana en
þeir eru 32, þannig að berin hanga
laus. Margir sem rækta jarðarber
kann.ast við það vandamál hve ber-
in vilja oft mygla. í þessari tunnu
ætti fólk að vera laust við þaö og
verður spennandi að fylgjast með
reynslu af notkun hennar.
Fiflabaninn er eins og nafnið gef-
ur til kynna notaður til að útrýma
fiflum (og öðru illgresi) úr grasflöt-
um. Fíflabaninn er 95 sm langur, á
enda hans eru þrír pinnar og er
þeim stungið niður þannig að
plantan lendi í miðjunni, síðan er
snúið í 1-2 hringi, verkfærið dregið
upp og plantan kemur með.