Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Blaðsíða 14
Selja Selja (S. caprea) er nokkuð al- gengt tré í görðum, hún verður yfir- leitt um 6-10 metra hátt krónumik- ið tré. Karlinn er skrautmeiri og kröftugri og er oft á tíðum sérlega glæsilegur á vorin, alþakinn gulum reklum sem koma fyrir laufgun. Selja er fljótvaxin en kelur oft mik- ið á vorin fyrstu árin. Hún er oft búin að ná fullri hæð 20-30 ára göm- ul en hún getur náð 60-80 ára aldri. Viöja er mikið notuð í limgeröi. Hún er fíngeröari en alaskavíðirinn og hefur dökkgrænt lauf. Karlselja, krónumikil og alblóma að vori til fyrir laufgun. hneigingu til að klofna í miklu fann- fergi. Netvíðir Netvíðir (S. retuculata) er alveg jarðlægur, hægvaxandi runni, sem myndar þétta greinamottu, uin 10-20 sm þykka og 50-80 sm breiða. Laufblöð hans eru sérkennilega net- tauguð og hrukkótt. Hann er mjög harðger og hentar vel sem þekju- planta í steinhæðir og sem kant- planta ofan á hleðslum. Bjartvíðir Bjartvíðir (S. candida) er fremur sjaldgæfur hér á landi þrátt fyrir að hafa verið til í rúm 20 ár. Bjartvíðir er mjög áberandi yfir vetrarmánuð- ina, hann hefur silfrað yfirbragð en árssprotar hans eru þétthvíthærðir og nánast lýsa upp umhverfið með sínum ljósu greinum. Bjartvíðir er uppréttvaxandi runni upp í 1,5-2 m hár og svipaður að umfangi. Þar sem bjartvíðir er til er hann alveg harðger og kelur ekki. Breiðuvíðir Breiðuvíðir (S. x sumulatrix) er skriðull, þéttgreindur og smágerður runni. Hann er með glansandi dökk- græn blöð en greinarnar eru grann- ar og langar, hver runni þekur auð- veldlega um 1 fermetra á fáum árum. Breiðuvíöir er sóielskur og nýtur sín vel innan um grjót og þrífst best í sendnum jarðvegi. Hann hefur reynst alveg harðger í grónum görðum en á erfitt upp- dráttar á berangri. Gljávíðir Gljávíðir (S. pentandra) er mikið notaður bæði sem stakstætt tré og einnig i limgerði. Notkun hans sem trés hefur þó því miður farið minnkandi en tré gljávíðis verða oft skemmtileg í laginu og engin tvö eru eins. Gljávíðir laufgast seint á vorin og stöðvar vöxt mjög seint (byrjun október) og frýs yfirleitt grænn og hlýtur því árlega mikið haustkal. Blöð gljávíðis eru sterk- gljáandi fagurgræn. Gljávíðir þolir kiippingu vel eins og annar víðir og hefur þann kbst að fram að þessu hefur hann verið nokkuð laus við öll óþrif af maöki og lús, þó hefur eitthvað komið á hann síðustu tvö ár enda eru þau óvenju mikil lúsa- og maðkaár. Varast ætti að gróðursetja gljáv- íði nálægt raflýsingu. Hann kelur þar enn meira en annars staðar og jafnvel drepst alveg. Gljávíðir getur verið nokkur ár að ná góðum vexti á nýjum stað, en eftir að hann hefur komið sér fyrir bætir hann vel við sig árlega. skemmtilegt að horfa á hve hann skiptir litum í vindi, sérstaklega sá græni. Viðja Viðja (S. borealis) er vinsæl lim- gerðisplanta. Hún er mun flngerð- ari en alaskavíðirinn, með dökkar greinar og blöðin einslit báðum megin og ílöng. Viðjan verður mjög oft lúsug og þarf að eitra hana. Nokkrir stofnar af viðju eru í fram- leiðslu og eru þeir nokkuð misjafn- lega harðgerir. Þegar bætt er við limgerði ætti alltaf að nota sama stofn, annars getur mikill munur komið í ljós, t.d. í köldum vorum eða sumrum. Þetta á við um allar tegundir víðis og fleiri tegundir. Myrtuvíðir Myrtuvíðir (S. myrsinites) er ein af „nýju“ víðitegundunum hér á landi. Myrtuvíðir er marggreindur, þéttvaxinn runni, frá 40 sm upp í rúman metra á hæð. Hann er með dökkgræn og gljáandi blöð sem haldast visin, uppréttvafin um greinarnar yfir veturinn sem gefur runnanum mjög skemmtilegt útlit. Myrtuvíðir blómstrar í maí sérstak- lega fállegum purpuralitum reklum. Hann er harðger, nokkuð vindþol- inn og líklega einnig saltþolinn en helsti gallinn er að greinar hafa til- Alaskavíðir Alaskavíðir (S. alaxensis) er mjög fjölbreytilegur. Mörg kvaémi hans eru í ræktun og sölu en algengust eru líklega grænn alaskavíðir og brúnn alaskavíðir. Sá brúni hefur einnig verið nefndur tröllaviðir þar sem hann er mun grófari í vexti en sá græni. Alaskavíðir er fyrst og fremst not- aður sem skjólbelta- og limgerðis- planta hér á landi. Hann er hrað- vaxta, saltþolinn, vindþolinn og harðger. Helstu gallarnir eru hve skammlifur hann er, en hann verð- ur aðeins um 50 ára þó það sé ekki fullreynt hér því fyrstu plönturnar af honum komu til landsins 1952. Alaskavíðir er með grágræn blöð, þau eru nær hárlaus á efra borði en hvítgullhærð á því neðra og er oft A Gljávíði kelur nokkuð k. hring. og verða tré hans oft skemmtileg í laginu. Hér er einn sem vaxiö hefur %ús oggarðar MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 Ymsar víðitegundir í maíblaði um hús og garða var fjallað um þær tegundir víðis (Salix) sem eru villtvaxandi hér á landi og hafa verið frá því fyrir landnám. Að vísu eru sumar innfluttar tegundir farnar að sá sér í íslenskri náttúru og geta að því leyti talist íslenskar. Víðir er sennilega hvað mest not- aða ættkvíslin í görðum hérlendis. Munar þar mestu um hve hann er mikið notaður í limgerði enda margar tegundir hans bæði hrað- vaxta og harðgerar. Helstu ókostir víðis eru hve margar tegundir hans verða lús- eða maðkasæknar en þar hefur þó næringarástand plantn- anna mikið að segja. Vel nærðar plöntur vaxa yfirleitt af sér pláguna. Eins ef vel er fylgst með og eitrað þegar ljóst er að þess þarf þá ætti þessi ókostur ekki að spilla fyrir notagildi víðis. Stöðugt bætast við tegundir víðis sem prófaðar hafa verið hér á landi og þrífast vel. Hér á eftir verður lít- ils háttar fjallað um nokkrar teg- undir víðis og er listinn á engan hátt tæmandi enda eins og áður sagði bætast stöðugt við víðitegund- ir sem reynast vel hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.