Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Page 16
Handbók garðeigandans 1996/1997 Við gerð hvers konar stein- hleðslu eru það fyrst og fremst und- irbygging og bakfylling sem ráða því hve vel hleðslan helst. Grjót.og torf hefur frá upphafi Is- landsbyggðar verið eitt aðalbygging- arefnið og er íslensk byggingarhefð nátengd notkun á náttúruefnum. Grjóthleðslur úr náttúrugrjóti eru vinsælar en því miður sést alltof víða þar sem unnið hefur verið af óvandvirkni og/eða kunnáttuleysi og hleðsla með jafnvel fallegum steinum ljót eða að hruni komin. Undirbygging Hleöslur eru ýmist frístandandi eða sem stoðveggir. Frístandandi hleðslur eru tvöfaldar og eru yfir- leitt notaðar til að mynda rými, loka fyrir innsýn eða til að veita skjól. Stoðveggir eru notaðir til að taka upp hæðarmun, þá er hleðslan aðeins sýnileg frá einni hlið. Stoð- veggjahleðsla er mun algengari en frístandandi hleðsla. Undirbygging og bakfylling ráða miklu um endingu hleðslunnar. Notkun frostfrís jarðvegs er nauð- synleg til að koma í veg fyrir frost- þenslu sem getur eyðilagt hleðsl- una. Við gerð lægri hleðslna, undir 70 sm, er almenna reglan sú að undir- byggja með frostfríu efni í um 60 sm dýpt og þjappa vel. Ef hleðslan er hærri þarf undirbyggingin að vera allt að metri og þar yfir. Við gerð stoðveggja þarf að hafa bakfyllinguna úr frostfríu efni, um 20- 40 sm, og ef leirkenndur jarðveg- ur liggur að. þarf að setja síudúk á milli frostfría efnisins og moldar- innar til að blöndun þessara efni eigi sér ekki stað með tíð og tíma. Góð þjöppun bæði á undirbygg- ingu, bakfyllingu sem og kjarnans í frístandandi hleðslu er mjög mikil- væg. Við gerð stoðveggja er krafist drenlagnar aftan við hleðsluna neðst í undirbyggingarlagið, mikil- vægt er að nota drenlögn svo vatn safnist ekki fyrir við vegginn og valdi frostþenslu. Hleðslan Við hleðsluna sjálfa eru ekki síð- ur mörg atriði sem þurfa að vera rétt unnin til að falleg hleðsla verði útkoman. Halli hleðslunnar þarf að vera á bilinu 10-20%, fer eftir hæð hennar (meiri hæð, meiri halli). Erfitt getur verið að halda sama hal- lanum og er því alltaf betra að nota «8 48 síðna hugmyndabæklingur íyrir garðinn þinn. Komdu við eða hringdu í síma 577 4200 (grænt númer 800 4200) og fáðu sent eintak - þér að kostnaðarlausu. Netfang: bmvalla.sala@skima.is BM'VAUA Breiðhöfða 3 112 Reykjavík. Lífræn eiturefni Gróðurvörur ehf. hefur hafið innflutning á nýjum eiturefn- um, Safer’s. Þau eru kanadísk og innihalda engin verksmiðju- framleidd eiturefni og brotna því mun fljótar niður en þau efni sem við þekkjum. Samt eitur Safer’s efnin eru til í Sölufé- lagi garðyrkjumanna. Þau voru fyrst til sölu í fyrra og hefur nú bæst við fjölda þeirra efna sem boðið er upp á. Þó efnin séu líf- ræn og brotni hratt niður þá eru þau engu að síðúr eiturefni og eru öll í hættuflokki C. Meðal þeirra efna sem fást eru skordýraeyðir til notkunar utandyra, skordýrasápa tU notkunar utan- og innandyra, sveppalyf, úði gegn spunamaur, og illgresiseyðir. Þegar úðað er með Permasect er uppskerufrestur 14 dagar, þegar Trounce, Safer’s skor- dýraeyðirinn er notaður er upp- skerufresturinn tveir dagar. Toppgun Safer’s illgres- iseyðirinn virkar svipað og Preglon, efnið svíður þá plöntu- hluta sem það snertir en drepur ekki rætur á fiölærum tegund- um s.s. flflum. ÖU efnin fást í úðabrúsum og eru tilbúin til notkunar, én að auki eru flest efnin einnig til í lausnum og eru þá góðar leið- beiningar með um blöndunar- hlutfóll. Allar nánari upplýsingar er að fá hjá Sölufélagi garðyrkju- manna. Safers: Hér hefur ekki verið rétt að málum staðið. Hleðslan að hruni komin. :íÍ3f'ú ZfjúzhÍBÚzhni Frostfritt þjappaö—e Drenrör misstórt eru stærstu steinarnir not- aðir neðst og er neðsta röðin látin byrja aðeins neðan við endanlegt yf- irborð. Mjög líklega þarf að höggva steinana eitthvað til svo þeir passi betur saman, ekki troða litlum steinum í rifur sem myndast, miklu betra er að höggva annan steininn til eða jafnvel að finna nýjan stein sem passar betur. Hleðsla náttúrugrjóts er mikið vandaverk og ekki á hvers manns færi. Ætti fólk að leita til fagmanna sérstaklega ef um hærri hleðslur er að ræða. skapalón, það gera allir fagmenn. Ef grjótið sem notað er í hleðsluna er f ■ 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.