Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1996, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1996, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 19. JUNI 1996 Utlönd 9 Búlgörsk fyrirsæta sýnir hér framúrstefnulegan klæðnað, búinn til úr marg- litum smokkum, í tískukeppni sem nú stendur yfir í Sofíu. Hönnuðurinn er kona, Pavlina Nikolova. Símamynd Reuter GLÆSI IFREIÐ BMW 740ÍA árg. 1993 Sjálfskiptur, leður- innrétting, sóllúga, álfelgur, ræsivörn, loftpúðar, sólvörn, aksturstölva, ABS-bremsukerfi. NOTAÐIR BILAR SUÐURLANDSBRAUT 12, SÍMI 568 1200, BEINN SÍMI 581 4060 Hönnuður VHS VHS-C MYNDAVÉL Varðveitir góðar stundir JVC GR-AX400 Helstu eiginleikar: 0 Innbyggt Ijós. 0 Innbyggð klippitölva, 8 minni. 0 Textavél, nokkrir textar í minni. 0 12 x aðdráttur (zoom) 0 2 luxa Ijósnæmi. 0 730 grömm. 0 Teiknimyndamöguleiki með tímastilli. 0 Hljóðsetning. 0 Myndinnsetning. 0 Innbyggð linsuhlíf. 0 Lokara hraðar. Fylgihlutir: Hleðslurafhlaða, snælduhylki, axlaról, afritunarkapall, hleðslutæki með afhleðslu og þráðlaus fjarstýring. Við erum sérfræðingar í VHS - Myndavélum íW |/,T, l^-jKringlunni, sími 568-1000 Þessi frábæra vél frá JVC kostar aðeins Kr. 69.900,- JVC KEA Akureyri sími 463-0300 Tækniverslun Faxafen 12,108 Reykjavik, sími: 588-0444 Amnesty International gagnrýna bandarísk fyrirtæki: Selja pyntingatól til mannréttindabrjóta Mannréttindasamtökin Amnesty International gagnrýndu í gær harð- lega 27 bandarísk fyrirtæki sem samtökin fullyrða að framleiði og flytji út pyntingatæki og -tól og gagnrýndu um leið bandarísk stjómvöld fyrir að leyfa slíkan út- flutning til landa þar sem mannrétt- indi eru ekki í hávegum höfð eða fótum troðin. Amnesty International fyllyrða að umrædd fyrirtæki framleiði og flytji út stuðkylfur, straumbyssur, rafræna óeirðaskildi, straumbelti og þumalskrúfur sem notaðar eru til að binda hendur fómarlamba sam- an fyrir aftan bak og valda miklum sársauka. William Schulz, talsmaður sam- takanna, sagði að umrædd tæki hefðu oftsinnis verið notuð til pynt- inga í sumum löndum og veittu möguleika á slíkri notkun þeirra annars staðar. Hann sagði að að- gerðaleysi bandaríska viðskipta- ráðuneytisins vegna þessara við- skipta ylli verulegum áhyggjum. Vitnaði hann í því sambandi til sér- staks útflutningsskjals ráðuneytis- ins sem „tæki sérstaklega hönnuð til pyntinga" væm á lista yfir leyfð- ar útílutningsvörur. En Bandaríkin urðu ekki ein fyr- ir barðinu á gagnrýni Amnesty International vegna framleiðslu og útflutnings á pyntingatólum. Bret- ar, Frakkar, Þjóðverjar, Kínverjar og Rússar voru einnig gagnrýndir fyrir sömu sakir. Reuter Svíar orðnir allt of feitir og latir Svíar em að verða sifellt feitari vegna þess að þeir stunda líkams- rækt í minni mæli en áður og þeir horfa meira á sjónvarp. Þá borða þeir líka meira en góðu hófi gegnir. Samkvæmt rannsókn sem kynnt var í Gautaborg eru 15 og 16 ára unglingar nú þremur til fjórum kílóum þyngri en fyrir fimmtán árum. Tíu prósent fullorðinna eru svo mikið of feitir að það er heilsu- spillandi. Reuter „Eg fæ allar rekstrar- og hreinlætisvörur hjá Rekstrarvörum" Jón Grétar hótelstjóri Hótel Eddu Skógum REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík Sími 587 5554, Fax 587 7116

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.