Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1996, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1996
Spurningin
Hvernig finnst þér kosning-
abaráttan hingað til?
Þórður Óskarsson sjómaður: Ég
hef ekkert fylgst með henni.
Geirþrúður Kristjánsdóttir skrif-
stofustúlka: Eins og við er að bú-
ast.
Þorbjörn Viggósson sjómaður:
Lítið fylgst með henni, er alltaf á
sjó.
Friðþjófur K. Eyjólfsson skrif-
stofustjóri: Mér leiðist helgisvipur-
inn á Ólafi og tilraunir hans til að fá
fylgi grátkvenna.
Einar Guðjónsson, rafeindavirki:
Líst ágætlega á hana.
Stefania Jónsdóttir leigubílstjóri:
Fylgist ekkert með henni.
Lesendur
Rógburöur gegn
frambjóðendum
Páll Sigurðsson skrifar:
Árásir og rógburður gegn fram-
bjóðendum til forsetakosninga,
grímulaus kvenfyrirlitning og van-
virðing við kjósendur hefur sett
svip sinn á kosningabaráttuna.
Ástþór Magnússon er einn þeirra
sem hefur mátt sitja undir rætnum
aðdróttunum án þess að hafa nokk-
uð til saka unnið annað en að verða
gjaldþrota líkt og stór hluti þjóðar-
innar. Öll hafa samt skotin geigað
og oftar en. ekki sprengjurnar
sprungið í höndum smiða sinna.
Aðrir frambjóðendur hafa fengið
sinn skammt af óþverranum. Nægir
þar að nefna dæmalausa yfirlýsingu
stuðningsmanns Péturs Kr. Haf-
stein, Braga Bergmann, um íslensk-
ar konur. Yfirlýsingin er með því-
líkum ólíkindum að að íslenskar
konur hljóta að bregðast við af fullri
hörku.
Þá má nefna bjánalegar uppákom-
ur Davíðs Odssonar og Jóns Bald-
vins Hannibalssonar í Mogganum
um hlutverk forsetaembættisins og
Jóns Steinars Gunnlaugssonar á
síðum sama blaðs.
Upphlaup Sigurðar Heigasonar
var enn eitt vindhöggið. Hann
vændi einn frambjóðandann um að
skreyta sig með stolnum fjöðrum.
Sigurður þarf hins vegar að éta lyg-
ina ofan í sig eftir að ræðismaður
íslands á Indlandi staðfesti rétt um-
mæli frambjóðandans svo sem fram
kom í fréttatíma Stöðvar tvö þann 6.
júní. síðastliðinn.
Á meðan Ástþór má hlusta á stöð-
uga rætni um fjármál sín eru tugir
milljóna settar í að auglýsa Pétur
Ástþór Magnússon. - „ ...hefur mátt sitja undir rætnum aðdróttunum án
þess að hafa nokkuð til saka unnið annað en að verða gjaldþrota líkt og stór
hluti þjóðarinnar," segir bréfritari m.a. í greininni.
Hafstein en enginn virðist ábyrgur upplýsingar eru gefnar um hvaðan
fyrir íjármálum á þeim bæ og engar auðurinn kemur.
Meiri hæfniskröfur
í barnaverndarnefnd
Ingibjörg hringdi:
Hvernig stendur á því að til fólks
sem treyst er fyrir börnum drykkju-
sjúkra foreldra eru ekki gerðar
meiri hæfniskröfur en nú er?
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur
samanstendur af nokkrum pólitískt
skipuðum aðilum. Skilyrðið er að
vera á réttum stað í pólitík.
Hvernig er hægt að bjóða börn-
um, sem gengið hafa í gegnum
hrylling alkóhólisma foreldra, upp á
það að fólkið sem fjallar um mál
þeirra hefur ekki næga þekkingu á
sjúkum hugarheimi alkóhólistans.
Börn, sem hafa upplifað skelfingu
drykkjusjúks heimilis, eiga sannar-
lega heimtingu á að um mál þeirra
sé fjallað af skilningi og raunsæi.
Því er að mínu mati mjög brýnt
að endurskoða af fullri alvöru ráðn-
ingar í þessar stöður.
Árásir
Þorgeir Kr. Magnússon skrifar:
Þó svo að Guðrún Pétursdóttir
verði fyrir skítkasti og árásum í
blaðagreinum á síðum Morgun-
blaðsins nær það engum samjöfnuði
við þær árásir sem Ólafur Ragnar
Grímsson verður að sætta sig við.
Ég er alveg hissa á því að Morgun-
blaðið skuli birta þessar greinar
sem eru algerlega í andstöðu við
hreint og jákvætt hugarfar. Ein af
þessum greinum birtist í Morgun-
blaðinu 8. júní undir fyrirsögninni
Svínsminni. í sama blaði er einnig
ráðist á Guðrúnu Pétursdóttur. Slík-
irnrnm þjonusta
allan sólarhringinn
5000
llli kl. 14 og 16
í blaðagreinum
Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún
verða fyrir of miklum árásum.
ar greinar eiga sennilega eftir að
koma hver á fætur annarri.
Ég undirritaður gerði þá vitleysu
að setja greinarstúf í Morgunblaðið
12. júni sl. og ég viðurkenni að ég
fór þar yfir strikið gagnvart Ólafi
Pétursdóttir. - Bréfritara finnst þau
Ragnari.
Mín von er sú að Ólafur Ragnar
nái kosningu. Guðrún Pétursdóttir
kemur tæplega til greina.
DV
Hringferð KKÍ
Sigríður skrifar:
Ég vona að framtíð okkar
ágætu unglinga sem æfa körfu-
bolta verði ekki sú að þurfa að
borga gjald fyrir það að ung-
linganefnd KKÍ fer hringferð um
landið aö skoða leikmenn fyrir
næstu unglingalandslið. Nú er
verið aö fara af stað með það.
Þátttökugjaldið er 1500 krónur.
Innifalið í því er bolur og
kennsla í 10 klst. Ef KKÍ hefur
áhuga á að leita að efnilegum
leikmönnum í landslið finnst
mér sjálfsagt að gera það á æf-
ingatímabilinu, t.d. þegar fjöl-
liðamót eru, því þá eru væntan-
lega allir í sínu rétta formi. Mér
fmnst það betra en hengja þetta
aftan í veru í æfingabúðum.
KSÍ stendur vel að vali efni-
legra leikmanna í unglingalands-
liðið. Er það gert á keppnistíma-
bilinu með fulltrúa í öllum
landshlutum. Þar kostar ekkert
að sýna sig.
Stuttur ritdómur
N.N. skrifar:
Hér kemur stuttur ritdómur
um bókina Blánótt sem er gefin
út af Listahátið Reykjavíkur
1996:
Ef þetta eru ljóð og list,
af litlu má þá státa.
Ég held þeir hafl málið misst,
mig langar til að gráta.
Fengu ekki endurgreitt
Kristín hringdi:
Samtökin Betra líf á Lang-
holtsvegi bjóða þá þjónustu að
útvega unglingum vinnu erlend-
is. Dóttir mín og vinkona hennar
leituðu þangað þar sem þær
voru að leita sér að vinnu í Dan-
mörku. Þær borguðu 6.500 krón-
ur til að láta skrá sig og var sagt
að þær fengju endurgreitt að
hluta ef ekki gengi að útvega
þeim vinnuna. Þær borguðu fyr-
ir páska. Síðar fengu þær lista
yfir hótel og veitingastaði, sem
hver sem er hefði getað prentað
út af netinu, en enga vinnu. End-
urgreiðslu fengu þær hins vegar
ekki, þeim var sagt að engir pen-
ingar væru til auk þess sem þær
hefðu fengið þjónustu hjá sam-
tökunum. Ég vil vara fólk við
þessum samtökum.
Lesendasíða DV sló á þráðinn
til samtakanna Betra lifs. Þar
svaraði símsvari: „Þetta síma-
númer er lokað.“
Dáist að Sophiu
Hansen
Ásta Jónsdóttir skrifar:
Ég hef fylgst með fréttum af
máli Sophiu Hansen undanfarið.
Það hlýtur að vera meira en lítið
erfitt að vera í hennar sporum.
Ég dáist að því hve róleg og yfir-
veguð Sophia er, hún býr yfir
miklum styrk.
Varla er hægt að búast við að
dætur hennar þori að segja ann-
að en það sem föður þeirra þókn-
ast þar sem ekki lá annað fyrir
en þær færu með honum heim
eftir réttarhöldin.
Skoðanamyndandi
skoðanakannanir
H.S. skrifar:
Ef marka má skoðanakannan-
ir eru enn mjög margir óákveön-
ir í því hvaö þeir ætla að kjósa í
forsetakosningunum 29. júní
næstkomandi. Mér finnst margir
í kringum mig hafa tilhneigingu
til þess aö kjósa aðeins þá sem fá
mikið fylgi. Það er eins og þeir
skammist sín fyrir að kjósa
hina.