Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Side 2
2
MÁNUDAGUR 8. JIJLÍ 1996
Fréttir
Oddviti Fljótsdalshrepps kærir til Rannsóknarlögreglunnar:
Tel aö kjörgögnum
hafi verið breytt
- hreppstjórinn, sem gætti gagnanna milli talninga, haföi bæöi lykilinn og innsigliö
„Ég er búinn að kæra þessa sam-
einingarkosningu. í fyrsta lagi kæri
ég til sýslumannsins á Seyðisflrði
kjörseðil sem ég tel vera leiðandi.
Þaö er lesning á honum þar sem
höfðað er til afstöðu ákveðins aðila
og ég tel að svo eigi ekki að vera á
kjörseðli. Ég tel að ógilda beri kosn-
inguna í öllum sveitarfélögunum,"
sagði Hjörtur Kjerúlf, oddviti Fljóts-
dalshrepps, í samtali við DV.
„í öðru lagi fer ég fram á að Rann-
sóknarlögregla ríkisins rannsaki
kjörgögnin vegna gruns um að þeim
hafi verið breytt á milli talninga hjá
kjörstjórn. Það var talið að kvöldi
kosningadagsins. Kjörstjómin vann
það verk í votta viðurvist. Þá var
niðurstaðan 33-33 og tveir seölar
voru auðir.
Síðan er kært vegna utankjör-
staðaratkvæðis. Þá telur kjörstjóm-
in aftur en fær aðra niðurstöðu. Þá
voru 33 já, 32 nei og þrír seðlar auð-
ir.“
Hjörtur segir að í millitíðinni
hafi kjörkassinn verið í geymslu hjá
formanni kjörstjómar sem er hrepp-
stjóri og hann hafi þar af leiðandi
haft bæði innsiglið og lykilinn.
„Þetta tel ég alveg óafsakanlega
vörslu kjörgagna. Ég tel að kjör-
gögnunum hafi verið breytt og hef
krafist þess að RLR rannsaki seðl-
ana með efnafræðilegum aðferðum
til að komast að því hvort strokað
hafi verið út merki kjósanda á ein-
hverjum seðli sem nú var orðinn
auður.“
í þriðja lagi kærir Hjörtur þetta
sama og hinir aðilarnir kærðu.
„Kjörstjórn taldi utankjörstaðar-
atkvæði aðila, sem ekki var á kjör-
skrá, með. Þetta er námsmaður er-
lendis og hann þurfti að framvísa
vottorði - að ég tel - til mín til að
sanna að hann væri námsmaður. Af
þeim sem em með lögheimili er-
lendis áttu aðeins þeir sem eru
námsmenn kost á að vera á kjör-
skrá við sameiningarkosninguna,
samkvæmt upplýsingum frá Þjóð-
skrá. Vottorðið vantaði. Ég tel að
umræddur aðili hefði átt rétt á að
kjósa hefði hann komið sér fonn-
lega inn á kjörskrá.
Það sem ég kæri til RLR er bara
varðandi kjörgögnin.“
Hjörtur sagðist alfarið á móti
sameiningu.
„Sameiningarmenn hafa ekki
sýnt nokkur einustu rök sem rétt-
læta það að sameina þessa hreppa."
-ÞK
Videohöllin:
Eldur í aug-
lýsingaskiiti
Eldur kom upp í Videohöllinni
í Lágmúla um þrjúleytið á laug-
ardag.
Starfsfólk á staðnum sá
skyndilega hvar eldur blossaði
upp í auglýsingaskilti sem er inn-
andyra. Starfsfólkinu tókst að
slökkva eldinn með handslökkvi-
tæki en slökkviliöið kom síðan
og reyklosaði húsnæðið. Ekki
urðu miklar skemmdir og starf-
seminni var haldið áfram um
kvöldið.
Þá var slökkvilið kallað út um
kvöldmatarleytið þegar reyk-
skynjari fór í gang í íbúð í
Bjamaborg við Hverfisgötu. Eng-
inn var í íbúðinni en slökkvilið
og lögregla komust inn í hana.
Kom þá í ljós að kerti hafði
brunnið niður og töluverður
reykur orðið af þeim sökum.
Enginn eldur var og slökkviliðið
reyklosaði íbúðina á skömmum
tíma. Mjög litlar skemmdir urðu
á íbúðinni.
-RR
Humarhátíð á Höfn:
Tveir í steininn
eftir slagsmál
Mikil ölvun var á Humarhá-
tíðinni á Höfn í Hornafirði um
helgina, að sögn lögreglu þar.
Hátt í þrjú þúsund manns voru á
hátíðinni þegar mest var en flest
fór mjög vel fram.
Tveir menn gistu fanga-
geymslur lögreglunnar eftir
ólæti og slagsmál í fyrrinótt og
þá voru nokkrir teknir fyrir ölv-
unarakstur og fyrir að aka of
hratt. Umferð var nokkuð þung
en engin umtalsverð umferðaró-
höpp urðu.
-RR
Landhelgisgæslan fagnaði 70 ára afmæli sínu í gær með pomp og prakt. Skotið var sjö heiðursskotum úr gamalli
fallbyssu við höfnina en myndin var tekin við það tækifæri. Þá var varðskipið Týr til sýnis og einnig var sögusýning
í Hafnarhúsinu. Fjölmargir lögðu leið sína niður á höfn í gær vegna viðburðarins. DV-mynd S
Slösuð stúlka fékk ekki far hjá lögreglunni eftir árekstur:
Þeir sögðu mér að taka strætó
- segir Áslaug Hulda Jónsdóttir
„Mér finnast þetta fáránleg
vinnubrögð og ég er mjög fúl út í
lögregluna út af þessu. Ég fann mik-
inn verk í hálsinum og bað lögreglu-
mennina að skutla mér heim eða á
spítalann. Þeir sögðust þurfa að fara
í annað útkall og ekki hafa tíma til
að fara með mig á spítalann. Þeir
sögðu við mig að ég gæti bara tekið
strætó. Á endanum keyröi bílstjór-
inn á kranabilnum mig heim og
þaðan fór ég á spítalann," sagði Ás-
laug Hulda Jónsdóttir, tvitugur
Garðbæingur, við DV en hún lenti í
bílslysi á Suðurlandsbraut á föstu-
dag. Jeppabifreið keyrði þá á mikilli
ferð aftan á Daihatsu-bíl hennar
sem var kyrrstæð á rauðu ljósi. Ás-
laug tognaði illa á hálsi og var allan
föstudaginn á sjúkrahúsi í rann-
sókn. Bíllinn hennar er ónýtur eftir
áreksturinn.
„Þetta var griðarlegt högg en sem
betur fer var ég í bílbelti. Vitni
sögðu að hann hefði verið á yfir 100
kílómetra hraða þegar hann keyrði
á minn bil kyrrstæðan. Ég fékk mik-
ið sjokk og fann slæman verk í háls-
inum og sagði lögreglunni frá því,
en það var greinilega ekki nóg til að
þeir keyrðu mig á sjúkrahús. Ég er
búin að missa vinnu út af þessu alla
helgina og ef þetta verður þrálátt,
sem það gæti orðið, mun ég fara í
skaðabótamál við þann sem keyrði
á mig,“ sagði Áslaug. -RR
Aslaug Hulda Jónsdóttir.
DV-mynd ÞÖK
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mlnútan.
Já 1 Nel 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Eiga prestar einir að
ráða yfir sinni kirkju?
Fimm þúsund manns á Hellu
Tuttugu teknir fyrir
ölvun við akstur
Um fimm þúsund manns voru
samankomin á Hellu þar sem Fjórð-
ungsmót sunnlenski-a hestamanna
var haldið um helgina. Að sögn lög-
reglu á Hvolsvelli voru engin um-
talsverð óhöpp þrátt fyrir allan
þennan fjölda og talsverða ölvun.
Lögreglan á Hvolsvelli fékk liðs-
auka frá Selfossi og Reykjavík þann-
ig að um 20 lögreglumenn voru á
vakt þarna um helgina. Þó fóru öku-
menn ekki nógu gætilega við að
virða reglur því tuttugu þeirra voru
teknir fyrir ölvunarakstur og 8 fyr-
ir að aka of hratt. Engin umtalsverð
umferðaróhöpp urðu þrátt fyrir
nokkuð þunga umferð.
-RR
Stuttar fréttir
Mikil ferðahelgi
Fjöldi manns var á ferðalagi
um helgina enda veður gott víð-
ast hvar um landið. Umferð gekk
slysalítið að sögn Sjónvarpsins
15 teknir fullir
í Rangárþingi
Mikið anmíki var hjá lögregl-
unni í Rangárvallasýslu um
helgina og vora 15 teknir ölvaðir
undir stýri. Ríkisútvarpið
greindi frá þessu.
Búist viö
Suðurlandsskjálfta
Landris á Hengilssvæðinu
vegna kvikustreymis þykir jarð-
vísindamönnum vera vísbending
um að Suðurlandsskjálfti geti
verið skammt undan. Morgim-
blaðið greinir frá þessu.
Hallalaus fjárlög
Ríkisstjórnin stefnir að gerð
hallalausra fjárlaga á næsta ári.
Til að ná því markmiði þarf að
skera niður heildarútgjöld ráöu-
■ neytanna um rúma fjóra millj-
arða króna. Þetta kemur fram í
frétt Morgunblaösins.
Ferðamenn
vilja sjá frystihús
Erlendir ferðamenn sækjast
mjög eftir því að skoða frystihús
og fiskvinnslustöðvar. Þessi fyr-
irtæki eru hins vegar flest lokuð
hinum áhugasömu ferðamönn-
um, samkvæmt frétt Sjónvarps-
ins. Tómas Ingi Olrich alþingis-
maður vill að hér verði úr bætt.
Selkópurinn braggast
Selkópurinn í húsdýragarð-
inum í Reykjavík fékk aö vera
úti sl. laugardag í fyrsta sinn en
urtan, móðir kópsins, hafhaði
honum og var tvísýnt um líf
hans um tíma. Góðar líkur eru á
að kópurinn komist á legg, að
þvi er kemur fram í frétt Morg-
unblaðsins.
Sophia Hansen
komin til Tyrklands
Sophia Hansen er komin til
Tyrklands til að freista þess að
hitta dætur sínar í samræmi við
nýlegan úrskurð undirréttar.
Samkvæmt úrskurðinum hefur
Sophia umgengnisrétt við dæt-
umar frá og með 1. júlí sl. Úr-
skurðurinn mun nú hafa borist
Halim A1 og í dag ráögast Sophia
við lögmann sinn um hvaða leið
verði farin til að hún fái að hitta
dætur sínar. Sjónvarpið greindi
frá þessu. -SÁ