Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
Afmæli
Hjalti Sigurbjörnsson
Hjalti Sigurbjörnsson, bóndi á
Kiðafelli og rannsóknarmaður hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
er áttræður i dag.
Starfsferill
Hjalti fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann stundaði nám við
Kvöldskóla KFUM 1930-31, við Versl-
unarskóla íslands 1932-33, lauk bú-
fræðiprófi frá Bændaskólanum á
Hvanneyri 1936 og stundaði fram-
haldsnám i Danmörku og Noregi í
hænsnarækt og refarækt 1936-38.
Hjalti var bóndi að Kiðafelli í
Kjós 1938-41 og flutti þá til Reykja-
víkur þar sem hann stundaði versl-
unar- og skrifstofustörf, m.a. á
Skattstofu Reykjavíkur og hjá heild-
verslun Sverris Bernhöft.
Hjalti flutti aftur að Kiðafelli 1950
og hefur búið þar síðan. Þá hefur
hann verið rannsóknarmaður hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
frá 1977.
Hjalti stundaði mikið íþróttir á
Reykjavíkurárum sínum, einkum
skíði og frjálsar íþróttir, auk þess
sem hann sýndi í sýningarflokki ÍR
í fimleikum. Hann hefur verið safn-
aðarfulltrúi Saurbæjarsóknar og
meðhjálpari þar og hefur tekið mik-
inn þátt í sönglífi Kjósverja. Hjalti
er góður smiður og var
um árabil fréttaritari
Morgunblaðsins.
Fjölskylda
Hjalti kvæntist 25.8.
1957 Önnu Einarsdóttur,
f. 4.11. 1921, húsmóður.
Hún er dóttir Einars
Jónssonar, verkstjóra,
ráðsmanns og kennara á
Hvanneyri og síðar á
Akranesi og í Reykjavík,
og k.h., Lisbetar Guð-
bjargar Kristjánsdóttur húsmóður.
Böm Önnu með fyrri manni, Þor-
varði Kjerulf Þorsteinssyni, eru
Einar, verkfræðingur á Reyðarfirði,
og á hann þrjú börn; Sigríður, kaup-
kona í Reykjavík, og á hún tvö böm;
Margrét sem á tvö börn; Guðbjörg
dýralæknir; Þorsteinn búnaðark-
andídat.
Börn Hjalta og Önnu eru Þorkell
Gunnar, f. 30.3.1957, vélvirki og fisk-
kaupmaður, kvæntur Dagbjörtu
Helgadóttur húsmóður og eiga þau
þrjú börn; Sigurbjörn, f. 10.6. 1958,
búfræðingur og bóndi á Kiðafelli,
kvæntur Bergþóru Andrésdóttur og
eiga þau þrjú böm; Kristín, f. 5.4.
1961, húsmóðir, gift Kristni Kristins-
syni og eiga þau tvö börn; Bjöm, f.
4.8. 1963, bókbindari,
kvæntur Ragnhildi Gunn-
arsdóttur húsmóður og
eiga þau tvo syni.
Systkini Hjalta: Kristín
Ninna Nielsen, f. 28.9.
1909, listakona og hús-
freyja í Kaupmannhöfn;
Sólveig, f. 4.3. 1911, hús-
móðir í Keflavík; Þorkell
Gunnar, f. 3.6. 1912, versl-
unarmaður í Reykjavík;
Birna, f. 25.9. 1913, hús-
móðir; Hanna, f. 4.6. 1915,
fyrrv. bókavörður; Helga,
f. 19.11. 1917, bankafulltrúi.
Hálfsystkini Hjalta, samfeðra:
Friðrik, f. 2.9. 1923, nú látinn, lög-
fræðingur og prófstjóri við HÍ;
Ástríður, f. 20.12. 1925, d. 7.4. 1935;
Áslaug, f. 6.9. 1930, hjúkrunarfræð-
ingur; Bjöm, f. 18.11. 1931, dr. phil. í
plöntuerfðafræði, ráðuneytisstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu.
Foreldrar Hjalta voru Sigurbjörn
Þorkelsson, f. 25.8.1885, d. 4.10.1981,
kaupmaður í Reykjavík og síðar for-
stjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, og
f. k. h., Gróa Bjarnadóttir, f. 16.10.
1885, húsmóðir.
Ætt
Sigurbjörn var sonur Þorkels,
vinnumanns og b. að Kiðafelli í
Kjós, Halldórssonar, b. á Borg á
Kjalarnesi, Þorlákssonar, b. í Króki,
Þorkelssonar, á Hofi á Kjalamesi,
Einarssonar. Móðir Þorkels var Sig-
ríður Sigurðardóttir, b. á Lækja-
móti í Víðidal og á Þorkelshóli,
Jónssonar, á Geirastöðum, Jónsson-
ar. Móðir Sigurbjöms var Kristin
Gísladóttir, b. í Eyrar-Útkoti, Guð-
mundssonar, og konu hans, Sesselju
Kortsdóttur, b. á Eyrar-Uppkoti,
bróður Sólveigar í Brautarholti,
langömmu Guðrúnar í Engey, móð-
ur Bjama Benediktssonar forsætis-
ráðherra. Kort var sonur Korts, b. í
Flekku-dal, Þorvarðarsonar, ættfóð-
ur Kortsættarinnar í Kjós.
Gróa var dóttir Bjarna, b. á
Valdastöðum í Kjós, Jakobssonar, b.
þar, Guðlaugssonar. Móðir Bjarna
var Guðbjörg ljósmóðir Guðmunds-
dóttir, b. í Hvammi, Valdastöðum
og á Árvelli á Kjalarnesi, Jónsson-
ar. Móðir Gróu Bjamadóttur var
Solveig Ólafsdóttir, b. í Hliði við
Reykjavík, Magnússonar, b. í
Örfirisey, Ólafssonar. Móðir Sol-
veigar var Helga Þorláksdóttir, b. á
Löngumýri, Skúlasonar.
Hjalti tekur á móti gestum heima
hjá sér eftir kl. 18 í dag.
Hjalti Sigurbjörns-
son.
Jón Helgi Eiðsson
Jón Helgi Eiðsson, starfsmaður
hjá Kassagerð Reykjavikur, Jóru-
felli 6, Reykjavík, er fertugur i dag.
Starfsferill
Jón Helgi fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann var i Breiðagerð-
isskóla, Réttarholtsskóla og stund-
aði nám við Námsflokka Reykjavík-
ur í einn vetur.
Jón Helgi var starfsmaður hjá
Sjóklæðagerðinni 1971-75,
hjá Ofnasmiðjunni
1975-77 og 1979-84, útibús-
stjóri hjá Kaupfélagi Hún-
vetninga. á Skagaströnd
1977-79, hjá Panelofnum
1984-88, hjá Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað
1993-94. Þá var hann bar-
þjónn hjá Hollywood,
Þórskaffi og á Hótel fs-
landi. Hann starfar nú
hjá Kassagerð Reykjavík-
ur við tölvuvinnslu.
Jón Helgi sat í stjórn
Iðjufélags verksmiðjufólks 1986-92.
Fjölskylda
Fyrri kona Jóns Helga var Sig-
urást A. Baldursdóttir, f. 11.3. 1956.
Hún er dóttir Baldurs Jónssonar og
Sigurástar Kristjánsdóttur sem
bæði eru látin.
Börn Jóns Helga og Sigurástar
eru Sigurjón, f. 6.9. 1976, búsettur í
Reykjavík; Inga Þóra, f. 20.11. 1979,
en unnusti hennar er Snorri
Snorrason og eiga þau óskírt barn,
f. 10.6.1996; Bryndís, f. 26.8.1987, bú-
sett í Reykjavík. Fósturdóttir Jóns
Helga og dóttir Sigurástar er Heiða
Björk Þorbergsdóttir, f. 11.3. 1974,
búsett í Reykjavík.
Seinni kona Jóns Helga
er María Kristin Guð-
mundsdóttir, f. 9.4. 1965,
verslunarmaður. Hún er
dóttir Guðmundar Jóns-
sonar, fyrrv. bónda í
Skógum, og Estherar
Kristjánsdóttur, húsmóð-
ur og starfsstúlku Fjórð-
ungSsjúkrahússins í Nes-
kaupstað.
Dóttir Jóns Helga og
Manu Kristínar er Sif, f.
6.1. 1991. Fósturdóttir
Jóns Helga og dóttir Mar-
íu Kristínar er Hrafndís Pálsdóttir,
f. 10.11. 1986.
Systkini Jóns Helga em Hafdís
Bára, f. 12.2. 1943, húsmóðir í
Reykjavík; Hörður, f. 8.5. 1944, sjó-
maður í Reykjavík; Ottó Eiður, f.
19.6. 1946, framkvæmdastjóri í
Kópavogi; Sigríður Björg, f. 10.1.
1948, verslunarmaður í Reykjavik;
Sigurjón, f. 11.5. 1949, verkstjóri í
Kópavogi; Bjami, f. 27.1.1953, sendi-
bílstjóri í Reykjavík; Auður, f. 15.9.
1954, ræstitæknir í Reykjavík; Krist-
inn, f. 23.10. 1957, vagnstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Jóns Helga era Eiður
Ottó Bjarnason, f. 24.3. 1923, d. 25.6.
1982, verkstjóri, og Soffia Sigurjóns-
dóttir, f. 7.9. 1925, húsmóðir í
Reykjavík.
Seinni maður Soffiu er Björn
Berndsen, f. 19.2. 1931, málarameist-
ari í Reykjavík.
Ætt
Eiður var sonur Bjarna, verk-
stjóra í Reykjavík, síðar á Kálfafelli
í Suðursveit, Bjarnasonar, b. í Efri-
Langey í Dölum, Jónssonar, b. þar,
Bjarnasonar, lóðs í Bíldsey. Móðir
Bjarna var Herdís Dagsdóttir, b. í
Litla-Galtardal, Jónssonar. Móðir
Herdísar var Þrúður Sigurðardóttir,
b. á Krossá á Skarðsströnd, Orms-
sonar, ættföður Ormsættarinnar,
Sigurðssonar. Meðal systkina Þrúð-
ar var Þuríður, amma Einars, afa
Guðríðar, ömmu Péturs Guðmunds-
sonar kúluvarpara en systir Guðríð-
ar var Jófríður Ágústa, amma Ös-
surar Skarphéðinssonar alþm. Önn-
ur systir Þrúðar var Ingibjörg,
amma Þorgils, afa Ólafs Gauks, fóð-
ur Önnu Mjallar en Þorgils var
einnig afi Friðjóns Þórðarsonar,
fyrrv. ráðherra. Bróðir Þrúðar var
Guðmundur, afi Jóhönnu Kristínar,
ömmu Agnars, föður Leifs Breið-
íjörð glerlistamanns. -
Móðir Eiðs var Sigríður Ottós-
dóttir, b. í Sigmundarhúsum, Magn-
ússonar. Móðir Sigríðar var Björg
Pétursdóttir, b. að Sigmundsstöð-
um, Þorsteinssonar.
Soffía var dóttir Sigurjóns, verka-
manns í Reykjavík, Jónssonar, út-
vegsb. í Vík á Akranesi, Sigurðsson-
ar, b. i Niðurkoti á Kjalarnesi, Páls-
sonar. Móðir Sigurjóns var Sigríður
Ólafsdóttir, systir Hallsteins, afa
þeirra systra, Hallbjargar og Stein-
unnar Bjamadætra.
Móðir Soffiu var Sólveig' Ólafs-
dóttir, skósmiðs í Reykjavík, Ólafs-
sonar og Þórönnu Jónsdóttur frá
Mörk á Síðu. Móðir Þórönnu var
Sigríður Þórhallsdóttir, systir Guð-
ríðar, langömmu alþm. Jóns Helga-
sonar og Hjörleifs Guttormssonar.
Jón Helgi Eiðsson.
Til hamingju með afmælið 22. aprfl
90 ára
Bjöm Guðmundsson, Varmalandi, Ytri-Torfustaða- hreppi.
85 ára
Guðrún B. Ipsen, Snorrabraut 58, Reykjavík.
80 ára
Jónína Þórðardóttir, Snorrabraut 56, Reykjavik. Begljót Benjamínsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Grímur Samúelsson, Torfnesi, Hlíf 1, ísafirði.
75 ára
Kristinn Möller, Þverbrekku 4, Kópavogi. Kristný Ólafsdóttir, Birkihlíð 11, Vestmannaeyj- um. Ólafia Guðmundsdóttir, Tjamargötu 12, Sandgerði.
70 ára
Sigurður Sveinsson, Þorvaldseyri 1, Austur-Eyja- fiallahreppi. Viðar Þorláksson, Sléttuvegi 17, Reykjavik.
60 ára
Agnes Egilsdóttir, Víðilundi 6, Garðabæ. Karl Einarsson, Vallargötu 21, Sandgerði. Oddur Guðjónsson, Fjarðarbraut 37, Stöðvarfirði. Elias Magnússon, Stekkjarholti 6, Akranesi. Trausti Ragnarsson, Hólsvegi 9b, Eskifirði. Ragna Eyjólfsdóttir, Vesturgötu 25, Akranesi.
50 ára
Jón Ármann Arason, Skipholti 34, Reykjavík. Þórður M. Þórðarson, Háteigsvegi 18, Reykjavík. Hugrún Engilbertsdóttir, Espilundi 19, Akureyri. Ragnhildur Óskarsdóttir, Skólavegi 66a, Fáskrúðsfirði.
40 ára
Bryndís Ingibjörg Bjöms- dóttir, Brekkustíg 3, Bíldudal. Finnbogi R. Alfreðsson, Efstahrauni 24, Grindavík. Hólmfriður Sigurðardóttir', Birkihlið 34, Reykjavik. Inga Jóhannsdóttir, Þinghólsbraut 32, Kópavogi. Sigríður Einarsdóttir, Hjöllum 16, Patreksfirði.
Magnús Helgi Alfreðsson
Magnús Helgi Alfreðsson húsa-
smíðameistari, Austurvegi 7
(Hæstakaupstað), ísafirði, er fertug-
ur í dag.
Starfsferill
Magnús Helgi er fæddur í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hann hætti í
skóla fimmtán ára en hóf nám að
nýju átján ára, lauk prófi úr mál-
miðnaðardeild Iðnskólans í Reykja-
vík 1976, burtfaraprófi úr Iðnskólan-
um á ísafirði 1979, lauk prófi úr
Meistaraskóla byggingarmanna á
ísafirði 1987, auk ýmissa námskeiða
tengdum húsasmíði.
Magnús Helgi var vinnumaður á
Geldingalæk í Rangárvallasýslu
1972, vann með skóla í Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi 1973-78,
hjá ýmsum byggingarverktökum á
ísafirði frá 1978, við Skipasmíðastöð
Marsellíusar á ísafirði í átta ár en
starfar nú sjálfstætt við húsasmíð-
ar, auk þess að sinna viögerðum og
nýsmíði báta og skipa, með aðstöðu
í Neðstakaupstað (Suðurtanga) á
ísafirði.
Fjölskylda
Magnús Helgi kvæntist 10.2. 1979
Áslaugu Jóhönnu Jensdóttur, f. 26.6.
1958, sem rekur Gistiheimili Áslaug-
ar á ísafirði. Foreldrar hennar eru
Helga Þuríður Marsellíusdóttir,
húsmóðir á ísafirði, og Jens Gunnar
Péturssonar, starfsmaður Nes-
kaupsstaðar á Norðfirði. Áslaug Jó-
hanna ólst upp. með móður sinni hjá
afa sínum og ömmu, Marsellíusi
Bernharðssyni, skipasmið á ísa-
firði, og Albertu Albertsdóttur konu
hans.
Börn Magnúsar Helga og Áslaug-
ar Jóhönnu er Helga Þuríður f. 14.7.
1979, nemi i Framhaldsskóla Vest-
fiarða; Rakel Guðbjörg f. 9.5. 1982,
nemi í Grunnskóla ísafiarðar.
Hálfsystkini Magnúsar Helga,
sammæðra, era Helga Bergljót f.
16.9. 1942, búsett I Keflavík; Reynir
f. 14.6.. 1945, matreiðslumaður í
Keflavík; Grétar Örn f. 17.4. 1949,
verkstjóri í Reykjavík; Ragnar Geir,
f. 18.8. 1951, búsettur í Reykjavík;
Erla f. 25.8. 1953, húsmóðir, Njarð-
vík.
Alsystkin Magnúsar Helga eru
Þuríður Linda f. 17.2. 1959, húsmóð-
ir á Patreksfirði; Helena Katrín, f.
30.11. 1960, húsmóðir í Njarðvík; Al-
freð, f. 10.2. 1962, d. 11.7.1962; Alfreð
Emil f. 24.3. 1963, húsasmiður í
Kópavogi; Ásta Berglind f. 31.3 1968,
húsmóðir í Reykjavík.
Hálfsystir Magnúsar Helga, sam-
feðra, er Halldóra Kolbrún Ólafs-
dóttir f. 28.3. 1953, leirlistakona í
Hauganesi.
Foreldrar Magnúsar Helga er Al-
freð Ólafur Oddsson, f. 1.6. 1927, d.
14.5. 1968, og Rakel Guðbjörg Magn-
úsdóttir, f. 17.8. 1925, húsmóðir í
Reykjavík.
m
uVÁ>ib /llr
fl Stora sviöi Borgarleikhussins
UPPSELT
2. syning sun. 14. juli kl.20 omasæn
3. sýníng llm. 18.júlí kl.20 oriasæn
4. sýning__fbs. 19. júlí kl.20 onasæn
5. sýning lau. 20.júlí kl.20
Námu-ogGengislélagarfa 15% | |:ikpiu AP.
afslatt a fyrstu 15 syningarnar. WIÉwAiéAj
Fonsala aðgöngumiöa er hafin • Miðapantanir í síma 568 8000