Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Page 36
> FRÉTTASKOTIÐ
GC /—J L-U SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
<c cyr> 1— LT3 1— * Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ1996
Tvö sjúkra-
flug sömu
nóttina
Þyrla landhelgisgæslunnar hafði
. L*. nóg að gera í fyrrinótt þegar hún
flaug tvö sjúkraflug.
Það fyrra var vegna bamshaf-
andi konu sem veikst hafði illa í
Landamannalaugum. Hún mun
hafa fengið slæmar bæðingar og
var hún talin i mikilli hættu. Hún
var flutt á Landspítalann og að
sögn lækna þar var hún ekki í al-
varlegri hættu í gær og líðan henn-
ar eftir atvikum.
Þá flaug þyrlan skömmu siðar að
Saurbæ 1 Dölum en þar var ungur
maður hætt kominn vegna of-
neyslu lyfja. Hann var einnig flutt-
ur á Landspítalann og var á bata-
vegi í gærkvöld. -RR
Tveir slösuðust
illa í Þórsmörk
- Tveir menn slösuðust illa í
Þórsmörk um helgina. Annar
mannanna fékk slæma höfuðá-
verka í fyrrinótt og sagði við
lækni í Þórsmörk að nokkrir
menn hefðu ráðist á sig og spark-
að í höfuö sér.
Síðar í samtali við lögreglu var
maðurinn ekki viss hvað hefði
komið fyrir sig og sagðist líklega
hafa dottið illa. Maðurinn var
mjög ölvaður og einn á ferð. Hann
var fluttur með sjúkrabíl til
Reykjavíkur. Aö sögn lækna á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur var mað-
urinn kinnbeinsbrotinn og með
heilahristing. Hann var hafður á
spítalanum til eftirlits en var sagð-
ur á batavegi í gærkvöldi.
Annar maður slasaðist í gær-
morgun þegar hann fótbrotnaði illa
og var hann einnig fluttur með
sjúki-abO til Reykjavikur. Hann
mun hafa verið á göngu þegar
hann hrasaði í gjótu, að sögn lög-
reglu á Hvolsvelli. Ung stúlka kom
að honum þar sem hann lá hjálpar-
þurfi en hann var talsvert ölvaður.
Hann var í aðgerð í gær á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur en mun vera á
góðum batavegi að sögn lækna.
Engin önnur stórvægileg óhöpp
urðu en einhverjir leituðu læknis-
aðstoðar í Þórsmörk út af minni
háttar meiðslum þar. Lögreglan á
Hvolsvelli og starfsfólk í Þórsmörk
sögðu helgina annars hafa verið
með rólegasta móti. Um 2 þúsund
manns voru í Þórsmörk um helg-
ina og var það mun færra en búist
hafði verið við fyrirfram. Nokkur
ölvun var á fólki en minni en oft-
ast áður eins og starfsfólk þar
komst að orði. -RR
Veðrið lék við afmælisgesti þegar haldið var upp á 50 ára afmæli Hveragerð-
is um helgina, 20 stiga hiti var, logn og sólskin. Frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, heiðraði Hvergerðinga með nærveru sinni. Hér tekur hún
þátt í að þvo þvott upp á gamla móðinn á hverasvæðinu en þar höfðu kon-
ur úr leikfélaginu komið upp aðstöðu til þess. DV-mynd Sigrún Lovísa
EES-málið og forseti íslands:
Ég hugleiddi
mjög aö segja
af mér
- segir Vigdís Finnbogadóttir
Forseti Islands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, sagði í viðtali við Sjón-
varpið í gærkvöldi að hún hefði tek-
ið EES-málið mjög nærri sér og
íhugað alvarlega að segja af sér þeg-
ar umræða um það var hvað heit-
ust. Hún segist hafa verið lengi að
jafna sig eftir EES-málið og fundið
að hún hafi valdið ýmsum sem
henni þykir vænt um vonbrigðuih
með því að taka þá afstöðu að neita
ekki að skrifa undir lögin um EES.
„Hér hefði orðið mjög, mjög erfitt
ástand sem hefði endað með afsögn-
um hér og þar. Ég hugleiddi mjög
mikið á þessu tímabili að segja af
mér en mér fannst það ekki sýna
þann styrk sem ég raunverulega á
inni í mér. Ég átti að geta horfst í
augu við þetta, að gera þetta svona,
og ég hef gert það,“ sagði forsetinn.
Hún sagðist mjög hafa hugsað um
æsku landsins í tengslum við EES-
málið og meðal annars að hefðum
við ekki samþykkt EES-samninginn
þá hefðum við getað útilokað okkur
frá háskólastofnunum, vísinda- og
lærdómsstofnunum og öðrum stofn-
unum sem byggja upp framtíð ís-
lenskrar æsku. Þessi hugsun hefði
hjálpað sér í að taka þá ákvörðun
sem hún tók, að undirrita lögin.
„Það er mjög erfitt að horfast í
augu við það þegar mikill fjöldi
beinir orðum sínum til manns og
óskar eftir því að maður beiti sér í
málinu," sagði forsetinn.
-SÁ
Brotist inn í Þjóðveldisbæinn
Brotist var inn í Þjóðveldisbæinn
í Þjórsárdal í fyrrinótt og stolið það-
an 50 þúsund krónum úr peninga-
kassa bæjarins.
Starfsmaður Þjóðveldisbæjarins
hafði gleymt peningakassanum inni
um nóttina en hann tekur hann
allajafna með sér að vinnudegi lokn-
um. I honum var geymdur aðgangs-
eyrir að bænum.
Engar skemmdir voru unnar á
staðnum að sögn lögreglu en málið
er í rannsókn.
-RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Rigning
vestanlands
en bjartviðri
austanlands
Á morgun er húist við suð-
lægri átt, golu eða kalda. Rigning
verður vestanlands en bjartviðri
austanlands. Hiti verður á bilinu
10 til 17 stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
Ertu búinn að panta?
dagar
til Þjóðhátíðar
FLUGLEIDIR
Innanlandssími 50 - 50 - 200
—--------------------------
1
þrQstur
SENDIBILASTÖC
r
533 -1000,