Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
Utlönd
DV
Morðingi
tekinn af lífi
Fred Komahren, sera myrti
fyrrverandi konu sína, föður
hennar og 10 ára stjúpson, var
tekinn af lífi með eitursprautu
í Suður- Karðlínu í morgun.
Kornahern var 47 ára gam-
all og hann var dæmdur til
dauða árið 1985. Hann hafði
skotið konuna sína fyrrver-
andi í brjóstið á heimili henn-
ar og elti hana svo uppi er hún
reyndi að flýja til föður síns
sem bjó í næsta húsi. Þegar
þangað var komið stakk hann
föðurinn í brjóstið, elti kon-
una út aftur og stakk hana til
bana. Stjúpsonur hennar
fannst einnig látinn af
stungusárum.
„Ég gaf allt í hjónabandið.
Fjölskyldan var mér allt. Þeg-
ar draumar mínir og framtíð
með fjölskyldunni b'rotnuðu
þá missti ég alla stefnu í líf-
inu,“ sagði Kornahrens áður
en hann var tekinn af lífi.
Beiðni hans um frestun á af-
tökunni var hafnað í gær-
kvöldi.
Flugslysiö við Long Island:
Sprengjuhotun barst
Stór hópur sérfræðinga reynir nú
að komast að orsök þess að TWA
flug 800 sprakk i tætlur og brotlenti
rétt hjá New York í fyrrinótt. Ekk-
ert hefur enn komið fram sem bend-
ir til þess að um hryðjuverk hafl
verið að ræða en margir telja að svo
sé.
Sú skoðun fékk byr undir báða
vængi í gærkvöldi þegar það fréttist
að sprengjuhótun hefði borist arab-
ísku fréttablaði á miðvikudaginn
frá sömu hryðjuverkasamtökum og
lýstu yfir ábyrgð á sprengjunni sem
varð fimm Bandaríkjamönnum að
bana í Sádi-Arabíu i nóvember. í
bréfinu var því lýst yfir að ráðist
yrði fljótlega á bandarískt skot-
mark. Þrátt fyrir þetta hefur Banda-
ríkjastjórn varað almenning við því
að hrapa að ályktunum:
„Við erum að rannsaka málið.
Við getum ekki sagt á þessari
stundu hver var orsökin," sagði Jim
Kallstorm, yfirmaður í bandarísku
Vinningaskrá
12. útdrátfur 18. júlí 1996
Bifreiðavinningur
Kr. 2.000.000
20625 1
Ferðavinningar Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
10235 15033 18021 41537 |
Ferðavinningar Kr. 50.000 Kr. 100.0 00 (tvöfaldur)
2833 11062 21743 32249 53308 61537
6680 16802 25786 40467 56850 62516
Húsbúnaðarvinnin Kr. ÍOÍOOO Kr. 20.C gar 100 (tvöfaldur
340 9844 18271 27013 37903 49043 56592 70132
977 9932 18656 28193 38304 49256 57699 70175
1890 10129 18742 28555 38761 49626 58443 70864
3178 10203 18834 28856 40186 49950 58566 72548
3894 10615 19473 28992 40556 50140 58853 72573
4051 10793 20115 29094 41312 50439 59532 72679
4836 10933 20525 29709 41642 51754 59828 73549
5109 10952 20622 30589 42039 51826 60129 74047
5138 11473 21018 30765 42109 52309 60482 74331
5811 11741 21347 31146 42160 52416 60514 74382
6196 11809 21421 31502 42209 52546 60702 74661
7107 12851 21518 31509 42478 52729 61526 75080
7205 12980 21543 31603 42609 52863 61569 75154
7378 13053 21572 31621 42781 53304 63622 75159
7910 13189 22391 31899 43931 53521 64028 75188
7973 13377 22398 31900 44593 53946 64425 75481
8127 13503 22789 32015 44594 54094 64617 75490
8201 13813 23153 32132 44680 54147 65195 75963
8564 14407 23518 33323 44806 54236 66340 76245
8631 14446 23615 33708 45282 54527 66740 76779
8659 14547 23643 34002 45718 54761 66883 76990
8879 14671 23851 34555 45748 54835 67653 77367
8942 15080 24647 34664 45952 55022 67973 77541
9025 15233 24771 34740 46773 55517 68645 78072
9081 15388 24995 35340 47095 55759 68684 78839
9426 15653 25051 36640 47204 56054 68729 79505
9506 15890 26403 37143 47515 56209 68833 79809
9642 16017 26664 37236 48320 56435 69361 79923
9718 16872 26760 37329 48494 56446 69369
9792 17633 26869 37333 48748 56575 69618
Heimasiöa á Interneti: http//www.itn.is/das/
Alríkislögreglunni.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, tók í sama streng:
„Bíðum þangað til við vitum stað-
reyndir málsins," sagði forsetinn í
sjónvarpsávarpi í gær.
Ýmsar kenningar hafa verið I
gangi um orsök slyssins og í gær
útilokaði Mike McCurry, talsmaður
Hvíta hússins, algjörlega að flugvél-
in hefði verið skotin niður með lít-
illi loftvamabyssu en bandaríska
sjónvarpsstöðin ABC hélt því fram
að það væri helsta kenning rann-
sóknarmanna.
í morgun var svo hópur kafara að
búa sig undir að leita I hafdjúpun-
um að vísbendingum um orsök
slyssins.
Tvo hundruð og þrjátíu manns
voru um borð í vélinni, þar af átján
í áhöfn. Meðal þeirra sem létust
voru sextán framhaldsskólanemar á
leið í málaskóla í Frakklandi.
Hér má sjá nemendur frá menntaskólanum í Montoursville bíöa eftir minningarathöfn um sextán félaga sína er fór-
ust í flugslysinu í Bandaríkjunum í fyrrinótt.
San Suu Kyi viö
leiði föður síns
Stuttar fréttir
Stjórnin 1 Burma ásakaði í morg-
un leiðtoga lýðræðisaflanna í land-
inu, nóbelsverðlaunahafann Aung
San Suu Kyi, um að skaða landið
með því að reyna að fá vestrænar
þjóðir til að beita Burma efnahags-
þvingunum. í viðtali nýlega sagði
hún að hún væri hlynnt efnahags-
þvingunum erlendra ríkja til þess
að þrýsta á stjórnvöld í Burma að
breyta stjórnmála- og mannréttinda-
ástandinu í landinu. Kyi hefur hvað
eftir annað lýst því yfir að efnahags-
þvinganir myndu aðeins koma sér
illa fyrir stjórnina en ekki almenn-
ing þar sem herinn væri sá eini sem
græddi á erlendum fjárfestingum.
Stjórnvöld hafa lýst því yfir að að-
gerðir Kyi muni skaða almenna
borgara í Burma.
„Hún vill að meðborgarar hennar
þjáist en ætti heldur að vera að
reyna að fá útlendinga til að stunda
viðskipti hérna,“ sagði í leiðara
blaðs stjórnarinnar.
Mörg erlend fyrirtæki, svo sem
Carlsberg og Pepsi, hafa hætt við að
fjárfesta i Burma nýlega vegna
hættu á efnahagsþvingunum.
San Suu Kyi er dóttir þjóðhetj-
unnar Aung San hershöfðingja en
hann var einn af níu mönnum sem
Hér má sjá nóbelsverðlaunahafann
Aung San Suu Kyi, forystukonu
stjórnarandstööunnar í Burma, við
leiöi föður síns, þjóðhetjunnar Aung
San hershöföingja.
voru myrtir í sjálfstæðibaráttu
Burma þann 19. júlí árið 1947. Eftir
sjálfstæði Burma er þessi dagur
haldinn hátíðlegur á hverju ári og í
gær fór San Suu Kyi með blómvönd
að leiði föður síns og félaga hans.
Kuy, sem er fimmtíu og eins árs
gömul, var búin að vera fangi á
heimili sínu í sex ár þegar henni
var sleppt í júlí á seinasta ári. Hún
fékk Friðarverðlaun Nóbels árið
1991 fyrir baráttu sína gegn mann-
réttindabrotum stjómvalda í
Burma.
Karadzic lætur af
öllum embættum
Leiðtogi Bosníuserba, Radovan
Karadzic, lét í morgun af öllum op-
inberum embættum, að því er
sendimaður Bandaríkjamanna, Ric-
hard Holbrooke, greindi frá. Hol-
brooke skýrði frá þessu í sjónvarps-
fréttum eftir tíu klukkustunda við-
ræður við Slobodan Milosevic, for-
seta Serbíu, í Belgrad.
Bandarísk yfirvöld sendu Holbro-
oke, höfund Dayoton friðarsam-
komulagsins, til Balkanskaga í þess-
ari viku til þess að reyna að koma
Radovan Karadzic, leiðtoga Bosní-
userba, frá völdum.
Aður en Holbrooke flaug til
Belgrad sagði hann við fréttamenn í
Sarajevo að hann væri fús til þess
að banna flokki Karadzics þátttöku
í kosningunum ef hann færi ekki
frá völdum.
Sumir töldu hættu á að kosning-
arnar teldust ekki löglegar yrði
áhrifamesti flokkur Serba útilokað-
ur frá þátttöku.
Bosníuserbar hafa hótað að drepa
eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna
ef leiðtogi þeirra, Karadzic, sem er
eftirlýstur stríðsglæpamaður, verð-
ur handtekinn. Reuter
700 farast í flóðum
Rúmlega 700 manns hafa farist
í flóðum í suður- og miðhéruðum
Kína undanfarna daga.
Jeltsín gegn spillingu
Borís Jeltsín
Rússlandsfor-
seti skipaði í
gær nýjum
varnarmála-
ráðherra, Igor
Rodionov, að
uppræta spill-
ingu meðal
liðsforingja.
Bjartsýnn á sameiningu
Jimmy Carter, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, segir að aukin
samskipti N-Kóreu við önnur lönd
veki vonir um sameiningu N- og
S-Kóreu.
Létust í eldflaugaárás
Að minnsta kosti 18 manns létu
lífiö í eldflaugaárás skæruliða á
Kabul, höfuðborg Afghanistan, í
gær.
Náðar konur
Ezer Weizman, forseti ísraels,
hefur ákveðið að náða tvær
palestínskar konur sem hann
hafði áður neitað að láta lausar
þar sem „þær hefðu ísraelskt blóð
á höndum sér“.
Netanyahu óvinsæll
55 prósent
ísraela eru óá-
nægð með
Benjamin - Net-
anyahu forsæt-
isráðherra
samkvæmt nið-
urstöðum skoð-
anakönnunar
sem birt var í
morgun. 23 prósent eru ánægð
með forsætisráðherrann og 22
prósent óákveðin.
Reyna að semja
Bresk og írsk yfirvöld hafa heit-
ið því að reyna að koma friöarvið-
ræðum af stað á ný.
Reuter