Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Side 24
36
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
Er R-listinn að fjarlægjast fólkið
sem kaus hann?
Ekkert flokks-
hestaframboð
„Það gengur ekki í næstu
kosningum að bjóða upp á annað
flokkshestaframboð eins og síð-
ast.“
Ásgeir Hannes Eiríksson í Tím-
anum.
Búinn að fá mig
fullsaddan
„Ég er búinn að fá mig
fullsaddan af tali um atvinnu-
uppbyggingu á landsbyggðinni á
kostnað Reykjavíkur."
Guðmundur Hallvarðsson í DV.
Ummæli
Snillingar við erum
„Við fáum ákveðna X upphæð
og svo bætist ofan á það ef plöt-
urnar seljast og dæmið gengur
upp. Sem hlýtur að gerast miðað
við þá snillinga sem við erum.“
Gunnar L. Hjálmarsson, í
hljómsveitinni Unun, í Alþýðu-
blaðinu.
Dal og Dali
Hann merkir myndirnar sínar
Dal og er því annar maður á eft-
ir Dali.“
Indriði G. Þorsteinsson, um
Gunnar Dal, í Tímanum.
Volg sturta
„Af og til opnast himnarnir og
við fáum örstutta og volga
sturtu."
Þórhalla Snæþórsdóttir, um
hitabylgjuna á Egilsstöðum, í
Tímanum.
Ólympíueldurinn tendraður í Ólympíu.
Ólympíuleik-
arnir til forna
Skráð saga ólympiuleikanna til
foma hefst árið 776 fyrir Krist. í
fyrstu voru Spartverjar sigurvegar-
ar í flestum greinum en eftir því
sem leikarnir efldust dreifðust sig-
urvegarar á fleiri þjóðir. Vegur
ólympíuleikanna óx jafnt og þétt og
sigurvegarar á leikunum hlutu
meiri vegsemd. Glæsilegar bygg-
ingar voru reistar í Ólympíu og
bestu listamenn kepptust við að
skreyta hana með listaverkum sín-
um. Á tímum Persastríðanna á ár-
unum 550-440 f.Kr. efldust þeir enn
frekar því leikarnir efldu sam-
heldni og þjóðarmetnað Grikkja.
Glæsilegustu leikarnir voru haldn-
ir 476 f.Kr. þegar Þemistókles, sem
leitt hafði Grikki til sigurs í stór-
orrustu, var hylltur
Blessuð veröldin
Hnignunin hefst
Grikkir höfðu borið gæfu til að
standa saman á örlagastundu en
jafnskjótt og mesta hættan var lið-
in hjá var samhugnum lokið og
hnignun ólympíuleikanna hefst í
Pelopsskagastríðinu sem stóð í 27
ár og lagði landið næstum í rúst.
Vegna stríðsins sóttu æ færri leik-
ana. Þeim var þó haldið áfram en
misstu ljóma sinn.
Súld eða rigning
Á Grænlandssundi er smálægð
sem þokast norðnorðaustur og önn-
ur heldur dýpri og víðáttumeiri
skammt suðvestur af landinu,
einnig á norðnorðausturleið.
Veðrið í dag
í dag verður sunnan- og suðaust-
ankaldi eða stinningskaldi og súld
eða rigning um mestallt land en
hæg suðvestan- og vestanátt í nótt
og fyrramálið. Smáskúrir sunnan-
og vestanlands en annars staðar að
mestu þurrt. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast
austantil á landinu.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnangola eða kaldi og súld eða
rigning í fyrstu en vestangola og
smáskúrir síðdegis. Að mestu þurrt
í nótt og í fyrramálið. Hiti 9 til 14
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.12
Sólarupprás á morgun: 3.57
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.45
Árdegisflóð á morgun: 09.07
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri rigning 10
Akurnes þoka 10
Bergsstaöir rigning 9
Bolungarvík rign. á síð.kls. 9
Egilsstaðir skýjaö 14
Keflavíkurflugv. þokumóöa 9
Kirkjubkl. alskýjaö 10
Raufarhöfn rigning 12
Reykjavík rign. á síö.kls. 9
Stórhöföi rigning 8
Helsinki skýjaö 13
Kaupmannah. léttskýjaö 14
Ósló léttskýjaö 11
Stokkhólmur léttskýjaö 14
Þórshöfn skýjað 11
Amsterdam skýjaö 13
Barcelona léttskýjaö 21
Chicago léttskýjaó 28
Frankfurt léttskýjaö 13
Glasgow mistur 13
Hamborg léttskýjaö 11
London skýjaö 14
Los Angeles þokumóöa 17
Lúxemborg léttskýjaö 12
Madrid léttskýjaó 22
Mallorca þokumóöa 20
París skýjaö 15
Róm þokuruónigur 21
Valencia léttkýjaö 21
New York alskýjaö 24
Nuuk þoka 4
Vín skýjaö 13
Washington rign. á síö.kls. 23
Winnipeg léttskýjað 18
Haukur Tómasson tónskáld:
Ég er óttalegt fagidjót
Það var tilkynnt um síðustu
helgi að Haukur Tómasson tón-
skáld fengi bjartsýnisverðlaun
Brostes í Danmörku að þessu
sinni og bætist hann því í hóp
fimmtán íslenskra listamanna sem
þegið hafa verðlaun þessi, en þau
eru að upphæð 50 þúsund danskar.
Verðlaunin verða afhent í Kaup-
mannahöfn næstkomandi mið-
vikudag. Haukur þarf ekki að fara
langt til að nálgast verðlaunin því
hann er staddur úti í Kaupmanna-
höfn þar sem hann hefur verið við
uppsetningu á leikverki sem hann
hefur samið tónlist við og er sýnt
Maður dagsins
í tengslum við það að Kaupmanna-
höfn er menningarborg Evrópu í
ár.
Haukur sagði í stuttu spjalli að
hann væri ákaflega ánægður með
þessa viðurkenningu: „Ég fer í
hóp mætra íslendinga og þykir
ákaflega vænt um að vera kominn
í þennan hóp. Hér í Kaupmanna-
höfn er ég búinn að vera í um það
bil tvo mánuði, en verið er að setja
Haukur Tómasson.
upp mikið verk sem er sambland
af leikverki og óperu og samdi ég
tónlistina. Þetta er eins og hálfs
tíma verk fyrir sex leikara, sex
söngvara, sextíu statista og fimmt-
án manna hljómsveit. Ég hef verið
að vinna við að semja tónlistina
síðastliðin tvö ár. Verkið verður
sýnt í skipakví undir beru lofti og
er leikmyndin skipakvíin sjálf, en
búið er að gera áhorfendapalla.
Það er að mörgu að huga, það þarf
að magna tónlistina upp til að ná
upp hljómburðinum og svo er lýs-
ingin mikið tækniverk. Áætlað er
að sýna verkið sex sinnum í viku
í þrjár vikur og er fyrsta sýningin
í lok næstu viku.“
í fyrra var Haukur tilnefndur til
Tónlistarverðlauna Norðurlanda-
ráðs: „Það var fyrir kammerhljóm-
sveitarverkið Spírall, sem kom út
á geislaplötu frá Tónverkamið-
stöðinni."
Haukur sagði að hann væri ekki
alveg ákveðinn í hvað tæki við
þegar þessu lyki í Kaupmanna-
höfn: „Ég reikna með að geta sinnt
áfram tónlistarsköpuninni ein-
göngu, eins og ég hef gert síðastlið-
inn tvö ár, og líklegast er að ég
fari að semja flautukonsert. Þá er
maður að vona að hægt verði að
setja upp verkið sem ég nú vinn að
í Reykjavík, alla vega einhverja
útfærslu á því.“
Þegar Haukur var spurður um
áhugamál fyrir utan tónlistana
sagði hann þau ekki vera mörg:
„Ég er óttalegt fagidjót, en ég hef
einnig áhuga á mat.“ -HK
Myndgátan
Vasapeningar
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
DV
Breiöablik og Valur leika saman í
kvöld. Myndin er frá viöureign
liöanna í vor.
Fjórir leikir í
1. deild kvenna
í kvöld fer fram áttunda um-
ferð i 1. deild kvenna í fótbolta.
Breiðabliksstúlkur hafa tekið af-
gerandi forustu og verða ekki
auðsigraðar og því síður á
heimavelli í Kópavoginum, en
þær eiga heimaleik á móti Val í
kvöld. Á Akranesi leika ÍA og
ÍBV, á Akureyri ÍBA og Aftur-
elding og í Garðabæ fer fram við-
ureign Stjömunnar og KR. Ailir
leikimir hefjast kl. 20.
íþróttir
Tveir leikir eru í þriðju deild í
kvöld, á Dalvík leika heima-
menn við Ægi og á Egilsstaða-
velli leika Höttur og Víðir. Leik-
irnir hefjast kl. 20.
Nú fer fram á Hólmsvelli, Lei-
runni, Norðurlandamót unglinga
í golfi og er spennan í hámarki.
Þetta er bæði sveita- og einstak-
lingskeppni. í gær voru leiknar
tvær umferðir eða 36 holur, en í
dag er aðeins leikin ein umferð
og verða úrslit kunn í kvöld.
Veðrið hefur ekki verið sem best
til að iðka golf og kemur það ís-
lensku keppendunum til góða
sem vön em að leika við þessar
aðstæður.
Bridge
Fjölmörgum leikjum er nú lokið í
annarri umferð Bikarkeppni BSÍ
enda rennur fresturinn til að spila
leiki í þeirri umferð út þann 21. júlí.
Nokkrar sterkar sveitar hafa þegar
þurft að sætta sig við að vera slegn-
ar út. Sveit +Film tapaði fyrir
Eurocard 68-116, sveit Suðurlands
tapaði fyrir VÍB 88-30, sveit Granda
hf. tapaði fyrir Sigmundi Stefáns-
syni 66-110 og sveit Rúnars Einars-
sonar fyrir Stefaníu Skarphéðins-
dóttur 97-106. í leik sveita Eurocards
og +Film, sem spilaður var sl. mið-
vikudagskvöld, voru það slemmum-
ar sem voru örlagavaldarnir. Spilin
í þeim leik vom forgefin og venju
fremur villt. Eigi færri en 8 slemm-
ur var hægt að standa í leik liðanna,
þar af þrjár alslemmur í 40 spilum.
Ein alslemman var sögð á báðum
borðum (7 grönd). Sveit Eurocards
spilaði í einu spilinu 6 tígla á með-
an sveit +Film reyndi við sjö. Sú
alslemma gat staðið en sagnhafi
4 1065
' «4 D63
* 954
* G543
4 KG842
*4 1097
♦ Á62
* Á10
4 973
«4 G82
4 G73
* D976
váldi einu spilafæru leiðina til að
fara niður. Þriðja alslemman var
þessi:
Sveit +Film lét sér nægja að segja
6 grönd á spilið en sveit Eurocard
fór alla leið í sjö grönd. Báðir sagn-
hafanna fengu 13 slagi, spilararnir i
sveit Eurocards fengu þrettánda
slaginn með því að toppa tígulinn
og fella gosann. Sveitin græddi því
13 impa á spilinu í stað þess að tapa
17 impum ef alslemman fer niður. í
hinu alslemmuspilinu græddi
Eurocard 16 impa í stað þess að tapa
13 impum ef 7 tíglar hefði staðið.
Sveifla upp á 59 impa.
ísak Öm Sigurðsson